Dagblaðið - 16.09.1978, Page 7

Dagblaðið - 16.09.1978, Page 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1978. 7 Ath. Næsta sending hækkar um 280 þúsund Notiðþettaeinstakatækifæri GSY§rahIUtjr Reykjavík 36510 „Játa að ég er ekki kirkjurækinn” farir, eins og sjá má hjá Rannsóknar- lögreglu ríkisins. Með nýju húsnæði hafa verið teknar upp fullkomnari rannsóknaraðferðir sem flýta munu meðferð mála. Ný lög um gjaldþrot taka gildi um næstu áramót og fyrir liggja mörg frumvörp sem samin hafa verið í nefndum og er þeim öllum ætlað að flýta meðferð mála. Meðferð ýmissa mála, til dæmis þeirra sem köll- uð eru einkamál, hefur stöðugt lengzt bæði fyrir héraðsdómi og hæstarétti. Það er mjög áríðandi að meðferð þess- ara mála verði flýtt með einhverju móti. Til dæmis með því að taka upp eitt dómsstig enn. Fyrirrennari minn lagði fyrir síðasta þing frumvarp um Lögréttu. Það frumvarp er mjög um- deilt, sérlega vegna þess að þá er máls- meðferð færð frá ýmsum landshlutum til Reykjavíkur. Þykir mörgum sem þetta sé andstætt byggðastefnunni. En með Lögréttu einfaldast málsmeðferð því þá hafa ekki öll mál rétt á meðferð í Hæstarétti. Þannig er málum háttað víða erlendis. Einnig kemur til greina að fjölga verulega við Hæstarétt. En mér er til efs að rétt sé að öll mál fari fyrir Hæstarétt. En þó að við reynum að flýta með- ferð mála má ekki flýta henni svo að öllu réttlæti sé ekki fullnægt. Menn verða að hafa möguleika á að verja sig og að fá frest, því betra er að 10 sekir menn gangi lausir en að einn saklaus sitji inni.” Verkfræðin gæti komið góðu til leiðar „Ég veit að mörgum finnst dá- litið skrítið að dómsmálaráðherra skuli ekki vera löglærður maöur. En ég er alinn upp í lögfræðilegum anda og mun kalla til ráðuneytis við mig fær- ustu menn á hverju sviði. Ég held líka að það geti verið nokkuð gott að hafa verkfræðimenntun við vinnu á þessu sviði. Hún gæti komið nútimalegum vinnubrögðum á. Þegar Rannsóknar- lögreglan var skipulögð var það gert með tæknina í huga og held ég að það hafi verið til góðs. Ég hef talað við for- ystumenn dómskerfisins og þeir eru allir mjög viljugir að vinna með mér svo égkvíðiengu.” Biskupinn æðsti maður kirkjunnar „Ég hef alltaf litið á biskupinn sem æðsta mann kirkjunnar. Þó að ég eigi að sjá um hina veraldlegu hluti er hann andlegur leiðtogi. Ég hef haft fund með honum og hann hefur mik- inn áhuga á að starfa með mér. Ég hef séð til dæmis hér í Garðabæ að kirkja getur komið mjög góðum hlutum til leiðar, til dæmis með tómstunda- og æskulýðsstarfi. Ég er kristinn sjálfur og ólst upp á heimili þar sem trúrækni var mikil. En ég játa að ég er ekki kirkjurækinn.” Ætla að reyna að halda í þessar fáu tómstundir Steingrímur og Guðlaug Edda Guð- mundsdóttir kona hans búa ásamt þremur bömum sínum á Arnamesi. Húsið sem þau búa í hefur Steingrím- ur smíðað að miklu leyti sjálfur og Edda hefur séð um að fegra umhverfið með blómum. Steingrímur á 3 börn frá fyrra hjónabandi sem öll dvelja i Bandarikjunum. Þrátt fyrir ráðherra- dóminn sagðist Steingrimur ætla að reyna að halda í þær fáu tómstundir sem hann hefur haft. Hann sagðist vera mikið fyrir útilíf og íþróttir, auk þess sem hann smíðar í tómstundum. En skrifstofan í kjallaranum tekur æ meira af tímanum og Edda og bömin sjá æ minna af Steingrími. En hann ságðist vera að losa sig út úr þeim störfum öðrum sem hann hefur gegnt fyrir utan þingmennskuna og þá rýmkartíminnkannskiörlitið. - DS , — segir Steingrímur Hermannsson kirkjumálaráðherra „Fyrirrennarar mínir skildu báðir mjög vel við þannig að ég þarf ekki að byrja á að rusla neitt til,” sagði Stein- grimur Hermannsson ráðherra dóms- mála, kirkjumála og landbúnaðar- mála. „Ráöuneytin sem ég tek við ^ru talsvert ólík. I landbúnaðarráðuneyt- inu snúast málin um kjör einnar stétt- ar en aftur í dóms- og kirkjumálaráðu- neytinu eru engin kjaramál til um- ræðu nema þá fyrir þjóðfélagið i heild.” Samræma hugmyndir í heilsteypta stefnu „Í landbúnaðarmálum er mikilvæg- ast að samræma allar þær hugmyndir sem fram hafa komið i eina heilsteypta stefnu. Við þurfum að reyna að tak- marka framleiðslu bænda sem mest við okkar þarfir eingöngu en um leið að gera hana fjölbreyttari. Seint verður komizt hjá einhverjum útflutn- ingi en ég tel að honum verði að halda í lágmarki. Landbúnaður er veigamik- ill þáttur í byggðastefnu, án hans legðist byggð í sveitum að einhverju leyti niður. Ég er alls ekki þeirrar skoð- unar að byggja beri hverja krummavík en við verðum að hafa áfram jafnvægi í byggðinni. Á síðasta stéttarsambandsþingi voru kynntar ýmsar tillögur sem ætlað er að minnka framleiðslu en gera hana fjölbreyttari. Meðal annars þarf að endurskoða niðurgreiðslurnar og taka upp kvótakerfi. Mundi það jafna hag bænda. Einnig þarf að koma á beinum samningum bænda við ríkisvaldið og þá ekki bara um kjaramál heldur mál- efni þeirra í heild. Taka þarf fyrir hluti eins og orlofsmál bænda og að tryggja þeim frí eins og öðrum stéttum. Ná- grannar okkar á Norðurlöndum hafa komið upp mjög góðu fyrirkomulagi á þeim hlutum og þyrftum við að at- huga hvort það hentar okkur. Ég hef mikla trú á að hægt sé að auka fjölbreytni i islenzkum landbún- aði, til dæmis með fiskirækt. Oft hefur hún verið talin vonlaus i köldum sjó en Norðmenn hafa komizt upp á lagið og ég held að við ættum að hafa mikla möguleika á að ráða við þetta líka.” Áríðandi að f lýta einkamálum „í dómsmálum hér á landi hafa í tíð fyrirrennara míns orðið miklar fram- Sýnum ídagá bílasölu Alla Rúts Hyrjarhöfða 2 (réttfyrir neöan Bifreiðaeftirlitið) ZASTAVA 750L JUGO SIAT FRA JUGOSLAVIU

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.