Dagblaðið - 16.09.1978, Page 10

Dagblaðið - 16.09.1978, Page 10
10 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1978. Irjaísí, áháð dagblað ---- ikijr Helgaáon. arfréttastjórar. Skrifstofustjóri Htstjómar. Atfli Stalnarsson og Ómar Útgafandi: Dagbiaðkfhf. _ ^ Framkvaamdastjóri: Svoinn R. Eyjóffsson. RitstjóH: Jónas KristJ Fréttastjórí: Jón Birgir Pétursson. RHstjómarfultrúi: Haukur I Jóhannos RaykdaL íþróttir Haiur Sftnonarson. Aöstoíarí Valdimarsson. Handrit Ásgrímur Péisson. Blaóamenn: Arma Bjamason, Ás^air TMtasson, Bragi Sigurösson, Dóra Stofónsdóttir, Gissur Sigurðs son, GuðmundUr Magnússon, Halur Halsson, Helgi Pótursson, Jónifs Haraldsson, Ólgflyr Geirsson Ólafur Jónssorv Ragnar Lár., Ragnheiður Kristjánsdóttir. Hönnun: Guðjón H. Pálsson. Ljósmyndir M Kristkieson Ámi PáM Jóhannsson, Bjamleifur Bjamleifsson, Hörður Vlhjálmsson, Ragruir Th. Slguiðsson, Sveinn Potmóðssdh. Skrifstofustjórii' ólafur Eyjólfsson. Gjaldkeri: Þráinn Þorieifsson. Sölustjóri: Ingvar Sveinsson. Dreifing^ arstjóri: Már E.M. HaHdórsson. Ritstjóm Siðumóia 12. Afgreiðsla, áskrtftadeHd, auglýslngar o^skrífstbfur Þveriiolti 11. Aöalsimi biaðsins er 27022 (10 llnuri. Áskrift 2000 kr. á mánuði innaniands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Setning og umbrot Dagblaðið hf. Slðumúla 12. Mynda- og plötugerð: Hiimir hf. Stðumúla 12. Prentun: J^rygþur hf. Skeifunni 10. Blekkingavef ur f lokksblaða Flokksblöðin hafa eftir föngum reynt ‘ að villa um fyrir lesendum sínum í frétta- flutningi af aðgerðum vinstri stjórnarinn- ar í launa- og verðlagsmálum. Blöðin hafa spunnið blekkingavef til að reyna að leiða lesendur til að taka afstöðu til. aðgerðanna í samræmi'við vilja þess flokks, sem að hverju einstöku blaði stendur. Fólk kannast við það, sem Svava Jakobsdóttir alþing- ismaður kallaði svo hnyttilega „leik Morgunblaðsins”, fyrst eftir stjórnarmyndunina. Þar var talsverðu plássi varið til að stilla stjórnarliðum upp hlið við hlið í hinum ýmsu málum, fá mismunandi umsagnir frá þeim og reyna að koma inn hjá fólki, að stjórnarliðaF væru naumast sammála í nokkru máli. Sú stefna flokks- blaðsins gat með góðum vilja kallazt upplýsandi á köflum, en um þverbak hefur keyrt með frásögnum Morgunblaðsins af launabreytingum síðustu daga. Þar hefur Vísir, vegna náinna tengsla við Sjálfstæðis- flokkinn, einnig leikið nokkurt hlutverk. Morgunblaðið stillti í gær upp í fjórdálk á baksíðu fyrirsögninni „Áhrif bráðabirgðalaga ríkisstjórnarinnar. 2/3 launþega landsins lækka í dagvinnulaunum.” Daginn áður var stórfyrirsögn: „Óvænt áhrif bráðabirgðalaga ríkisstjórnarinnar: Lægstu taxtar BSRB lækka frá fyrri lögum.” Vísir hafði þann dag gert mikið úr frétt um, að lægstu laun „lækkuðu” um þúsundir króna. Vísir hafði meira að segja eftir utanríkisráðherra, að hann liti á þetta sem „mistök”. Á meðan gerðu þessi blöð sáralítið úr verðlækkun, sem af aðgerðum ríkisstjómarinnar leiðir. Þau ætluðu sér að gera launþega sárreiða. Þeim átti að finnast sem rikis- stjórnin hefði verið að taka eitthvað af láglaunafólki. Hver er sannleikurinn? Málið er þannig vaxið, að ekki er tilefni til æsifyrir- sagna. Þetta eru í rauninni ekki mikil tíðindi. Vegna þess hve verðlækkunin er mikil, milli 7 og 8 prósent af fram- færsluvísitölu, verður verðbótin, sem hinir lægstlaunuðu fá, minni en verið hefði undir lögum gömlu stjórnarinnar við óbreytt og hærra verðlag. Þetta gerist þrátt fyrir það að kjarasamningar taka gildi gagnvart þessu fólki. Stjórnarblöðin reyndu að slá upp, að samningarnir hefðu nú tekið gildi og mikill sigur unnizt, þótt það sé alrangt fyrir fólk með nokkuð yfir miðlungstekjur. Viðbrögð þeirra við atlögu Morgunblaðsins og Vísis voru í fyrstu með þeim auma hætti að rekja, hve mikið kaup hefði nú hækkað frá sólstöðusamningunum í fyrra. Fólk hafði ekki mikinn áhuga á þeim tölum. Tíminn kom fyrst blaðanna við verulegum vörnum. Þar mátti lesa i gær hið rétta í viðtölum við Gunnar Gunnarsson, framkvæmdastjóra Starfsmannafélags ríkisstofnana, og Þóri Daníelsson, framkvæmdastjórá Verkamannasambandsins. „Þetta var nú ekkert meira en það, sem allir vissu miðað við það, að samningarnir færu í gildi, því að lægstu launin höfðu verið minnst skert,” var haft eftir Þóri. Þegar við bætist mikil verðlækkun ætti ekki að hafa komið á óvart, þótt jafn- vel yrði minni hækkun en hefði orðið, ef lög gömlu stjórnarinnar hefðu gilt áfram og verðlag verið óbreytt eða hækkað. Það er misskilningur hjá flokksblöðunum, að leiðandi æsifyrirsagnir rugli fólk í ríminu nema örskamma hríð. Launþeginn mun í lok þessa mánaðar taka nákvæmlega þá afstöðu, sem honum sýnist, án tillits til flokksblað- anna, þegar hann sér, hver kaupmáttur launanna er. DeSt um lögmæti Nknarmoríia í Sríþjóö og Sviss —Læknir og blaðamaður ákærðir í Svíþjóð en rannsókn felld niðurfSviss Var þaö morð þegar sænski rithöf- undurinn og blaðamaðurinn Berit Hedeby aðstoðaði fyrrum starfsfélaga sinn, Sven Erik Hansberg, 44 ára, til að fremja sjálfsmorð með því að taka inn svefntöflur og sprauta sig með insúlíni? Er Ragnar Toss læknir meðsekur um þetta hugsanlega morð þar sem hann aflaði lyfjanna sem neytt var og kenndi auk þess Berit Hedeby hvernig framkvæma ætti insúlíninngjöfina? Sven Erik Hansberg var nærri því algjörlega lamaður er þetta varð. Berit Hedeby er formaður samtaka sem berjast fyrir því að fólki sé heimilt að svipta sig lífi ef það sjálft óskar þess. Ákæruvaldið í Svíþjóð álitur bæði lækninn og blaðakonuna sek um morð. Sönnunargögnin fyrir þeirri skoðun sinni finna opinberir aðilar meðal annars í bók um sjálfsmorð eftir Hedeby og auk þess í ýmsum greinum, sem bæði hún og Toss læknir hafa rit- að um þessi mál. Auk þess að fjalla um sekt tvímenninganna verður dómstóll-’ inn sem fjalla mun um málið í Stokk- hólmi að taka afstöðu til þess hvort telja megi að fullvist hafi verið um vilja hins lamaða manns. Fyrsta dag réttarhaldanna var leikin segulbands- spóla sem Berit Hedeby tók upp af samtali sínu við Sven Erik Hansberg, þann sem sjálfsmorðið framdi. Spurn- ingum um afstöðu sina til sjálfsmorðs svaraði hann samkvæmt segulbands- V /* ÞRENNINGIN Nú eru þeir dagar liðnir er landið rak stjórnlaust og enginn vissi hvort það mundi lenda I ginnungagap Rússa eða i seðlafaðm „guðs eigin lands." Það virðist sem hornsteinar hamingjunnar trúi á þessa þjóð, hvort sem hún stendur á horleggjum hörmangara, eða hefur fengið peninga úr liknarsjóði vestrænna vina sem allt vilja fyrir okkur gera nema eitt? Og ekki eru skilmálarnir Baíðir. bara skrifa undir að við veðsetjunkokkar eigið lif og niðja. Þetta er bara „arga- skattur", því eitt sinn skal hver deyja, en að því er ekki komið. Óli Jó kastaði sem kunnugt er út akkeri með þrem flaugum, sem fljótt náði festu, enda kunnugur til vinstri. Það vitnar hans fyrri vinstri stjóm, sem var mynduð þannig að jólasveinar réðu lífi hennar en fóru að vand.a á öræfi alheimskunnar þegar mest lá við. Mannkyninu er þrenningin i blóð borin, við tölum um þrieinan guð, þrenninguna trú, von og kærleika. Hvort þessi stjórn er nokkuð skyld þessu skortir mig ættfræðikunnáttu til að leggja orð í belg um. Aftur á móti er mannkynssagan, að okkar sögu meðtaldri, full af þriveldasamningum og Rómverjar hinir fornu leituðu oft á slík mið. Þar lenti það oftast í því að reyna að afhöfða hver annan. Þetta er ekki hrakspá til okkar nýju stjórnar, enda við orðnir linir við manndrápin, en drepa má á marga vegu. Hollt er að lesa söguna, forna og nýja, og draga af henni ályktanir. „Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga.” Þetta er falleg hending og hollt veganesti. Vonin er lykill lifsins, sá er ekki vonar af lífi og sál er örverpi sem vonin sniðgengur. I þjóðlífi okkar hefur nú Forleikur Eitt af þeim fjölbreyttu kosninga- slagorðum sem höfð voru uppi fyrir kosningar, voru að þær minntu á kosningarnar sem fram fóru hér árið ] 908 (uppkastið). Það má ef til vill segja að það sé rétt að nokkru en þó gerólíkar á fleiri sviðum. Þó að stjórn Geirs Hallgrímssonar hafi komið fram ýmsum merkum málum, þá gnæfir þar hæst landhelgis- málið. Það eitt hefði áreiðanlega verið mikil skrautfjöður í hatt vinstri stjóm- ar. Ég held að engin stjórn hafi áður sýnt eins mikla viðleitni i þvi að rétta hlut þeirra sem verst eru settir (ótrú- legt en dagsatt). Hún rak verðbólgu- drauginn mjög verulega niður, en þá komu launakröfupostularnir og hirtu allt upp í 80% alóþarfa launahækkun á einu ári, þótt þeir vissu vel að slíkt heljarstökk myndi koma undirstöðu atvinnulifsins úr skorðum eins og nú er komið á daginn. Án efa hefir það lika verið ætlunin og þar með að fella stjórnina. Þetta hefir hinum sósíalísku niðurrifsöflum nú tekist og nú fá þessi óheillaöfl sinn eigin draug tviefldan beint í fangið, gott ef hann gengur ekki af kröfu- frekjusósialismanum dauðum. Þá mætti ef til vill segja að ekki hafi verið til einskis barist hjá þeim sem létu sig hafa það að kjósa yfir sig í þriðja sinn eyðslu- og kröfuflokkana sem ekkert skilja eftir sig nema sviðna jörð. Kosningaslagurinn Lengi mun í minnum höfð kok- hreysti sósíalistaflokkanna fyrir kosn- ingar. Enginn vandi var talinn að stjórna landinu. Ekkert annað en að taka frá atvinnurekendum og ihaldi allt, sem þessir aðilar hefðu stolið frá almenningi, og færa launþegunum það á silfurfati. Þótt fráfarandi stjórn hafi gjört marga góða hluti, þá var viðreisnar- stjórnin um flest líkari stjórn Hannes- ar Hafstein, en sú stjórn beið miklu meiri ósigur i kosningunum 1908 en fráfarandi stjórn nú. Sigurvegarar þeirra kosninga voru um margt svip- aðir sigurvegurum síðustu kosninga. Óvenju ódrengileg og óvægin kosningabarátta í þeim báðum. Segja má að hún hafi byrjað með sólstöðu- samningunum árið 1977. Allir menn með meðalvit sáu að með þeim óbreyttum var ógjörningur að stjóma landinu. En hitt er svo annað mál, sem ég fæ ekki skilið að atvinnurekendur og fjármálaráðherra skyldu skrifa undir Kjallarinn IngjaldurTómasson samningana, sem þeir vissu vel að óhugsandi var að standa við. Við hvað voru þeir hræddir, eða var þeim ógnað, og þá með hverju? Að fengnum stórsigri árið 1908 var engu líkara en sigurvegararnir yrðu gersamlega ráðvilltir þegar þeir áttu að taka við stjóminni. Að löngum tíma liðnum útnefndu þeir Björn Jónsson gamlan og farinn að heilsu i sæti Hannesar Hafstein. Slíkan ræfildóm

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.