Dagblaðið - 16.09.1978, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 16.SEPTEMBER 1978.
13
Chevrolet Camaro454 super sport
MEÐ 500 HESTOFL
UNDIR HÚDDINU
Jónas sprautaði bllinn svartan en þvi fylgir mikil vinna við að halda honum
hreinum. Og að sjálfsögðu varð Jðnas sem er til vinstri á myndinni aö þvo
bilinn fyrir myndatökuna. Nýtur hann aðstoðar vinar síns, Birgis Jönssonar.
Fyrir hálfum mánuði birtist á
götum borgarinnar bill sem staðið
hefur inni i bílskúr i tvö ár. Við Dag-
blaðsmenn fórum á stúfana og
höfðum uppi á Jónasi Garðarssyni.
eiganda bílsins, og báðum hann að
fræða okkur um farartækið. Ekki
þekkti Jónas sögu bílsins gjörla, sagði
að hann hefði verið lengi úti á landi. á
Siglufirði og i Austur-Húnavatnssýslu.
Ekki var meðferðin á farartækinu til
fyrirmyndar og er vitað að hann hefur
verið notaður í Þórsmerkurferðir. Má
það teljast gott að bill sem byggður er
fyrir hraðbrautir Ameríku skuli geta
komizt i Mörkina.
Jónas keypti bílinn i febrúar ’75 og
hefur átt hann síðan. í upphafi hafði
Jónas bílinn til almennra nota og til að
spyrna honum á kvöldin og nóttunni.
Ekki þurfti mikið að eggja Jónas til að
koma upp á mílu hér áður fyrr, var
hann ætið fús að reyna Camaróinn við
aðra bíla enda var bíllinn þá með þeim
sprækari á götunni.
Fyrir tveimur árum lagði Jónas
bílnum og hefur verið að gera hann
upp síðan. Jónas er bátsmaður á
Fossum Eimskips og hefur hann notað
landlegurnar til að vinna i bilnum. auk
þess sem hann hefur notið ómetan-
legrar aðstoðar vina sinna. Byrjað var
á að rifa bílinn í sundur. Innréttingin
var fjarlægð og gamla 396 big block
vélin var hifð upp úr og seld. Síðan var
tekið til við aðendurbæta farartækið.
mældir þannig saman að vélin er í
algjöru innbyrðis jafnvægi. Árangur
af því er sá að vélin er sterkari. kraft-
meiri og endist betur. Vélin sem keypt
var nefnist LS 6. Er rúmtak hennar
454 kúbiktommur. Standard er vélin
skráð 450 hestöfl en búast má við að
vél Jónasar sé jafnvel ennþá kraftmeiri
en það. Jónas er mjög hrifinn af
Chevrolet og hefur hann notað að
mestu leyti Chevrolet-hluti í vélina.
Ofan á vélina er Edelbrock Torker
soggrein með 800 cfm Holley-
blöndungi. Á blöndungnum eru tvær
viðbragðsdælur svo að litil hætta er á
að vélin fái ekki nóg bensín er Jónas
tekur af stað. Kveikjan er frá Mallory
og eru tvær platínur í henni. Að öðru
leyti er Chevrolet-dót í vélinni.
Knastásinn er standard LS 6 ás.
oliudælan, sem er gerð fyrir mikið
álag. er úr 427 kúbika L88 vélinni og
þjöppuhlutfall stimplanna er 11.25:1.
Aftan á vélinni er 10 1/2 tommu
kúplingspressa og diskur frá
Chevrolet. Girkassinn er fjögurra
gira Muncie M22. Hásingin er 10
bolta Chevrolet hásing með læstu mis-
munadrifi og er drifhlutfallið i henni
3.36:1. Undir bílnum eru Delco Remy
demparar. Þá er „Line lock” i
bremsukerfinu en það gerir Jónasi
kleift að taka bremsurnar að aftan úr
sambandi. Er það notað þegar dekkin
eru hituð fyrir spyrnur með því að láta
bílinnspóla.
Boddíið fór ekki varhluta af
upptökunni. Var það sprautað svart
og nýtt húdd, úr fiber, var sett á
bilinn.
Tækniatriði
i stað gömlu innréttingarinnar var
sett önnur úr Camaro 75 ásamt
veltistýri. Mælaborðið var rifið burtu
og þvi kastað. I staðinn var smiðað
nýtt mælaborð og í það voru settir
mælar frá Sun. Ný vél var keypt og er
hún „ballanseruð og blúprintuð". Það
merkir að allir hreyfanlegir hlutir
vélarinnar hafa verið vigtaðir og
Ekki verður annað sagt en 454 King Rat vélin fari vel i vélarrúmi Camarósins.
DB-mynd Jóhann Kristjánsson.
Jóhann A Knstjánsson.
ProCompflokkur:
Alkóhólistar
kvartmílu-
brautarinnar
Við höfum nú kynnt atvinnu-
mannaflokkana og snúum okkur að
áhugamönnunum. 1 Pro Comp flokki
eru hraðskreiðustu áhugamanna-
bilarnir. Í þessum flokki eru grindar-
bílar, „sprenghlægilegir bílar” (Funny
Cars) og venjulegir bilar sem hefur
verið breytt mikið. Eru bílarnir
flokkaðir i sjö undirflokka eftir vélar-
stærðum. þyngd, gerð og eldsneyti.
Eldsneytið sem atvinnumennirnir
nota er nitro en notkun þess er
bönnuð í Pro Comp flokknum. i stað
þess er notað bensín eða alkóhól.
Leyfilegt er að nota forþjöppur og
beina innspýtingu á vélamar. Bremsur
verða að vera á tveimur afturhjólum,
auk þess sem fallhlífar eru notaðar til
að stöðva bílana. Pro Comp bilarnir
ná góðum timum og er heimsmetið i
fljótasta undirflokknum 6.70 sek. en
hraðametið í sama undirflokki er
201.71 míl/klst. (338.87 km/klstl. Ekki
er þó mikill munur á undirflokkunum
þar sem heimsmetið í hægasta
flokknum er 6.82 sek. og munar
einungis l2sekúndubrotum.
Í Pro Comp er ekki óalgengt að sjá
grindarbil og „sprenghlægilegan hil”
reyna meö sér en þeir flokkast saman
ef eldsneytið og hlutfall þyngdar og
rúmtaks vélarinnar er hið sama.
Þessi Pro Comp hill hefur
greinilega náð betra gripi en
ókumaðurinn gerði ráð fyrir og
hefur hann misst bilinn upp að
framan.