Dagblaðið - 16.09.1978, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1978.
15
Þríöja áfall
Karpovs í röð
— Er botninn að detta úr heimsmeistaranum?
Heimsmeistarinn Karpov varð enn
fyrir áfalli í gær í 22. einvígisskákinni
— í þriöju skákinni í röð — þegar
hann varð að sættast á jafntefli i bið-
skákinni. Keppendur sömdu í gær eftir
64 leiki á sinn sérstæða hátt. Með þvi
að ýta leikjabókunum hvor að öðrum.
Þetta var skák sem Karpov var kom-
inn með vinningsstöðu i — en lék af
sér rétt áður en skákin fór í bið.
23. einvígisskákina á aö tefla í dag
en raddir voru uppi í Baguio í gær
um að Karpov mundi fá henni frestað.
Staðan er 4-2 honum í vil.
Biðstaðan í gær var þannig:
Skákin tefldist þannig áfram í gær:
47. - axb2 48. Bd2 He7 49. a4
Hc7+ 50. Kc2 Kh7 51. Hxb2 h5 52.
gxh5 Rd6 53. Ha2 Rxf5 54. a5 Rd4 +
55. Kc3 Rc6 56. a6 Hd5 57. Bf4 Hf5
58. Bd6 Hd5 59. Bg3 Hg5 60. Bf2
Hxh5 61. Kc4 Ra5+ 62. Kc3 Rc6 63.
Ha4 Kg8 64. Kc4 Ra5 +. — Jafntefli.
T-'-d.a.
t dag kl. 16:00flytur danski listmálarinn
Ejler Bille erindi: „Kunstens betydning
menneskeligt og socialt”.
Um kl. 17:00 sýnir hann litskyggnur frá
Bali.
Listsýningin SEPTEM — 78 í sýningarsöl-
um opin kl. 14—19 til 24. sept.
Norrœna húsið
VERIÐ VELKOMIN.
NORRÆNA
HÚSIÐ
Vísnastund og gítarleikur
verður í Norræna húsinu á morgun, sunnu-
dag, kl. 15 síðdegis.
Fram koma: Danska vísnasöngkonan Hanne
Juul og Guðmundur Árnason. Gísli Helgason
leikur á flautu og Pétur Jónsson flytur nokkur
klassísk verk á gítar.
Vísnavinir
Halli og Laddi ásamt Björgrini Halldórssyni Jn full swing” á hljómleikunum i Laugardal. Þeir sköpuðu skemmtilega
stemmningu. — DB-mynd Hörður
Halli og Laddi ásamt Brimkló
á bak við árangur Valsmanna
— er þeir gerðu jafntefli við Magdeburg. Meiri stemmning en
T résmíða verkstæði
til
Til sölu er á Akureyri 8—12 manna tré-
smíðaverkstæði, hentugt fyrir innrétt-
inga- og húsgagnaframleiðslu. Leiguhús-
næði. Uppl. í síma 96-24646.
í landsleikjum, sögðu Valsmenn
Fyrir leik Vals og Magdeburg á
miðvikudag héldu Halli og Laddi, ásamt
Brimkló, hljómleika. Tæplega sex
þúsund manns komu á völlinn og voru
hljómleikar þeirra félaga ákaflega vel
heppnaðir.
„Hljómleikarnir hafa áreiðanlega haft
áhrif á aðsókn, margir áætla um 50% og
hljómleikarnir stuðluðu þannig að því
að Valur slapp fjárhagslega út úr
Evrópuævintýri sínu I ár,” sagði
Baldvin Jónsson, aðalhvatamaður að
skemmtun þeirra félaga í Laugardag.
„En það er óskapleg vinna á bak við
svona hljómleika, og happdrætti.
Hljóðfæri þeirra félaga eru milljóna
virði, ákaflega viðkvæm og veðrið ræður
þannig miklu um hvernig heppnast.
Þeir félagar náðu upp mjög góðri
stemmningu i Laugardal á leiknum og
leikmenn sögðu að aldrei hefðu þeir
spilað fyrir. jafnskemmtilega áhorfendur,
þeir beinlínis lyftu þeim upp, og
hjálpuðu að ná hinum góða árangri,”
sagði Baldvin Jónsson.
H. Halls.
Afgreiðslustarf
Vörubílastöðin Þróttur óskar eftir að ráða
góðan starfskraft til afgreiðslu frá 1. nóv. nk.
Umsóknarfrestur er til 1. október.
Allar nánari upplýsingar hjá formanni og
framkvæmdastjóra í síma 26320.
ENDURSKINS-
MERKI ERU
NAUÐSYNLEG
FYRIR ALLA
UMFERÐARRÁÐ
Hvers vegna æ fleirí munu ferðast
til Rlippseyja og Thailands
Þar er ýmislegt markvert að skoða — meðal
annars hina sögufrægu borg Manila með hinum
spánska bakgrunni og 20. öldina í Makati rétt við
hliðina, eldfjallagígurinn í Týndadal þar sem
baðast er í jarðhituðum laugum, spennandi báta-
ferðir um gljúfur Pagsanjan-fossasvæðisins og
hinn dýrlegi hitabeltisgarður Punta Balurte,
musteri og borgarsýki Bangkok að ekki sé
talað um munaðinn allan á Pattaya-strönd.
Nútímalegt en ósnortið — alþjóðleg hótel (gædd
litauðgi landanna beggja) ódýrar samgönguleiðir
með vögnum, einkabílum, áætlunarbílum, nætur-
klúbbar, sannkallað fjör (allir geta dansað eftir
hljómfalli okkar Filippseyinga), samt er allt svo
ósnortið. Þægindi vestursins ásamt austrænu
andrúmslofti. Slíkt er ekki ^uðvelt að finna nú til
dags.
Austrið er ekki dýrt — Drykkur á hótelinu, að
borða úti, leigubílar, minjagripir, og svo allt þetta
aukalega, állt svo ódýrt að það verður næstum
ánægjulegt að eyða peningum....Nokkuð sem
ferðamenn í öðrum löndum eru löngu búnir að
gleyma.
I
Undirritaöur vill gjarnan heyra meira um hin fjarlægu austurlönd,
Filippseyjar og Thailand. Vinsamlegast sendiö upplýsingar til:
Nafn:
Heimili:
| Sendið til Philippine Airlines, 10 Collingham Road, London SW5
®Philippine Airlines
tvisvarívikufrAevrúpu