Dagblaðið - 16.09.1978, Blaðsíða 16
16
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1978.
Sænska
konungs-
fjölskyldan
Þessa mynd tók Svlaköngur af Silvlu og prínsessu Victoriu.
Silvía Svíadrottning er alltaf mikiö
fréttaefni i heimsblöðunum og blöðin
kappkosta að skrifa um þessa stór-
glæsilegu drottningu sem Svíar eign-
uðust. Ekki fer hjá því að klæðnaður
drottningarinnar sé gagnrýndur, eins
og annað og nýlega skrifuðu dönsk
blöð um Silvíu drottning kæmi i
leynilegar heimsóknir til Danmerkur
til að láta einn frægasta tízkuhönnuð
Dana sauma og teikna á sig föt. Eru
Danir að sjálfsögðu stoltir yfir þvi að
drottningin skuli taka þá fram yfir Svi-
ana i fatasaumi. Nýlega kom Silvía i
eina af heimsóknum sinum til Dan-
merkur til að láta Jörgen Bender tízku-
o o o
hönnuð sauma á sig föt fyrir heim-
sóknina til Rússlands sem hún fór í
sumar. Þar sem heimsóknin til Dan-
merkur var leynileg voru fengnir lög-
ireglumenn til aðstandavörð fyrir ut-
ian hús tízkuhönnuðarins. Svíakóngur
tók myndir af dóttur sinni Victoriu
ársgamalli og sendi til flestra heims-
blaða og var þá drottningin með á
myndunum, klædd fötum eftir hinn
danska fatahönnuð. Hér á síðunni sjá-
um við myndimar sem kóngurinn tók
af þeim mæðgum á I árs afmæli prins-
essunnar og má sjá á þessum myndum
að Victoria prinsessa virðist ætia að
líkjast föður sinum talsvert.
„Sjáðu mamma,” prinsessan hefur fundið blóm og réttir mömmu sinni.
o o o
o o
Hér hefur kóngurinn gabbað dóttur sina inn i körfu og auðvitað varð hún að kikja
inn og sjá hvað þar vxri að finna.
GOTT RAÐ
Já er þetta ekki lausnin fyrír þig, þeg-
ar garnið flækist. Það er oft erfitt að
prjóna með mörgum litum af garni þvi
garnið vill flækjast saman en ekkert er
auðveldara en að setja tvær trektir á
platta og hengja upp á vegg, þá ætti
garnið að haldast aðgreint og þú getur
prjónað áhyggjulaust.
Og hér er svo kóngafjölskyldan saman komin, en kóngurínn tók þessa mynd sjálfur, eins og hinar.
o o o