Dagblaðið - 16.09.1978, Síða 23

Dagblaðið - 16.09.1978, Síða 23
 Utvarp í kvöld kl. 20.30:1 deiglunni Vísnasöngur, nýtt leikrit og starfsemi Fjalakattarins meðal efnis í þættinum í kvöld kl. 20.30 verður á dagskrá útvarpsins þátturinn í deiglunni. Er þetta þriðji þáttur af fjórum. Umsjón- Stefán Baldursson leikhúsfræöingur. armaöur þáttarins er leikhúsfræðing- urinn Stefán Baldursson. Þáttur þessi er blandaður og fjallar um listalífið. Stefán sagði I samtali við DB að hann myndi I þessum þætti ræða við stjórn- •arformann Fjalakattarins, Guðmund Þorbergsson, en I næstu viku hefst starfsemi kvikmyndaklúbbsins i Fjala- kettinum. Rætt verður um kvik- myndir sem sýndar verða I vetur og verður sérstaklega tekin fyrir fyrsta myndin þeirra en sýning hefst á henni I næstu viku. Einnig ætlar Stefán að ræða við Messiönu Tómasdóttur leik- myndateiknara og Mariu Kristjáns- dóttur leikstjóra um leikrit sem Leikfé- lag Húsavikur er að byrja sýningar á. Það er írskt leikrit sem ekki hefur ver- ið sýnt hér á landi fyrr. Stefán ætlar síðan að kynna þýzka visnasöngvar- ann og Ijóðskáldið Wolf Biermann og spila nokkur lög með honum. Bier- mann ætlaði að koma hingað til lands um þessar mundir en ekkert varð af þeirri ferð. Bókakynning verður I þess- um þætti sem fyrri þáttum og að þessu sinni verður kynnt dönsk bók sem segir frá íslendingasögunum á nýstár- legan og skemmtilegan hátt. Það er Heimir Pálsson konrektor sem mun kynna bókina. 1 deiglunni er þriggja stundarfjórðunga langur þáttur. ELA Sjónvarpannað kvSld kl. 21.45: Fæðing — mynd sem allir ættu að sjá Fæðing nefnist brezk heimildar- mynd sem sýnd verður I sjónvarpinu annað kvöld kl. 21.45. Myndin er gagnrýni læknis nokkurs á ópersónu- legri meðferð sem algengt er að mæður og ungbörn fái á fæðingar- stofnunum á Vesturlöndum. Fjallað er um afleiðingarnar og er meðal ann- ars bent á að barnið sé skynlaust er það fæðist og að fæðingaraðferðin geti haft slæm áhrif á líf barnsins seinna meir. Einnig er bent á leiðir til úrbóta. Gagnrýnd er einnig sú lyfjagjöf sem mæður fá fyrir fæðingu og segir lækn- irinn að það sé ekki þannig frá náttúr- unnar hendi að mæður þurfi á lyfja- gjöf að halda. Sýnd er fæðing i mynd- inni og lýst hinni ópersónulegu komu barnsins í heiminn. Mynd þessi hefur vakið mjög mikla athygli og umræður þar sem hún hefur verið sýnd. Meðal annars skrifaði karlmaður nokkur um hana í blaðadómi að skylda ætti hvern lækni og hvern karlmann til að sjá hana. Þar sem lítið sem ekkert hefur verið fjallað um þessi mál hér, sem þó koma okkur öílum við, mætti ráð- leggja öllum sem geta að horfa á myndina, hvort sem um er að ræða karlmenn eða konur. Myndin er tæp- lega klukkustundar löng og er hún í lit. Þýðandi er Jón O. Edwald. ELA. 4C Barnshafandi konur hugsa oft til fæð- ingarinnar sjálfrar, en hér á landi er hægt að velja milli venjulegrar fæðing- ar og frönsku aðferðarinnar svoköll- uðu. Útboð: Tilboð óskast í að gera verknámsbyggingu Iðnskólans á Selfossi fokhelda og fullfrá- gengna að utan með gleri. Lokið er við að steypa undirstöðu, fylla í grunn og leggja holræsalagnir. Skila skal hús- inu fokheldu 1. feb. 1979, en ljúka verkinu eigi síðaren l.maí’79. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjar- tæknifræðings Eyrarvegi 8, Selfossi frá og með mánudeginum 18. sept. gegn 20 þús. kr. skila- tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað mánudaginn 2. okt. kl. 14 að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska. Bæjartæknif ræðingur Selfoss. Ólafsfjörður Vikan óskar eftir umboðsmanni á ÓlafsfiröL Upplýsingar í síma 27022. _________________________________23 Góður starfskraftur óskast Óskum eftir góðum starfskrafti til vélritunar og annarra starfa í innheimtudeild fyrirtækis í Austurborginni. Æskilegur aldur 25—35 ára. Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg. Ágæt laun í boði fyrir rétta manneskju. Þarf að hefja vinnu strax. Umsóknir með helztu upplýsing- um sendist auglýsingadeild DB strax merktar „Góð vélritunarkunnátta”. Utvarp annað kvöld kl. 21.30: STALDRAÐ VIÐ Á SUÐURNESJUM — fyrsti þáttut f rá Vogunum þessir þættir úr Vogunum yrðu fimm. Þess skal getið að þættirnir Staldrað við á Suðurnesjum voru áður á dag- skrá á fimmtudagskvöldum en flytjast nú yfir á sunnudagskvöld. Þátturinn er tæplega klukkustundar langur. ELA. Jónas Jónasson staldrar við I Vogun- um næstu fimm sunnudaga. Annað kvöld kl. 21.30 heldur Jónas Jónasson áfram að staldra við á Suður- nesjum. Síðast var Jónas í Grindavik. Að þessu sinni eru það Vogarnir sem Jónas ætlar að kanna, og í fyrsta þætti sínum i kvöld ætlar hann að ræða við bæjarstjórann í Vogum, Gunnar Jóns- son, og son hans Guðmund Gunnars- son. „Ég er svona að byrja að þreifa fyrir mér á þessum stað,” sagði Jónas í samtali við DB en hann bjóst við að Reynið þessar næst og finnið muninn. Fastumalltland. RAFBORG s.f. herrablööin MMhiLjsio Laugavegi 178 - Sími86780 szzzzzznznnnzzzznns DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1978.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.