Dagblaðið - 21.09.1978, Page 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1978.
3
N
Vantar neytendafélag
á Eskifirði
— til að breyta verzlunarháttum á
staðnum
Herdís Þormóðsdóttir, Eskiflröi, hringdé
Eg vil byrja á því að þakka DB kærlega
fyrir þáttinn Á neytendamarkaði. Ekki
veitir af að styðja við bakið á neytendum í
þessu landi. Það sannaði tómatamálið
svonefnda frá því í sumar. Aldrei hafa
kostir neytenda verið þrengdir meira en
nú og einokunarsvipunni aldrei betur
beitt.
Nú bregður svo við að loksins eru ráða-
menn þjóðarinnar og baendastéttarinnar
búnir með gerðum sinum og orðum að
staðfesta það sem ég o.fl. hafa haldið
fram; að óverjandi sé að okra svo gifur-
lega sem gert hefur verið á aðalneyzluvör-
um fólks og viðurkenna einnig að bú-
vörur seljast illa sökum þessa háa verð-
lags. Þess vegna á nú að auka niður-
greiðslumar, sem auðvitað þýðir ekki ann-
að en það að þegar fólkið kaupir ekki bú-
vömmar af þvi að það getur það ekki,
skal það knúið til að greiða enn hærra
verð fyrir þær með siaukinni skattheimtu.
Þetta er svokölluð stjóm hinna vinnandi
stétta sem svo freklega gengur á hlut kjós-
enda sinna.
1 þessu tilfelli er ekki verið að bæta hag
almennings heldur að neyða hann til að
standa undir rikisvemdaðri einokun þess-
ara vömtegunda.
Bændur em gerðir óábyrgir fyrir efna-
hag búanna og hið sifellda tap þeirra þjóð-
nýtt. Þó skal ég fúslega játa að mér þykir
stómm skárra að greiða þessar vömr
niður fyrir landsfólkið en að knýja það til
að borga þær ofan í erlenda neytendur.
Hér á Eskifirði höfum viö að ýmsu
leyti sérstöðu þvi að félagsverzlunin á
staðnum hefur tekið sér fyrir hendur að
forða okkur frá þvi að eyða of miklu i
kaup á sumum búvömtegundum. Það
gerir hún ýmist með þvi að hafa þær alls
ekki á boðstólum eða þá svo dýrar að
menn færast undan því að kaupa þær.
Þegar við t.d. heyrum auglýst ódýr svið
og gulrófur í ýmsum verzlunum i Reykja-
vík og sumarverð á eggjum em eggin seld
hér í pöntunarfélaginu á 1200 kr. kg,
sviðin á 1050 kr. og rófumar á 335 kr. á
meðan appelsinur frá öðmm heimsálfum
em seldar á 350 kr. og kartöflur hér kosta
298 kr. Ýmislegt er svo alls ekki til, s.s.
enginn mysingur, enginn mysuostur,
engin lifrarkæfa, enginn rækjucstur,
engar saltaðar eða reyktar rúllupylsur, og
margt af þessu er ekki til svo vikum
skiptir.
Einhvem tíma hefði það sjálfsagt þótt
fyrirsögn að Eskftrðingar þyrftu upp á
Hérað til að kaupa sér kryddsild og salt-
síld. En nú er þó svo komið að jafnvel
ætan saltfisk þurfum við aö sækja til
Egilsstaða.
Og ekki tekur betra við ef við þurfum á
rúðugleri að halda. Það sækjum við
einnig til Egilsstaða svo ekki hefur
hækkað hagur Strympu hvað verzlun
snertir. Okkur veitti ekki af liðsinni DB ef
verða ætti einhver breyting á verzlunar-
háttum hér á Eskiftrði, en jafnframt þurfa
neytendur að gæta betur hagsmuna sinna'
en þeir gera, t.d, með þvi að stofna neyt-
endafélag hér á staðnum.
Frá Eskifirði.
Raddir
lesenda
Romm -
Súkkuladí -
Sílrón f romage
Spurning
dagsins
Átt þú dýr?
Margrét Óladóttir, 8 ára: Við eigum
fugla heima. Það eru sebrafinkar. Þeir
eru ekkert sérstaklega leiðinlegir, þeir
segja ekkert.
Jóhann Þór Jóhannsson, 8 ára: Já. ég á
einn lítinn kettling. Hann heitir Snúlli.
Ég geymi hann uppi í sveit hjá honum
frænda mínum. Dýrum liður miklu
betur i sveitinni heldur en hér i Reykja-
vík.
Gunnar Thoroddsen, 8 ára: Já, ég á kött
og hann er orðinn 3 ára. Hann er ekkert
latur þó svo hann sé orðinn svona
gamall. Hann heitir Pússý. Stundum
sefur hann hjá mér í rúminu mínu.
Kurteisir
bflstjórar
— á bifreiðum með
H-númerum
SofBa Smith hringdi:
Er ég fór norður um siðustu helgi vakti
það sérstaka athygli mina hversu bílstjór-
ar á H-bílum sýndu mikla kurteisi i um-
ferðinni og voru liprir i alla staði. Ég lagði
það ekki á mig að skrá niður númerin á
þessum bílurn. eins og þó er alltaf verið að
hvetja fólk til að gera. En mér finnst full
ástæða til að hrósa þessum bílstjórum og
geri ég það hér með.
Gangandi auglýsing
Húsmóðir i Breiðholtí hringdi:
Sagðist hún hafa farið í Breiðholts-
kjör og verzlað fyrir rúmar 4000 kr.
Undir vaminginn hefði hún fengið
tvo plastpoka. en það sem henni þótti
athugavert var að hún var látin borga
15 kr. fyrir hvom poka. Voru þeir þó
merktir með auglýsingum i bak og
fyrir. annarri frá Brciðholtskjöri en
hinni frá Seðlabanka íslands. Sagði
húsmóðirin að hún væri hætt að
verzla í þessari verzlun út af þessu
plastpokamáli. Hins vegar væri erfitt
að koma því við að verzla annars
staðar. þvi einokun Breiðholtskjörs
væri mikil i hverfinu.
Jónas F. Jónsson, II ára: Já. ég á tvo
páfagauka. Þeir heita Jóakint og
Búbbólina. Þeir eru svo ungir enn. að ég
hef ekki getað kennt þeim að tala. En
þeir syngja afskaplega fallega. Það
gengur bara vel að ala þá upp. enda eru
þeir góðir.
María Sigvaldadóttir, 12 ára:
Nei, mig langar i hund eða kött. Frænka
mín á kisu og á hún heima i Anteriku.
Bergrún Jónsdóttir, 9 ára: Já. ég á kisu
og er hún uppi i sveit hjá vinum okkar.
Mamma vill ekki hafa hana heima.
Kisan mín heitir Snotra. Hún er lika
falleg og góð. Mig langar að hafa hana
heima.