Dagblaðið - 21.09.1978, Síða 4
4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1978.
^ f ' " ~ '*
DB á neytendamarkaði
Kaupum,
seljum nýjar
og notaðar
hljómplötur
OPIÐ KL.1-6
LAUGARDAGA KL. 9-12
— og þau lægstu
gjöldin. Á þessum seðlum munar
hvorki meira né minna en 44.036 kr. á
meðaltalinu.
Langhæst yfir alla linuna var fjög-
urra manna fjölskylda i Borgamesi
með 54.018 kr. i meðalútgjöld á mann.
Næsthæst var tveggja manna fjöl-
skylda á Hellu á Rangárvöllum með
49.458 kr. á mann. Þriðja hæsta fjöl-
skyldan var þriggja manna fjölskylda
á Akureyri með 34.563 kr. í meðalút-
gjöldá mann.
Langlægstu útgjöldin voru hjá fjög-
urra manna fjölskyldu i Vogum. Tekið
var fram á seðlinum að fjórir fullorðn-
ir væru í heimili. Meðaleyðslan á
mann í þeirri fjölskyldu var 9.982 kr. á
mann.
Næstlægstu útgjöldin voru hjá sex
manna fjölskyldu í Reykjavík, 7.138
kr. á mann. Þriðja lægst var þriggja
manna fjölskylda á Hellu með 11.067
kr. á mann að meðaltali.
Þannig koma fjölskyldur frá Hellu
við sögu með næsthæstu útgjöldin og
einnig þau þriðju lægstu.
Rætt verður við þessar fjölskyldur í
DB á næstunni og reynt að komast
eftir því hver galdurinn er við ódýru
heimilin, og hvað það er einkum sem
veldur hinum gífurlega háu útgjöldum
hjá nokkrum fjölskyldum.
Af öllu þessu má draga mikinn lær-
dóm. En þessar upplýsingar fást ekki
nema því aðeins að fjölskyldurnar i
landinu haldi búreikninga. DB og Vik-
an gáfu út veggspjald fyrr 1 sumar til
þess að fylla inn á dagleg útgjöld. DB
og Vikan hvetja fólkið 1 landinu til
þess að halda búreikninga og senda
síðan mánaðarlega inn seðla með upp-
lýsingum.
Verður fróðlegt að fylgjast með því
er septembermánuður er liðinn, hvort
útgjöld heimilanna lækka eitthvað að
ráði. Þau ættu að gera það, ef allt er
með felldu, en það kemur í Ijós á sín-
um tíma. A.Bj.
„Það sem veldur mér mestum erfið-
leikum og er dýrast er að ég hef ekkert
pláss til að geyma mat og verð þvi að
kaupa allt jafnóðum. Ég get ekki
sparað mér neitt með því að kaupa i
stórum einingum,” sagði verðlauna-
hafinn okkar, Anna Pálsdóttir í
Reykjavík.
Anna gaf upp töluna 130 þúsund í
mat og hreinlætisvörur fyrir 4 manna
Anna og Barbara dóttir hennar.
DB-myndir Ragnar.
ÞINGHOLTSSTRÆTI24.
fjölskyldu og er það nokkuð hærra en
meðalfjölskyldan eyðir. „Það er kann-
ski ekkert skrýtið þar sem systur mínar
eru í skóla í Reykjavík og borða hjá
okkur um helgar.”
Anna er trúlofuð Ársæli Árnasyni
sem vinnur hjá Bilaryðvörn og eiga
þau tvær telpur, Diönu 7 ára og
Barböru 5 ára. Anna byrjar sjálf að
vinna í kaffiteriunni í Glæsibæ núna i
vikunni.
„Kjötið hefur veriö einna dýrast.
Egg hafa líka verið dýr en ég nota
mikið af þeim handa börnunum. Ég
nota mikið af kaffi og það er talsvert
dýrt. Diana þarf líka að fara með nesti
í skólann auk þess sem hún kemur
oftast heim i mat.
Verðið á fötum finnst mér þó hrylli-
legast. En sem betur fer hef ég sloppið
mikiðviðkaupá|jeim.
Við eigum gamlan bíl sem eyðir
talsvert miklu og borgum 30 þúsund
á mánuði I húsaleigu auk annars
kostnaðar við húsið. Ætli það séu ekki
34 þúsund þegar allt er tekið.
Ég hélt að ég eyddi miklu minna
eftir að ég fór að halda búreikninga.
En það var bara fyrst. Það sækir allt í
sama farið aftur enda sé ég ekki hvað
ég gæti sparað með því að kaupa I litl-
um einingum,” sagði Anna.
Anna sagðist helzt vilja verzla I
Sláturfélagsbúðinni í Glæsibæ fyrir 92
þúsundin og þá eftir helgina. Blaða-
maður Neytendasíðunnar fer með
henni í þann leiðangur. Sjá blaðið eftir
helgi.
- DS
Eldhúsið þeirra önnu og Ársæls er það litið að I þvf kemst ekki fyrir nema rétt
það nauðsynlegasta af mat til næsta dags.
Vel haldið á málunum í Hnífsdal
Kostnaðurinn við ellefu manna
heimilishald í Hnífsdal var í ágústmán-
uði 135.654 kr. eða 12.332 kr. á hvern
einstakling. — Er það langt undir
meðaltali í öðrum fjölskyldustæröum.
„Eins og konan á Egilsstöðum, sem
vann síðast úttektina hjá ykkur, sagði,
þá kemst maður tiltölulega betur út úr
innkaupunum ef fjölskyldan er stór,
Við fáum líka mikið af nýjum fiski
hér, nú upp á siðkastið hef ég verið
með frian fisk.”
— Hvernig lízt þér á verðlækkan-
irnar?
„Æ-i ég veit það ekki. Ætli þetta
komi ekki niður á einhverju öðru. —
Nei, ég keypti ekki neitt kjöt, — það
var allt búið þegar ég kom i verzlunina
og ætlaði að ná mér í eitthvað. Maður
áttaði sig alls ekki á þessu,” sagði
Finney í Hnífsdal sem i sumar hefur
staðið fyrir ellefu manna heimili og
ekki eytt nema rúmiega 12 þúsund kr.
á hvern heimilismann í mat og hrein-
lætisvörur. A.Bj.
„Jú, við vorum ellefu í heimili I
sumar,” sagði konan. „Við eigum sex
börn, en veikindi voru í fjölskyldunni
þannig að ég tók auka-fólk á heimilið.”
Þegar við vorum að vinna úr seðl-
unum sem bárust í upplýsingasöfnun
um kostnað við heimilishald í ágúst
rak okkur I rogastanz þegar á einum
seölinum stóð að ellefu manns væru i
heimili. Við hringdum i viðkomandi,
Finneyju Finnbogadóttur, sem búsett
er í Hnífsdal.
c
Mánaðarútgjöld heimilanna:
Hæst útgjöld hjá fjögurra
manna fjölskyldu
Þá höfum við dregið í annað sinn úr
innsendum upplýsingaseðlum um
kostnað við heimilishald. Að þessu
sinni var það kostnaður í ágústmán-
uði. Út var dreginn seðill fjögurra
manna Reykjavíkurfjölskyldu. —
Meðaleyðsla fjögurra manna fjöl-
skyldu I ágúst var 23.244 kr. á mann
eða samtals 92.976 kr. Vinningurinn
er úttekt í matvöruverzlun að eigin
vali fyrir þá upphæð. Sjá viðtal við
vinningshafann.
Mikill munur
innan flokkanna
Meðaleyðsla tveggja manna fjöl-
skyldu reyndist langhæst i ágúst, alveg
eins og í júli, eða kr. 31.152 á mann.
Hæst var 49.458 og lægst 21.825.
Meðaléyðsla þriggja manna fjöl-
skyldu var 20.520 kr. á mann. Hæst
34.563 oglægst 11.067.
Meðaleyðsla fjögurra manna fjöl-
skyldu var 23.244 á mann. Hæst
54.018 oglægst 4.045.
Meðaleyðsla fimm manna fjöl-
skyldunnar var 18.236. Hæst 25.668
og lægst 11.342.
Meðaleyðsla sex manna fjölskyld-
unnar var 18.166 kr. á mann. Hæst
24.514oglægst7.138.
Meðaleyðsla sjö manna fjölskyld-
unnar var ivið hærri eða 20.431 kr.
Hæst 25.479 og lægst 17.603.
Tvær átta manna fjölskyldur sendu
inn seðla og var meðaleyðsla þeirra
13.623 kr. á mann. Sýnist þetta vera
frekar heppileg fjölskyldustærð, því
meðalútgjöld hennar eru langlægst
bæði i júlí og ágúst.
Ein niu manna fjölskylda sendi inn
upplýsingar og var mánaðareyðslan á
mann 26.111 kr.
Loks fengum við seðil frá 11 manna
fjölskyldu (sjá viðtal) og var meðal-
eyðslan á mann aðeins 12.332 kr.
Hæstu og lægstu
Gríðarlega mikill munur var á þeim
seðlum sem voru hæstir og lægstir
yfir alla flokkana. Svo undarlega vill
til að það er fjögurra manna fjölskyld-
an sem á bæði hæstu og lægstu út-
„KJOTIÐ HEFUR VER-
IÐ DÝRASF’
- Rætt við vinningshafann Önnu Pálsdóttur