Dagblaðið - 21.09.1978, Page 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1978.
Sýriand:
Assad óttast innrás Israels
og Egypta
Sýrlandsf orseti gerír allt sem hann getur til að koma í veg
fyrir samkomulagið við ísrael
Assad Sýrlandsforseti virðist stað-
ráðinn í að gera allt sem i hans valdi er
til að koma I veg fyrir að samkomulag
þeirra Begins forsætisráðherra ísraels
og Sadats Egyptalandsforseta, sem
þeir gerðu i Camp David, komist til
framkvæmda. Hann er nú gestgjafí
fjögurra Arabaleiðtoga sem ræða með
honum þær leiðir, sem færar séu til að
drepa Camp David samkomulagið í
fæðingu.
Assad hefur jafnvel gengið svo
langt að fullyrða að fyrir því séu ekki
litlir möguleikar að Egyptaland og
ísrael munu i sameiningu ráðast inn i
Sýrland.
Gestir Sýrlandsforseta eru frá Alsir,
Suður-Jemen, Libýu og frá PLO sam-
tökum Palestínuaraba. Allar hafa
rikisstjórnir þessarra landa og forusta
PLO samtakanna lýst því yfir að
Camp David samkomulagið sé ekkert
nema svik af Sadats hálfu og bein upp-
:gjöf á hagsmunum Araba.
Assad Sýrlandsforseti heldur þvi
fram að Sadat hafi gengið á bak fyrri
orða sinna með þvi að lofa að semja
sérstakan frið við Ísrael. Hefur hann
ávallt verið andvigur þeim viðræðum
sem Sadat hefur staðið fyrir við
ísraelska ráðamenn og hófust I desem-
ber á fyrra ári.
Aldrei hefur Assad þó gengið svo
langt sem nú að gera því skóna að
ríkin tvö gætu átt það til að ráðast
með heri sína inn i Sýrland.
Jasser Arafat leiðtogi PLO samtak-
anna tók I sama streng og Assad. Full-
yrti hann meðal annars að Ísrael hefði
komið fyrir hersveitum sextiu þúsund
manna meðfram landamærum sínum.
sem snúa að Suður-Líbanon og i
Golanhæðum.
Ummæli Assads Sýrlandsforseta um
Sadat Egyptalandsforseta eru siður en
svo vinaleg og engan veginn i stil við
kveðjtir þeirra á myndinni hér til
hliðar.
Erlendar
fréttir
Lögfraeðingur
f ynr rétt
Lögfræðingurinn Siegfried Haag
kemur fyrir rétt í V-Þýzkalandi á mánu-
dag ákærður fyrir að aðstoða Baader-
Meinhof skæruliðahópinn við skipu-
lagningu árásarinnar á v-þýzka sendiráð-
ið í Stokkhólmi árið 1975.1 árásinni létu
tveir sendiráðsstarfsmenn lífið.
Haag var handtekinn I nóvember árið
1976 og búizt er við því að réttarhöldin
yfir honum verði ein lengstu réttarhöld,
sem haldin hafa verið i málum skæru-
liða. Alls verða 122 vitni leidd fram i
málinu.
Fj
a
iögurhundruðkg
Ihassirekiná
fjöruríHollandi
Fjögur hundruð kg af hassi í bezta
gæðaflokki fundust rekin á fjörur Hol
lands i síðustu viku að því er lögreglan
þar greinir. Hassið er metið á rúmlega
120 milljónir íslenzkra króna.
Hassið var pakkað inn i tin og síðan i
poka utan yfir. Lögreglan sagði að verið
gæti að hassinu hafi verið hent fyrir
borð frá einhverju skipi, sem varð að
leita hafnar I siðustu viku, en þá geisaði
mikill stormur á Norðursjó.
Suður-Afríka:
Vorster forsætis-
ráðherra segir af
qah — orðinn heilsuveill eftir tólf
áravaldasetu
John Vorster, forsætisráðherra
Suður-Afriku. sagði af sér i gær.
Vorster, sem er sextíu og tveggja ára
gamall, hefur átt við heilsuleysi að
stríða um nokkurra ára skeið.
Á þessum tímamótum. er hann
lætur af störfum eftir tólf ára störf sem
forsætisráðherra, er ekki hægt að segja
að bjart sé framundan hjá íbúum
Suður-Afríku. Alþjóðleg andstaða og
andúðá kynþáttastefnu Suður-Afríku-
stjómar fer sifellt vaxandi. Aukinnar
óþreyju gætir nú meðal þjóða heims á
því að ríkið hlýðnist samþykktum
Sameinuðu þjóðanna um að veita
Namibiu sjálfstæði.
1 ávarpi sínu þar sem Vorster til-
kynnti ákvöróun sína um afsögn var
þó alls ekki að merkja t.ð hann sæi
ástæðu til neinnar undanlátssemi.
Meðal annars gaf hann þeim vestrænu
ríkjum, sem undanfarin tvö ár hafa
reynt að fá Suður-Afríku til að veita
Namibíu frelsi, þungarákúrur.
Vorster tilkynnti að þrátt fyrir lé-
legt heilsufar hefði hann fallizt á að
taka við embætti forseta landsins.
Hefur það hingað til verið valdalaust
heiðursembætti. Fyrri forseti Suður-
Afríku, Nicolaas Diederichs, lézt i sið-
asta mánuði.
Fjórir af núverandi ráöherrum í
rikisstjórn landsins eru taldir meðal
líklegra eftirmanna Vorsters. Einn
þeirra hefur þó þegar lýst því yfir að
hann gefi ekki kost á sér.
Hinir þrir eru Pieter Botha varnar-
málaráðherra, sem talinn er hafa
einna mest fylgi, Connie Mulder ráð-
herra sem fer með málefni svartra og
utaririkisráðherrann Pik Botha. Hinir
tveir síðarnefndu eru þó ekki taldir
hafa mikið minna fylgi en Botha
vamarmálaráðherra.
Stjórnin i Pretoríu hefur tilkynnt að
almennar kosningar verði haldnar í
Namibíu eða Suðvestur-Afriku 20. til
24. nóvember næstkomandi.
Tag. 24
Litur Natur leflur
slitsterkir
hrögúmmisólar
Stnrflir
nr. 41-46
Verflkr. 10.140.-
Teg. lO(Reimaðir)
Litir: Brúnt eða Natur leður
Stœrðir: Nr. 35—46
Verðkr. 12.675.-
Skóverslun
Þórðar Péturssonar
_ Póstsendum
Kirkjustræti 8
við Austurvöll — Sími 14181
lllHn Núerujúdóœfingaraðhefjast.
i# w Hristiö af ykkur sleniö og iökiö göfuga íþrótt. Æfingar
verða sem hérsegir:
Byrjendur: Mánudaga og miðvikudaga kl. 19—20.
Drengir: Mánudaga og miðvikudaga kl. 17.30—18.20.
Framhaldsflokkun Þriðjudaga og fimmtudaga ki. 19—20.30.
Innritun að Brautarholti 18 (efstu hæð) á ofannefndum tíma. Sími 16288.
Júdófélag Reykjavíkur.