Dagblaðið - 21.09.1978, Side 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1978.
9
Flugleiðir:
400-500
nýir hlut-
hafar
„Salan á hlutabréfum gengur
þó nokkuð vel,” sagði starfsmaður
i hlutabréfadeild Flugleiða i sam-
tali viö DB1 gær.
Starfsmaðurinn kvað ekki liggja
fyrir í tölum hvernig salan hefðig
gengið, en sem kunnugt er voru
hlutabréf að upphæð tæpar 300
milljónir boðin til sölu á al-
mennum markaði.
Starfsmaðurinn ætlaði að
Flugleiðum hefði bætzt 400—500
nýir hluthafar eftir að sala bréf-
anna hófst. Margir eldri hluthafar
hefðu þó einnig keypt bréf.
•GM.
Sovétmenn
íinnkaupum:
Meira af
gaffalbitum
Sovétmenn hafa keypt héðan
alls 10 milljónir dósa af
gaffalbitum að verðmæti 1225
milljónir króna. Á dögunum komu
Sovétmenn og sömdu um meiri
innkaup og vonazt er til að
samningar náist um verulegt magn
til viðbótar á árinu. Sildin kemur
frá K. Jónsson á Akureyri og
Siglósíld. Allir vita að hér er um
gæðavöru að ræða og sovézkir
virðast hafa bragðlaukana i lagi.
Or SEINT AD BREYTA
LÁNAREGLUM UN
— segir f ramkvæmdastjóri sjóðsins
Lánasjóður íslenzkra námsmanna
er án stjómar þessa dagana eftir að
fulltrúar rikisins i sjóðsstjórn sögðu af
sér eins og frá var greint i DB í gær.
„Ég vona að þetta hafi engin áhrif á
úthlutun haustlána sem á að hefjast 1.
október,” sagði Sigurjón Valdimars-
'son. framkvæmdastjóri LÍN, i samtali
við DB. Kvaðst hann eiga von á því að
ný stjórn yrði skipuð mjög fljótlega.
Sigurjón Valdimarsson var að því
spurður hvort ný sjóðsstjórn gæti
breytt úthlutunarreglum LÍN þannig
að breyting kæmi til framkvæmda
strax í haust.
„Ég tel að það sé of seint að breyta
reglunum núna,” svaraði hann.
„Úthlutun til námsmanna erlendis á
Formaður stúdentaráðs:
Veit ekki hvað tef ur
skipun stjórnar LÍN
„Menntamálaráðherra, Ragnar
Arnalds, var búinn að gefa okkur
fyrirheit um aðskipa nýja stjórn Lána-
sjóðs íslenzkra námsmanna fyrir
síðustu helgi,” sagði Bolli Héðinsson,
formaður stúdentaráðs, i samtali við
DB.
„En það hefur hann ekki gert og er
nú erlendis. Við vitum ekki hvað það
er sem hefur tafið skipun
stjórnarinnar, en munum óska eftir
skýringum þegar ráðherrann snýr
aftur.”
Samkvæmt upplýsingum sem DB
hefur aflað sér munu námsmenn gera
það að tillögu sinni að Þorsteinn
Vilhjálmsson eðlisfræðingur verði
næsti formaður stjórnar lánasjóðsins.
Búizt er við að fulltrúar námsmanna I
sjóðsstjórn verði áfram hinir sömu,
þ.e. Hjördís Bergsdóttir. Bragi
Guðbrandsson og Össur Skarphéðins-
son.
-GM.
að hefjast eftir nokkra daga. Ef höfn og það mundi tefja öll lán sam-
breyting yrði gerð núna tæki það svarandi tíma."
a.m.k. einn mánuð að koma henni i -GM.
Það var rólegt á skrifstofu Lánasjóðs islenzkra námsmanna þegar Ragnar Th.
Sigurðsson, Ijósmyndari, DB leit þar við i gær. Á skrifstofunni var verið að leggja
síðustu hönd á útreikning haustlána, en piltarnir tveir voru að skila inn um-
sóknum fyrir námslán síðar i vetur.
Hljómplötusalan íReykjavík:
EKKIVERULEGUR
SAMDRÁTTUR ENN
Sala á hljómplötum i verzlunum í
Reykjavik hefur ekki dregizt verulega
saman samkvæmt upplýsingum sem DB
aflaði sér í nokkrum hljómplötu-
verzlunum i gær. Megnið af hljóm-
plötum er enn á gömlu verði og
vörugjald óvíða lagt á þar sem nýjar
sendingar hafa ekki borizt.
Afgreiðslustúlka í Plötuportinu
kvaðst ekki hafa merkt samdrátt i sölu
enda væri ný sending ekki komin.
I Karnabæ töldu menn sig hafa merkt
einhvern samdrátt á sölu nýrri
hljómplatna. en megnið væri þó enn á
eldra verði. Karnabær var með útsölu á
plötum fyrir gengisfellingu og gekk hún
vel. Eins varð mikil sala þegar
vörugjaldið var í bigerð.
Verzlunarstjóri i hljómplötudeild
Fálkans þóttist merkja samdrátt vegna
gengisfellingar. en kvað vörugjald enn
ekki komið á þar sem nýjar sendingar
væru ókomnar. Eins hefði Fálkinn verið
með útsölu að undanförnu og breytti
það dæminu talsvert. Taldi verzlunar-
stjórinn aðáhrif vörugjaldsins yrðu fyrst
verulega merkjanleg eftir svo sem
mánaðartima. Þá ætti að liggja fyrir
hvort álagning vörugjalds leiddi af sér
alvarlegan samdrátt i hljómplötusölu.
-GM.
S 1 í ámá i
1 ' Vo i
Busar trolleraðir
Það er orðin anzi gömul hefð i við.
Menntaskólanum í Reykjavik að tollera 1 gær var busavigsla þeirra MR-inga
busana, nýliðana i skólanum, í upphafi og gekk talsvert á að vonum. Aðrir
skólaárs. Þannig eru þeir vígðir til átaka skólar. yngri og vonlega fátækir að
við skruddumar og enginn kemst upp hefðum. hafa tekið upp ýmiss konar
með að sleppa við vigslu þessa. sem tiltæki svipaðs eðlis. — DB-mynd R. Th.
margir hverjir vilja þó gjarnan sleppa Sig.
þaó þarf ekki