Dagblaðið - 01.11.1978, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 01.11.1978, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1978. Hugsunar- leysi bfl- stjóra — hafði næstum kostað vegfaranda lífið M.M. hringdi: Ég var á akstri eftir Hjallabraut í Hafnarfirði. Á móts við kaupfélagið er gangbraut. Þar stöðvaði ég bílinn fyrir litilli stúlku, sem vildi komast yfir götuna, en þarna fara börn um þar sem skóli er í grenndinni. Þegar ég hafði stöðvað bíliinn sá ég í baksýnisspeglinum hvar bíll kom á miklum hraða. Ég náði að flauta á stúlkuna þannig að hún hikaði við og bíllinn þaut fram með' hliðinni á minum bil og lifi stúlkunnar varð þarna naumlega bjargað. Ég elti hinn bílinn uppi og talaði við bilstjórann er hann nam staðar. Hann sagðist ekki hafa tekið eftir mínum bíl. Ég benti honum á að hann hefði verið á ólöglegum hraða og hefði drepið barnið ef ég hefði ekki flautað. Það hefði ég álitið morð en ekki slys, ef svo hefði farið. Þetta leiðir hugann að hugsunar- leysi bilstjóra í slíkum tilfellum. Jafn- framt bendir það á nauðsyn þess að koma upp gangbrautarljósum þar sem er mikil umferð barna, eins og þarna. Einnig má nefna Breiðvang i Hafnar- firði, en þar er mikil umferð skóla- barna. Þar þyrftu einnig að koma umferðarljós fyrir gangandi vegfar- endur. Oryggi gangandi vegfarenda byggist á þvi að þeir, og ökumenn einnig, séu vakandi i umferðinni. M.M. hefur sögu að segja af hugsunarleysi ökumanns sem næstum hafði kostað einn vegfarenda lífið. DB-mynd Bj.Bj. Það kemur fyrir á beztu bæjum að síminn bilar og þá er gott til þess að vita að bú- ast megi við skjótum viðbrögðum viðgerðamanna Pósts og sima. DB-mynd Bj.Bj. Sfminn bilaði: Góð þjónusta Pósts og síma Gamall simnotandi vestan úr bæ hringdi: Siminn bilaði hjá mér og ég hringdi á Póst og síma og sagði frá þvi. Þeir brugðust mjög vel við og voru komnir á staðinn eftir korter, redduðu málun um eins og skot og kvöddu. Þetta kalla ég góða þjónustu og þykir mér full ástæða til að þetta komi fram því yfir- leitt stendur ekki á fólki að kvarta yfir því sem miður fer en er ekki eins fljótt til að hrósa því sem vel er gert. Útvegsbanki íslands: GJALDKERINN VILDI EKKIGRBÐSLUNA Dagný H. Vilhjálmsdóttir skrifar: Ástæðan fyrir því að ég skrifa i Raddir lesenda er sú, að ég fór i bæinn i gær (24.10) og ætlaði að nota ferðina til ýmissa snúninga. Það fyrsta sem lá fyrir, var að borga víxil. Gjalddaginn var 24.10. Fyrsti bankinn sem varð á leið minni var Útvegsbanki tslands að Laugavegi 105. Þangað fór ég inn og bar upp erindi mitt. Þessi umræddi víxill var í innheimtu hjá öðrum banka og ætlaði ég að fá að borga hann í Útvegsbankanum með gíró- seðli, sem virtist auðfengið í fyrstu. Stúlka útfyllti fyrir mig giróseðilinn, hringdi síðan i viðkomandi banka að tilkynna greiðsluna á víxlinum. Allt var sem sé tilbúið að fara til gjaldkera. Þarna voru tveir gjaldkerar og var annar af hinu svokallaða sterkara kyni. Hann tók við þessum útfyllta giróseðli af stúlkunni og kallar upp nafnið. Ég gaf mig þegar fram. „Þetta eru 500 þús. krónur,” sagði hann. „Já. Gjörðu svo vel," sagði ég og rétti honum útfyllta ávísun á upphæðina. En þá brá svo við að gjaldkerinn var alls ekki sáttur við að fá greitt með ávísun úr hefti frá Sparisjóði Kópa- vogs. Hann talaði eitthvað um að það væri ekki hægt að ætlast til að það væri tekið við svona háum ávísunum frá öðrum banka þar sem ég var ekki með viðskipti við Útvegsbankann. Hann hringdi síðan í Sparisjóð Kópa- vogs til að fá stöðuna á heftinu hjá mér. Þá tók nú ekki betra við. Staðan þennan dag lá ekki fyrir vegna ein- hverra bilana í tölvu bankanna. Þar með skipti þessi kaldlyndi hcrramaður sundur gíróseðlinum og sagði: „Þvi miður, þá get ég ekki tekið við þessari greiðslu.” Hann óttaðist það mest að hann fengi ávisunina innistæðulausa í hausinn eins og hann orðaði það. Mér varð orðvant en sagði eitthvað á þá leið að ég héldi að samvinna bankanna væri orðin það mikil að slikt væri úti- lokað. Úr frekari bæjarferð varð þvi ekki. Ég fór sárreið inn i Sparisjóð Kópa- vogs. Þar Spurði ég gjaldkera hvort hægt væri að fá að borga vixil með giróseli og ávísun úr öðrum banka. „Já. Það er allt i lagi ef á að borga eitt- hvað með ávísuninni, en við borgum hana ekki út í peningum.” Þá var það fengið. Ástæðuna fyrir spurningunni fékk starfsfólkið að vita og það hafði bara ekki heyrt annað eins. Túlkaði það þessa framkomu gjaldkerans i Út- vegsbanka íslands, Laugavegi 105, sem hinn mesta dónaskap. Ég sagði þeim jafnframt að hann hefði hringt inn i Sparisjóð til að fá stöðuna á heftinu mínu og ekki fengið. Þá var sú skýring gefin að staðan fyrir þann dag hefði ekki legið frammi vegna bilana í tölvu en stöðuna frá deginum áður gat hann fengið ef beðið hefði verið um. Svona er nú fólk hik- laust löðrungað þegar það reynir af samvizkusemi að standa í skilum. Astro-Fantom •VM«VT\X\ 1J2BYLGJUCB NET Aðeins 56 cm á lengd Netið er límt á rúðu. Þarf þvi engin göt eða aðrar fest- ingar, en ersamt fœranlegt. Engar skemmdir á bílnum. Sendir og tekur é móti þréðiaustí gegnum gler. Upplagt á bíia með hard- top, mótorhjól, vél- sleða, heimahús, þarsem jörð er óþörf. Le'rtiö upptýsinga. STIGAHLÍÐ 45-47 SÍMI91-31315 Raddir lesenda Fjölbýlishús: íbúar á 1. hæð eiga að hafa rétt til næðis — eins og aðrir íbúar íbúi við Jórufell skrifar: Mig langar til að biðja Dagblaðið að koma á framfæri þeirri orðsendingu til foreldra barna og unglinga við Jórufell og nágrenni að þeir tali alvarlega um fyrir börnunum og leiði þeim fyrir sjónir að íbúar á fyrstu hæðum húsa eigi jafnan rétt til næðis og friðar á heimili sínu og þeir ibúar sem búa á efri hæðum þessara húsa. tbúar 1. hæðar hafa rétt til að banna allan umgang meðfram gluggum hjá sér í allt að 5 metra frá húsi, hvað þá þar sem girðing er fyrir. Þessi réttur er ætíð brotinn og oft á tiðum í augsýn foreldra. Þar sem ég er búsettur er girðing báðum megjn við húsið, öðrum megin er hellulagt meðfram húsinu, en þó girt svæði sem á að fyrirbyggja óþarfa umgang. Við hina hlið hússins er gróið svæði sem nær alveg að gluggum herbergisálmu. Þeim megin er svo komið.að vart er hægt að opna glugga, nema þá i algjöru logni, þvi að það er búið að traðka svo mikið, og það fast við húsið, að þar er bara eitt moldarflag, enda sést það yfirleitt á göngum, því það er gengið úr mold- inni og beint inn í hús. Það hefur verið reynt að tala við börn og unglinga um þetta. En ef fólkið á fyrstu hæðum talar um þetta t.d. við unglingana þá þykir þeim þetta óþarfa afskiptasemi og espast upp, reyna i staðinn að gera enn meira ónæði. Ég vil segja að það eru skritnir foreldrar, sem taka sig ekki til og tala um fyrir börnum sínum, og leiða þeim fyrir sjónir hvað þetta er ljótt, og ennþá Ijótara ef í heimili er kannski aldrað og veikt fólk.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.