Dagblaðið - 01.11.1978, Page 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1978.
Erlendar
fréttir
oóNAS
HARALDSSON
I
REUTER
S>
Leigubílstjór-
ar í Chicago
vilja skothelt
gler íbíla sína
Leigubilstjórar í Chicago hafa nú
farið fram á það að fá skothelt gler i bíla
sina, á milli þeirra og farþega, til þess að
verjast árásum farþeganna.
Nú um helgina var 13. leigubílstjór-
inn í Chicago drepinn á tveimur árum.
Vegna þessarar þróunar mála hafa leigu-
bílstjórarnir sett áðurnefnda ósk fram til
borgaryfirvalda.
Innrás herliðs Uganda
langt inn í Tanzaníu
— Kenyastjórn reynir að miðla málum milli nágrannanna
Herlið frá Uganda með skriðdreka
og hjálp stórskotaliðs hefur tekið sér
stöðu langt inni í Tanzaníu. Þar berj-
ast herlið Tanzaníu og Úganda, að því
er stjórnvöld í Tanzaniu greindu í gær.
Þetta eru mestu átök, sem orðið hafa á
milli þessara nágrannaþjóða i Austur-
Afríku og fylgja i kjölfar landamæra-
deilna, sem staðið hafa undanfarna
daga.
í tilkynningu Tanzaníustjómar,
sagði að herlið frá Uganda hefði farið
yfir landamærin fyrir tveimur dögum.
Þar sagði að herlið Ugandamanna
væri komið 30 km inn í landið að
norðvestanverðu, i borgina Kyaka,
sem er skammt frá Virginíuvatni.
Tanzaníustjórn sagði að her landsins
hefði skotið niður þrjár herþotur frá
Uganda í loftbardaga nálægt Viktoriu-
vatni i siðustu viku.
Lítill vinskapur hefur verið með
stjórnum þessara landa allt frá árini
1971 er Idi Amin náði völdum I
Uganda. Hann bylti þá stjóm dr.
Miltons Obote, sem nú dvelst í Dar es
Salam.
Kenya á landamæri að báðum þess-
um löndum og í gær bauðst Kenya-
stjórn til þess að miðla málum. Hún
hvatti báða deiluaðila til þess að leggja
niður vopn og hætta jafnframtáróð-
ursstriðinu sem haldið hefur verið
uppi. Daniel Arap Moi, hinn nýkjörni
forseti Kenya, ræddi í gær við forseta
Tanzaníu, Julius Nyerere i síma.
Hann hafði einnig samband við
Ugandastjórn.
í yfirlýsingu Tanzaníustjórnar kom
ekki fram hve margir hermenn berðust
eða hvert mannfall hefði orðið. Tekið
var fram að ekki þýddi að eyða orðum
á Idi Amin Ugandaforseta. Hann vissi
vel að staðhæfingar um að herlið
Tanzaníu hefði farið yfir landamæri
Uganda, væri lygi.
Hernaðaryfirvöld í Nairobi sögðu
að átökin ættu sér stað á erfiðu landi
og ekki væri mikill fjöldi hermanna
sem tæki þátt i þeim. Þar sagði og að
hvort ríki réði yfir 20—30 skriðdrek-
um og talið væri að um 25 þúsund
manns væru í fastaherliði Tanzaníu og
um 20 þúsund manns í fastaliði
Uganda.
Tanzaniustjórn telur Ugandaforseta, Idi Amin, ekki viðræðuhætan.
EKKIFLEIRIMYNDIR, TAKK
Kýr geta eins og aðrir fengið nóg af Ijósmyndurum og þessi lætur það berlega i Ijós. Ekki fleiri myndir að svo stöddu. Nú er
nóg komið. Ulla bara.
CARTER BOÐIÐ TIL OSLO
—til að vera viðstaddur af hendingu f riðarverðlauna Nóbels
Komið hefur til tals að norska Nóbels-
nefndin bjóði Jimmy Carter Bandarikja-
forseta að koma til Osló og vera við-
staddur afhendingu friðarverðlauna
Nóbels hinn 10. desember nk. Forseti
norsku nefndarinnar Aase Lionæs
greindi frá þessu í gærkvöldi.
Eins og kunnugt er voru friðarverð-
laun Nóbels veitt Sadat Egyptalandsfor-
seta og Begin forsætisráðherra ísraels
að þesu sinni. Þeir eiga þó enn eftir að
undirrita friðarsamninga milli þjóðanna,
sem hafa átt í deilum nú í þrjá áratugi.
Vonazt er til þess að samkomulag náist
fyrir afhendingu verðlaunanna og
friðarsamningurinn verði undirritaður I
Osló 9. desember nk., þ.e. daginn fyrir
afhendingu friðarverðlaunanna.
Bæði Begin og Sadat hafa tilkynnt að
þeir muni koma til Osló til að taka á
móti verðlaunum sínum. Begin hefur
lagt mikla áherzlu á undirritun samn-
inga fyrir þann tima, svo hann geti tekið
á móti verðlaununum með góðri sam-
vizku, eins og hann orðaði það.
Forseti norsku Nóbelsnefndarinnar
sagði ennfremur að hún hefði ígrundað
boðið til Carters að eigin frumkvæði, en
ekki vegna áskorana verðlaunahafanna.
Sekt fyrir að fæða
— fleirien tvöböm
Þingmaður á Filippseyjum er orðinn
heldur órólegur vegna mikillar frjósemi
og mannfjölgunar þarlendis. Hann
undirbýr þvi þessa dagana frumvarp þar
sem kveðið er á um sektir á hendur þeim
konum sem fæða af sér fleiri en tvö
börn. Sekt fyrir fæðingu þriðja barns er
rúmlega fjögur þúsund kr. og fyrir
fjórða barn rúmlega átta þúsund kr.
Fyrir hvert barn að auki, skal sekta
mæðurnar um rúmlega fjögur þúsund
kr. Þetta er e.t.v. ekki há upphæð á
okkar mælikvarða, en er sjálfsagt
erfiðari fyrir fátækar fjölskyldur sem
rétt draga fram lifið.
Nú er tilvafíð að kaupa jó/a-
gjöfina á hagstæðu verði.
Barnanáttför frá kr. 1300.-
Dömu náttkjó/ar frá kr. 2600. -
og margt f/eira. Verið
velkomin.
Opið laugardag kl. 9-12.
§ Túlípaninn
Ingólfsstræti 6.