Dagblaðið - 01.11.1978, Síða 8
8
/*
FFEEPORTKLÚBBURINN
auglýsir
Námsstyrki
í janúar 1979 verður veittur styrkur úr styrktar- og
fræðslusjóði Freeportklúbbsins. Til ráðstöfunar verða
að þessu sinni kr. 500.000.00. Styrkurinn verður veittur
í einu lagi, miöað við að minnsta kosti 6 mánaða náms-
dvöl við viðurkennda áfengismálastofnun erlenda, eða
tveir styrkir á kr. 250.000.00, miðað við 3ja mánaða
lágmarksnámsdvöl við tilsvarandi stofnanir.
Umsóknir meö seir. nákvæmustu upplýsingum um
viðkomandi, áætlaða námsdvöl og framtíðaráætlanir,
sendist formanni Freeportklúbbsins, Tómasi Agnari
Tómassyni, Markarflöt 30, 210 Garðabæ, sem einnig
veitir nánari upplýsingar.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1978.
Ki ÍS'ÍA.
iítjjivi
Séð yfir sænsku deildina.
Umsóknarfrestur er til 1. desember næstkomandi.
Garflabœ, 31. október 1978.
STJÓRN FREEPORTKLÚBBSINS
s —— „■■■■ >
íbúð til sölu í Ólafsvík
140 ferm íbúð ásamt bílgeymslu í húsinu
Brautarholt 20, neðri hæð. íbúðin er tilbúin
undir tréverk allar innihurðir ásamt körmum
fylgja. Uppl. gefnar í síma 93-6295.
Suðurnesjafólk!
Nú verða allir í stuði. Ákveðið er að næsti
dansleikur verði 17. nóvember nk. Þeir sem
hafa áhuga á að gerast félagar hringi í síma
1485, 3480 eða 2787 fyrir 13. nóvember.
Klúbbur þessi er opinn öllum sem vilja
skemmta sér án áfengis.
Klúbburinn Stuðfólk
TRÉSMIÐIR 0G
VERKAMENN
óskast strax.
BYGGINGAFÉLAGIÐ REYNIR
Laugavegis 18,6. hæð. Sími 29460 og á kvöldin 23398.
1X2 1X2 1X2
10. leikvika — leikir 28. október 1978
Vinningsröð: 2X1 — 111 — XXI — 222
1. vinningur: 11 réttir — kr. 174.000.-
6997 31792 32576 33892 34435(1/10) 41774(4/10)
2. vinningur: 10 réttir — kr. 4.900,-
158 5802 + 7975 31934 + 34784 41309(2/10)
516 6151 30163 32067 34814 41337(2/10)
547 6452 30406 + 32267 + 34868 41430
955 6752 30648 32507 + 40028 41555 42087
1213 7189 30848 32588 40059 41636 54805
2002 7284 30982 32671 40077 41663 +
2383 + 7430 30997 32745 + 40288 41748 +
2674 7591 31463(2/10) 32747 + 40320 41771 +
2955 + 7658 31464 33311 40378 + 41775 +
3130+ 7659 31526 33381 40417 41776+
4768 7662 31546(2/10) 33407 40615 41777 +
5472 + 7691 31614 34050 40721 41787(2/10)
5795 + 7873 31838 34359 40983 + 42046(2/10)
Kærufrestur er til 20. nóvember kl. 12 á hádcgi. Kærur skulu vera
skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og aðalskrifstof-
unni. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur veröa teknar til
greina.
Handhafar nafnlausra seðla ( + ) verða að framvfsa stofni eða senda
stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna
fyrir greiðsludag vinninga.
GETRAUNIR — íþróttamiðstöðinni — REYKJAVÍK
GLERFIN SYNING
Gler virðist hafa fylgt manninum i
margar aldir. T.d. eru til grófir gler-
molar frá því um 12.000 f. Kr. og frá
þvi um 700 f. Kr. eru litaðir glerbútar
frá Miðausturlöndum sem voru
notaðir í alls kyns skartgripi og skraut-
muni. Gler virðist fyrst hafa verið
framleitt að einhverju marki I Egypta-
landi hinu forna og þaðan eru einmitt
fyrstu glermunir í því formi sem við
nú þekkjum. Síðan framleiða bæði
Grikkir og Rómverjar mjög fallega og
vandaða glermuni sem enn eru til og
hefur undirritaður nýverið skoðað
mikið safn slikra gripa i Dilsseldorf. baö
er ekki fyrr en mun siðar að
Norðurlandabúar taka að framleiða
glervöru, líklega á 18. öld og þá fyrir
áhrif Þjóðverja — en þeirrar þjóðar
voru fyrstu glergerðarmenn I Sviþjóð.
Barst víða
Noregskonungur setti síðan á fót
glerverksmiðju I Hadeland, nálægt
Osló, en þar skorti ekki eldivið. Þetta
var árið 1762 og er Hadeland verk-
smiðjan enn við lýði, eins og sjá má á
sýningu Norræna hússins. Svíar
eignast sina fyrstu glerverksmiðju
nokkru áður eða 1742 i þorpinu Kosta
og frá Svíþjóð barst glerlistin til
Finnlands og árið 1793 var
Nuutajárvi verksmiðjan stofnuð þar í
landi. Meðan Danmörk og Noregur
voru undir einni sjtórn notuðust Danir
við gler frá Hadeland, en eftir sam-
bandsslitin 1814 urðu þeir að
ekki fyrr enn þeim tókst að finna
ríkulegan mójarðveg í Suður-Sjálandi
að þeim tókst að koma upp eigin gler-
fabrikku, Holmegaard.
Einn
íslendingur
Það virðist aldrei hafa verið hugsað
Vfnglös, af sýningunni.
um að framleiða eða nýta gler að ráði
hér á landi, eins og svo margt annað,
þótt eflaust hefði verið mögulegt nýta
mó til kyndingar eins og Danir gerðu.
Ekki er heldur neitt sem bendir til
þess að gler hafi verið flutt inn til
vinnslu, t.d. i steinda glugga. Sem
stendur er Jónina Guðnadóttir
keramiker eini íslendingurinn sem
hannað hefur glermuni— en þaðgerði
hún á skólaárum sinum i Stokkhólmni
fyrir nokkrum árum.
Það ber þvi að þakka kærlega fyrir
framtak Norræna hússins er það
vekur sérstaka athygli á glermunum á
10 ára afmæli sínu með myndarlegri
sýningu. Vonandi á hún eftir að örva
fleiri Islendinga til dáða á þessu sviði,
en eins og hinir norrænu hönnuðir
sögðu í viðtali við skömmu, þá ætti
ekkert að standa í vegi fyrir því að við
gætum framleitt ágæta glermuni.
Umdeilanlegar
forsendur
En þótt sýningNorrænahússinssé
vissulega fagnaðarefni, má eflaust
deila um forsendur þær sem
skipuleggjendur gáfu sér I upphafi, þ.e.
að sýna gler frá þeim verksmiðjum
sem „tekist hefur að vinna vöru sinni
orðstír” eins og segir í sýningarskrá —
sem sagt, þeim stærri og voldugri á
markaðinum. Sýningin hefði e.t.v.
haft á sér listrænna yfirbragð ef reynt
hefði verið að taka saman úrval af
vinnu hins mikla fjölda gler-lista-
manna, sem starfa sjálfstætt viða um
Norðurlönd, sérstaklega í Svíþjóð. Allt
um það er sýningin vel uppsett, og
hinum lága kjallara Norræna hússins
skemmtilega skipt í bása. Innan þess-
arar heildar finnst mér þó framlag
Hadelendinga frá Noregi bera af, bæði
vegna uppsetningar og gæða
glermunanna en þar virðast fara
saman notagildis-hugmyndin og
tilfinning fyrir fögru formi.
Úr glösum
í skúlptúr
Norðmenn nota liti einnig á nokkuð
sérstakan hátt, allt að því með
„Tiffany” tilbrigðum og eru gripir Gro
Bergslien þar sér á parti. Glös og
önnur ilát frá Holmegaard eru hins
vegar án alls íburðar, hreinleg og
einföld. Finnsku verksmiðjurnar
Iittala og Nuujárvi sýna hluti sem mig
minnir ég haft séð í búðum hér á landi,
en einkenni þeirra koma að sjálfsögðu
betur I Ijós í þessu umhverfi. Þeir beita
litum nær ekkert — halda sig við
þykkt og tært gler eða þá ögn skyggt.
Kosta-Boda hefur líklega verið einna
umfangsmest af þessum verksmiðjum
hér á landi og á þessari sýningu virðast
þeir leggja mikla áherslu bæði á yfir-
borðsskreytingu hluta og skúlptúr-
eiginleika glersins.
Ábót uppi
Sveppirnir frá þeim komast einna
næst því að vera prjál-hlutir á þessari
sýningu.
Uppi er svo eins konar ábót á þessa
sýningu. Sýndir eru nokkrir munir eftir
Jónínu Guðnadóttur sem getið er um
hér að ofan og sé ég ekki betur en þeir
séu gerðir af talsverðu öryggi. Leifur
Breiðfjörð á þrjá ágæta glugga, en
annað norrænt framlag á því sviði sem
þarna er, gluggar Metu May
Holmboe, eru ekki eins beysnir og er á
þeim nokkur byrjendabragur.
Sýningin stendur til 12. nóvember.
Ávafít
fyrírfíggjandi
Amanti hf.
Slmi 25933
|Myndlist