Dagblaðið - 01.11.1978, Síða 9

Dagblaðið - 01.11.1978, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1978. 9 UÉR FINNSTALLT SVO SNHHIGTÁ ÍSLANDI — segir Viktoría Spans, sem fædd er í Miðstrætinu en ólst upp frá fjögurra ára aldri í Hollandi og hefur náð langt þar ílandi sem söngkona Þeir sem halda þvi fram að barns- sálin mótist á fjórum fyrstu æviárunum ættu að geta fundið orðum sínum stuðning í Viktoriu Spans. Þessari söngkonu, sem undanfarið hefur dvalið hér á landi og gert dag- skrár bæði fyrir útvarp og sjónvarp og plötu hjá Svavari Gests, finnst alltaf hún vera gestur í heimalandi sínu, Hollandi, þótt hún hafi alið þar allan sinn aldur, eigi hollenzkan föður og sé nýorðin ekkja eftir hollenzkan mann. En mamma hennar er íslenzk og hún fæddist í Þingholtunum, nánar tiltekið i Miðstræti 8B. Fjögurra ára fluttist hún utan með foreldrum sínum, en hún mundi alltaf eftir húsunum við þessa fallegu gömlu götu og fimmtán ára reif hún sig upp og kom hingað heim til ömmu sinnar, sem hún hét í höfuðið á, Viktoríu Bjarnadóttur. Síðan hefur hún alltaf komið öðru hvoru en aldrei dvalizt lengi í einu. „En mig dauðlangar að kaupa mér hús I vesturbænum, þaðan sem ég get séð Esjuna.” I Hollandi eru nefnilega, eins og menn muna úr skólanum, engin fjöll. Og ekki þetta ferska og hreina loft. Gestsaugað Mér finnst allt svo sniðugt á íslandi, segir hún. Taktu nú kaffitímann eftir hádegið. Þá leggst allt í dá. Það er nákvæmlega eins og siesta, hvíldar- tíminn um miðjan daginn I Suðurlöndum. Milli klukkan 3 og 4 er alveg vonlaust að ná tali af nokkrum manni þvi alls staðar er sama svarið: „Hann er I kaffi.” „Þegar ég get reyni ég að ferðast um landið. Ég skellti mér meira að segja norður Sprengisand og það ætla ég að gera aftur því ég sá ekki út úr augunum alla leiðina fyrir roki og rigningu.” Norður í Eyjafirði var hún við messu á Munkaþverá og fannst mikið til um: — Eftir messu stóð presturinn fyrir utan og þakkaði öllum fyrir komuna. Mér fannst ég vera kominn inn í skáld- sögu eftir Laxness. Viktoría hefur gott vald á algengum íslenzkum orðaforða, en hváir, þegar hún er spurð hvort hún vilji vera „samfó.” Og sum orðatiltæki sem við notum umhugsunarlaust finnst henni skrýtin: „Eigum við ekki að salta þetta lag,” spurði undirleikarinn einn daginn þeg- ar ekki gekk sem bezt. Hún fór náttúr- lega að gá að saltbauknum! Eða þegar einhver vildi grennslast fyrir um heilsufar móð.ur hennar og vita hvort hún væri farin að „skríða saman.” Það eru kjarnakvendi sem standa að Viktoriu. Móðir hennar, Aðalheiður Hólm, var á sínum tíma kunn fyrir ötula þátttöku i félags- málum og amman, Viktoria Bjarna- dóttir gaf sjötug út endurminningar sínar Vökustundir að vestan. Bráðskemmtilega lýsir hún sveitarbrag og fólki. Hún eignaðist tólf börn, en flutti seinast, þá orðin ekkja, til Reykjavikur með 3 krónur og 50 aura’ í vasanum. En hún hafði alltaf verið hugrökk. Sem smástelpa handleggs- brotnaði hún þegar hún ætlaði aðsýna strákunum, leikbræörum sínum, hvað hún gæti stokkið ofan af háum báti. Og það er líka töggur i henni Viktoriu Spans. IHH. * Ekki er annað að sjá en Viktoria sé islenzk í báðar ættir, svo vel sem hún ber skautbúninginn. DB-mynd Bjarnleifur. / Á MENNTASKÓLINN AÐ RÍSA !_l Á KIRKJUHOLTINU? Fyrir bæjarstjórn Kópavogs liggur núna tillaga um skipulag miðbæjar og eru menn ekki á einu máli um hana. Tillagan er endurskoðun á upphaflegri miðbæjartillögu frá 1970 og gerir hún meðal annars ráð fyrir meiri byggð á eystri gjárbarminum í miðjum bænum og menntaskóla á vestari barminum. Mundi þessi skólabygging skemma mjög hið fagra Borgarhraun og skyggja á kirkjuna. Forseti bæjarstjórnar Kópa-, vogs er Helga Sigurjónsdóttir kennari og var hún spurð um þetta mál. „Þessi tillaga var lögð fyrir bæjar- stjórnina í vor en lítið sem ekkert rædd þá. Núna stendur til að ræða hana. I lok nóvember höldum við fund með öllum þeim nefndum, sem við koma, bæjar- stjóm og bæjarráði og ræðum um skipulag miöbæjarins eitt. Það eru mjög skiptar skoðanir um þessa tillögu, bæði innan flokka og á milli þeirra. Það tengist þessu máli að þessi menntaskólabygging sem rætt er um í tillögunni á síðar að verða fjölbrautaskóli. Nú er það svo að málefni framhaldsskóla eru í algerum ólestri í Kópavogi. Menntaskólinn hírist í húsnæði barnaskólans til bráðabirgða og vantar hús. En mín skoðun er sú að ef byggja á nógu stóran fjölbrautaskóla sé svæðið í miðbænum alls ekki nógu stórt. Núna er að störfum nefnd sem gera á tillögur um skipun þessara mála. Hún átti raunar að vera búin að skila tillögum fyrir 15. september en vegna sumarleyfa hefur það dregizt. Varla er von á neinu frá þeirri nefnd fyrr en eftir svona mánuð og fyrr en hún er komin með tillögur sinar er til lítils að ræða skipulag. Annað mál er að mér finnst alls ekki hægt að binda eitt eða annað skipulag fyrir miðbæ Kópavogs án þess að halda almennan borgarafund um málið. íbúar Kópavogs eiga rétt á því að ráða einhverju um þessi mál. Mér he.ur heyrzt á öllum sem ég hef borið málið undir að mikill áhugi sé fyrir slíkum fundi. Ég hef glöggt fundið að áhugi manna á skipulagsmálum er meiri núna en hann hefur áður verið. Fólk hefur fundið að skipulagsmál eru stórpólitísk og varða fleiri en þá sem eru meö tæknimenntun. Ég held að félagar mínir I bæjarstjórn hljóti að vera svo lýð- ræðissinnaðir að þeir fallist á sllkan fund,” sagði Helga. -DS. — skoðanir skiptar og rætt um borgarafund um málið og skipulagsmál bæjarins almennt Stóraukw lescfni í stækkaðri Viku Nú veróur wmm 64. bls. framvegis er stækkuð

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.