Dagblaðið - 01.11.1978, Side 13
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1978.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
UEFA-leikur Vestmannaeyinga
Knattspyrnumenn Vestmannaeyja eru
komnir til Póllands. Fóru á mánudags-
morgun frá Keflavík til Kaupmanna-
hafnar og þaðan áleiðis til Wroclaw. í
dag verður síðari leikur ÍBV og Slask i
UEFA-keppninni — leikur, sem er
nánast formsatriði að Ijúka þar sem
pólska liðið hefur tveggja marka forustu
frá fyrri leiknum, sem háður var á Mela-
velli i Reykjavik.
Leikir verða í öllum þremur Evrópu-
mótunum víða um Evrópu i kvöld.
Ensku meistararnir, Nottingham Forest,
leika gegn gríska liðinu AEK frá Aþenu
í Nottingham. Forest sigraði í fyrri
leiknum með 2-1 og ætti að hafa góða
möguleika að komast áfram. Nokkurra
lykilmanna veröur Forest þó án í kvöld.
Miðvörðurinn Burns er í leikbanni og
fyrirliðinn John MacGovern meiddur.
Slasaðist í leiknum í Southampton á
laugardag.
Arsenal leikur gegn Hajduk Split frá
Júgóslaviu í Lundúnum i kvöld. í fyrri
leiknum í Split sigraði júgóslavneska
liðið 2-1. Tveir leikmenn Arsenal eru
meiddir, þeir David O’Leary og Alan
Sunderland. Ekki verður ákveðið fyrr en
rétt fyrir leikinn hvort þeir leika eða
ekki. í liði Hajduk eru sex júgóslavnesk-
ir landsliðsmenn og liðið hefur mikla
reynslu í Evrópukeppni. Keflvíkingar
léku eitt sinn við Júgóslavana í Evrópu-
bikarnum — keppni meistaraliða. Það
var 1974 og Hajduk sigraði í báðum
leikjunum, 0-2 og 1-7 i Split.
Hollenzka liðið PSV Eindhoven
leikur við Glasgow Rangers í Evrópu-
bikarnum i Eindhoven. Það er talið hafa
mikla sigurmöguleika eftir 0-0 í Glas-
gow. Kerkhoff-tviburarnir snjöllu, Rene
og Willie, geta ekki leikið með PSV
Belgísku liðin eiga misjöfnu gengi að
fagna. 1 keppni bikarhafa leikur Ander-
lecht í Barcelona — og hefur þriggja
marka forustu frá fyrri leik liðanna, sem
háður var í Brussel, 3-0. Anderlecht ætti
þvi að vera nokkuö öruggt um að
komast í 3. umferð — átta-liða úrslit í
keppninni. Hins vegar hefur Standard
Liege sáralitla möguleika í UEFA-
keppninni gegn Manch. City í Liege í
kvöld. Manch. City sigraði í fyrri leikn-
um í Manchester með 4-0 þar sem þrjú
af mörkunum voru skoruð á fimm sið-
ustu minútum leiksins.
Ensku liðin Everton og Ipswich eiga
erfiða leiki framundan. Ipswich leikur í
Evrópukeppni bikarhafa og sigraði Inns-
bruck aðeins með 1-0 í Ipswich i fyrri
leik liðanna. Varnarmaðurinn sterki,
Kevin Beattie, leikur ekki með Ipswich í
kvöld — og vafi um Clive Woods. Hann
lék ekki gegn QPR á laugardag en fór
með Ipswich-liðinu til Innsbruck. Ef
hann leikur ekki þar kemur Eric Gates i
hans stað. Gates opnaði hliðið fyrir Ips-
wich á laugardag, þegar hann skoraði
fyrra mark Ipswich gegn QPR. Paul
Mariner það siðara, en hann skrifaði
undir sex ára samning við Ipswich um
helgina. Everton leikur í Prag gegn
Dukla og hefur aðeins eins marks for-
ustu frá fyrri leiknum. Sigraði Dukla í
Liverpool 2-1.
r
Olympíuskákmótið:
Sovétríkin
komin í
efsta sæti
ísland á sigurmöguleika
gegn Ástralíu
Tvær efstu þjóðirnar á ólympíumótinu i skák,
England og Sovétrfkin, mættust í gærkvöld i Buenos
Aires. Sovézka sveitin hlaut 1.5 v. gegn 0.5 en tvær
skákir fóru i bið milli Spassky og Miles, Petrosjan og
Stean. Romanishin og Hartston gerðu jafntefli en
Vaganjan vann Nunn. island tefldi við ÁstraUu.
Staðan 1—1. Friörik Ólafsson á betri biðstöðu gegn
Jamieson á I. borði og Margeir á biðskák við Wood-
hams. Guðmundur og Helgi Ólafsson gerðu jafntefli
við Shaw og Rogers. i 4. umferðinni unnu Filipps-
eyjar Ísland 2.5 — 1.5 v. Ingvar Ásmundsson og Torre
gerðu jafntefli i biðskák sinni. tsland náði þvi þremur
jafnteflum en tapaði einni skák. Helgi Ólafeson tefldi á
fyrsta borði og gerði jafntefli við stórmeistarann
Torre. Aðeins var getið um að Ólafeson hefði teflt á 1.
borði og varð það til þess að misskilningur var hér i
blaðinu f gær.
önnur úrslit í 5. umferðinni i gærkvöld urðu jjessi.
Ungverjaland — Bandaríkin 2—2. Portisch —
Kavalek jafntefli, Ribli — Browne jafntefli, Sax —
Byme jafntefli og Csom — Lombardy jafntefli.
Búlgaria — Spánn 1.5 — 0.5 Armenkov vann
Pomar — Tringov — Bellon jafntefli. Biðskákir hjá
Radulov — Corral, Inkiov — Rivas.
Júgóslavía — Frakkland 1—1. Ljubojevic —
Giffard jafntefli, Matanovic — Preissmann jafntefli.
Biðskákir Gligoric — Haik, Ivkov — Sellos.
Danmörk — V-Þýzkaland 2—1. Jakobsen —
Pfleger jafntefli, Feder — Hecht jafntefli, Höi vann
Borik. Biðskák á 1. borði hjá Hammann og Hiibner.
Kúba — Holland 3—1. Garcia vann Timman,
Hernandez — Sosonko jafntefli, Rodriques —
Donner jafntefli, Garcia vann Likterink.
Svíþjóð — Holland 2.5 — 1.5 — Sviss 0.5 — Chile
0.5. Þrjár biðskákir. Argentina A 1.5 — Kolombia
0.5. Kanada 2 — Skotland 0. Indónesía 2.5 - nýja -
Sjáland 1.5 Noregur 2 — Equador 1. Finnland 1.5 —
Perú 0.5. Rúmenia 1 — Kina 0. Þrjár biðskákir.
Wales 2.5 — Argentína B 1.5 Malasía — Færeyjar
3—1. Þetta voru helztu úrsiitin. Mikið um biðskákir.
4. umferðin
England og Sovétríkin voru jöfn og efst með 12.5
vinninga af 16 mögulegum eftir fjórar fyrstu umferð-
irnar. Ungverjaland var i 3ja sæti með 12 v. Siðan
komu Bandarikin með 11.5 v. Búlgaría, Pólland,
Spánn og Frakkland voru með 11 v. Júgóslavía,
Holland, V-Þýzkaland, Kúba, Svíþjóð, Danmörk og
Filippseyjar voru með 10.5 vinninga. ísland var með,
9.5 vinninga í 21. sæti ásamt mörgum þjóðum.
Biðskákirnar úr fjórðu umferð hafa verið tefldar og
urðu úrslit þessi.
Sovétrikin — Kúba 3—1. Vaganjan — Lebredo jafn-
tefli. Holland — Argentína A 2.5 — 1.5. Timman
vann Emma. Túnis — Jórdanía 4—0. Sviþjóð —
Chile 2.5 — 1.5. Anderson vann Panaso. Pólland —
Brasilía 4—0. Frakkland — Noregur 3—I.
Bandaríkin — Ástralia 3—1. Browne vann Fuller.
Júgóslavia — Danmörk 2—2. Velimirovic —
Kristiansen jafntefli. Venezúela — Equador 2—2.
Mexikó — Uruguay 2—2. Wales — Belgia 3.5 — 0.5.
Copper vann Schumacher. Sýrland — Bermuda 3.5
-0.5.
Sviss vann Kína 2.5 — 1.5. Kortsnoj vann Chi
Ching-Suan, Lombard tapaði fyrir Chen Te. Bhend-
Chang Wei-Ta jafntefli. Þetta var fyrsta skák
Kortsnoj á mótinu og hann vann Kinverjann, sem
sigraði Guðmund Sigurjónsson í fyrstu umferðinni,
cftir að skák þeirra hafði farið i bið.
Eftir að þessi frétt var skrifuð kom sú leiðrétting i
sambandi við leik Kúbu og Hollands, að skák Hern-
andez og Sosonko hefði farið i bið. Ekki lokið með
jafntefli. Staðan í leik Kúbu — Hollands er því 2.5—
0.5 en ekki 3— 1 fyrir Kúbu.
Herfölge
í 2. deild
Herfölge, liðið, sem Atli Þór Héðins-
son leikur með I 3. deild i Danmörku,
hefur tryggt sér sæti I 2. deild næsta
kcppnistimabil þrátt fyrir tap um
helgina. 3—2 I Svendborg. Herfölge
hefur 42 stig, Roskilde 39 og Viborg 37.
Tvö efstu liðin færast upp. Atli Þór er
annar markhæsti leikmaður Herfölge
mcð 10 mörk — Lasse Henriksen efstur
með 15. /'
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1978.
13
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
„Celtic hlaut heppnisstig í
byrjun keppnistímabilsins”
— sagði Billy McNeil, f ramkvæmdast jóri Celtic, þegar séra Róbert Jack
ræddi við hann á Skotlandi
Lokastaðan í Allsvenskan
Lokastaöan i Allsvenskan, 1. deild,
var þannig, en síðasta umferð var háð á
sunnudag.
Öster 26 15 8 3 46-20 38
Malmö FF 26 12 8 6 29-15 32
Gautaborg 26 13 5 8 39-29 31
Kalmar 26 11 9 6 35-30 31
Djurgaarden 26 10 10 6 50-32 30
Elfsborg 26 10 9 7 44-37 29
AIK 26 10 7 9 31-35 27
Halmstad 26 7 11 8 24-29 25
Hammarby 26 9 5 12 32-38 23
Landskrona 26 6 10 10 28-38 22
Norrköping 26 7 7 12 33-39 21
Atvidaberg 26 9 1 16 31-42 19
Örebro 26 5 8 13 31-45 18
Vesteras 26 6 6 14 20-44 18
Tvö neðstu liðin féllu niður i 2. deild.
Öster og Gautaborg hlutu flest stig á
heimavelli eða 20 hvort félag. Malmö 18.
Á útivöllum gekk Östcr langbezt. Hlaut
18 stig. Halmar 15 og Malmö 14 stig.
Aðeins tvö lið, öster og Atvidaberg,
fengu fleiri áhorfendur en leiktimabilið á
undan, 20.729 fleiri sáu leiki Öster i
Vaxjö og alls voru áhorfendur 145.089 á
leiktimabilinu i Vaxjö. Áhorfendum
fækkaði víðast mjög. í Gautaborg voru
flestir eða 334.165 en það var litið miðað
við árið á unda, 491.727.
Tommy Berggren, Djurgaarden, var
markahæstur með 19 mörk. Næstur
Billy Ohlsson, Hammarby, með 16. Per-
Olaf Ohlsson, Norrköping, skoraði 13
og 12 mörk þeir Thomas Ahlström, Elfs-
borg, Johnny Erlandsson, Kalmar,
Sonny Johnsson, Landskrona, og Göran
Karlsson, Atvidaberg. Teitur Þóröarson
var markhæstur leikmanna Öster með
11 mörk og Rene Almquist, Gautaborg,
skoraði einnig 11 mörk.
Taiwan vann
Taiwan sigraði með gífurlegum yfir-
burðum i keppni áhugamanna í golfi —
Eisenhower-bikarnum. Lék á 584
höggum og var 23 höggum á undan
Suður-Afriku, sem varð i öðru sæti með
607 högg. Svíþjóð kom í 3ja sæti með
611 högg.
— og var þá allt annað en hress með
leikmenn sína. Sagði liðið lélegt og það
féll ekki í góðan jarðveg hjá leikmönn-
um Celtic, þegar málin voru rædd á
heimleiðinni til Glasgow. í sunnudags-
blöðunum skozku var þessu mjög slegið
upp og það er greinilegt að margt þarf að
laga hjá Celtic.
Nokkrir þekktir leikmenn hafa yfir-
gefið Celtic að undanförnu — hætt eða
verið seldir til annarra félaga. Pat
Stanton, sem svo lengi lék með
Hibernian í Edinborg áður en hann kom
til Celtic, er hættur. Hefur stofnað
verzlun í Edinborg. Joe Craig var seldur
til Blackburn fyrir 50 þúsund sterlings-
pund. Hefur gert það gott þar og skorað
talsvert af mörkum. Hann hafði misst
sæti sitt í Celtic-liðinu, þegar Provan var
keyptur frá Kilmarnock. Provan er
laginn með knöttinn og gefur vel fyrir
markið — en er ekki atkvæðamikill við
markaskorun. Þá var Paul Wilson seldur
til Motherwell. John Doyle á við meiðsli
að striða og hefur lítið leikið. Sama er að
segja um MacDonald, Aitken og Lynch.
Þeir hafa þó leikið þó meiðsli hái þeim
og á laugardag var Andy Lynch, sem er
fyrirliði Celtic nú, með á ný eftir tals-
verða fjarveru. Langt frá sínu bezta.
Lennox, sem er orðinn 36 ára, hefur
leikið í aðalliðinu að undanförnu — þó
ekki gegn Hearts — og staðið sig vel,”
sagði séra Róbert Jack ennfremur.
„Jóhannes er sterkur leikmaður og
gerði í sumar nýjan samning við Celtic
til þriggja ára. Hann er einn af máttar-
stólpum liðsins — og eins og áður segir
hefur McNeil nú mikinn hug á þvi að
setja hann í framlínuna. Leikmenn þar
hafa beinlínis ekki getað skorað i siðustu
leikjunum. Hin stutta ferð mín til
Skotlands var í alla staði mjög ánægju-
leg og mesta gleði hafði ég af Evrópuleik
Skotlands og Noregs á Hampden Park í
Glasgow. Þar var mikil stemmning
meðal tæplega sjötiu þúsund áhorfenda
og mikið gert fyrir þá áður en leikurinn
hófst og í leikhléi. Stór hljómsveit
sekkjapipuleikara lék og hljóðfæraleik-
ararnir klæddust skozka þjóðbúningn-
um. Ég ræddi við Norðmenn eftir
leikinn og þeir voru í sjöunda himni
þrátt fyrir tapið 3—2. Sögðu að norska
liðið hefði raunverulega leikið betur en
það gæti. Mikill munur væri að leika á
Hampden með þeirri stemmningu, sem
þar er en tii dæmis við íslenzka
landsliðið á Laugardalsvelli,” sagði séra
Róbert að lokum.
„Ég yfirgaf gott lið, þegar ég fór frá
Aberdeen I sumar en það var mikil
freisting fyrir mig að taka við stjórninni
hjá Celtic svo ég sló til, þegar tilboð
barst. Ég hafði alla tið verið leikmaður
hjá Celtic og þvi gott að koma heim.
Hins vegar fann ég strax að það var
eitthvað að hjá Celtic og lið félagsins
langt frá þvi að vera gott. En piltarnir
börðust vel framan af og voru auk þess
heppnir. Celtic hlaut nokkur heppnisstig
framan af keppnistfmabilinu. Siðasti
mánuðurinn var dapurlegur. Aðeins eitt
stig i fjórum leikjum,” sagði Billy
McNeil, framkvæmdastjóri Celtic,
þegar séra Róbert Jack ræddi nýlega við
hann á Skotlandi. Séra Róbert er
nýkominn heim frá dvöl á Skotlandi.
Leit inn á ritstjórn Dagblaðsins að venju
og við notuðum tækifærið að ræða við
hann. Fáir eru betur með á nótunum en
séra Róbert, þegar knattspyrna er
annars vegar.
„Ég sá tvo leiki hjá Celtic — gegn
Morton á Parkhead, þar sem Jóhannes
lék mjög vel — og svo tapleik liðsins á
laugardag i Edinborg gegn Hearts.
Jóhannes var þar sem áður einn aðal-
maður varnarinnar hjá Celtic en fram-
línan er slök. Ekkert mark skoraði Celtic
i þessum tveimur leikjum. Billy McNeil
sagði við mig, að hann hefði mikinn hug
á því að kaupa nýjan varnarmann svo
hann geti sett Jóhannes i framlínuna. Á
síðasta leiktimabili var Jóhannes mark-
hæsti leikmaðurinn hjá Celtic en hefur
verið aftasti maður varnarinnar i
leikjunum í haust.
En það er erfitt fyrir Celtic að ná í
gþða leikmenn án þess kaupverðið fari
upp úr öllu valdi. McNeil hafði hug á
því að fá Ian MacDonald frá Carlisle til
sín — sterkan miðvörð. Borgin Carlisle
er á landamærum Englands og Skot-
lands. Frétzt hafði að MacDonald væri
til sölu og kaupverð væri um 50 þúsund
sterlingspund. Þegar svo Celtic kom i
málið varð skyndileg breyting. 100
þúsund sterlingspund sett á leikmann-
inn. Þannig breytast hlutirnar, þegar
fræg lið koma í spilið”.
„Það er almenn skoðun hjá Celtic”,
sagði séra Róbert ennfremur „að Jock
Stein hafi skilið við félagið í rúst, þegar
hann yfirgaf það i sumar. Ekkert — eða
litið sem ekkert — byggt upp síðustu
árin. Það má til sanns vegar færa. Ég
horfði á leik milli varaliða Rangers og
Celtic. Þar hlaut Celtic-liðið slæma
útreið. Tapaði 7—0 og varaliðið virkaði
mjög veikt. Þar lék meðal annars Danny
McGrain, sá frægi bakvörður, sem var
talinn einn sá bezti i heimi, áður en hann
slasaðist illa. Greinilegt á leik hans í
varaliðinu að hann á enn langt i land að
verða sami leikmaður og áður.
Eftir tapleik Celtic í Hearts á laugar-
dag ræddi Billy McNeil við blaðamenn
Séra Róbert Jack.
McNab til
Bolton
Tottenham seldi enn einn leikmann i
gær — nú framvörðinn Neil McNab til
Bolton fyrir 250 þúsund sterlingspund.
Hann er aðeins 21 árs og var keyptur frá
Morton fyrir fimm árum á 60 þúsund
sterlingspund, 16 ára. f vor var McNab i
40 manna hóp Skotlands fyrir HM í
Argentínu en féll út, þegar liðið var
endanlega valið.
McNab er fjórði leikmaðurinn, sem
yfirgefur Tottenham frá því Argentinu-
mennirnir Ardiles og Villa voru keyptir.
John Duncan fór til Derby — Ian
Moores og Ralph Coates til Orient. Það
vakti mikla athygli á æfingu hjá
Tottenham, að þeir McNab og Steve
Perryman, fyrirliði Tottcnham, lentu í
slagsmálum. Stöðva varð æfinguna og
atburðinum mjög slegið upp i ensku
blöðunum. Rekja má söluna á McNab i
gær til þessara átaka þó svo hann hafi
verið búinn að missa stöðu sina i aðalliði
Tottenham.
Benfica féll
Það var hörkuleikur i UEFA-keppn-
inni í gær i Mönchengladbach milli
tveggja af þekktari liðum Evrópu, Bor-
ussia Mönchengladbach, Vestur-Þýzka-
landi, og Benfica Portúgal.
Áhorfendur voru 35 þúsund ogekkert
mark var skorað i venjulegum leiktima.
Þá var framlengt og þeim Bruns og
Klinkhammer tókst að tryggja sigur
þýzka liðsins. Skoruðu og Borussia vann
2—0. Komst þar meö i þriðju umferð
þvi fyrri leik liðanna í Lissabon lauk með
jafntefli. Ekkert mark var skorað þá.
Borussia Mönchengladbach er þvi
komið i 16 liða úrslit í UEFA-keppninni.
Alls verða 32 leikir háðir i 2. umferðinni
og fara flestir þeirra fram i kvöld.
í BADEDAS baði er maður dásam-
lega einn í heiminum. Yndislegt að
hafa tíma til að slappa af, hugsa og
dreyma, Að dekra algjörlega við
sjálfan sig í einrúmi, þó að aðeins
sé um stuttan tíma að ræða.
Að safna kröftum og áræði til að
framkvæma eitthvað af öllu því,
sem mann langar til.
badedas
- er vellíðan sem mann einungis
hafði dreymt um, nú veruleiki
BADEDAS fæst einnig
sem sápa og freyðibað,
sem þú getur treyst.