Dagblaðið - 01.11.1978, Síða 20
20
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1978.
Veðrið ^
I dag er mjög vaxandi austan og
suðaustan átt með rigningu á austan-
varðu kandinu. Viða hvassviðri eða
Stormur við austurströndina i dag.
Hag suðlœg átt með slydduéljum á
Vesturiandi.
Hiti kL 6 i morgun: Reykjavfk 1 stig
og léttskýjað, Gufuskálar 3 stig og
skýjað, GaharvKi 3 stig og skýjað,
Akureyri 4 stig og iéttskýjað, Raufar-
höfn 1 stig og léttskýjað, Dalatangi 5
stig og alskýjað, Höfn Homafirði 5
stig og alskýjað og Stórhöfði I Vest-
mannaeyjum 2 stig og abkýjað.
Þórshöfn I Fœreyjum 9 stig og
abkýjað, Kaupmannahöfn 9 stig og
skýjað, Osló 4 stig og heiðsklrt,
London 12 stig og skýjaö, Hamborg 7
stig og skýjað, Madrid 2 stig og
heiðskirt, Ussabon 17 stig og
hoiðskirt og New York 11 stig og
heiðskírt
Andlát
Gr6a Valgeröur Ingimundardöttir lézt á
Borgarspjtalanum 23. okt. Hún var
fædd 13. júní 1931. Foreldrar hennar
eru hjónin Guðný Jónsdóttir og
Ingimundur Bjarnason járnsmiður.
Eftirlifandi maður Valgerðar er
Ríkharður Steinbergsson. Þau eignuðust
fimm börn. Gróa Valgerður verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag
miðvikudag kl. 1.30.
Guðmundur Dalman Ólafsson lézt i
Landspítalanum 29. okt.
Einar Jónsson, Hátúni 12 Rvik, er
látinn.
Stefán Jóhannsson verður jarðsunginn
frá Fríkirkjunni i Hafnarfirði fimmtu-
daginn 2. nóv. kl. 2.
Laugarneskirkja
Biblíulestur verður í kvöld kl. 20.30 í fundarsal
kirkjúnnar. Allir velkomnir.
Æskulýðsvika
K.F.U.M. og K.
Samkoma í kvöld. Margt fólk segir frá trúarreynslu
sinni. Mikill söngur. Ræðumenn Helgi Hróbjartsson
kristniboði og séra Jónas Gíslason dósent. Allir
velkomnir.
Heimatrúboðið
óðinsgötu 6a, Vakningarsamkoma í kvöld kl. 20.30.
Minnzt verður 50 ára afmælis starfsins. Verið
velkomin.
Breiðholtssókn
Samkoma að Seljabraut 54, miðvikudagskvöld kl.
8.30. Ræðumaður: Tony Fitzgerald. Allir velkomnir.
Kristniboðssambandið
Samkoman i Betaníu fellur niður í kvöld vegna
samkomu I Æskulýðsviku K.F.U.M. og K.
Kvenfélag
Hallgrímskirkju
heldur fyrsta fund sinn á þessum vetri nk. fimmtudag
2. nóvember kl. 8.30 í félagsheimilinu. Séra Karl
Sigurbjörnsson segir frá Svíþjóðardvöl og sýnir mynd-
ir máli sínu til.skýringar. Síðan verða kaffiveitingar.
Lýkur fundinum með hugvekju sem séra Karl annast.
IOGT
St. Einingin nr. 14
Fundur I kvöld kl. 20.30 í Templarahöllinni
v/Eiríksgötu. Venjuleg fundarstörf, spilakvöld og
kaffidrykkja. Félagar fjölmennið.
JC BORG
,Kvöldverðarfundur kí 19.30 i kvöld 1. 11 78 að Hótel
Loftleiðum. Gestur kvöldsins: Davið Scheving Thor-
steinsson, form. Fél. isl. iðnrekenda. Félagar
fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Sálarrannsóknarfélag
Suðurnesja
heldur félagsfund nk. fimmtudag kl. 20.30 i
Framsóknarhúsinu, Keflavik. Kaffiveitingar.
Transperant teiknipappír
Eigum fyrirliggjandi hinn þekkta þýzka DIA-
MANT teiknipappír í örkum og rúllum í ýms-
um þykktum.
Falco hf.
Umboðs- og heildverzlun,
Höfðabakka 9, sími 85620.
Kvenfélagið Fjallkonurnar
' Fundur verður fimmtudaginn 2. nóv. kl. 20,30 að
Seljabraut 54 (Kjöt og Fiskur uppi). Ath. breyttan
• fundarstað. Sýnt verður jólaföndur. Námskeið verður
haldið ef næg þátttaka fæst. Rætt um fimm ára
afmæli félagsins. Kaffiveitingar. Stjórnin.
Aðalfundur
Launþegaráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjanes-
kjördæmi, verður haldinn fimmtudaginn 9. nóvember
1978, kl. 20.30 í Valhöll, Háaleitisbraut l, R. Dag-
skrá: l. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Ræða: Gunnar
Helgason, formaður Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokks-
ins.
Kvenfélag Neskirkju
Aðalfundur félagsins verður haldinn miövikudaginn
l. nóvember kl. 20.30 i félagsheimili Neskirkju Dag-
skrá: Venjulegaðalfundarstörf. Kaffi.
Alþýðubandalagið
Hafnarfirði
Félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 2. nóv. kl.
20.30 að Strandgötu 44. Fundarefni: Saga verkalýðs-
hreyfingarinnar. Frummælandi Ólafur R. Einarsson.
Ungt fólk er sérstaklega hvait til að mæta á fundinn.
Alþýðuflokksfélag
Akureyrar
Fundur að Strandgötu 9 fimmtudaginn 2. nóvember
kl. 20.30.
Dagskrá: l. Kosning fulltrúa á flokksþing Alþýðu-
flokksins. 2. Stjórnmálaviðhorfið. Ámi Gunnarsson
hefurframsögu.
Sjálfstæðisfélag
Vatnsleysustrandarhrepps
Aðalfundur veðrur haldinn að Glaðheimum, Vogum,
fimmtudaginn 2. nóvember kl. 21.00.
Dagskrá yerður samkvæmt félagslögum.
Framsóknarmenn
Árnessýslu
Aðalfundur Framsóknarfélags Ámessýslu verður
haldinn fimmtudaginn 2. nóvember að Eyrarvegi 15,
Selfossi, kl. 21.00.
Venjuleg aðalfundarstörf. Kosning fulltrúa á kjör-
dæmisþing. Þráinn Valdimarsson framkvæmdastjóri
Framsóknarfiokksins mætir á fundinum.
Alþýðubandalagið
I Kópavogi
Fundur verður haldinn I nýskipuðu bæjarmálaráði
miðvikudaginn 1. nóv. kl. 20.30 i Þinghóli. Dagskrá:
1. Stjórnarkosning. 2. Bæjarmálefni. 3. önnur mál.
öllum félögum i Alþýðubandalaginu í Kópavogi er
heimilt að sitja fundi bæjarmálaráðs.
Alþýðuflokksfélag
Reykjavíkur
Almennur félagsfundur verður haldinn nk. miðviku-
dag kl. 20.30 að Hótel Esju.
Umræðuefni: Skattamál o.fl. Félagar fjölmennið.
Sjálfstæðisfélag
Garðabæjar og
Bessastaðahrepps
Almennur félagsfundur verður haldinn miðvikudag-
inn 1. nóvember kl. 20.30 að Lyngási 12.
Á fundinn mæta alþingismennirnir Matthías Bjama-
son og Ólafur G. Einarsson og ræða um stjórnmála-
viðhorfin.
Góðtemplarahúsið
Hafnarfirði
Félagsvistin miðvikudagskvöld 1. nóv. Verið öll vel-
komin. Fjölmennið.
IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII
Framhaldaf bls. 19
i
Hreingerníngar
i
Hólmbræður—Hreingerningar.
Teppahreinsun. Gerum hreinar ibúðir,
stigaganga, stofnanir og fl. Margra ára
reynsla. Hólmbræður, simar 36075 og
72180.
Ávallt fyrstir
Hreinsum teppi og húsgögn með
há’rýstitæki og sogkrafti. Þessi nýja
aðferð nær jafnvel ryði, tjöru, blóði o.
s.frv. Nú eins og alltaf áður tryggjum
við fljóta og vandaða vinnu. Ath: Pantið
timanlega fyrir jólin. Erna og Þorsteinn,
simi 20888.
Keflavtk-Suðurnes.
Tek að mér að hreinsa teppi á ibúðum,
stigagöngum, fyrirtækjum og
stofnunum. Ódýr og góð þjónusta.
Pantanir í síma 92—1752.
Teppahreinsun.
Hreinsa teppi i íbúðum, stigagöngum
fyrirtækjum og stofnunum. Ódýr og
?óð þjónusta. Uppl. i sima 86863.
önnumst hrcingerningar
á íbúðum, stofnunum og stigagöngum
o.fl. Vant og vandvirkt fólk. Uppl. í síma
71484 og 84017.
Þrif — teppahreinsun.
Nýkomnir með djúphreinsivél með
miklum sogkrafti, einnig húsgagna-
hreinsun. Hreingerum íbúðir, stiga-
ganga og fleira. Vanir og vandvirkir
menn. Uppl- i síma 33049 og 85086.
Haukur og Guðmundur.
Nýjung á Islandi.
riréinsum teppi og húsgögn með nýrri
tækni, sem fer sigurför um allan heim,
önnumst einnig allar hreingerningar.
Löng ■ reynsla tryggir vandaða vinnu,
veitum 25% afslátt á tómt húsnæði.
Uppl. og pantanir í síma 26924. Teppa-
og húsgagnahreinsun Reykjavík.
Hreingerningarstöðin
hefur vant og vandvirkt fólk til hrein-
gerninga. Einnig önnumst við teppa- og
húsgagnahreinsun. Pantið í síma 19017.
Ólafur Hólm.
Ökukennsla
Ökukennsla, æfingatímar.
Kenni akstur og meðferð bifreiða. Kenni
á Mazda 323, árg. ’78. Ökuskóli og öll
prófgögn ásamt litmynd 1 ökuskírteinið
ef þess er óskað. Helgi K. Sesselíusson,
sími 81349.
ökukennsla — æfingattmar.
Get nú aftur bætt við mig nokkrum
nemendum. ökuskóli og prófgögn.
Kenni á Ford Fairmont ’78. ökukennsla
ÞSH.Simar 19893 og 85475.
Ætlið þér að taka ökupróf.
eða endurnýja gamalt? Hafið þá
samband við ökukennslu Reynis Karls-
sonar í simu!p 20016 og 22922. Hann
mun útvega öll prófgögn ogkenna yður
á nýjan Passat LX.
Ökukennsla — æfingatimar.
Kenni á Mözdu 323 árg. ’78 alla daga,
greiðslufrestur 3 mán. Útvega öll
prófgögn. Ökuskóli ef óskað er. Gunnar
Jónasson, sími 40694.
Ökukennsla-æfingatfmar-bifhjólapróf.
Kenni á Mazda 323,'ökuskóli, prófgögn
ef óskað er. Hringdu í síma 74974 eða
14464 og þú byrjar strax. Lúðvík
Eiðsson.
ökukennsla — endurþjálfun.
Kenni á Toyota Cressida árg. ’78. öku-
skóli og öil prófgögn ásamt litmynd í
ökuskírteinið ef óskað er. Guðlaugur Fr.
Sigmundsson. Uppl. í síma 71972 og hjá
auglþj. DBi síma 27022.
H—99145
ökukennsla—bifhjólapróf.
Kenni á Mercedes Benz. Öll prófgögn og
ökuskóli. Litmynd í ökuskírteini ef
óskað er. Engir lágmarkstímar, nemandi
greiðir aðeins tekna tíma. Nemendur,
geta byrjað strax. Magnús Helgason,
simi 66660 og hjá auglþj. DB I síma,
27022.
2. DEILDKARLA
ÁSGARÐUR
Stjarnan-Leiknir kl. 20.30.
Foreldra- og styrktar-
félag heyrnardaufra
heldur sinn árlega kökubasar sunnudaginn 5. nóv. kl.
2 að Hallveigarstöðum. Þeir sem vilja styrkja félagið
með kökum eru beðnir að koma þeim að Hallveigar-
stöðumkl. 10—12samadag.
Háskólafyrirlestur
Bertil Molde, prófessor í Stokkhólmi, flytur opinberan
fyrirlestur í boði heimspekideildar fimmtudaginn 2.
nóvember 1978 kl. 17.1 í stofu 301 íÁmagarði.
Fyrirlesturinn nefnist Sprákplaneríng och sprákvárd
I Sverige og verður fluttur á sænsku. öllum er heimill
aðgangur.
Fyrirlestrar
Dagana 1. og 8. nóvember kl. 20 mun Ólafur Kvaran
listfræðingur halda fyrirlestra I Listasafni íslands. Þeir
nefnast „Frá popplist til konceptlistar”. Aðgangur er
öllum heimill.
Bolvíkingar í Reykjavík
og nágrenni
Athugið, haustfagnaðurinn verður í Fóstbræðraheim-
ilinu 11. nóvember kl. 9.
Dýrfirðingar
Árshátíð félagsins verður haldin föstudaginn 3.
nóvember i Domus Medica. Hrókar leika fyrir dansi af
sinni alkunnu snilld.
Félagar eru hvattir til að mæta vel.
Suomifélagið efnir til
finnskunámskeiðs
fyrir almenning og hefst það í byrjun nóvember. Nám-
skeiðið er alls 20 kennslustundir 2x2 tímar á viku í
fimm vikur.
Finnskur kennari Tommi Járvelá B.A.
Nánari uppl. og skráning i síma 15944 kl. 10—13
daglega fram til 3. nóvember.
Húseigendélag
Reykjavíkur
Skrifstofa félagsins að Bergstaðastræti 11 er opin alla
virka daga kl. 1,6—18. Þar fá félagsmenn ókeypis leið-
beiningar um lögfræðileg atriði varðandi fasteignir.
Þar fást einnig eyðublöð fyrir húsaleigusKmninga og
sérprentanir af lögum og reglugerðum um fjölbýlis-
hús.
Ferðafélag
íslands
ATH: Allmikið af óskilafatnaði úr sæluhúsunum er á
skrifstofunni, og væri æskilegt að viðkomandi
eigendur vitjuðu hanssem fyrst.
Ármenningar
eldri og yngri
Munið árshátiðina I Snorrabæ laugardaginn 4. nóv.
Hefst með borðhaldi kl. 7.30. Aðgöngumiðar seldir I
Brauðskálanum, Langholtsvegi 126.
Fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Reykhyltingar
Nemendur Reykholtsskóla 1931—1933 mætið i
Domus Medica föstudaginn 3. nóvember kl. 20.30.
Munið að hin gömlu kynni gleymast ei.
Ráðstefna um
lífskjör á íslandi
Dagana 3. og 4. nóv. efnir Bandalag háskólamanna
til ráðstefnu um lifskjör á lslandi. Á ráðstefnunni
verður m.a. fjallað um eftirtalin efni: Hver eru lífskjör
á íslandi í viðtækum skilningi? Efnahagslegar
forsendur lífskjara. Hvaða aðrir kostir eru líklegir til
að skila betri árangri en náðst hefur? Fjárfesting og
árangur hennar. Tengsl fjárhagslegs umhverfis og
tækniþróunar síðustu árin. Hver eru takmörk lifs-
kjara? Setja landkostir, audindir og mannafli takmörk
fyrir lífskjörum? Menntun og lífskjör. Launakjör á
íslandi og öðrum Norðurlöndum. Launaskrið og áhrif
þess á kjarasamninga.
Þessar spumingar og margar fleiri verða í brennidepli
á ráðstefnunni. BHM telur nauðsynlegt að umræður
fari fram um þessi mál i þeim tilgangi, að þær auki
þekkingu manna á eðli efnahagsmála og lifskjara
almennt. Þá fyrst er við því að búast, að kröfur hags-
munaaðila verði byggðar á haldbærari rökum en
tiðkazt hafa fram til þessa.
Ráðstefnan hefst i ráðstefnusal Hótel Loftleiða
föstudaginn 3. nóvember kl. 13.30. Hún er öllum opin
meðan húsrúm leyfir. Þátttökugjald br kr. 6.000 til
greiðslu á mat og kaffi meðan ráðstefnan stendur yfir.
Þátttaka tilkynnist skrifstofu BHM I sima 21173 og
27877.
fþróttablaðið
9. tbl. 38. árg. er komið út. í blaðinu er m.a. viðtal við
hinn unga A-Iandsliðsþjálfara í handknattleik, Jóhann
Inga Gunnarsson, sem er aðeins 24 ára gamall. Hefur
hann reynt ýmislegt I sambandi við handknattleiks-
iþróttina, sem skemmtilegt er að lesa um. Ragnar
Ólafsson skrifar um golf og kemur hann víða við. Það
má til gamans geta þess að Ragnar varð í fimmta til
sjötta sæti í Evrópumeistaramóti unglinga í golfi. Var
hann síðan valinn i Evrópulið, er hann sennilega eini
íslendingurinn sem hefur náð því marki. Steinar J.
Lúðvíksson skrifar eftirmæli íslandsmótsins í
knattspymu siðastliðið sumar. Þá er í blaðinu grein
um sænska kappakstursmanninn Ronnie Petterson
sem lézt af völdum slyss á Monzabrautinni á ítaliu í
sumar. Einnig er i blaðinu grein um knattspymu-
manninn Stanley Matthews, sem er sennilega einn
bezti knattspymumaður sem uppi hefur verið fyrr og
síðar, síðari grein. Margt fleira lesefni er í blaðinu að
vanda. Blaðið fæst á flestum blaðstölustöðum og
kostar 765 krónur.
Austfirðingamót
verður haldið á Hótel Sögu, Súlnasal, föstudaginn 3.
nóv. og hefst með borðhaldi kl. 19.
Dagskrá: Ávarp: Formaður Austfirðingafélagsins.
Þjóðdansa- ogsöngflokkurinn Fiðrildin skemmta.
Veizlustjóri Vilhjálmur Einarsson skólameistari.
Heiðursgestur séra Sigmar Torfason, prófastur á
Skeggjastöðum, og frú.
Aðgöngumiðar afhentir í anddyri Hótel Sögu mið-
vikudag og fimmtudag kl. 17—19. Borð tekin frá um
leið.
Framhaldsráðstefna
um ár barnsins
Hinn 11. október sl. gekkst framkvæmdanefnd Al-
þjóðaárs barnsins fyrir ráðstefnu um undirbúning að
bamaárinu 1979, svo sem fram hefur komið I fréttum.
Ráðstefnuna sóttu um 100 fulltrúar ýmissa félaga og
stofnana. Þar komu fram fjölmargar hugmyndir og
mikilláhugiallra ráðstefnugesta á vinnu að hagsmuna-
máium barna á ári komanda. Framkvæmdanefnd
baranárs hyggst gangast fyrir framhaldsráðstefnu
hinn 25. nóvember nasstkomandi með sömu aðilum,
svo og öðrum, sem áhuga kynnu að hafa. Ætlunin er
að þar verði leitazt við aö gera vinnuáætlanir um
áþreifanleg verkefni á árinu 1979 og munu starfs-
hópar, sem myndaðir verða á ráðstefnunni, vinna að
þeim eftirleiðis. Auk þeirra aðila, sem sátu hina fyrri
ráðstefnu, er öllum félagasamtökum, stofnunum og
einstaklingum, sem áhuga hafa, boðið að sækja
ráðstefnuna og eru þeir beðnir að tilkynna þátttöku
sina til Svandisar Skúladóttur, menntamála-
ráðuneytinu, fyrir 15. nóv. nk.
Afmæii
Sigurlaug Magnúsdóttir, Sæbraut 2,
Seltjarnarnesi er 70 ára I dag
miðvikudag 1. nóv. Hún tekur á móti
gestum eftir kl. 20 á heimili dóttur
sinnar og tengdasonar að Sæbraut 2, i
kvöld.
Gengið
GENGISSKRÁNING
NR. 197 - 31. október 1978
Ferðamanna-
gjaldeyrir
Eining KL 12.000 Kaup Saia Kaup Sala
1 BandaHkJadolar 308,00 308,80 338^0 33938
1 SteHingspund 64230 644,00* 706,53 708,40*
1 Kanadadollar 264,15 26435* 29037 29134*
100 Qanskar 6415,70 643230* 705737 707633*
100 Norskar krónur 660330 662030* 7264,18 728239*
100 Saanskar krónur 748730 7506,60* 823532 825736*
100 Finnskmörk 818435 820635* 9003,45 902638*
100 Franskir frankar 763330 7653,00* 8396,52 841830*
100 Beig. frankar 1131,10 1134,00* 124431 1247,40*
100 Svissn. frankar 20671,15 20724,85* 2273837 2279734*
100 GyUini 1638530 16408,10* 18002,16 1804831*
100 V.-Þýzk mörk 17716,40 17762,40* 1948834 19638,64*
100 Lirur 38,98 3938* 4238 4239*
100 Austurr. Sch. 243130 2438,20* 2675,09 2682,02*
100 Escudos 710,50 71230* 78135 78333*
100 Pesetar 45430 456,00* 50038 501,60*
100 Yen 17337 17332* 190,71 19130*
* Breyting fró sfðustu skróningu óímsvarí vegna genyisskróninga 22190.