Dagblaðið - 21.11.1978, Page 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 1978.
7
Bamsmeðlag föður aðeins
fjórðungur
framfærslu
kostnaðar
0815—6336skrifan
Ég varð svo undrandi. þegar ég las
grein fráskilins föður í DB 11. þ.m, að
ég get ekki orða bundizt. Ég veit ekki
hvort hann hefur þessar tölur, 98.148.-
um framfærslukostnað tveggja þarna
á mánuði frá því árið '74 til '75 eða
hvort hann er alveg skynlaus á verðlag
eins og það er i dag. Hefur hann ekki
gert sér grein fyrir þvi að börn þurfa
fleira en að borða. Ég býst við þvi að
hann sjálfur hafi þurft eitthvert þak
yfir höfuðið, rafmagn og hita til að
geta haldið lífi í kroppnum sínum, þeg-
ar hann var að alast upp. En líklegast.
eftir hans skrifum þurfa börn frá-
skilinna foreldra ekki slikt i dag, eða
hvað? Ég hef því miður staðið í
sporum einstæðrar móður með þrjú
börn, og það er vist að meðlag það sem
faðir greiðir með sinu barni er ekki
nema 1/4 af þvi sem þarf til þess að
kosta það sem eitt barn þarfnast til að
geta lifað tiltölulega eðlilegu lífi.
Hefur hinn einstæði faðir hugsað út í
það að einstæðir foreldrar, sem ala
önn fyrir börnum sinum, þurfa i
flestum tilfellum að leigja sér húsnæði
og það tiltölulega stærra og dýrara en
það foreldri sem er ekki með börnin.
Hefur hann athugað t.d. hvað barna-
gæzla kostar fyrir eitt barn á mánuði.
Meðlag það sem kemur til greiðslu
með einu barni greiðir ekki þann
kostnað. Og þó sv’o að niðurgreiðslur
hafi komið til á matvælum, þá hækkar
allt annað þvi meira. Böm vaxa mjög
fljótt upp úr fötum sínum og slita og
fatnaður er dýr. Móðir sem þarf að
vinna úti allan daginn hefur varla
tíma til þess að sauma allan fatnað og
prjóna. Það segir sig sjáift, það verður
að kaupa hann. Og ef börnin veikjast?
Hver þarf að sinna þeim? Ekki hinn
aumi faðir sem er að guggna undan
þunga barnsmeðlaga. Nei, heldur þarf
móðirin að sleppa sinni vinnu til þess.
Og ef veikindi fara upp fyrir vissan
dagafjölda, þá er það tekjumissir hjá
móður (framfærandal og má bæta því
við framfærslukostnað. Nú, börn frá
12 til 17 ára, eins og faðir talar um,
þurfa ekki þamagæzlu, en hvað tekur
við? Þau þurfa orðið dýrari fatnað,
„tizkufatnað”, og veit það hvert
heilbrigt mannsbarn að börn á táninga
aldri vilja fylgja tizkunni. Vasa-
peninga þarf i alls konar nauðsynjar
hjá þessum aldurshópi, bióferðir,
ballferðir og margs konar félagslíf sem
spilar inn i. Þá fyrst byrja útgjöld fyrir
alvöru. Algengt er að börn á þessum
aldri fari i eins konar sumarvinnu.
þarnapössun og því um Iikt, en eitt er
víst aðbörn frá 12 ára til 15ára, vinna
ekki fyrir öðru en vasapeningi það
sumarið. Eða telur hinn kúgaði faðir
að barnaþrælkun eigi sér stað i okkar
þjóðfélagi? Rétt er að margar konur
gifta sig aftur. Á þá að fella niður
barnsmeðlög? Ef svo er, þá teldi ég rétt
að hinn rétti faðir ætti ekkert tilkall til
sinna barna. Það er kannski hans von.
Ég held hann megi frekar þakka fyrir
ef þær aðstæður eru fyrir hendi, þvi þá
er hægt að sjá börnum hans jafnt sem
hennar fyrir eðlilegum og
nauðsynlegum þörfum. Faðirinn
sleppur vel með að þurfa ekki að
greiða nema því sem næst fjórða part
af framfærslukostnaði barnsins sins.
Ekki telur bréfritari framfærslu barna
skiptast rétt niður á börn fráskilinna
foreldra. Þar segir að feður greiði
aðeins fjórðung framfærslukostnaðar
barna sinna með löghoðnum meðlags-
greiðslum.
Nei, ég held hann megi skammast sin
og reyna hcldur að hjálpa börnum
sínum meira, en láta þau ekki gjalda
þess að foreldrar þeirra gátu ekki búið
þeim heimili saman. Ekki báðu börnin
um að fá að fæðast i þessa veröld.
\
Höfum fengið
mjögfallegt
úrval af
flauelsbuxum
ábörn
og unglinga
MITTISBUXUR
SMEKKBUXUR
AXLABANDABUXUR
ATHUGIÐ:
Ódýru kuldaúlp-
urnar eftirspuröu
eru nú komnar.
Hamraborg 14 - Kópavogi - Sími 43412.
Ertu búinn að taka
f ram skíðabúnaðinn?
Jón Þorbergsson lögregluþjónn: Ég hef
aldrei eignazt skiði og ég reikna ekki
með þvi að fá mér þau í vetur.
Grcipur Kristjánsson varðstjóri: Nei, ég
er ekki búinn að þvi. Það fer þó að verða
kominn timi til þess. Það eru ábyggi-
lega krakkarnir fyrst og fremst sem
búnir eru að taka skiðin fram.
Árni Árnason verkstæðism.aður: Nei, ég
er ekki búinn að því. Það fer þó að líða
að þvi fyrst snjórinn er kominn.
Viggó Vilbogason rafvélavirki: Ég á
engin skiði og mér er allt of annt um
lappirnar á mér til þess að gera ráðstaf-
anir til aðeignast þau.
Halldór Dagbjartsson verkstæðismaður:
Ég hef aldrei stigið á skíði og ætla ekki
að fara að byrja á þvi núna í ellinni.
Kjartan Guðmundsson verkstæðis-
maður: Nei, ég á ekki skiði og ég kaupi,
mér þau varla í vetur.