Dagblaðið - 28.11.1978, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 28.11.1978, Blaðsíða 8
20 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 1978 UM KÓNGAFÖLK OG TRIMM — Bækur í U.S.A. og Bretlandi Að þvi ég best veit, hefur ekki verið gerð nein rækileg könnun á bókaáhuga Breta og Bandaríkjamanna, enda er það gríðarlegt fyrirtæki á svo stórum mörkuðum. Marktækt úrtak á Banda- ríkjamarkaði þyrfti t.d. að vera milli 10 og 20 milljón manns. Að vísu hafa stofn- anir eins og háskólar (m.a. Stanford háskóli) og Gallup kannað afstöðu Bandaríkjamanna til bóka af og til, en þær kannanir hafa venjulega verið bundnar við tiltekin svæði. Minni fyrir- höfn er að kanna neyslu Breta á þessu sviði en það hefur ekki verið gert að neinu marki og eina bókakönnun þar HI-FI FRÁ SONY! ÞANNIG EIGA TÆKIAÐ HLJÓMA! „PLUMPINLINE" Er sérstök uppbygging á hátölurum frá Sony. Hljómburöarjafnvægiö er frábært enda G hátalarar, Sony verölaunagripir! KASSETTUTÆKI í hæsta gæðaflokki með sjálfleitara, „automatic music censor” þú velur þér lag og tækið leitar sjálft. Ferrit Ferrit tónhausar Liquid Crystal Peak Program meter. MAGNARINN með mix stig fyrir hljóð- nema þú getur blandað saman tali og tónum með einu handtaki og meira að segja bætt bergmáli við! Magnarmn með mörgu möguleik- ana, vísir að diskóteki. JAPIS SIMAR 27192 OG 27133 LÆKJARGÖTU 2, ,tsusabet drottning vinsæl af lesendum. sem takandi er mark á eins og stendur eru skýrslur bresku bókasafnanna. Hagstæðir bókaklúbbar En með því að fylgjast með bókablöð- um og vinsældalistum er hægt að fá sæmilega hugmynd um það sem fólk beinlinis kaupir og má af ummælum bókaútgefenda í báðum þessum löndum ráða að mikiðsé keyptaf bókum ogsésú sala orðin nokkuð jöfn, eftir nokkuð skrykkjótta sölu á árunum milli 1960— 70. Þá ber þess að geta að margt er gert fyrir bókaáhugafólk i þessum löndum sem ekki er fyrir hendi hér á landi. a.m.k. ekki nema i mjög litlum mæli. Bókaklúbbar eru þar bæði margir og afar hagstæðir og þangað eru keyptar nýlegar innbundnar bækur, oft metsölu- bækur, og boðnar almenningi á verði sem er oft um 30—40% lægra en upprunalegt búðarverð. Einnig koma mikið seldar bækur mjög fljótt út i „paperback”. en sá markaður er rann- sóknarefni út af fyrir sig og nú má jafn- vel finna bókaklúbba sem sérhæfa sig i að selja pappírskiljur og þá að sjálfsögðu á lægra verði en venjulega. Fjörkippur umjól Ægisútgáfan Martröö undanhaldsins Ný bók eftir Sven Hazel er komin út. Auk þess hafa verið endurprentaðar þrjár fyrstu bœkur Sven Hazels, sem lengi hafa verið ófáanlegar. Hersveit hinnafordœmdu, Dauðinn á skriðbeltum og Stríðsfélagar. A llar bækur Hazels hafa selzt upp fyrirjól á hverju ári og eru ófáanlegar. Bækur hans eru gefnar út í yfir 50 löndum og flestir telja hann mesta og bezta stríðsbóka- höfund allra tíma. Frábærlega tekst Hazel að blanda saman napurri ádeilu gegn styrjöldum, ruddaskap og harðneskju, sem fylgir hermennskunni, að ógleymdum húmor sem gerir bækur hans svo áfengt lestrarefni sem raun ber vitni. Sá sem les eina bók Hazels les þær allar. I báðum löndunum er varla hægt að tala um jólamarkað á bókum í íslenskum skilningi. Sala á bókum er nokkuð jöfn allt árið, að því er bandarísk bókatiðindi herma — en þó kemur fjörkippur í söl- una um jólin. Það er augljóst að á svona risamörkuðum er hægt að sinna alls konar sérþörfum bókafólks og þar koma bókaklúbbar aftur inn í myndina. Garðyrkjuhandbækur, visindaskáld- sögur, jógabækur, ánamaðkatamning — allt þetta á sér stóran hóp áhugafólks sem iðulega kaupir upp 10—20.000 eintaka upplög. í Bandarikjunum virðist vera hægt að selja nær hvað sem er I bókarformi. Þó gekk illa að koma út æviminningum Nixons á dögunum, sér- staklega í þeim fylkjum þar sem hann hafði verið sérlega illa þokkaður, t.d. í Kaliforníu. Ólfkur smekkur Hafði stærsta bókabúðin í Berkeley pantað 15 eintök og er ekkert þeirra hreyfðist reyndu menn að koma bókinni út með því að vefja utan um hana brún- an pappír og stilla henni upp sem klám- riti. En allt kom fyrir ekki. Ef litið er yfir sölulista bóka í Bretlandi og Bandarikj- unum kemur í Ijós að smekkur manna er mjög ólíkur á þessum „engilsaxneska” markaði t Bretlandi seljast bækur um dýr feikilega vel, t.d. bækur James Herriots sem við könnumst við, svo og allar bækur um konungsfjölskylduna en* síðasta metsölubók af þvi tagi var „Majesty” eftir Robert Lacy, um Elísa- betu drottningu. Þegar hafa veriö

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.