Dagblaðið - 11.01.1979, Qupperneq 1
f
i
5. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1979 - 9. TBL. RITSTJÓRN SÍDUMÚI.A 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTl 11.—AÐALSÍMI27022.
„Frekari skattahækkanir
ámælisverðar” (
— segir Birgir Isleifur Gunnarsson um
fyrirhugaða hækkun útsvars í 12%
„Ég gagnrýndi fjárhagsáætlun borg-
arinnar eins og hún leit þá út, þegar
fyrsta umræða fór fram 21. desember.
Mér finnst ámælisvert, að enn skuli
stefnt að frekari skattahækkunum,”
sagði Birgir ísleifur Gunnarsson fyrr-
verandi borgarstjóri I morgun um þá
frétt DB í gær, að borgarstjórnarmeiri-
hlutinn hyggðist hækka útsvarspró-
sentuna I 12%, ef heimild fengist á Al-
þingi.
„Ég gagnrýndi hinar geysimiklu
skattahækkanir, sem stefnt var að í
fjárhagsáætlun, þar sem farið var út á
yztu nöf með nánast alla tekjustofna
borgarinnar,” sagði Birgir. „Auka-
álögur nema tæpum 1800 milljónum
hjá hinum nýja meirihluta.”
„Þrátt fyrir skattahækkanirnar er
stefnt að mjög miklum greiðsluhalla.
Til dæmis var ekki búið að taka launa-
hækkanirnar 1. desember inn í dæmið,
en þær munu kosta um 460 milljónir.
f>á er vitað um ýmsar aðrar launa-
hækkanir, sem munu auka útgjöld
borgarinnar. Alls má ætla, að greiðslu-
hallinn, sem að stefnir, verði 2—3000
milljónir króna.
„Allt hefur verið látið reka á reiðan-
um í stað þess að spara í rekstri eða
skera i alvöru niður framkvæmdir
strax i upphafi,” sagði Birgir. „Því
stefnir mjög illa að mínum dómi í fjár-
málum borgarinnar.”
„Fjárhagsáætlun borgarinnar
hækkar mun meira milli ára en verð-
bólgan gefur tilefni til, eða um 63%,”
sagði Birgir.
HH.
Uppá
hæsta
tind
Bláfjalla
Þeir brugðu sér upp á hæsta tind Blá-
fjalla f gær i hinni nýju og glæsilegu
skiðalyftu, borgarstjórinn í Reykjavik,
Egill Skúli Ingibergsson og borgarverk-
fræðingur, Þórður Þorbjarnarson.
Skíðalyftan f Bláfjöllum var þá tekin
formlega i notkun, mjög fullkomið mann-
virki og kostaði um 40 milljónir. Það
voru félagar úr Ármanni er önnuðust alla
uppsetningu, grófu fyrir undirstöðum,
reistu möstur og settu upp allan vélabún-
að.
DB-mynd Hörður Vilhjálmsson
Skyndiheimsókn
öldungadeildar-
þingmanna:
Ræða við
Benedikt
um örygg-
ismál
— á leið frá Moskvu
til Washington
Laust fyrir hádegið komu til
Reykjavikur til viðræðna við utan-
ríkisráðherra og fleiri embættis-
menn, sex bandarískir öldunga-
deildarþingmenn undir forystu
Howards Bakers, leiðtoga' minni-
hluta repúblikana i öldungadeild
Bandaríkjaþings.
Ætluðu þeir að ræða við is-
lenzka ráðamenn um öryggismál.
Bandarisku þingmennirnir eru að
koma frá Moskvu, þar sem þeir
hafa m.a. rætt við Leonid Breznev
um afvopnunarmál. Þingmennirn-
ir lentu í Keflavík og var áætlað að
þeir kæmu með þyrlu til Reykja-
víkur upp úr kl. 11.30 i morgun og
færu þaðan í Ráðherrabústaðinn.
Það var að frumkvæði þing-
mannanna sjálfra, að viðdvöl er
höfð hér til þessara viðræðna, skv.
upplýsingum DB i morgun. -ÓV.
„RÁÐHERRAR ALÞÝÐUFLOKKS HÖFDU
EKKIUMBOÐ TIL ÞESSARA SAMNINGA”
— segir Ólafur Ragnar Grímsson um Færeyjasamningana
„Samningarnir við Færeyinga eru
gerðir umboðslaust af ráðherrum Al-
þýðuflokksins. Ég efast um, að þing-
meirihluti verði fyrir þeim,” sagði Ólafur
Ragnar Grímsson alþingismaður (AB) í
viðtali við DB í morgun.
„Þetta hefur ekki verið rætt i þing-
flokkunum eða í ríkisstjórninni,” sagði
Ólafur Ragnar. Þvert á móti hefðu ráð-
herrar Alþýðuflokksins gefið i skyn fyrir
samningsgerðina, að Færeyingar mundu
ekkert fá.
Þess í stað væri þeim afhentur mikill
afli á kostnað tslendinga á sama tíma og
veiðibann væri sett á tslendinga hluta
árs. Við lægi, að atvinnuleysi yrði í
sumum verstöðvum.
Ólafur Ragnar kvaðst ekki telja, að
þingflokkur Alþýðubandalagsins mundi
styðja samningana. Hann efaðist einnig
um stuðning í öðrum þingflokkum.
„Það er uppnám hér,” sagði Ólafur, sem
hafði verið niður í þingi og rætt við þing-
menn í morgun.
Benedikt Gröndal og Kjartan
Jóhannsson voru fyrir samninganefnd-
inni, sem samdi við Færeyinga. t nefnd-
inni var einnig Einar Ágústsson alþingis-
maður (F) auk sérfræðinga.
- HH
„Af skaplega varhugaverð aðgerð”
— segir form. Sjómannasambandsins um bolfiskhluta
Færeyjasamningsins í viðtali á baksíðu