Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 11.01.1979, Qupperneq 2

Dagblaðið - 11.01.1979, Qupperneq 2
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR IO.JANÚAR 1979. ÞAKKIR FYRIR Gon SKAUP Skjárýnir skrifar: Mig langar til að koma á framfæri þakklæti til sjónvarpsins fyrir gott ára- mótaskaup. Sérstaklega ber þó að þakka Sigurði Sigurjónssyni leikara sem er alveg brilljant, sama hvaða hlutverk hann leikur, og Edda Björg- vinsdóttir var líka mjög góð og skrýtið að hún skuli aldrei hafa fengið að leika áður. Þó er nú full ástæða til að fara að breyta um form á skaupinu og vel mætti hugsa sér að söðla um og gefa ungu og lítt þekktu fólki frjálsar hendur um form og efni. Það hefur komið í Ijósá undanförnum mánuðum að nógeraf slíku fólki. ILLA SKIPULÖGÐ BÍLASTÆÐIVIÐ BORGARSPÍTALANN Þorgrímur Sigurðsson strætisvagn- stjóri hafði samband við blaðið. Vildi hann koma á framfæri hörðum mót- mælum við skipulagsleysi á bílastæð- um fyrir utan Borgarspítalann. Sagði hann að í heimsóknartimum legði fólk bilum þvers og kruss þannig að oft væri mjög miklum erfiðleikum bundið fyrir þá vagnstjórana að komast á milli þeirra. Skapaðist af þessu mikil slysa- hætta. Þessa hættu taldi Þorgrímur stafa af þvi einu að bilastæðin væru of fá og illa skipulögð. Fyrir ofan þau er stór grasblettur sem Þorgrimur taldi að ætti ekkert erindi heldur væri miklu nær að búa þar til fleiri bílastæði. Og þá ætti jafnframt að setja hvit strik á mörk þeirra bílastæða sem fyrir væru og hvetja með þvi menn til að leggja tæmilega. I Að sögn bréfritara er crfitt að aka strætisvagni á milli bila á biiastæðum við: Borgarspítalann því þeir standa þvers og kruss. Einkennilegur verzlunarmáti Steinunn Bjamadóttir skrifar: Nú fyrir skemmstu kom ég að máli við Dagblaðið og rakti fyrir blaða- manni þess viðskipti mín við Radíó- vinnustofuna á Þórsgötu 14 sem tók af mér sjónvarpstæki í umboðssölu á sl. sumri. Þar sem mér fannst skjóta nokkuð skökku við, þegar frásögn min birtist í blaðinu 6. jan. sl.,'vil ég hér með segja þessa sögu eins og hún raunverulega gekk fyrir sig. Umrætt tæki, sem er bæði sjónvarp og útvarp, lét ég innsigla 11. júlí sl. og var það þá í fyllsta lagi enda hafði ég Iátið yfirfara það og gera við smábil- anir í þvi fyrir tæpu ári. Hringdi ég þá i Radíóvinnustofuna og spurði hvort hún vildi taka tækið í umboðssölu og var það auðsótt mál. Fór ég svo með tækið og lét það þangað, án þess að setja nokkurt verð á það. Skömmu siðar hafði ég samband við Radíó- vinnustofuna sem þá hafði verðlagt tækið á'37.000 kr. Fannst mér þetta fremur lágt verð, þar sem bæði var um sjónvarp og útvarp að ræða, en lét þó gott heita. Við þetta tækifæri spurði maður, sem ég talaði við í verzluninni, hvort þeir mættu lækka verðið ef tækið seldist ekki á þetta. Svaraði ég því ákveðið neitandi þar eð ég teldi lægra verð en þetta gjöf en ekki gjald og myndi ég þá heldur gefa tækið sjálf einhverju kunningjafólki mínu, sem vantaði tæki, heldur en láta gefa það einhverjum ókunnugum. Skömmu síðar kom maður minn í verzlunina til að vita hvernig gengi að selja tækið. Þá brá svo við að kominn var á það 15.000 kr. reikningur sem horurn var sagt að væri fyrir viðgerð- arkostnaöi. Spurði hann hvernig það mætti vera þar sem tækið hefði verið yfirt'arið í fyrra og verið síðan í fyllsta lagi. Fékk hann frekur loðin svör við því og sagði maður sá, er hann talaði við, að fyrst svo væri væri sjálfsagt að lækka reikninginn. Hins vegar var þá enn verðmiði á tækinu sem á stóð að það skyldi seljast á 37.000 kr. Þá liður og biður fram í miðjan desember og okkur hafði ekki verið tilkynnt nein sala á tækinu og reiknuðum við því með að það hefði ekki selzt. Fór þá maðurinn minn i verzlunina og ætlaði að taka tækið. Er honum þá sagt að það sé selt, hafi það farið á 27.000 kr. og dragist frá því verði 10% sölulaun og 15.000 kr. viðgerðarkostnaður. Maðurinn minn, sem vissi að við ætl- uðum heldur að gefa tækið en að selja það fyrir minna en 37.000, spurði hvort verzlunin hefði nokkra heimild haft til að selja tækið á svona lágu verði. Fékk hann litil svör við því, önnur en þau að erfitt væri að selja svona tæki og væru þeir eiginlega hættir að taka þau i umboðssölu.- Síðan kom ég daginn eftir og hitti mann í verzluninni og spurði ég hann hvort það væri rétt skilið að þeir hefðu selt tækið á 27.000 og hefðu síðan ætl- að að taka 15.000 kr. i viðgerðarkostn- að, enn fremur innti ég hann eftir þvi hver sölulaun væru og sagði hann að þau væru 10%. Ég lét í Ijósi megna óánægju með þessi málalok og bað ég manninn að gefa mér þetta skriflegt því að ég ætlaði að setja þetta í blöðin. Varð maðurinn ofsalega reiður og sagði að blöðin tækju „allan óþverra” en hins vegargæti verzlunin gefið mér peninga. Þetta var ekki það sem ég var að fara fram á svo ég gekk þegjandi út úrbúðinni. Sveinn Jónsson, eigandi verzlunar- innar, kom heim frá útlöndum um jólin en ókleift reyndist að ná í hann fyrr en daginn fyrir gamlársdag. Fer þá maðurinn minn til hans og spyr hann hvort þetta sé endanlegt verð á sjónvarpstækinu. Kvað hann svo vera og vildi greiða honum umrædda upp- hæð. Neitaði hann að taka við greiðsl- unni þvi að við hefðum hugsað okkur að láta kaupin ganga til baka og gefa tækið sjálf. Sagði maðurinn minn að þar sem ég ætti tækið tæki hann ekki við þessum peningum. Sagðist Sveinn þá ekki trúa öðru en hægt væri að komast að samkomulagi við mig. Síðan fór ég til hans og bað hann um að láta kaupin ganga til baka, sem hann taldi ómögulegt, og vildi hann ekki einu sinni segja mér hver hefði keypt það. Sagði ég honum þá að ég vildi fá 37.000, eins og upphaflega hefði verið um talað að selja tækið á. og skyldi hann draga sölulaun frá .þeirri upphæð. Bauðst Sveinn þá til að fella niður viðgerðarkostnaðinn og greiða mér 27.000 kr. fyrir tækið og taka sölulaun af þeirri upphæð. Neit- aði ég að taka við því en bað hann að gefa mér skriflega hvernig þeir hefðu upphaflega sett upp reikninginn, þar sem útskýrt væri í hverju þessi „við-. gerðarkostnaður" lægi, þar sem þeir- hefðu sjálfir gert við tækið tæpu ári áður en það var sett i sölu og það hefði verið I fyllsta lagi þegar þvi var lokað. Sagði hann þá að það kæmi ýmislegt fram á tækjum þegar farið væri að skoða þau, vildi hann ekki fara nánar út í þá sálma og ekkert gefa mér skrif- legt. Sá ég þá engan tilgang í að tala lengur við manninn og labbaði út. Þetta er sagan eins og hún raunveru- lega gekk fyrir sig og læt ég lesendur um að dæma um svona verzlunar- máta. Enn er skrifað um áramótaskaup sjónvarpsins. Á þessari mynd, sem Ragnar tók, eru þau Sigurður Sigurjónsson, Edda Björgvinsdóttir og Guðrún Ásmundsdóttir að segja brandara ársins. Loksins — loksins Magnús Magnússon skrifar: Ég bara verð að taka undir með henni Bryndísi minni, loksins — loks- ins, nema hvað ég á að sjálfsögðu við áramótaskaupið (eða hét það það ekki annars?) hvílík snilld, það skal engan undra þót nýi formaðurinn þeirra í Út- varpsráði vilji fara að útvarpa og sjén- varpa á nóttunni (líka?). Sjaldan eða aldrei hefur maður séð okkar frábæru leikara sýna önnur eins tilþrif, hugsið ykkur bara, eins og hann Arnar Jóns- son, ekki snefill af Skollaleik eftir í honum, nema kannski röddin og lát- bragðið, en það vita nú allir að það vill svo oft elta góða leikara. Eða hann Flosi, þessi snilld og litillæti í höfund- inum að láta hann vepjast með ís- lenzka fyndni, sí og æ, rétt eins og eitt- hvað vantaði á skopið í svona stórkost- legum leik? Eða leikkonurnar, þvílíkt líf og kæti, hugsið ykkur, og hug- kvæmnin, maður minn, að láta sér detta annað eins í hug og að lofa okkur að horfa á sjónvarpið í sjónvarpinu sjálfu, er þetta ekRi einhver náðargáfa (eða kannski kunningsskapur)? Ég vona bara að öllum hinum Nordvision-löndunum verði gert að- vart um þáttinn svo hann geti til dæmis orðið okkar greiðsla fyrir alla yndislegu sænsku þættina, nú, eða þá að hin Norðurlöndin gætu notað hann sem sína Vesturfara og sýnt þáttinn t.d. einu sinni i mánuði eða svo. Sömu- leiðis ætti að vera hægt að skipta á þættinum og nokkrum ódýrum dýra- lífsmyndum, enda minnir mig að komið sé við á landbúnaðarsviðinu í þættinum og ég er hreint ekki frá því að öll bændastéttin beri hlýhug til :hans Arnars fyrir túlkun hans á bónd- anum þar. Verst þótti mér hvað útvarpið var frekt að taka alla gamanleikarana í sitt skaup, nema kannski þeim hafi þótt meira gaman þar, en svoleiðis mega leikarar ekki hugsa, þeir verða að fórna sér fyrir krónurnar, þó svo lítið sé um bitastæður í verkinu sem leika áj það sáum við bezt í áramótaskaupi sjónvarpsins. Sömuleiðis ætti að vera hægt að selja hluta af þættinum hér innan- lands, t.d. Eimskipi og Flugleiðum eða jafnvel Lionsmönnum. Eins er ég alveg sannfærður um að rauðsokka- hreyfingin vill gjarnan eiga bút af honum Flosa í áramótafötum gömlu múttu. Sem sagt, það ætti að vera fljúgandi markaður fyrir alla snilldina og mér fyndist ekkert of mikið þó blaðafull- trúi ríkisstjórnarinnar yrði látinn kaupa nokkur eintök af þættinum og dreifa honum í skóla landsins, þannig að enginn gæti komizt undan þvi að sjá íslenzka sjónvarpssnilld þar sem hún rís hæst upp úr meðalmennsku út- lendra skemmtiþátta og grautfúlum framhaldsleynilögguþáttum. Ogsvokveðégykkur LOKSINS — LOKSINS — LOKSINS. P.S.: í gamla daga var það siður að skipta á krökkum ef þeir skitu á sig, því ekki að taka þann sið upp aftur, t.d. i ráðningu hjá sjónvarpinu? Til skammar að lasta biskupinn Gamall maður hringdi: Vildi hann koma á framfæri hneykslun sinni á Dagblaðinu fyrir að birta þann 3. janúar bréf frá Jóhannesi Ágústssyni þar sem farið var háðuleg- um orðum um biskupinn. Fannst gamla manninum þetta alls ekki sóma því að öðru leyti góða blaði sem Dag- blaðið væri að birta slikar greinar, þó undir fullu nafni væru. Farið væri sví- virðingarorðum um æðsta mann þjóð- kirkjunnar af slikum hroka og sjálf- birgingshætti að fátítt væri annað eins. Bréfritari væri sýnilega mjög óþroskaður þó hann vantaði ekki sjálfsálitið. Látið rauðu gang- brautarljósin blikka Þ6r Ostensen skrifar: Umferðarráð! í tilefni af mjög tíðum slysum við gangbrautarljós langar mig að beina smáhugmynd til Umferðarráðs. Ég hef trú á að ökumenn séu of mikið með hugann við hin „venjulegu” umferðar- Ijós en gleymi hins vegar gönguljósun- um vegna þess hve ný þau eru. Þetta er að minnsta kosti mín Raddir lesenda reynsla en ég starfa við bifreiðaakstur. Því dettur mér i hug hvort ekki megi láta rauðu Ijósin á gönguvitunum blikka á móti umferðinni. Fólk tekur yfirleitt betur eftir blikkljósúm en þeim sem loga stöðugt. í tilefni af nýju ári og vonandi slysa- lausu mætti athuga þetta, ekki satt? Ég hefi mikinn áhuga á að heyra frá Umferðarráði um þetta mál sem fyrst.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.