Dagblaðið - 11.01.1979, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR ÍO.JANÚAR 1979.
3
Hvað er að gerast á
Heilsuhælinu í Hveragerði?
Reynir Ármannsson skrifar:
Sl. haust dvaldi ég á hressingarhæli
Náttúrulækningafélags íslands í
Hveragerði. Á þeim tima varð ég var
við mikla ólgu á meðal starfsmann-
anna og þar sem ég er persónulega
kunnugur mörgum þeirra hef ég fylgzt
með málinusíðan.
Forsaga þessa máls er sú að einum
starfsmanna hælisins, Heimi Konráðs-
syni rafvirkjameistara sem starfað
hefur um 5 ára skeið við hælið, var
sagt upp störfum i júlí-mánuði sl. með
3 mánaða fyrirvara. Var það verk
framkvæmdastjóra hælisins, Friðgeirs
Ingimundarsonar, og gert á þeim for-
sendum að slíkur starfskraltur væri of
kostnaðarsamur. Eftir því sem mér er
tjáð mun forstjórinn hafa miðað við
aukatekjur Heimis árin 1976—77
þegar nýbyggingar áttu sér stað við
hælið. Um störf Heimis er það að
segja að jafnframt störfum rafvirkja
hefur hann annazt viðgerðir á bif-
reiðum og vinnuvélum hælisins ásamt
innkaupum á ýmsum varningi varð-
andi rekstur þess.
Að þvi er virðist tekur fram-
kvæmdastjórinn, sem nýlega er tekinn
við störfum, þessa ákvörðun án þess
að ráðgast við nokkurn af yfirmönn-
um hinna ýmsu deilda hælisins. Þar á
ég við yfirlækni, yfirsmið, yfirmann í
eldhúsi, þvottahúsi og garðyrkjustöð,
en allt þetta fólk hefur svo að segja
daglega þurft á þjónustu Heimis að
halda. 1 ágúst mánuði sl. rituðu þessir
aðilar framkvæmdastjóra hælisins
hógvært og vel rökstutt bréf og bentu
á að það væri spor I öfuga átt að víkja
burt reyndum og ágætum fagmanni á
stofnun sem er I stöðugri uppbygg-
ingu. Ennfremur hefur fjölmennur
Heilsuhælið i Hveragerði.
Ljósmynd Vigfús Sigurgeirsson
fundur starfsmanna hælisins, haldinn
í sept. sl., mótmælt einróma uppsögn-
inni og þar með lýst yfir samstöðu
sinni við Heimi gegn hugsuðum að-
gerðum framkvæmdastjórans enda
mun ekki vera fordæmi fyrir slíku í
sögu hælisins.
Réttindi starfsmanna á vinnu-
stöðum hafa blessunarlega aukizt
mjög á siðari árum, bæði með löggjöf
og samningum, en stundum hafa þeir
orðið að grípa til róttækra aðgerða og
hér eiga starfsmenn vissulega hendur
sínarað verja.
Af kynnum mínum af félagsmálum
á Norðurlöndum er mér óhætt að full-
yrða að slikur atburður, sem hér hefur
átt sér stað, gæti ekki gerzt þar sem at-
vinnulýðræði er annað en orðin tóm.
Það er út af fyrir sig ekki óeðlilegt að
framkvæmdastjórinn vilji stuðla að
sparnaði í rekstrinum en þarsem hann
hefur nýlega hafið störf hjá hælinu er
ekki aðeins eðlilegt heldur sjálfsagt að
hann ræði þessi mál við yfirmenn
hinna ýmsu deilda hælisins. Nú munu
3 aðilar annast störf þessa eina manns,
er þetta sparnaður eða hvað?
Hér með er ekki sagt að fram-
kvæmdastjórinn sé einn í ráðum.
Stjórn NLFÍ hlýtur að eiga þarna hlut
að máli, vonandi er ekki um þrýsting
að ræða utan frá.
Með tilkomu hælisins hefur geysi-
legt brautryðjendastarf verið unnið,
fyrst og fremst af hendi Jónasar heit-
ins Kristjánssonar læknis sem lagði
grundvöllinn að þessari stórmerkilegu
stofnun. Ég vona að þetta leiðinlega
ágreiningsmál verði ekki til þess að
leggja stein í götu þessarar stofnunar
með fljótræðislegum aðgerðum
skammsýnna ráðamanna.
Sá fyrrverandi
gefur engan frið
Vegna lesendabréfs sem birtist
undir ofangreindri fyrirsögn föstudag-
inn 5. janúar síðastliðinn vill DB
harma að blaðinu hefur orðið á að
taka mark á vafasamri heimild og
biður viðkomandi afsökunar.
Hvernig eitur er amfetamín?
Þórarinn Björnsson hringdi:
Var hann mjög hissa á grein heimil-
islæknis í DB sl. föstudag. Þar leggur
heimilislæknirinn til að hætt verði að
leggja áherzlu á baráttu við hass en
þess í stað tekin upp barátta við hættu-
legri eiturlyf og nefnir meðal anriars
amfetamín. Þykir Þórarni þetta undar-
legt þar eð hann hafi þekkt fjölda fólks
sem bæði neyti hass og amfetamíns!
Líki hann þvi ekki saman hvað fólk
sem notar amfetamín sé miklu minna
háð sinni nautn en þeir sem reykja
hass. Hassistar væru á köflum ruglaðir
og vissu hvorki í þennan heim né ann-
an. Aftur á móti væri eina breytingin
á fólki sem neytti amfetamíns sú að
það yrði hressara og kátara. Þórarinn
sagðist hafa talað við fjölda lækna um
amfetamín og kæmi þeim öllum
saman um að það væri læknislyf sem
ekkert ætti skylt við eitur. Það hefði
ekki verið fyrr en Gísli Helgason og
Andrea Þórðardóttir fluttu þátt i út-
varpinu um eiturlyf að Þórarinn
sagðist hafa heyrt talað um amfetamín
sem eitur. En hann hefði aldrei heyrt
neitt nánar um hvernig það eitur virk-
aði eða hvað það gæti skemmt. Vildi
hann þvi beina þeim tilmælum annað-
hvort til heimilislæknis DB eða Gísla frekar I þessu efni, gæfu jafnvel út
og Andreu að þau leiðbeindu fólki upplýsingabækling.
NY SENDING
Teg. 621
Skinnfóðraðir og með
leðursóla og rennilás.
L'rtir: Drapp leður eða
brúnt leður
Stærðir: Nr. 36—41.
Verðkr. 18.650.-
Teg. 462
Með rennilás.
Litur: Beige leður.
Fóðraðir.
Stærðir: Nr. 36—41.
Verðkr. 17.795.-
Heimilis-
iæknir
Raddir lesenda taka við'
skilaboðum til umsjónar-
manns þáttarins „Heim-
ilislæknir svarar" i síma
27022, kl. 13-15 alla
virka daga.
Skóverzlun Þórðar Péturssonar
Kirkjustræti 8 v/Austurvöll — Sími 14181
Henný Gestsdóttir 16 ára: Ég býst við
að af erlendum hljómsveitum verði
Meat Loaf fyrir valinu og af innlendum
verði það Brimkló. A.m.k. finnst mér
það vera bezta hljómsveitin.
■ ■__jt_■__' ■_rr _ _
uArJtj valin hljóm-
sveit ársins í Vin-
sældavali Dagblaðs-
ins og Vikunnar?
Guóný Friðriksdóttir, 17 ára: Ég veit
það ekki. En mér finnst Þursaflokkurinn
vera bezta íslenzka hljómsveitin. Af út-
lendum hljómsveitum reikna ég með að
Queen verði valin.
Þórhallur Hrafnsson, 15 ára: Af inn-
lendum hljómsveitum gæti ég ímyndað
mér að Spilverkið yrði fyrir valinu. Það
er ágæt hljómsveit. Af útlendum hljóm-
sveitum reikna ég að það verði kjöthleif-
urinn, þ.e. Meatloaf. Lögin hans etu
mjög góð.
Gunnar Steinþórsson, 15 ára: Ég fylgist
ekkert með poppinu og vil því ekki spá
neinu um þetta.
Grimur Jónasson, 18 ára: Ég reikna með
að það verði Þursaflokkurinn. Það eru
mjög góð lög með þeim. Ég hef gaman af
allri tónlist en ég þekki ekki nöfnin á svo
mörgum útlendum hljómsveitum að ég
treysti mér til að spá nokkru um það.
Ingibjörg Björnsdóttir, 16 ára: Það
verður sjálfsagt Brimkló. En ég fylgist
ekki svo með þessu og vil þvi engu spá
um hvaða útlend hljómsveit verði fyrir
valinu.