Dagblaðið - 11.01.1979, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1979.
DB á ne vtendamarkaði
Mikil sala í snjómoksturstækjum fyrir almenning:
BETRA AÐ HAFA „RÉTT VERKFÆRI
Borgarbúar eru sennilega allflestir
orðnir dauðleiðir á snjónum, sem nú
hefur um nokkurt skeið gert þeim
erfitt um vik. Það er bannsett ekkisens
vesen að moka snjó af bilastæðum og
húsatröppum á morgnana, sér í lagi ef
rétt verkfæri eru ekki fyrir hendi. Á
einum morgunfundinum hjá blm. DB
kom fram sú skoðun að sennilega væri
svo ástatt í heilum borgarhverfum að
þar fyndist ekki ein einasta snjóskófla.
Til væru 48 íbúða fjölbýlishús og
engin skófla á bænum. — Okkur datt
þvi i hug að kynna okkur hvar til eru
snjómokstursverkfæri og hvað þau
kosta.
Uppselt á
þrem stöðum
Sennilega er tilgátan um skóflulaus
borgarhverfi ekki rétt, þvi á þremur
stöðum voru allar snjóskóflur upp-
seldar, I Sölufélagi garðyrkjumanna,
hjá Geysi og hjá Ziemsen. Þar voru
hins vegar enn til nokkrar snjósköfur.
Hjá Ellingsen úti á Grandagarði voru
enn til snjóskóflur.
Þær eru með stóru álblaði og fislétt-
ar. Slíkar skóflur ættu ekki að vera
neinum ofraun, hvorki unglingum eða
veikbyggðu kvenfólki! Þær kosta hins
vegar 7.891 kr. Steingrímur Jónsson
afgreiðslumaður hjá Ellingsen sagði
okkur að skóflur þessar væru kallaðar
ísskóflur. Sagði hann að til hefðu verið
álskóflur með lengra skafti en isskófl-
urnar, kallaðar saltskóflur. Þær voru
hins vegar uppseldar í bili en væntan-
legar í þessari viku. Þær kostuðu 4.947
kr. en Steingrimur sagðist búast við að
þær hækkuðu eitthvað i verði. Snjóýt-
ur voru til hjá Ellingsen fyrir jólin en
seldust þá allar upp. Steypuskóflur
voru til hjá Ellingsen og kostuðu þær
3.329 kr. Þá sýndi Steingrímur okkur
svokallaðar klakasköfur, sem kostuðu
5.366 kr. Þær eru notaðar til að losa
um klaka eins og nafnið bendir til.
Snjóýtur
hjá Ziemsen
Hjá Ziemsen í Hafnarstræti voru
enn til snjóýtur, léttar og hentugar í
notkun, á 5.600 kr. Elin Þorvalds-
dóttir afgreiðslustúlka sýndi okkur
hvernig klakinn fauk af gangstéttinni í
norðangarranum á þriðjudaginn.
Sagðist hún þó ekki hafa að jafnaði
þann starfa að hreinsa gangstéttina.
Fyrir síðustu helgi var til gott úrval af
snjómoksturstækjum hjá Ziemsen en
það seldist alit upp nema ýturnar.
Hjá Ziemsen voru til þrjár stærðir
af steypuskóflum, sem kostuðu 6.885
kr„ 5.950 kr.og 6.770 kr.
Hjá Sölufélagi garðyrkjumanna
voru bæði til steypu- og stunguskóflur.
Þær fyrrnefndu kostuðu frá 2.310 kr.
(gamalt verð) og þær síðarnefndu frá
4.700 kr.
Snjósköfurnar I Geysi seldust upp
fyrr i vetur. Þar voru til steypuskóflur
í tveimur stærðum á 2.950 kr. og
3.900 kr.
A.Bj.
Klakinn fauk af gangstéttinni þegar Elín Þorvaldsdóttir beitti snjóýtunni af kunn-
ugleik á gangstéttinni fyrir framan Ziemsen.
DB-mynd Ragnar Th.
Hjá Ellingsen voru til breiðar snjóskóflur úr áli. Þær eru ótrúlega léttar. Til
vinstri við þær á myndinni eru svokallaðar klakasköfur.
DB-mynd Hörður.
Vi
Mannbroddar af
íslenzkri gerð
Lesandi Neytendasiðunnar hringdi
og lýsti ánægju sinni með skrif um
mannbrodda í blaðinu á laugardaginn.
Benti hann okkur á enn eina tegund
mannbrodda, sem hann sagðist hafa
notað í allan vetur og gefizt mjög vel.
Fást þeir i Tóbakssölunni á Lauga-
vegi 12A og kosta 2.600 kr. Kaupmað-
urinn i verzluninni, Ingólfur Hafberg,
sagði okkur að þessir mannbroddar
væru íslenzk smíð. Er þetta annað árið
sem hann hefur þá á boðstólum.
Þessir íslenzku mannbroddar eru
mjög einfaldir, skrúfur á ró í gegnum
málmplötu, sem spennt er undir skó-
sólann.
Afar einfalt er að spenna þessa mannbrodda á og taka þá af. Þeir sýnast mjög
góðir, hvort heldur er á svelli eðá i mikium snjó.
DB-mynd Bjarnleifur.
Alltaf eru að koma fleiri og fleiri staðir i Ijós þar sem hægt er að fá mannbroddana. Þessir fást hjá Ellingsen á Granda-
garði og kosta 3.662 kr., af þýzkri gerð. DB-mynd Hörður.
Athugasemd Neytendasamtakanna
„Neytendasamtökin geta eftir at-
vikum fallist á skýringar þær sem fram
koma I greinargerð Plastprents hf. (sjá
DB þriðjudag 9. jan.)
Rétt er að ítreka að könnun Neyt- ■
endasamtakanna leiddi í ljós að Plast-
fix-pokar þeir, sem Plastprent hf.
hefur framleitt sjálft, reyndust ekki
vantaldir, með einni eða tveimur und-
antckningum, þar sem svo greinilega
var um mannleg mistök að ræða.
Jafnframt vilja Neytendasamtökin
vekja athygli á því að á faktúru frá
hinu erlenda fyrirtæki dags. 29.9.1978
kemur greinilega fram að eingöngu er
um að ræða 48 poka í rúllu'en ekki 50,
eins og gert er ráð fyrir í hinni upphaf-
legu pöntun Plastprents hf.
Hér er því ekki verið að leyna neinu
af hálfu erlenda fyrirtækisins heldur
virðist frekar vera um misskilning að
ræða milli þessara tveggja aðila.
Hvað sem þessu liður þá stendur
hitt samt eftir óhaggað að neytendur
eiga heimtingu á að fá þá vöru sem
þeir hafa greitt fyrir I þvi magni sem
tilgreinter.
Örn Bjarnason,
starfsmaður
Neytendasamtakanna.”