Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 11.01.1979, Qupperneq 5

Dagblaðið - 11.01.1979, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1979. r 50 ára stúdentar hittast: „Gott að geta hugsað til gömlu, göðu daganna” - — þegar maður sér skörunganaí sjónvarpinu ídag,” sagðiHákon Guðmundsson, fyrrv. yfirborgar- dómari og stúdent 1925, íræðu „Því stend ég hér að ég get ekki annað.” Þessi fleygu orð Marteins Lúthers tók sér í munn Hákon Guð- mundsson í ræðu sem hann hélt í hófi sem Gísli Sigurbjörnsson, forstjóri Elliheimilisins Grundar, hélt 50 ára stúdentum og þar yfir sl. þriðjudag i hátíðasal elliheimilisins. Beindi Hákon orðum sínum til Gisla og þakkaði honum fyrir að gefa gömlum stúdentum kost á að hittast eins og hann hefur gert undanfarin ár. Það var faðir Gísla, sr. Sigurbjörn Á. Gíslason, sem kom þessum árlegu fundum á árið 1950 og allar götur siðan hafa gamlir stúdentar hitzt einu sinni á ári á elliheimilinu Grund. Þeg- ar sr. Sigurbjörn féll frá tók sonur hans Gísli upp þráðinn þar sem frá var horfið, og þótt hann sé ekki stúdent Happdrætti HÍ: Hálfur f immti milljarður í vinninga — mánaðarmiði hækkar í takt við verðbólguna sjálfur þá hefur hann strax eftir þrett- ándann á ári hverju boðið gömlum stúdentum til slikra funda. Lýsti Hákon hinum tæknilegu vandkvæðum á að þessi mannamót gætu haldið áfram við óbreyttar aðstæður. Fjöldi 50 ára stúdenta færi vaxandi ár frá ári, og sagði Hákon það skoðun sína að nú ættu stúdentar að hafa þessa forgöngu sjálfir, borga sitt kaffi sjálfir og gera Gísla í þess stað að heiðursgesti. „Þegar maður sér skörungana i sjónvarpinu í dag er gott að geta hugsað til gömlu góðu dag- ana,” sagði Hákon og lýsti þar með nauðsyninni á að þessum mótum yrði haldið áfram. Þarna gaf að lita fjölmarga þjóð- kunna menn: Einar Magnússon, fyrr- verandi rektor i M.R., Steindór Stein- Páll Jensson, forstöðumaður reiknistofnunar Ht (til hægri), útskýrir fyrír frétta- mönnum hvernig tölvudráttur i Happdrætti Ht fer fram. -Ljósm. K.M. Rúmlega fjórum og hálfum milljarði verður i ár varið tij vinninga í happdrætti Háskóla íslands, sem verður 45 ára á þessu ári. Helztu breytingar á fyrirkomulagi happdrættisins frá því sem verið hefur eru þær að verð einfalds miða hækkar úr 700 krónum í 1000 krónur á mánuði, lægsti vinningur hækkar úr 15 þúsund krónum í 25 þúsund, 50 þúsund króna vinningum fjölgar um tæplega þrjú þús- und, og fjöldi hálfrar milljón króna vinn inga tvöfaldast, þannig að þeir verða 432. Engin breyting verður gerð á hæstu vinningunum, þeir verða eftir sem áður níu fimm milljón króna vinningar. Þessi fjárhæð nifaldast og verður 45 milljónir, ef vinnandinn á alla fjóra miðana og trompmiðann að auki. Hverfandi likur munu hins vegar vera á því að einn og sami maðurinn fái 45 milljónirnar, að þvi er kom fram á blaðamannafundi happdrættisstjómarinnar nýlega. Enn sem fyrr fer um 70% af heildar- verði happdrættismiða í vinninga og hlýtur að jafnaði fjórði hver miði vinningá árinu. -ÓV. dórsson, fv. skólameistara M.A., Sig- urð Pálsson vígslubiskup; Vilhjálm Þ. Gíslason fv. útvarpsstjóra; Torfa Hjartarson frv. ríkissáttasemjara; Helga Ingvarsson fv. yfirlækni; Gunnlaug Briem fv. ráðuneytisstjóra og Einvarð Hallvarðsson fv. banka- fulltrúa, svoeinhverjir séu nefndir. m------------------► „Við vorum fjörutiu stúdentar árið 1917 og það kvenmannslausir,” sögðu þeir Vilhjálmur Þ. Gislason, fv. út- varpsstjóri og sr. Gunnar Benedikts- son. „Núna erum við aðeins mættir hér tveir en alls erum við sex á lifi úr þess- um árgangi. Þessi mikli stúdentafjöldi árið 1917 var met sem ekki var slegið fyrr en 1925eða ’26.” Alls hafa þama verið mættir um 70 stúdentar af 205 sem enn eru á lifi af jjeim sem náð hafa aldursmarkinu. Elztur núlifandi stúdenta hér á landi er Þorsteinn Þorsteinsson fv. hag- stofustjóri, en hann varð stúdent árið 1902. Elztir þeirra sem þarna voru mættir voru þeir Erlendur Þórðarson, prestur og Valgeir Björnsson verk- fræðingur, stúdentar árið 1913. -GAJ- Talið frá vinstri sr. Sigurður Pálsson vígslubiskup (stúdent 1928), Frey- móður Þorsteinsson, fv. bæjarfógeti (stúdent 1926), Stefán Guðnason, fv. tryggingayfirlæknir (stúdent 1924) og Þórarinn Þórarínsson fv. skólastjóri (stúdent 1924). DB-myndir Hörður. FALKINN kynnir 90 mín. konsert í kvöld þad er upplagt aó byrja kvöldió meó því aó skreppa upp í PENTHÚS og ylja sér á sjóóandi heitum kaffidrykk MICKIE GEE sér um fjörió á dansgólfinu af sinnialkunnu snilld DISCO-DANS ’79 önnur umferó á sunnudagskvöld

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.