Dagblaðið - 11.01.1979, Page 6
6
DAGBLAÐIÐ.FIMMTUDAGUR ll.JANÚAR 1979.
Margt verða lögregluþjönar að leggja fyrir sig eins og sést bezt á myndinni hér að ofan sem er frá Bretlandi. Vegna kuldanna að undanförnu þótti nauðsynlegt að huga
að svönum á tjörnum f skemmtigörðum og vlðar. En hver átti að ná i þá — auðvitað lögreglan. Sést einn þeirra vera að handsama einn svartan fyrír utan Leeds.
Washington — Teheran:
KEISARINN AÐEINS VALDA-
LAUS ÞJÓÐHÖFÐINGISEGJA
BANDARÍKJAMENN NÚNA
Svo virðist sem rikisstjórn Banda-
ríkjanna sé nú að sætta sig við að keis-
arinn í íran verði ekki annað í framtíð
inni en valdalaus þjóðhöfðingi lands
síns í stað þess að vera þar langvalda-
mestur og I raun sá sem tók allar mikil
vægar ákvarðanir. Er þetta dregið af
orðalagi yfirlýsingar bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins varðandi málefni
trans sem gefin var i gær. Hingað til
hefur stjórnin í Washington virzt
styðja keisarann heils hugar og ekki
eru nema fjórar vikur siðan sagt var
að hún kysi helzt að hann héldi hlut-
verki sínu í Iran óbreyttu ef íranska
þjóðin féllistá það.
Shapur Baktiar, hinn nýi forsætis-
ráðherra írans, mun ávarpa báðar
deildir þings landsins í dag og kynna
þar fyrir þeim hina nýju lýðræðis-
stefnuskrá sína. Til að hann verði að
fullu viðurkenndur sem forsætisráð-
herra verða deildirnar að veita honum
traust.
Talið er að keisarinn muni ekki fara
í sitt árlega vetrarleyfi fyrr en Baktiar
hefur fengið traust þingsins. Sagt er að
margir fylgismenn keisarans leggi nú
fast að honum að fara hvergi. Óttast
þeir að sögn, að fari hann úr landi
núna verði honum aldrei heimilað að
snúa til baka.
Fyrir nokkrum dögum tilkynnti
keisarinn að hann hefði ákveðið að
gefa allar eigur sínar i íran til þjóðar-
innar. Þær munu vera gífurlega
miklar og mun ætlunin vera að verja
þeim til ýmissa umbóta í félagsmálum.
Keisarinn og fjölskylda hans mun þó
engan veginn á vonarvöl þar sen\
eignir hans erlendis munu heldur ekk
ert smáræði.
Erlendar
fréttir
Tókaftur
saman við
nauðgarann
Þau tíðindi bárust í gær frá Bandaríkj-
unum að hjónakornin sem deildu hart
fyrir rétti vegna ákæru eiginkonunnar
um meinta nauðgun eiginmannsins hafi
sætzt heilum sáttum. Mun málið hafa
verið afturkallað en fyrir héraðsdómi
var eiginmaðurinn sýknaður af ákær-
unni.
Neitaði
skilnaði vegna
hundanna
Dómari einn i Chicago — hundavinur
að því er virðist — neitaði að veita
hjónum einum skilnað. Eiginkonan
krafðist skilnaðar á þeim forsendum að
eiginmaðurinn léti ellefu smáhunda
hlaupa að vild um íbúð þeirra. Dómar-
inn neitaði beiðni konunnar og skipaði
þeim að reyna að sættast. — Ég ætla
ekki að láta þetta hjónaband fara beint í
hundana — sagði hann um leið og hann
visaði málinu frá.
FARA130 ÞUS.
BÍLSTJÓRAR í
VERKFALL?
Miklar líkur er á þvi að verkfall afskornum skammti
vörubifreiðastjóra í Bretlandi verði
opinbert og stjóm samtakanna lýsi sig
sammála þeim kröfum, sem frammi
eru hafðar. Mundi það þýða að um
það bil 130 þúsund bílstjórar tækju
þátt i verkfallinu. Mundi ástandið þá
mjög versna og fljótlega fara að bera á
enn meiri vöruskorti en hingað til.
Erfitt mun að sögn að fá leigubifreiðar
i London vegna þess að bensín er orðið
Forráðamenn stærsta iðnfyrirtækis
Bretlands ICI efnahringsins, sögðu í
gær að ef 130 þúsund bifreiðastjórar
færu i verkfall yrði fyrirtækið að
stöðva framleiðslu sína í lok næstu
viku.
Margrét Thatcher, formaður thalds-
flokksins brezka, hefur krafizt þess að
James Callaghan forsætisráðherra lýsi
yfir neyðarástandi en þá mundi vera
hægt að kveðja hermenn til að sinna
störfum verkfallsmanna. Callaghan
segist þó alls ekki á þeim buxunum og
sver af sér allar ráðagerðir þar um.
Auk bifreiðastjóranna eru blaða-
menn á landsbyggðablöðum i verkfalli
og lestarstjórar hóta verkfalli í næsta
mánuði. Bifreiðastjórarnir krefjast 65
punda á viku. Þeim hafa verið boðið
60 pund. Laun þeirra áður en til verk-
falls kom voru 53 pund.
BÍLAPARTASALAN
Höfum úrval notaðra varahluta íýmsar
tegundir bifreiöa, tildæmis:
Franskur Chrysler '71 Fiat128 '73
Toyota Crown '67 BMW 1600 '69-70
Volvo Amazon'65 Fiat125'73
Einnig höfum vid úrval afkerruefni,
til dæmis undir vélsleða.
Sendum um alltland.
BÍLAPARTASALAN
Hófbatúni 10 — Sími 11397
Þotusveit send til að róa
geð Saudi-Arabíumanna
Tilkynnt var í Washington að sveit F-
15 orustuþotna muni fljúga til Saudi-
Arabíu til að undirstrika stuðning sinn
við stjórn landsins. Mun þetta að sögn
vera að beiðni Saudiarnba sjá^ra, sem
mun ekki rótt vegna ótryggs ástands i
sinum heimshluta. Er þá einkum að
nefna ástandiðí Íran.
Að sögn sérfræðinga eru Saudi-Arabía
og iran og næsta nágrenni mjög mikil-
vægur heimshluti bæði fyrir Bandarík-
in ogöll ríki Atlantshafsbandalagsins.
Saudi-Arabía hefur pantað sextíu F-
15 þotur en þær verða ekki afhentar fyrr
en árið 1982.
HREYFMi
5(mj 8 55 22