Dagblaðið - 11.01.1979, Page 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1979.
7
Rúmenarenn
Bandaríkin:
með sér-
afstöðu
— ekki hrifnir af
valdatöku Vietnama
íKambódíu
Rúmenar undirstrikuðu enn sérstöðu
sina i gær meðal kommúnistarikja Aust-
ur-Evrópu, þegar ráðamenn þar lýstu
því yfir að innrás í annað riki væri aldrei
afsakanleg. Eru þeir þar í andstöðu við
Sovétríkin og önnur kommúnistaríki
Evrópu, sem öll hafa fagnað valdatöku
uppreisnarmanna i Kambódíu, sem
studdir eru af Vietnam.
Bandaríkjastjórn hefur lýst áhyggjum
sinum yfir þvi að bardagar geti breiðzt
út inn fyrir landamæri Thailands. Vance
utanrikisráðherra Bandaríkjanna mun
vera reiðubúinn að hitta Shianouk prins,
fulltrúa stjórnar Pol Pots, að máli ef ósk-
að væri eftir þvi.
Olíufélögin sökuð
um okur
— talin hafa gef ið upp hærri f ramleiðslu
kostnað en rétt var og þannig svikið af
neytendum þúsundir milljarða dollara
Bandaríska dómsmálaráðuneytið
hefur nú gefið út ákæru á hendur
mörgum bandarískum oliufélögum og
öllum þeim stærstu um að þau hafi
selt olíu og fleiri vörur mun hærra
verði en þeim var leyfilegt. Á þetta að
hafa gerzt allt frá árinu 1973. Málið
hefur verið rannsakað i samvinnu við
orkumálaráðuneytið í Washington og
er þess krafizt að sá hagnaður sem
fengizt hafi með of háu söluverði verði
endurgreiddur auk vaxta og sekta.
Opinberir aðilar telja sig hafa
komizt að slíkum svikum sem nemi
rúmlega tvö þúsund milljörðum doll-
ara samtals en rannsóknin hófst i sept-
ember árið 1977. Áður hafði komizt
upp um sams konar svik hjá Exxon,
stærsta oliufyrirtæki heims. Er það
eitt af þeim málum, sem nú eru að
hefja göngu sína fyrir rétti þar vestra.
Einnig er höfðað mál á hendur Mobil,
Texaco, Amoco, Shell, Philips, Gulf,
Atlantic Ricfield ogCities Service.Eru
þetta allt risará sviði olíu ogjarðgass.
Fyrirtækin niu, sem samtals eru
sökuð um að hafa svikið út einn millj-
arð dollara, eru sögð hafa gefið upp of
mikinn kostnað við vinnslu olíu og
gass siðan 1973. Hefur það valdið of
háu verði á afurðum þeirra. Einnig
tclja opinberir aðilar að forráðamenn
félaganna hafi gefið sér imyndað og
falskt markaðsverð en ekki haft nægi
lega hliðsjón af raunverulegum
vinnslukostnaði.
Olivia Newton-John var einn þeirra heimsfrægu skemmtikrafta sem kom fram á
skemmtun þeirri sem haldin var i New York i tilefni upphafs barnaársins. Gefur
hún sem aðrir kraftanna bæði vinnu sina og allan hagnað af plötusölu og til sjón-
varps. Allur hagnaður rennur I Barnahjálparsjóð Sameinuðu þjóðanna. Myndin
er frá hljómleikunum.
Mikill hagnaður af ó-
löglegum kvikmyndum
—alþjóðleg rannsókn í gangi til að stöðva starfsemi
svikahrappanna
Rannsókn stcndur nú yfir á sölu og
dreifingu ólöglegra eintaka af kvikmynd-
um og taka aðilar frá áttatíu þjóðum
þátt í henni. Er hér um að ræða að ein-
hverjir aðilar hafa endurgert kvikmyndir
án tilskilinna leyfa og hagnazt drjúgum.
Talið er að kvikmyndaframleiðendur og
aðrir, sem nærri framleiöslu þeirra
koma, tapi í það minnsta átta hundruð
milljónum dollara á ári vegna þessa
framferðis lögbrjótanna.
FBI bandaríska alríkislögreglan komst
nýlega yfir fjörutíu og fjórar ólöglegar
kvikmyndafilmur I Cleveland I Ohio.
Var þar um að ræða ýmsar stórmyndir
eins og Irma La Douce, Mary Poppins,
Star Wars, Hrói höttur, Fýkur yfir
hæðir.
Einn aðili var handtekinn, þegar film-
urnar fundust. Sem dæmi um hinn ólög-
lega hagnað hefur verið sagt frá þvi að
kvikmyndin The Exorcist hafi verið
sýnd i Alaska í einn mánuð og hagnað-
urin ólöglegi numið jafnvirði nærri þrjú
hundruðmilljóna islenzkra króna.
Meira
skápa- og hillusamstæður
• Mikiðúrvalaf
íslenzkum húsgögnum
• Berið saman verð og
gæði
• íslenzk listasmíð
Teiknuð af íslenzkum
hönnuði fyrir íslenzk
heimili.
Kr. 431.500/-
Meira
borðstofusett, verð
með 6 stólum frá kr.
399.500/-
Einnig er DROPA
skápa- og hillusam-
stæðan væntanleg
næstu daga.
Á.GUÐMUNDSS0N
Húsgagnaverksmiðja,
Skemmuvegi 4r Kópavogi. Sími 73100.