Dagblaðið - 11.01.1979, Síða 15
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1979.
15
DOMNEFNDIR SKIPAÐAR VEGNA
MENNINGARVERDLAUNA DB
Nú hefur verið gengið frá því hverjir
munu sitja í dómnefndum vegna menn-
ingarverðlauna Dagblaðsins sem afhent
verða seinni hluta febrúarmánaðar, en
eins og áður hefur verið tilkynnt mun
Jónina Guðnadóttir leirkerasmiður
hanna verðlaunagripina. í bókmennta-
nefnd munu sitja: Ólafur Jónsson, gagn-
rýnandi DB og háskólakennari, Gunnar
Stefánsson, bókmenntagagnrýnandi DB
og dagskrárfulltrúi í hljóðvarpi, og Aðal-
steinn Ingólfsson, ritstjóri menningar-
mála á DB. 1 dómnefnd fyrir leiklist
verða: Ólafur Jónsson, Helga Hjörvar,
framkvæmdastjóri Landsambands
áhugaleikfélaga, og Sverrir Hólmarsson,
leiklistargagnrýnandi Þjóðviljans og há-
skólakennari. í dómnefnd fyrir tónlist
verða: Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld,
Guðmundur Emilsson, tónlistargagn-
Páll V. Bjamason
rýnandi á Morgunblaðinu, og Fjölnir
Stefánsson, skólastjóri Tónlistarskóla
Kópavogs. 1 myndlistarnefnd sitja:
Aðalsteinn Ingólfsson, Hrafnhildur
Schram listfræðingur og Magnús Tóm-
asson myndlistarmaður. 1 dómnefnd
fyrir byggingar eru svo Páll V. Bjarna-
son arkitekt, Gisli Sigurðsson, ritstjóri
Lesbókar Morgunblaðsins, og Gestur
Ólafsson skipulagsfræðingur. Væntir
DB sér góðs af samstarfi við þessa starfs-
krafta sem allir hafa látið að sér kveða í
hinum ýmsu listgreinum. Munu þeir
væntanlega skila áliti sínu í fyrstu viku
febrúarmánaðar og verður þá vonandi
Ijóst hvaða skoðanir lesendur DB hafa á
því hverjir séu verðlauna verðir meðal
listamanna. Verða svo atkvæðaseðlar
vegna menningarvcrðlauna birtir í DB
strax að Stjörnumessu lokinni. A.I.
Guðmundur Emilsson
Fjölnir Stefánsson
Gestur ÓJafsson
Gísli Sigurðsson
Þorkd Sigurujörnsson
Hrafnhildur Schram
Sverrir Hólmarsson
Aðalsteinn Ingólfsson
Gunnar Stefánsson
Leiklistargyðjan
— leikurfyrirdansi
Ný hljómsveit hefur tekið til starfa i m.a. kunnur sem listmálarinn Tarnús,
Leikhúskjallaranum. Heitir hún og loks Sigurður Þórarinsson á píanó
Thalia einsog leikgyðjan. og orgel. Sigurður hefur lengi fengizt
Thalia leysir af hólmi hljómsveitina við hljóðfæraleik, m.a. með Lúdó-sext-
Skugga sem léku í kjallaranum hálft ettogsíðastmeðSkuggum.
fjórða ár. 1 Thaliu eru þeir Garðar Söngkona með hljómsveitinni er
Karlsson, á gitar og bassa, en hann var Anna Vilhjálms sem ekki hefur sungið
áðurmeðhljómsveitumSvavarsGests lengi hér heima. Hún dvaldi um
og Magnúsar Ingimarssonar og hljóm- þriggja ára skeið i Bandaríkjunum og
sveitinni Stormum; Grétar Guð- söng þar m.a. inn á plötur fyrir þar-
mundsson söngvari og trommuleikari, lendan markað.
en hann hefur komið víða við og er -ÓV.
Hljómsveitin Thalia án önnu Vilhjálms söngkonu.
Sigurður Þórarinsson.
vinstri: Garðar Karlsson, Grétar Guðmundsson og
DB-mynd Ragnar Th.
Eins og kunnugt er voru hér á ferð
sjónvarpsmenn frá BBC Skotlandi síð-
astliðið sumar til að kvikmynda eftir
njósnasögu Desmond Bagley, Runn-
ing biind, sem á íslenzku hefur hlotið
nafnið Út i óvissuna og gerist hér á
landi. Voru ýmis stirni úr brezka sjón-
varpinu í aðalhlutverkum — eins og
I Stuart Wilson, George Sewall og Vlad-
ek Sheybal en einnig voru íslenzkir
kraftar fengnir til leiks og er þar þáttur
Ragnheiðar Steindórsdóttur einna
stærstur. Leikur hún islenzka lags-
konu söguhetjunnar, Elinu. Einnig
koma Steindór Hjörleifsson og fleiri
við sögu. Leikritinu stjórnaði Jack
Gerson og verður það sýnt I nokkrum
þáttum út þennan mánuð í BBC. Síð-
astliðinn föstudag var fyrsti þáttur
sýndur og nú hafa DB borizt nokkrar
umsagnir um hann. Þykir mörgum
sem þarna sé harla léttvægt efni á ferð-
inni þar sem flest gamalkunn brögð
séu notuð. Daily Telegraph kallar
þáttinn „knockabout spy story” og
„nonsensical” en gefur þó í skyn að
hann sé ekki leiðinlegur. Helzt sé það
íslenzka landslagið sem hafa megi
ánægju af og gefi eltingaleikurinn
ýriiis tækifæri til náttúruskoðunar. ari viðbrögðum brezkra fjölmiðla við
Ekkert hafa menn út á leik að setja i þessum þætti.
þættinum. DB mun fylgjast með frek- ^
Unnið við kvikmyndun i Austurstræti sl. sumar. Aðalieikarinn kemur gangandi
eftir Austurstræti, kaupir blað af sölustrák og fer inn á Hressó I kaffi.
DB-mynd Hörður
Út í óvissuna
— viðbrögð brezkra gagnrýnenda við fyrsta þætti