Dagblaðið - 11.01.1979, Side 24

Dagblaðið - 11.01.1979, Side 24
 Formaður Sjómannasambandsins um bolfiskhluta Færeyjasamninganna \ v Afskaplega varhugaverð OAflfAiM ( ~ kolmunna- og loðnuhlutinn kann að j dUftvív | vera eðlilegur J „Að mínu mati var afskaplega óvar- lega gert að semja um 17 þúsund tonna bolfiskafla til handa Færeying- um því það er fráleitt að við séum af- lögufærir á bolfisk og það þvert á móti,” sagði Óskar Vigfússon, for- maður Sjómannasambands íslands í viðtali við DB í morgun vegna samn- inganna við Færeyinga I gær. Samið var um sama bolfiskmagn og i fyrra, nema hvað þorskaflahlutinn var lækkaður um þúsund tonn og aðr-, ar tegundir um leið hækkaðar um þús- und. Sjómenn og útgerðarmenn höfðu harðlega mótmælt að slíkt samkomu- lag yrði gert áður en gengið yrði til þessara samninga, en Sjómannasam- bandið hefur ekki ályktað um málið enn. Varðandi samningana um loðnu og kolmunnaveiðar þjóðanna, var Óskar ekki eins andsnúinn samkomulaginu: „Ég loka a.m.k. öðru auganu fyrir þeim samningum á þessu stigi”, enda má benda á að Færeyingar gætu hugs- anlega veitt loðnu norðan miðlinu milli lslands og Grænlands og jafnvel samið um viðNorðmennað fáaðveiða loðnu við Jan Mayen, sem talin er úr islenzka stofninum en utan 200 mílna okkar. Einnig munu íslendingar vafa- laust ná mun betri tökum á kolmunna- veiðum alveg á næstunni og geta nýtt aflann verulega. TVÆR KONUR KÆRA SAMA MANNINN FYRIR NAUÐGUN Tvær konur kærðu sama manninn fyrir nauðgun í gærmorgun. Maðurinn er utanbæjarmaður, gestkomandi á Hótel Loftleiðum. Hann neitar því að hafa nauðgað konunum. Ljóst virðist að hann hafi haft kyn- mök við aðra konuna. Hann segir að það hafi hann gert með samþykki hennar og hafi hann engri nauðung beitt. Maðurinn fór siðar mjög ákveðið á fjörurnar við hina konuna. Ekki er alveg Ijóst, hvort honum hafi tekizt samfarir við hana. Sá sem kærður var. heldur þvi fram, að konurnar báðar hafi nánast boðið sér sjálfar inn I herbergi sitt en hann hins vegar ekki hafnað félagsskapnum. Áfengi var haft um hönd og var þetta fólk eitthvað mismunandi drukkið en allverulega ölvað. Málið er i rannsókn.BS BMII |>ann niund. m.i rsiamwn, -fluíu .0 setj. upp hiltó.rs.ipmp og undirrit, fiskveidLs.mninS.n. r.k .f Þ«su *.rt A n.,ndinni eru fri vinstri Atti D.tn og Be^dÉkt Grtndjd .t.nrilthri6hem. *»»*•/>* Alli Dam lögmrtur Færevja augun i eitlhv. rl .triöi i samningnum, sem hann taldi ekki haf. verift rætt. Voru aftan þ, eru Danjal P. Damelsen menntamilarafthen ., Ouftmundnr Eiriksson þjftftréttarfræftingur, Hennk þ„ losnundara. reknir úi aflur og menn slungu saman nen„m um stund. Ekki reyndist þetta þft Wng töf sem Sv. Björnsson riftuneytisstjöri, Ólafur Egilsson deBdustjftn og J6n L. Arnalds riftuneytkstjón. ^ ^ ^ Óbreyttur botnfiskafli Færeyinga: Fá að veiða sama magn hér og þeir leyfa útlendingum — þúsund tonna lækkun á þorskveiðikvóta og loðnukvóti lækkaður um 17.500 tonn en sama magn af kolmunna í staðinn Ljóst er að veiðihagsmunir Færey- inga hér við land eru þeim mjög mikil- vægir. Á síðasta ári fengu þeir fimmta hluta botnfiskafla sins og tæpan þriðj- ung af heildarloðnuafla innan is- lenzkrar fiskveiðilögsögu. Ekki verður þó annað séð af þeim upplýsingum, sem gefnar voru á blaðamannafundi I gær en að sá afii, sem Færeyingar heimila Bretum, Vestur-Þjóðverjum og Norðmönnum innan sinna fisk- veiðimarka, samsvari nokkurn veginn þeim afla, sem þeir fá að veiða hér við land. Er þá átt við botnfiskafla. Síðastliðið ár veiddu Norðmenn 6500 tonn við Færeyjar, aðallega ufsa og löngu. Vestur-Þjóðverjar voru með 7000 tonn af karfa og 2000 tonn af ufsa. Bretar munu hafa veitt 7600 tonn við Færeyjar í fyrra, þar af 2500 tonn af borski. Fiskveiðisamningar þessara þjóða við Færeyinga eru nú í endurskoðun og munu viðræður hefjast síðar i þess- um mánuði. Fiskveiðisamningur Islands og Fær- eyja, sem undirritaöur var i gær, felur i sér að þeir mega veiða 6000 tonn i ár af þorski en það er minnkun um 1000 tonn frá fyrra ári. Botnfiskafli þeirra er aftur á móti óbreyttur i heild sinni eða 17.000 tonn. Gagnkvæmt samkomulag þjóðanna um loðnu og kolmunaveiðar er óbreytt, nema að því leyti að Færey- ingar mega veiða 17.500 tonn afloðnu og sama magn af kolmunna hér við land I stað 35.000 tonna af loðnu á fyrra ári. íslenzk skip mega veiða 35.000 tonn af kolmunna við Færeyj- ar. ■ Hert er á reglum um eftirlit með veiðum færeyskra skipa við ísland. Má færa þau til hafnar til skoðunar, þeim ber að halda afladagbók og einnig ber þeim nú að koma beint til hafnar I Færeyjum eftir veiðiferð á ís- landsmiðum. Veiði þau jafnhliða við Færeyjar skal sá fiskur teljast veiddur við tsland. Er þessi síðasta regla sett til að koma í veg fyrir þá tortryggni sem gætt hefur um að afli veiddur við ts- land sé gefinn upp sem veiddur við Færeyjar. -GS. frfálst, óháð dagblað FIMMTUDAGUR 11. JAN, 1979. Laumufarþegarnir íBakkafossi: Ætluðu íVillta vestrið Strákarnir tveir, sem fundust laumú- farþegar i Bakkafossi í fyrradag eftir mikla leit hérlendis i kjölfar hvarfs þeirra á laugardaginn var, munu hafa ætlað til Villta vestursins að þvi er segir í fréttaskeyti Reuters i morgun. Segir I skeytinu að þeir hafi með því ætlað að láta gamla drauma sína rætast, en drauma um hvað var ekki nánar til- tekið i skeytinu. Óvist er enn hvort þeir verða látnir koma aftur heim með skipinu eða verða ferjaðir á flugvöll i Bandaríkjunum, þegar skipið kemur þangað á mánudag, og flogið með þá heim. - GS Skákmótið íHamar: Margeir með góða stöðu í 2 biðskákum Tefldar hafa verið 3 umferðir á al- þjóðlega skákmótinu í Hamar i Noregi. Tveir lslendingar eru meðal keppenda, þeir Jón L. Árnason og Margeir Péturs- son. Margeir er með 1/2 vinning og 2 biðskákir gegn Goodman frá Englandi og Berkell frá Svíþjóð. Hefur Margeir betri stöðu i báðum þessum skákum. Jón hins vegar hefur ekki enn hlotið vinning en á tvær biðskákir, aðra sennilega tapaða, en jafnteflismöguleika gegn eina stórmeistaranum i mótinu, Westerinen frá Finnlandi. Staðan í mótinu er mjög óljós vegna hins mikla fjölda biðskáka og hefur enginn skákmannanna hlotið meiraen 1 1/2 vinning. -GAJ Blaðberi DB týndi 160 þús. Litill drengur, einn blaðbera Dag- blaðsins, varð fyrir því afleita óhappi síð- degis I gær, að tapa um 160 þúsund krónum þegar hann var á leið með pen- ingana á afgreiðslu blaðsins til að ganga frá uppgjöri sinu. Hann telur sig hafa týnt peningunum á leiðinni frá bifreiðastæði Hreyfils við Hlemm að afgreiðslu DB í Þverholti 11. Hann og fleiri leituðu af sér allan grun, þannig að augljóslega hefur einhver fundið peningana. Þetta gerðist um kl. 17. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hafa samband við áskriftardeild Dag- blaðsins i síma 27022. ÓV r^yKaupið\ ,3 TÖLVUR í I* OG T.öl BANKASTRÆTI8 £1*11

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.