Dagblaðið - 04.05.1979, Qupperneq 1
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 1979.
15
Sjónvaip næstuvika...
Sjónvarp
Dagskrórliðir eru í litum nerria
annað sé tekið f ram.
Laugardagur
5. maí
16.30 fþróttir. Umsjónarmaður Bjami Felixson.
18.30 Heiða. Fimmti þáttur. Þýðandi Eirikur
Haraldsson.
18.55 Enska knattspyrnan
Hlé.
20.00 Fréttir og veöur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Stúlka á réttri leið. Bandarískur gaman-
myndaflokkur með Mary Tyler Moore í aðal-
hlutverki. Áttundi þáttur. Þýðandi Kristrún
Þórðardóttir.
20.55 Fleira þarf i dansinn en fagra skóna. Flytj-
endur Dansstúdió 16. Stjórn upptöku Andrés
Indriðason.
21.30 Pörupiltar (The Jokers). Bresk gaman-
mynd frá árinu 1967. Handrit og leikstjóri
Michael Winner. Aðalhlutverk Michael Craw-
ford, Oliver Reed og Harry Andrews.
Bræðrunum Michael og David finnst þeir hafa
verið beittir miklum órétti. Þeir hyggjast ná
sér niðri á stjórnvöldum með þvi að fremja
stórkostlegt rán. Þýðandi Ingi Karl Johannes-
son.
23.30 Dagskrárlok.
Sunnudagur
6. maf
17.00 Húsiö á sléttunni. 23. þáttur. Lokkandi
veröld. Efni 22. þáttar: Ingalls-fjölskyldan er á
heimleið frá Mankato, þegar óveður skellur á.
Fólkið leitar skjóls í yfirgefnu húsi. En matur
er af skornum skammti. Á sömu slóðum
heldur sig indíáni, sem yfirvöld leita að. Hann
bjargar Karli í veiðiferð og fær matarbita í
þakklætisskyni. Leitarmenn koma skoti á
hann og særa hann lítillega, og hann hverfur
inn í skóginn. Þýðandi óskar Ingimarsson.
18.00 Stundin okkar. Umsjónarmaöur Svava
Sigurjónsdótir. Stjórn upptöku Tage Ammen-
drup.
Hlé.
20.00 Fréttir og veöur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Landsmót hestamanna að Skógarhólum í
Þingvallasveit 1978. Segja má að þjónustu-
hlutverki hestsins hafi lokið eftir síöari heims-
styrjöldina og upp frá þvi hafi hann orðið
manninum andsvar við hávaða, streitu og
hraða atómaldar. Á hestbaki var unnt
að hvcrfa á vit isl. náttúru. Landsmót
hestamanna eru haldin á fjögurra ára festi, og
, megintilgangur þeirra er að sýna og reyna
bestu hesta í eigu landsmanna, kynbótahross
og góðhesta. Myndina lét Sjónvarpið gera á
landsmótinu á Þingvöllum I fyrrasumar. Sýnir
hún sitthvað af flestum atriðum mótsins og
hefst á sögulegum inngangi. Kvikmyndataka
Sigurliði Guðmson og Baldur Hrafnkell
Jónsson. Klipping Isidór Hermannsson og
Baldur Hrafnkell Jónsson. Hljóöupptaka.
Oddur Gústafsson. Texti Albert Jóhannsson
o.fl. Ráðgjafí og þulur Gunnar Eyjólfsson.
Stjórnandi Baldur Hrafnkell Jónsson.
21.25 Svarti-Björn. Sjónvarpsmyndaflokkur í
fjórum þáttum, gerður I samvinnu Svia, Norð-
manna, Þjóðverja og Finna. Annar þáttur.
Efni fyrsta þáttar: Sagan gerist í norðurhéruð-
um Sviþjóðar og Noregs um síðustu aldamót.
Verið er að leggja járnbraut frá Kiruna til
Narvikur. Þetta er umfangsmikið verk, sem
veitir mörgum atvinnu. Ung, norsk kona
kemur norður í atvinnuleit. Hún kveðst heita
Anna Rebekka. Hún hittir flokksstjórann Ár-
dals-Kalla, sem býður henni ráðskonustarf.
Meðan hún biður þess að geta byrjað, kynnist
hún lífsþreyttum spreng\manni, Söngva-
Sveini. Hann styttir sér aldur, en áður fær
Anna hjá honum nýtt, nafn, Svarti-Bjöm, og
festist það við hana. Þýðandi Dóra Hafsteins-
dóttir. (Nordvision — Sænska sjónvarpið).
22.25 Alþýðutóniistin. Ellefti þáttur. Bandarísk
dreifbýlistónlist (C&W). Meðal annarra sjást í
þættinum Minnie Pearl, Ernest Tubb, Roy
Acuff, Roy Rogers og Tent Ritter. Þýðandi
Þorkell Sigurbjörnsson.
23.15 Aö kvöldi dags. Séra Sigurður Haukur
Guðjónsson, sóknarprestur í Langholtspresta-
kalli flytur hugvekju.
23.25 Dagskrárlok.
Mánudagur
7. maí
20.00 Fréttir og veöur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 íþróttir. Umsjónarm.aður Bjarni Felixson.
21.00 Á vængjum söngsins. Gamanleikrit eftir
C. P. Taylor, byggt á leikriti eftir Þjóðverjann
Carl Stemheim. Leikstjóri June Howson.
Aðalhlutverk Felicity Kendal, Lynda Mar-
chal, Gary Bond og Daniel Massey. Leikritið
gerist um siðustu aldamót. Fjórir góðborgarar
hafa lengi sungið saman við góðan orðstir.
Einn sóngvaranna deyr óvænt, og eini maður
inn, sem getur fyllt i skarðið, er bara pípu-
lagningamaður og þar að auki fæddur utan
hjónabands. Þýðandi Rannveig Tryggva-
dóttir.
22.20 Dagskrárlok.
Þriðjudagur
8. maí
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Kjarnorkubyltingin. Fjórði og siðasti þátt
ur. Kjarnorka til friðsamlegra nota. Þýðandi
og þulur Einar Júlíusson.
21.25 Umheimurinn. Viðræðuþáttur um erlenda
viðburði og málefni. Umsjónarmaður Bogi
Ágústsson.
22.15 Hulduherinn. Syrtir í álinn. Þýðandi Ellert
Sigurbjörnsson.
23.05 Dagskrárlok.
Miðvikudagur
9. maí
18.00 Barbapapa. Endursýndur þáttur úr Stund-
inni okkar frá síðastliðnum sunnudegi.
18.05 Börnin teikna. Kynnir Sigríður Ragna
Sigurðardóttir.
18.15 Hláturleikar. Bandariskur teiknimynda-
flokkur. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
18.40 Knattleikni. Fjórði þáttur er um stöðu
tengiliðar. Leiðbeinandi Trevor Brooking.
Þýðandi og þulur Guðni Kolbeinsson.
19.05 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Vaka. í þættinum verður m.a. fjallað um
Listahátið barnanna að Kjarvalsstöðum.
Stjórnupptöku Þráinn Bertelsson.
21.15 Valdadraumar. (Captains and The Kings).
Bandariskur myndaflokkur i átta þáttum,
byggður á metsölubók eftir Taylor Caldwell.
Aðalhlutverk Richard Jordan, Joanna Pettet,
Charles Durning, Barbara Parkins og Vic
Morrow. Fyrsti þáttur. Sagan hefst um miðja
nitjándu öld. lrinn Joseph Armagh flyst ásamt
yngri systkinum sinum til Bandaríkjanna eftir
lát móður þeirra. Hann kemur börnunum fyrir
á munaðarleysingjaheimili og byrjar að vinna i
kolanámu. Fyrsti og siðasti þáttur mynda-
flokksins eru um 90 mínútna langir, en hinir
eru um 50 minútur hver þáttur. Þýðandi
Kristmann Eiðsson.
22.50 Dagskrárlok.
Föstudagur
11. maí
20.00 Fréttir og veöur.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Skonrok(k). Þorgeir Ástvaldsson kynnir
ný dægurlög.
2I.00 Kastljós. Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður ómar Ragnarsson.
22.10 óhxfur vitnisburöur (Inadmissible Evi-
dence). Bresk bíómynd frá árinu 1968, byggð á
leikriti eftir John Osborne. Aðalhlutverk Nicol
Williamson. Lögfræðingurinn Bill Maitland á
við margvisleg eigin vandamál að striða: Hann
á erfitt með að taka ákvarðanir, er gersamlega
háður öðrum, drekkur óhóflega og er óþolandi
fjölskyldufaðir. Þýðandi Heba Júliusdóttir.
23.40 Dagskrárlok.
—-3
4 *
ÓHÆFUR VITNISBURÐUR — sjónvarp föstudag 11. maí:
Ekki upplífgandi mynd
„Myndin er byggð á leikriti eftir
John Osborne og það er dálítið erfitt að
átta sig á hvað verið er að fara í henni
eins og oft er í leikritum eftir Osborne
og Pinter til dæmis,” sagði Heba
Júlíusdóttir, þýðandi myndarinnar
Óhæfur vitnisburður.
„Myndin hefst á því að verið er að
fara með lögfræðinginn Bill Maitland í
fangelsi. Hann er síðan leiddur fyrir
rétt og þegar komið er að þvi að taka
eið af honum óskar hann eftir að gefa
yfirlýsingu í stað eiðsins. Síðan er sýnt
úr einkalífi hans og það er eins og verið
sé að lýsa ævi hans sem einhvers konar
réttlætingu,” sagði Heba. Maitland á
við margvísleg vandamál að stríða, á
erfitt með að taka ákvarðanir, drekkur
óhóflega og er óþolandi fjöiskyldu-
faðir.
Að sögn Hebu getur myndin vart
talizt upplífgandi.
-GAJ-
*►
Úr myndinni
Óhæfur.vitnisburöur.
EDWARD KIENHOLZ—sjónvarp laugardaginn 12. maí:
Lífshættuleg sýning
— lögreglan bægði hættunni f rá
„Edward Kienholz er Bandaríkja-
maður af þýzkum ættum. Þessi mynd
var tekin á sýningu á verkum hans í
Louciana á N-Sjálandi,” sagði Hrafn-
hildur Schram listfræðingur en hún
þýðir þessa mynd, þar sem Kienholz
spjallar um verk sín.
„Kienholz setur verk sín gjarnan
þannig upp, að þau líkjast flóknum
leikverkum og áhorfandinn eins og
getur gengið inn í verkin. Hann fjallar
mikið um sundrungu og spillingu þjóð-
félagsins. Tíminn, minningin, nútím-
inn og fortíðin er aðal „tema” hans.
Manni finnst oft eins og hann sé að
ásaka fólk fyrir að hafa mistekizt að
lifa með tímanum. Kienholz safnar
saman alls konar drasli sem hann setur
saman og býr til manneskjur. Hann
hefur unnið mikið með konuna sem
fórnarlamb og notar til dæmis þvotta-
bretti sem tákn fyrir konuna. Þá
spjallar hann um nasistatímann og
hefur byggt upp verk í kríngum það
tema og notar lítið viðtæki sem tákn
þýzka mannsins,” sagði Hrafnhildur.
Hún sagðist telja að þessi mynd
kæmi til með að vekja mikla athygli
þar sem þetta væri eiginlega heil
„uppákoma”. Hún sagði að mikla
athygli á þessari sýningu hefði vakið
stóll sem sýningargestum bauðst að
setjast í en þeir yrðu að gera það alger-
lega á eigin ábyrgð því að byssuhlaupi
var beint að stólnum og ákveðinn
„mekanismi” útbúinn þannig að skot
gat hlaupið úr byssunni þó að á því
væru mjög litlar líkur. Þetta varð til
þess að lögreglan heimsótti sýninguna
og lét setja skothelt gler á milli stólsins
ogbyssuhlaupsins.
-GAJ-
Eitt af verkum Kienholz, Stríðsminning frá 1968.
M