Dagblaðið - 08.05.1979, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. MAl 1979.
3
BORN OG DYR
góðbörn eru
góðvið dýr
I.aufey Jakobsdóttir skrifar:
Það er margt og mikið ritað og
talað um barnaárið 1979. En hvað
um börnin sjálf? Hvað er gert til þess
að vernda þessi blessuð börn fyrir því
illa í þessum afbrota- og ofbeldis-
heimi?
Syndir feðranna
Syndir feðranna koma harðast
niður á börnunum. Aldrei í sögu ís-
lands hefur æskar) gengið í gegnum
spilltari samtíð en nú. Hvaðgera fjöl-
miðlar? Sjónvarpið matar heimilin á
glæpamyndum. Hver ræður þessum
óþverrainnkaupum? Eiga heimilin
enga vörn eða rétt gegn þessum sora?
Er ekki kominn tími til að foreldrar
fari að láta heyra frá sér í fullri al-
vöru? Væri ekki hægt að fá eitthvað
sem höfðar til þess góða í sálarlífi
barna? T.d. dýramyndir, sem vektu
meiri góðleik huga og handa?
Dúfuungar
Góð börn eru góð við dýrin.
Gleymið því ekki að dýrin eiga líka
börn sem þeim þykir vænt um eins og
foreldrum ykkar um ykkur. Nú fara
fuglarnir að koma með ungana sína.
Mig langar alveg sérstaklega að biðja
þá unglinga sem stunda þann Ijóta
leik að veiða dúfur að hugsa betur
um hvað þeir eru að gera. Ef dúfa
sem þið takið á unga í hreiðri sinu
deyja ungarnir úr hungri því dúfur
gefa aldrei ungum annarra dúfna.
Móðirin kemst ekki til unganna sinna
vegna þess að þið hafið lokað hana
inni í kofanum ykkar.
Sinubrunar
Annað langar mig til þess að biðja
unglingana að hugsa um, og það eru
sinubrunar. Hugsum okkur fug! sem
hefur gert sér hreiður í hlýlegu mosa-
barði. í sama mosabarði hefur haga-
mús búið um sig og ungana sína.
Sumarið er komið, þau lifðu af harð-
an vetur og hlakka til lífs og sólar. En
allt í einu verður allt svart. Það hefur
verið kveikt í mosabarðinu. Við
getum öll ímyndað okkur hvernig fer
fyrir þessum litlu vinum okkar.
Hringið
isírna
27022
milli kl
13 og 15,
eða skrifið
Raddir
lesenda
Margir leika þann Ijóta leik að loka dúfur inni í kofum.
Dýravinur er
góður maður
Eigum við ekki að taka höndum
saman um allt land? Sýnum öllum
börnum dýranna okkar hvað okkur
þykir vænt um þau. Þakklæti sitt
munu þau sýna okkur með vináttu og
gleði sem þau fflunu veita ykkur. Ég
vii benda öllum börnum á blaðið
Dýraverndarann og að þau geta sjálf
skrifað í blaðið.
Heimilis-
iæknir
Raddir lesenda taka við
skilaboðum til umsjónar-
manns þáttarins „Heimil-
islæknir svarar" ~i síma
27022, kl. 13-15 alla
virka daga.
'
BRENDA LEE
ERÍ
DISKÓTEKINU
Láttu
sjá þig...
með
?-4 betri
helminginn!
Spurning
dagsins
Heldurðu upp á
afmælið þitt?
Kjartan L. Pálsson blaðamaður: Já. Ég
verð fertugur og ætla að halda upp á
afmælið á erlendri grund. Hér yrði
maður drukkinn út á gaddinn.
Helga Haraldsdóttir kennari: Nei, það
geri ég ekki. Éger löngu hætt því.
Einar Ásgeirsson verkamaður: Já, ég
held upp á afmælið mitt. Ég býð fjöl-
skyldunni heim en held enga stórveizlu.
Halldór Vigfússon rafvirki: Aldrei. Ég
erlönguhætturþví.
Ingveldur Gisladóttir, nemi og af-
greiðslumaður: Já. Ég held litla fjöl-
skylduveizlu.
Jakob Gunnarsson, vinnur hjá Eim-
skip: Það fer nú eftir því hvort það ei
stórafmæli eða ekki. Ég held að öllu
jöfnu ekki upp áafmælið mitt.