Dagblaðið - 08.05.1979, Síða 4

Dagblaðið - 08.05.1979, Síða 4
4 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. MAt 1979. Námsstyrkir Sjóðurinn „Gjöf Thorvaldsensfélagsins” hefur það markmið að styrkja til sérmennt- unar starfslið stofnana, þar sem eru afbrigðileg börn og unglingar til dvalar, kennslu og þjálf- unar. Úr sjóðnum fer fram í sumar lokaúthlutun á námsstyrkjum til þeirra, er stunda framhalds- nám erlendis á ofangreindu sviði. Umsóknir um styrk úr sjóðnum skulu sendar undirrituðum fyrir 17. júní nk., ásamt upplýs- ingum um fyrirhugað nám ogþjálfun. Reykjavík, 5. maí 1979. Jón Sigurðsson Háuhlíd 18, Reykjavík, formaður sjóðsstjórnar Gjafar Thorvaldsensfélagsins. KENNARAR Kennara vantar að Gagnfræðaskóla Húsavíkur. Umsóknum skal skilað fyrir 20. maí. Upplýsingar veita skóla- stjóri í síma 96-41166 og formaður skólanefndar í síma 96-41440, einnig í gagnfræðaskólanum í síma 96-41344. SKÓLANEFND AGOLF með bílasöluna eftir vorsýningartímabilið. Komdu með bílinn þinn hreinan og strokinn sem allra fyrst. Hann selst hjá okkur. SýningarhöHinni við Ártúnshöföa. Símar 81199 og 81410 Aldrei fleiri sovézkar vígvélar við landið: Vamarliðið hlaut mikilsverða æfingu — sagði utanríkisráðherra á Alþingi ígær Þegar þessar æfingar stóðu sem hæst voru suður og austur af íslandi mest 25 sovézk herskip og 27 sovézkir kafbátar, allt skip af nýjustu og fullkomnustu gerð,” sagði Benedikt Gröndal á Alþingi í gær þegar hann greindi frá flotaæfingum Sovétmanna hér við land fyrir nokkrum vikum. „Þessa sömu daga var umferð sovézkra flugvéla austan og sunnar við ísland meiri en nokkru sinni fyrr og flugu sumar könnunarvélarnir til Kúbu og þaðan til Angóla i Afríku,” sagði Benedikt. „Varnarliðið fylgdist nákvæmlegá með öllu þessu og hlaut að sjálfsögðu mikilsverða æftngu eigi síður en Sovét- menn. Voru notaðar hinar nýju eftir- lits- og ratsjárflugvéiar sem bækistöð hafa á Keflavíkurflugvelli.” Benedikt sagði einnig að æfingar Sovétmanna hefði verið ,,í að verja Sovétríkin” og ekki á nokkurn hátt beintgegn íslandi. Þósýndu þærmikil- vægi Íslandsí hernaðartilliti. Sovétríkin hafa um árabil haldið flotaæfingar á Norður-Atlantshafi á hverju vori. Fyrst í stað voru þær haldnar í Barentshafi en hafa færzt sunnar og síðustu ár suður fyrir ísland. að þé'ssu sinni voru æfingarnar hinar mestu síðan 1975. Flotadeild undir for- ystu flugvélamóðurskipsins Kiev sigldi frá Gíbraltarsundi upp undir ísland, síðan suðaustur af landinu áfram norður eftir Noregsströnd og til Mur- mansk. Jafnframt bættust við skip frá Eystrasalti og úr norðurátt. Flotadeild- in lék óvinaflota á norðurleið. önnur sovézk herskip og kafbátar mynduðu varnarlínur, fyrst austur af íslandi, rétt utan við Rauða torgið svokallaða, og síðan aftur við Lófót. -HH. St jórnmálayf irlýsing sjálf stæðismanna: „MARGHÁTTAÐAR BREYT- INGAR í FRJÁLSRÆÐISÁTT” „Margháttaðar breytingar í frjáls- ræðisátt” var megininntak stjórnmála- yfirlýsingar landsfundar sjálfstæðis- manna. „Draga verður úr skattheimtu á bæði einstaklinga og fyrirtæki og al- mennar launatekjur, þar með talinn ellilífeyrir, verði tekjuskattsfrjálsar,” segir í ályktuninni. „Virðisaukaskattur þarf að koma i stað söluskatts. Niðurgreiðslur verða að lækka.” Þá segir og: „Ríkisvaldið hefur gengið of langt í afskiptum af störfum manna og ráðstöfun fjármuna þeirra og tekið að sér margs konar verkefni sem það er síður fært um að leysa af hendi en einstaklingar sjálfir og samtök þeirra.” -HH. » Formaður og varaformaður að loknu kjöri um helgina: dr. Gunnar Thorodd- sen og Geir Hallgrímsson. —DB-mynd Hörður. Höfundur lögmáls Parkinsons í heimsókn Cyril Northcote Parkinson prófessor hefur lagt fyrir sig málastörf, kennslu, hermennsku, blaðamennsku, sagn- fræði og skáldsagnagerð. Hann fer heldur ekki troðnar slóðir í kenningum sínum og hefur vakið almenna athygli fyrir þær. Höfundur hins þekkta lögmáls Park- insons verður gestur Stjórnunarfélags íslands dagana áttunda til ellefta þessa mánaðar. Mun hann ræða þar um — list tjáskipta — eða The Art of Communication. Lögmál Parkinsons vakti mikla at- hygli á sínum tíma. Fjallar það meðal annars um það að hvert verk hafi til- hneigingu til að taka þann tíma sem til umráða sé hverju sinni. Auk þess fjall- ar það um stöðuga tilhneigingu til auk- ins starfsmannafjölda fyrirtækja og stofnana án tillits til umfangs þeirra verkefna sem leysa þarf. Bókin um lög- mál Parkinsons kom út á íslenzku árið 1957 í þýðingu Vilmundar Jónssonar fyrrverandi landlæknis. C. Northcote Parkinson hefur eink- um lagt stund á kennslu í sagnfræði víðsvegar um heim. Auk bókarinnar um lögmál það sem kennt er við hann hefur hann gefið út bækur um stjórn- unarmál og nokkur skáldverk. Kenningar og fyrirlestrar Parkinsons þykja mjög nýstárlegir og skemmtilegir auk þess að vera fræðandi. Fyrirlestur hans verður að Hótel Sögu fimmtudag- inn 10. maí klukkan 12á hádegi. -ÓG. /wallteltthvaö gott í matinn _ úr- STIGAHLÍÐ 45^47 SÍMI 35645 Sumardagar kirkjunnar á Álftanesi Síðastliðið sumar bauð Garða- söfnuður börnum til Sumardaga í Bjarnastaðaskóla á Álftanesi. Komu börnin saman á hverjum morgni um tveggja vikna skeið og nutu fræðslu, tóku þátt i helgi- haldi, útileikjum og föndri undir stjórn Kjartans Jónssonar guð- fræðinema og sex kvenna úr söfn- uðinum. Var börnunum skipt í flokka eftir þroska og dagskráin miðuð við það. Gafst þetta ný- mæli svo vel að ákveðið er að bjóða að nýju til Sumardaga á vegum Garðasafnaðar í sumar. -GAJ- Davíð f orstjóri ríkisspítalanna Davíð Á. Gunnarsson, aðstoð- arframkvæmdastjóri ríkisspítal- anna, hefur verið skipaður fram- kvæmdastjóri þeirra. Hann hafði verið aðstoðarframkvæmdastjóri í sex ár. Davíð er aðeins 34 ára gamall. Tvær umsóknir bárust um stöðuna, frá Davíð og Steinari Benediktssyni rithöfundi.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.