Dagblaðið - 08.05.1979, Síða 6

Dagblaðið - 08.05.1979, Síða 6
6 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 1979. AMIGO '77 Litur, rauður. Allur nýyfirfarinn, mjög góður, og fallegur. Er á nýjum sumardekkjum og nýleg vetrardekk fylgja. Sætishlífar. Allar nánari upplýsingar í síma 42099 eftir kl. 19.00. BILAPARTASALAN Höfum úrval notaðra varahluta íýmsar tegundir bifreiöa, tildæmis: Plymouth Belvedere '67 Peugeot 404 '67 Moskwitch '72 Hillman Hunter '70 BMW 1600 '67 Einnig Hbfum við úrval af kerruefni, til dæmis undir vélsleða. Sendum um allt land. BÍLAPARTASALAN Höfiatimi 10 — Simi 11397 Útboð Tilboð óskast í lagningu hitaveitu á ísa- fírði. Útboðsgögn verða afhent hjá Tæknideild Orkubús Vestfjarða ísafirði og Fjarhitunhf. Álftamýri 9, Reykjavík, frá 11. maí gegn kr. 30 þús. skilatryggingu. Tilboðum skal skilað til Tæknideildar Orku- bús Vestfjarða eigi síðar en föstudaginn 25. maí 1979 kl. 10 f.h. og verða þau opnuðaðvið- stöddum bjóðendum. Tæknideild Orkubús Vestfjarða. Kalifornía: Menn slást við bensíndælumar —dæmi um að gallonið (ca 4 lítrar) sé keypt á 10 dollara í stað 90 centa segir Sigurjón Sighvatsson, frétta- ritari DB í Los Angeles Frá Sigurjóni Sighvatssyni frétta- ritara DB i Los Angeles: „Líklega er skortur það eina, sem fengið getur manninn til að gera sér Ijóst hvernig spara á bensín og aðra orku,” sagði Jimmy Carter Banda- ríkjaforseti í heimsókn sinni til Kali- forníu um helgina. Þar var honum tekið fremur fálega og þeir voru ekki margir Kaliforníubúarnir sem lögðu lykkju á leið sína til að heilsa upp á forseta sinn. Aftur á móti komu margir þar- lendir við á bensínstöðvunum og þar kom meira að segja til slagsmála á milli reiðra bifreiðaeigenda, sem ekki vildu sætta sig við þá bensínskömmt- un sem í raun er búið að koma á. í Kaliforníuríki á því svæði heims þar sem bifreiðar eru hlutfallslega flestar í heiminum fæst ekki bensín nema annan hvern dag og aðeins ef minna en helmingur er eftir í tankinum. Almenningur kvartar og er óánægður. Olíusölufyrirtækin segjast vera óánægð. Báðir aðilar kenna öðrum en sjálfum sér um. Neytendur og talsmenn þeirra segja að nóg sé af olíu og skorturinn sé aðeins tilbúinn af seljendum til að hækka verðið. Olíusölufyrirtæki telja að fólk hafi tekið upp hamstur og nú séu viku- birgðir á tönkum bifreiða. Einnig benda þau á að byltingin í íran hafi sett strik i reikninginn. Á móti er bent á að aðeins 7% af heildarbensínnotk- un Bandaríkjamanna hafi verið full- nægt með bensíni frá íran. Biðraðir við bens'mstöðvar í Kali- forníu voru allt að þriggja kílómetra langar um síðustu helgi. Hér hefur bensín hækkað um 35% frá því í haust. Til samanburðar má benda á að verðbólga er um það bil 10% á ári. Þess eru dæmi að fólk hafi keypt bensín fyrir 10 dollara gallonið sem selt er á 85 til níutíu sent á bensín- stöðvum. Mjög oft hefur korizt í odda á milli fólks, sem hefur beðið í biðröðum lengi með alls konar koppa og kirnur. Brown ríkisstjóri Kaliforníu hgfur tilkynnt að taka verði upp sams konar skömmtun og í olíukreppunni árið 1974. Búizt er við því að hver bifreið verði aðeins afgreidd annan hvern dag og verði þá farið eftir skráningarnúmerum og til dæmis jöfnu tölurnar afgreiddar annan daginn og oddatölurnar hinn.. Eins og vænta mátti kemur bensín- skortur mjög snemma fram í Kali- forníu þar sem allir eiga bifreiðar og almenningsfartæki eru lítil sem engin. Neðanjarðarlestir eru ekki til og strætisvagnakerfið lélegt mjög og hefur ekki batnað neitt frá því um aldamótin síðustu. Reiði almennings er mikil í Kali- forníu og ekki um annað meira talað en bensínskortinn. Eins og áður sagði kom Jimmy Carter Bandaríkjaforseti til Kali- forniu um helgina og var fálega tekið. Ráðamenn fylkisins kvörtuðu að sjálfsögðu við forsetann yfir ■bensínskortinum, sem vafalaust hefur lofað að kanna málið. Höfuðerindi hans var annars að vinna að bættri sambúð Mexikana og annarra Bandaríkjamanna. Ríkið í suðri, Mexíkó, hefur raunar öðlazt meira gildi í augum Bandaríkja- manna, sem hingað til hafa litið fremur smáum augum þangað. Nú er ljóst að þessi mesta bensín notkunar- þjóð heims verður að leita til Mexikana til að fá bensín í framtíð- inni. Þar eru taldar einhverjar mestu olíulindir í heimi. Gallaður bensíntankur íFordbílum Tilkynnt hefur verið að fundizt hafi galli við bensíntank bandarískra Ford Maverick bifreiða af árgerðum 1970 til 1973 og Mercury Comet 1971 til 1973. Er þetta sagður sams konar galli og kom fram í Ford Pinto 1971 til 1975 í fyrra. Þá voru 1,5 milljónir Pinto- bifreiðar kallaðar inn til viðgerðar. Verðbólgan 10,2 prósent Verðbólgan í BandaríkjunUm er nú, 10,2% samkvæmt opinberri1 tilkynningu. Er það önnur mestá verðbólga í hinum stóru iðnríkjum. Aðeins Ítalía getur státað af hraðari snúningi á verðhækkunarskrúfunni. Grænland fær fimm milljarða í olíubætur Grænlendingar fá á næstunni nærri sjötiu og tvær milljónir danskra króna eða jafnvirði hátt í fimm milljarða frá þeim aðilum, sem án árangurs leituðu eftir olíu við vesturströnd landsins á undanförnum árum. Er þarna um að ræða nokkur dönsk fyrirtæki og þó sérstaklega alþjóðleg olíufélög. Búizt er við að fjármagnið verði notað til að bæta úr þeim vanda sem margar hinna fornu byggða í Græn- landi eiga við að stríða. Grænlenzka landsráðið fær þó ekki algjör umráð yfir hinum 72 milljónum en nú er verið að ræða hvernig þeim verði bezt varið. Ástæðan fyrir því, að olíuleitarfyrir- tækin eiga að greiða peninga til lands- stjórnarinnar þrátt fyrir árangurslausa leit að olíu við Grænland er sú, að þau framkvæmdu ekki þær grundvallar- rannsóknir sem þau höfðu skuldbund- iðsigtil. Hryðjuverkamenn i Róm á Ítalíu myrtu nýlega lögrcgluforingja og særðu tvo al- varlega. Réðust þeir að lögreglumönnunum á götu og á myndinni sést hvar lik þess sem féil liggur við hlið bifreiðar hans.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.