Dagblaðið - 08.05.1979, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 08.05.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. MAl 1979. Erlendar fréttir REUTER Washington: Saltvið- ræður enn einu sinni sigldar í strand Snurða virðist hafa hlaupið á þráð- inn enn einu sinni í viðræðum Banda- ríkjanna og Sovétríkjanna um svonefnt Salt samkomulag. Sagt er að tveir fundir þeirra Vance, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Dobrynin, sovézka sendiherrans í Washington, í gær hafi tekið af allan vafa i þessum efnum. Mun vera útséð um að Saltviðræðun- um ljúki núna. Þær hafa staðið undan- farin sex og hálft ár. Búizt er við opinberri tilkynningu um málið i dag. /.............. " San Diego, Bandaríkjunum: Mannræningi deyr Þúsundir bandarískra sjónvarps- áhorfenda horfðu á er lögreglu- menn skutu ungan nígerískan stúdent, Newman Osebor, til bana á hraðbraut skammt frá San Diego i Kaliforníu. Osebor þessi hafði tekið sálfræðing sem gísl eftir að hafa myrt vinnukonu hans og dóttur hennar. Þetta var önnur árás Osebors á fjölskyldu sálfræðingsins Richards Townsends. Um miðjan apríl réðst hann á konu sálfræðingsins, barði hana og þvingaði til að fara með sér i banka, þar sem hún átti að taka út peninga og gefa honum. Peningana ætlaði Osebor að nota til að komast úr landi. — Þá voru bankar hins 'vegar lokaðir vegna páskahátíðar- innar. Eftir að Osebor hafði náð sálfræðingnum beindi hann að honum byssuhlaupi, þvingaði hann upp i bíl sinn af Porche-gerð og lét hann aka til næsta banka. Þar fór Townsend inn og tók út 800 dollara. En hann sagði jafnframt banka- starfsmanni að hann væri þvingaður til þessa og bað hann að kalla til lögreglu. Stuttu síðar tókst lögreglumönnum að umkringja Osebor. Hann neitaði að láta byssu sína af hendi og eftir smátíma smeygði hann sér út úr bíln- um með hlaupið á sálfræðingnum. Skyndilega sneri hann sér við og skaut á lögregluna, sem svaraði þeg- Síðasta augnablikið í lifi Nígeriu- mannsins Newman ^ebors. Hann er að koma út úr Porchcbílnum og miðar byssunni á fanga sinn. Skyndi- lcga snýr hann sér að lögreglumönn- unum, sem svara umsvifalaust i sömu mynt og skjóta hann til bana. ar í sömu mynt og banaði morðingjanum. Bandarísk sjón- varpsstöð sendi beint út frá staðnum og urðu þúsundir vitni að átökunum. Newman Osebor og Richard Townsend höfðu þekkzt um nokkurt skeið vegna rannsókna þess síðar- nefnda á erlendum námsmönnum i Bandarikjunum. — Townsend slapp óskaddaður úr þessari viðureign. 7 N Iran: ÞRIR RAÐ- HERRAR 0G ÁTJÁN HER- FORINGJAR LÍFLÁTNIR Tilkynnt var í íran í morgun að tuttugu og einn fyrrum ráðamenn á dögum keisarans hafi verið skotnir af aftökusveitum í dag. Er þetta mesti fjöldi sem líflátinn hefur verið á ein- um degi frá því að Khomeini trúar- leiðtogi og fylgismenn hans komust til valda í íran í febrúar síðastliðnum. ,,Þetta er rödd hins íslamska lýð- veldis,” tilkynnti útvarpið í Teheran, þegar aftökurnar voru tilkynntar. Meðal hinna föllnu eru fyrrum ráð- herrar I stjórn keisarans. Talið er að þá sé tala þeirra, sem teknir hafa verið af lífi í íran, komin upp í nærri tvö hundruð. Útvarpið i Teheran tilkynnti að hinir látnu hafi verið fundnir sekir um að hafa barizt á móti guðlegum yfirboðurum og verið gjörspilltir. Eru þetta hefð- bundnar sakir á hendur þeim sem dæmdir hafa verið af byltingarstjórn- um í íran og teknir af lífi á síðustu vikum. Réttarhöldin yfir hinum 21, sem teknir voru af lífi, tóku ekki nema einn.dag og þau hófust snemma í gærmorgun og lauk í gærkvöldi, þegar hinir dæmdu voru leiddir fyrir byssukjaftana. Meðal þeirra dæmdu voru þrír fyrrum ráðherrar og átján foringjar i her landsins og hinni hötuðu leyni- lögreglu keisarans. Austurríki: Bruno Kreisky heldur kanslaraembættinu áf ram Sósíalistaflokkurinn austurríski vann enn einn kosningasigurinn i gær undir forustu Bruno Kreisky kanslara. Mun flokkurinn nú halda áfram setu i ríkis- stjórn Austurríkis en hann hefur verið við völd i níu ár og er Kreisky orðinn sá leiðtogi i Vestur-Evrópu, sem lengst hefur setið að völdum. — fTiHiir — NÚ eru laus ýmis hverfi á Reykjavíkur- svæðinu fyrir BLAÐSÖLUBÖRN BLAÐINU EKIÐ HEIM TIL YKKAR ÆT A HVERJUM MIÐVIKUDEGI HAFIÐ SAMBAND VIÐ AFGREIÐSLU í síma 27022

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.