Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 08.05.1979, Qupperneq 8

Dagblaðið - 08.05.1979, Qupperneq 8
8 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. MAl 1979. Til sölu vörubílar og Massey Ferguson traktors- grafa. Uppl. í síma 44174 eftir kl. 7 á kvöldin. Ólafsvík Nýr umboðsmaður Dagblaðsins á Ólafsvík er Jökull Barkarson Brautarholti 16, sími 93-6373. ÍBLAÐIÐ Bíll f sérflokki til Plymouth Valiant, 8 '« » cyl., sjálfskiptur, með ’ ’ öllu, árgerð 1975. Fluttur inn nýr I febrú- ar 1977. Skipti mögu- leg á ódýrari bil. Veð 3.9 millj. Uppl. í sima 52404. Bifreiðasala Laugavegi 188. Notadir bílar til sölu Wagoneer, árg. '76, sjálfsk. Quadra Track vökvastýri, fallegur bíll. Wagoneer, árg. '74, ekinn 80.000 km, 8 cyl. sjálfsk. Quadra Track. Cherokee „S", árg. '74, beinsk. ekinn 70.000 km. Hornet, árg. '77, 6 cyl, sjálfsk., vökvastýri, ekinn aðeins 19.000 km. Hornet árg. '75, beinsk., vökvastýri. Hornet Hatchback, árg. '73, ekinn 70.000 km, sjálfsk., vökvastýri. Galant SL Hardtop, árg. '76, ekinn 26.000 km, vél 1850 cc, fimm gira. Galant Sapporo, árg. '78, ekinn aðeins 7.000 km, sjálfsk. vökvastýri. Lancer GL1400, árg. '77, ekinn 28.000 km. Lancer 1400 EL, árg. '74, ekinn 65.000 km. Hunter DL árg. '75, ekinn aðeins 15.000 á vél. Sunbeam 1500, árg. '73, uppgerð vél. Sunbeam 1500, árg. '72. Sunbeam 1600 station, árg. '74, ekinn 61.000 km. Datsun 180 B, árg. '77, ekinn 24.000 km. Datsun 200 L, árg. '72, ekinn 67.000 km. Peugeot 304 station, árg. '74, ekinn 67.000 km. Cortina, 2000 E, sjálfsk. árg. '76, ekin 45.000 km. Bronco, árg.' '74, 8 cyl. beinsk, ekinn ca 100.000 km. Rambler American, árg. '66. Fiat131,árg. '76, ekinn 37.000 km. Volkswagen Fastback, árg. '73, sjálfsk. Flestir keppnisbátarnir i Sjóralli ’79 virðast ætla að verða 22 feta Flugfiskbátar Vitað umlO báta erstefna að þátttöku íSjóralli 79: „Slagurínnff aðallega milli „íslendinga” Hafsteinn Sveinsson og Runólfur Guðjónsson, sigurvegarar i Sjóralli DB og Snarfara í fyrra, hafa fullan hug á þátttöku í Sjóralli ’79 sem hefst l. júlí í sumar. Segjast þeir að sjálfsögðu ætla að keppa á 22 feta Flugfiskbáti eins og í fyrra, hvort sem um sama bát eða nýjan verður að ræða, það er ekki full- ráðið enn. Það er vel skiljanlegt að þeir ætli á sams konar báti þar sem Runólf- ur er framleiðandinn og báturinn bar þá til sigurs í fyrra. Þá er Gunnar Gunnarsson, er varð í öðru sæti í fyrra, á kafi þessa dagana við að koma sér upp 23 feta nýjum báti frá Mótun hf. í Hafnarfirði og hyggst hann búa hann tveim vélum. Helzt vill hann Björn Árnason aftur með sér. Óstaðfestar fréttir berast frá Borgar- nesi þess efnis að Hallur F. Pálsson hyggist aftur keppa á 20 feta Draco- báti sínum enda sýndi sá bátur mikla hæfileika til úthafssiglinga. Ekki er DB kunnugt um hvort hann hyggst aftur hafa með sér Brynjólf Brynjólfsson sem var vélstjóri um borð í fyrra. Það fylgir með fréttum af Halli að þessa dagana sé hann að undirbúa sig af full- um krafti. Bjarni Björgvinsson og Lára Magnúsdóttir vinna nú að því að út- vega sér 23 feta bát frá Mótun hf. í stað 19 feta Lárunnar í fyrra sem stóð sig vel þótt hún væri einn báta knúin utan- borðsvél. Fréttir hafa borizt af þriðja 23 feta bátnum frá Mótun en DB er ekki kunn-, ugt um væntanlega keppendur á hon- um. Kristján Pétursson tollvörður hefur keypt Signýju Gunnars Gunnars- sonar, sem er 22 feta Flugfiskbátur og varð i 2. sæti i fyrra sem fyrr segir. Er Kristján að „leggja netin” fyrir Hall- dór Dagsson, starfsmann hjá Hafrann- sóknastofnuninni, reyndan siglinga- mann, vélamann og kafara. í smíðum er nú 22 feta Flugfiskbátur fyrir ónefndan aðila í Vestmannaeyjum sem ætlar í keppnina og annar 18 feta Flugfiskur er í smíðum fyrir aðila sem DB er ekki enn kunnugt um, nema hvað þeir ætla hringinn. Þremenningarnir Hinrik Morthens, Tryggvi Gunnarss >n og Eiríkur Kol- beinsson, sem ætluðu á 18 feta Flug- fiski sínum í keppnina í fyrra en fóru ekki vegna skorts á undirbúningi, munu hyggja á þátttöku nú. Fleiri aðilar eru að íhuga keppni en í laumi enn sem komið er. -GS. 23 feta bátar frá Mótun hf. sem ekki hafa verið reyndir hér fyrr... og 18 feta sterkbyggðir Flugfiskbátar. DB-myndir Ari og H.V. Farmannaverkfalliö: Tíu skip höfðu stöðvazt f gær — ýmsar undanþágur veittar Við könnun sem fram fór á vegum verkfallsvarða FFSÍ kl. 15 í gær kom fram að tíu skip höfðu stöðvazt vegna verkfallsins. Af þeim skipum er unnið við viðgerðir í a.m.k. tveim. Búizt er við að veittar verði undanþágur í vik- unni fyrir önnur tvö af þessum tiu skip- um til strandferða. Verkfallsnefnd FFSÍ var að störfum i allan gærdag. Borizt hefur erindi frá Sölusambandi íslenzkra fiskframleiðenda um undan- þágu til flutninga á saltfiski. Er hér um að ræða flutninga sem fram eiga að fara frá miðjum maí-mánuði til júlí- loka. Beiðni þessari var synjað að svo stöddu. Veitt var undanþága til að Litlafell gæti lestað gas og olíu til los- unar á Vopnafirði, Fáskrúðsfirði og í Vestmannaeyjum. Synjað var um und- anþágu fyrir Skógafoss til að losa i Straumsvík og fa-a síðan til Reykja- víkur. Helgafelli yngra var veitt leyfi til að losa um lðO tonn af fóðurvörum á Sauðárkróki vegna fóðurskorts. Aðilar á vegum samninganefndar yfirfóru í gær tilboð útgerðaraðila utan VSI um drög að nýjum kjarasamningi. -GAJ-

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.