Dagblaðið - 08.05.1979, Page 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. MAl 1979.
/" "
Snúum okkur að vetni
til að forðast vanda
9
- segir í grein í De rerum natura um vetni og orkumöguleika okkar í f ramtíðinni
Ef við íslendingar hefjumst ekki
fljótlega handa við nýtingu fram-
leiðslu vetnis munum við að öllum
líkindum lenda í miklum vandræðum
á komandi árum.
Orkugildi þeirrar olíu, sem nú er
flutt inn árlega, er talið svipað og
1200 megavatta orkuver afkasta.
Þennan olíuinnflutning er talið nauð-
synlegt að skera niður auk þess sem
olia sé hverfandi í heiminum.
Til að vinna upp á móti þeim 1200
megavöttum, sem fáist úr innfluttri
olíu, verði að auka innlendar virkj-
anir, sem nú séu aðeins um það bil
500 MW að orkugildi.
í grein úr tímaritinu De rerum
natura, sem gefið er út af Vísinda-
félagi Framtíðarinnar við Mennta-
skólann í Reykjavík, er komizt að
þeirri niðurstöðu að hreint vetni sé
hagkvæmast og bezt allra þeirra elds-
neytistegunda, sem til greina koma.
Höfundur greinarinnar í tímaritinu er
Ólafur Guðmundsson nemandi í
Menntaskólanum og vitnar hann i
margar heimildir máli sínu til stuðn-
ings. Má meðal annars nefna vísinda-
mennina Ágúst Valfells, Braga
Árnason og Gisla Jónsson prófessor,
sem allir hafa látið sig orkumál miklu
skipta.
Bent er á að vetni hafi verið fram-
leitt með gamalli aðferð í Áburðar-
verksmiðjunni í Gufunesi um langt
skeið. Aftur á móti sé bandariska
fyrirtækið General Electric að hefja
byggingu verksmiðju, þar sem ný
tækni verði notuð við vetnisfram-
leiðsluna. Sé líklegt að sú aðferð
muni ryðja hinum eldri á brott.
Auk margra fleiri atriða er komizt
að þeirri niðurstöðu varðandi orku-
möguleika íslendinga að beztu kost-
irnir séu hitaveita til húshitunar,
fljótandi vetni fyrir flugvélar fram-
tíðarinnar, enginn kostur sé jafnálit-
legur fyrir einkabila og rafmagnið,
fljótandi vetni fyrir stærri bifreiðar
nema strætisvagna, sem nota ættu
rafmagnsorku.
Varðandi skipaflotann er kornizt
að þeirri niðurstöðu að auðvelt eigi
að vera að nota vetni sem orkugjal'a.
Yrði það geymt sem málmsvampur i
kjölfestu skipanna.
DB-mynd: Bj.Bj.
30 átta ára í heimsókn:
„Fær hún borgað
fyrir að lesa DB?”
„Heitir hann ritstjóri?” var spurt,
þegar einn átta ára bekkur úr Mýrar-
húsaskóla kom í heimsókn á Dagblaðið
núna fyrir helgina og var kynntur fyrir
ritstjóra blaðsins.
Hópurinn kom í fylgd kennara síns
og fékk að skoða hvernig eitt eintak af
DB er búið til, frá því að frétt er
skrifuð og þar til hún kemur á þrykk.
Gengu börnin um prentsmiðjuna og
eins sáu þau alla þá tækni, sem beitt er'
við nútímaprentun. En einn gat samt
ekki á sér setið, þegar honum var sagt,
að prófarkalesarar læsu allt blaðið:
„Fær hún borgað fyrir það?”
-HP.
Blikksmiðir sniðgengnir
Á sameiginlegum fundi Félags blikk-
smiða og Félags blikksmiðjueigenda 2.
maí sl. var samþykkt að fela Kristjáni
Ottóssyni, Ingimar Sigurtryggvasyni og
Ólafi Jóhannessyni að fylgja eftir sam-
þykkt fundarins er varðar hina nýju
byggingareglugerð. Fundurinn harmar
þau vinnubrögð er nefndin sem samdi
byggingareglugerðina hefur tamið sér, í
framkvæmd, að sniðganga blikksmiða-
stéttina með því að virða hana ekki
viðtals á meðan á samningi reglu-
gerðarinnar stóð og áður en bygginga-
reglugerðin var send út til umsagnar
hinum ýmsu aðilum. En þó hefur hún
ekki enn verið send blikksmiðastétt-
innitil umsagnar.
-GAJ-
Útboð
Tilboð óskast í gatnagerð á Húsavík. Útboðsgögn
verða afhent á skrrfstofu bæjarins Ketilsbraut 9,
Húsavík gegn 20.000 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað föstudaginn
25.5. næstkomandi kl. 14.00.
Bæjarverkfræðingur
Húsavík
Könnun á hlustunaraðstöðu í kirkjum
Kristín Sverrisdóttir, sem vinnur
kristið starf á meðal heyrnarskertra,
kannar um þessar mundir heyrnar- og,
hátalarakerfi kirknanna í Reykjavík og
nágrenni og svo lýsingu, með tilliti til
þess hvernig heyrnarskertir geti sem
bezt notið þesser þar fer fram.
Hefur hún ekki sízt i huga eldra fólk,
sem býr við minnkandi heyrn. Mun
hún koma niðurstöðum sínum á fram-
færi til kirknanna og til hinna heyrnar-
skertu. Þá eru áformaðar guðsþjónust-
ur fyrir fjölskyldur heyrnarskertra
barna. Kristín vinnur einnig að al-
mennu félagsstarfi meðal heyrnar-
skertra barna og unglinga.
Þess má geta að 26 fjórtán ára börn
búa við skerta heyrn og 8 sex ára börn.
Yfirleitt eru þó aðeins 1 —2 börn heyrn-
arskert í hverjum árgangi.
- GAJ
Smáauglýsingar
BIAÐSINS
Þverholti11 sími 2 70 22
Opið til kl.10 í kvöld