Dagblaðið - 08.05.1979, Side 24

Dagblaðið - 08.05.1979, Side 24
Heilbrigðisráðherra: Munum kanna málið — ef viðfáum viðbótargögn „Ef við fáum viðbótargögn í máli. þessu, munum við láta kanna málið rækilega,” sagði Magnús H. Magnússon, heilbrigðismálaráðherra í viðtali við DB um Tjaldanesmálið. „Þarna var eitt ákveðið mál í gangi á sínum tíma og ég fól ráðu- neytisstjóra mínum að kanna, hvort eitthvað nýtt hefði komið fram, er Réttarvernd ritaði mér fyrir skömmu. Hann hefur talið, að svo væri ekki og svarað samkvæmt því. ” • Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri er erlendis um þessar m undir. -HP. Forstöðumaður Tjaldaness íviðtali við Dagblaðið: „Þetta er allt saman upplogið” — „Fólk ofsækir mig og andar í símann að næturlagi” ,,Það ekki fótur fyrir þessu, þetta er allt saman upplogið,” sagði Birgir Finnson, forstöðumaður Tjaldanes- heimilisins í viðtali við Dagblaðið. Eins og DB skýrði frá í gær. hefur Réttarvernd krafizt rannsóknar á meintu misferli hans ístarfi. ,,Þaðer ein kona sem stendur fyrir þessu og ég verð að draga það verulega í efa, að hún sé heil á geðsmunum.” Birgir sagði, að á Tjaldanesi hefðu aldrei farið fram neinar óeðlilegar lyfjagjafir. „Hér er frekar gefið víta- mín helduren hitt,” sagði hann. ,,Ég hafði mikið fyrir því að fá drenginn, sem minnzt er á, sendan í heilauppskurð og að ég hafi barið hann, er tóm vitleysa, eins og fram kom fyrir tveimur árum,” sagði Birgir. „Drengurinn er mjög veikur og hefur ekki stjórn á sér. Mig minnir, að ég hafi einu sinni danglað i hann með Morgunblaðinu.” „Ég varð að víkja þessari starfs,- stúlku héðan — hún var að gera allt vitlaust hér ,” sagði Birgir er hann var spurður um uppsagnir starfs- fólks. „Hún lét eins og vitlaus mann- eskja og ég efast satt að segja um, að hún gangi heil til skógar. Og ég hef ýmislegt fleirá- í pokahorninu um hana. Þroskaþjálfanum náði upphafsmanneskjan á sitt band og ég rak hana ekki — hún sagði upp, en hún vissi, að hún var ekki velkomin hingaðeftir þetta.” „Þetta er allt upplogið, — ég er of- sóttur í tíma og ótíma”, sagði Birgir ennfremur. „Það var hringt hingað á nóttinni og andað í síma og þetta fólk gerði það, — fólkið sem stóð að þessari herferð gegn mér og forstöðu- fólki fleiri stofnanna. „Ég mun nú leita samráðs við lög- fræðing minn,” sagði Birgir, er hann var spurður að því hvort hann sjálfur færi ekki fram á rannsókn á þessum ofsóknum á hendur sér. „Þetta var allt saman tekið til meðferðar fynir tveimur árum, en ég sef alveg fyrir þessu, ég hefhreina samvizku.” -HP. Tjaldanesheimilið i Reykjadal í Mosfellssveit. DB-mynd: Hörður. Skógareldur íHeiðmörk — eftir gáleysislega meðferð með eld Hluti Slökkviliðs Reykjavíkur var upptekinn við sinubruna nær allan dag- inn í gærog fram á kvöld. Þýddi þetta skert öryggi borgarbúa með bíla og lið langt út í sveit í baráttu við bruna sem ýmist voru kveiktir viljandi eða af hel- beru kæruleysi. Stærsti bruninn varð í Heiðmörk skammt frá Elliðavatnsbænum. Þar var háð Iöng bárátta við víðáttumikinn eld sem eyddi gróðri á stóru svæði og eyðilagði margra ára skógræktarstarf á stóru svæði. Þrír 15 ára piltar í útrreiðartúr voru uppvisir að að hafa orðið valdir að eldinum. Kváðust þeir hafa fengið sér að reykja og hent eldi öviljandi. Ekki vildu þeir þó við lögreglu tala og gerðu hvað þeir gátu til að komast undan henni. Þá urðu miklir eldar í Dísardal og í Vatnsenda og við Rauðavatn komst eldur sem kveiktur hafði verið í skúr í sinu og varð eldhaf af. AUs urðu brun- arnir 15 talsins. -ASt. ' Kveikt var i skúrræfli við Rauðavatn og brann hann án mikillar eftirsjár. En eldurtnn komst i sinuna og þar var erfiðara við allt að eiga og Ijótari sárín. DB-mynd Sveinn Þorm. frfálst, óháð dagbJað ÞRIÐÍUDAGUR 8. MAl 1979. Raufarhöfn: Haffsinn kostaði grásleppu- karlana 100 millj. fsinn hefur leikið menn grátt við norðaustánvert landið. Á Raufarhöfn hefur isinn eyðilagt grásleppuvertíðina fyrir mönnum og valdið þannig miklu tjóni. í samtali DB við Arnþór Pálsson á Raufarhöfn kom m.a. fram að ís lokaði öllum leiðum 15. marzsl. og fór ekki frá fyrr en 28. apríl sl. íshroði er enn í Þistilfirði. Þorskanetabátar höfðu aflað allvel fram að þeim tíma er ísinn setti strik í reikninginn. Harðast hefur ástandið komið niður á þeim, sem stundað hafa grásleppu- veiðar. Talið er að skaði þeirra manna sé um 100 milljónir króna, bæði af veiðitapi og veiðafæratjóni. Sextán bátar hafa stundað grá- .sleppuveiðar og á þeim vinna um fjórir tugir manna. Tekjur af grásleppuveið- um hafa undanfarin ár numið um þriðjungi árstekna þessara manna. Á meðan isinn var landfastur komst Raufarhafnartogarinn Rauðinúpur ekki inn til löndunar og varð þess í stað að landa á Húsavík. Afla var síðan ekið á milli og gekk það brösótt, þvi ryðja varð snjó af leiðinni á milli staðanna. Aðeins er rutt einu sinni i viku og þykir mönnum á Raufarhöfn Vega- gerðin ekki standa sig sem skyldi og súrt í broti að fá mjólk aðeins einu sinni í viku. Um helgina var norðvestan stórviðri á Raufarhöfn. Unnu menn við snjó- mokstur af þökum þrátt fyrir það að sumar sé komið á almanakinu. „jh. Farmanna- og fiskimannasambandið: Ráðherrarspilla fyrir samningum „Það hefur ekkert verið ræðzt við síðan 30. apríl og ekki verið boðað til fundar enn,” sagði Ingólfur Stefáns- son, framkvæmdastjóri Farmanna- og fiskimannasambandsins í viðtali við DB í morgun og taldi um leið horfur á að verkfallið mundi enn dragast nokkuð á langinn. Eitthvað um tíu skip hafa nú stöðvazt og mörg munu stöðvast næstu daga. Sambandið telur að sífelldar yfirlýs- ingar ráðherra I fjölmiðlum um deiluna hafi orðið þess valdandi að vinnuveit- endur neiti öllum viðræðum. Einnig megi ætla að þeim hlæi hugur í brjósti er þeim leggst svo fljótt og óvænt lið- veizla ríkisstjórnar, sem kennir sig við verkalýð. Loks telur framkvæmdastjórn sam- bandsins éngin dæmi slíks, þótt far- menn hafi áður orðið fyrir árásum fjandsamlegs ríkisvalds og svarað þeim, hvað til stendur aftur ef þörf krefur. Engar aðgerðir lágu þó á borðinu í morgun. „GS.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.