Dagblaðið - 18.08.1979, Page 5

Dagblaðið - 18.08.1979, Page 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 1979. Verðið verð- uraðtaka heljarstökk — segja útgerðarmenn „Miðað við söluverð á lýsi og mjöli nú koma 34 til 35 krónur til skiptanna á milli verksmiðjanna og bátanna, eða álíka upphæð og norsku bátarnir fá einir í Noregi nú, svo ljóst er að loðnuverðið hér verður að hækka verulega til að unnt verði að gera út á íoðnu,” sgði Ágúst Einarsson, viðskiptafræðingur hjá LÍÚ, í viðtali við DB i gær. Norskir útgerðarmenn og verk- smiðjurekendur njóta margvíslegra opinberra styrkja til að halda at- vinnugreininni við.en hérer þvi öfugt farið. T.d. eru hér gretud útflutnings- gjöld af loðnuafurðum. Vegna geysilegs kostnaðarauka, svo sem 250% olíuverðshækkunar frá í fyrra, og núverandi afurðaverðs, er óvenju erfitt að koma saman nýju loðnuverði. Að vísu munu tveir til þrír milljarðar vera til frá í fyrra i loðnudeild verðjöfnunarsjóðs sjávar- útvegsins, en ekki hefur verið tekin ákvörðun um notkun þeirra fjár- muna. í gær hélt yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins enn einn fundinn á skömmum tíma um málið. Er DB frétti síðast af fundinum undir kvöldið var niðurstöðu ekki að vænta á honum. - GS Prestskosningá Raufarhöfn: Umsækjandinn hlaut öll greidd atkvæði Prestskosning var í Raufarhafnar- prestakalli siðastliðinn sunnudag og voru atkvæði talin á skrifstofu biskups igær. Umsækjandi var einn, séra Guð- mundur Örn Ragnarsson, settur prestur í Raufarhafnarprestakalli. Á Færeyingamir að kanna viðbrögð okkar og Norðmanna við Jan Mayen-veiðunum: Við getum ekkert við þessu gert — segir sjávarútvegsráðherra Noregs Færeysku bátarnir tveir, Kristján í Grjótinu og Sigmundur Brettingsson, sem nú eru á leið til loðnuveiða á Jan Mayenmiðunum, hafa hvorki leitað umsagnar né leyfa hjá neinum yfír- völdum til veiðanna. Báðir bátarnir eru um þúsund tonn. Að sögn eins landsstjórnarmanns í Færeyjum í gær munu útgerðar- mennirnir fyrst og fremst vera að þessu til að kanna hugsanleg viðbrögð norskra eða íslenzkra yfirvalda. Jafnframt líta sumir Færeyingar svo á að með því að taka þátt í þessum veiðum nú auðveldi þeir sér að ná ein- hverjum kvóta þar í framtíðinni, er íslendingar og Norðmenn fari að skipta veiðunum á milli sín. „Við getum ekkert við þessu gert,” segir Eyvind Bolle, sjávarútvegs- ráðherra Noregs í samtali við blaðið Sunnmörs Posten. „Það kemur okkur ekki á óvart að færeysk skip skuli vera þarna við veiðar, þvi það var um það talað í samningaviðræðunum í Reykja- vik í júní sl.” Norðmenn virðast hafa frétt um fleiri færeysk skip á miðunum en Færeyingar segjast hafa sent þangað því samkvæmt NTB frétt fráÁlasundi, sem greint er frá í eftirmiðdagsútgáfu Aftenposten í gær, eru nú 10—15 færeyskir loðnubátar á veiðum við hlið norsku veiðiskipanna á Jan Mayen- miðunum. Ennfremur eru þarna að veiðum stórt brezkt loðnuveiðiskip, St. Lawman, sem getur borið 17 þúsund hektólítra og annað minna brezkt skip. Aftenposten segir að þegar norsku skipin hverfi af miðunum geti þessi skip haldið áfram veiðum þar. -G.S.-J.H./S.J. Osló. AfVísisralli: Fjórir úr leik á Akureyri Rallbilar í Visisralli komu í gær um klukkan fjögur til Akureyrar. Þangað komu 13 bilar af þeim 17 sem lögðu upp i keppnina. í fyrsta sæti eftir legginn til Akureyrar voru Halldór Úlfarsson og Tryggvi Aðalsteinsson með rásnúmer 7 og í öðru sæti Ómar og Jón Ragnarssynir, með rásnúmer 2. Fjórir bílar höfðu þá helzt úr á leiðinni. Datsun bíll þeirra Birgis Bragasonar og Hafþórs Guðmunds- sonar drifbrotnaði á Kaldadal og komst ekki lengra. Hann var með rás- númer 12. Magnús Jensson og Indriði Þorkelsson á bíl númer 18 höfðu verið dæmdir úr leik vegna þess að þeir fóru yfir hámarkshraða á einum kafla leiðarinnar. Þá voru einnig dæmdir úr leik þeir Hafsteinn Aðalsteinsson og Magnús Pálsson á bíl númer eitt fyrir of mörg mínusstig. Þvi lögðu aðeins 14 bílar upp frá Sauðárkróki i morgun. Á leiðinni til Akureyrar bræddi svo úr sér bíll þeirra Halldórs Þ. Sigurþórssonar og Einars Óskarssonar, hann hafði rásnúmer 14. Eina óhappið sem gerðist að öðru leyti var að bíll þeirra Braga Guðmundssonar og Björns Ólsen (númer 16), endastakkt rétt hjá einni tímamælingastöðinni. En þeir félagarnir héldu ótrauðir áfram og töpuðu ótrúlega litlum tíma. Þeir voru í 4. sæti við komuna til Akureyrar. Bilamir fóru frá Akureyri kl. 17 í gær og voru væntanlegir til Húsavíkur um eittleytið í nótt. -DS. Vínveitingar á Bautanum? Eigendur veitingastaðarins Bautans við Hafnarstræti á Akureyri hafa sótt um leyfi til vínveitinga á staðnum. Dómsmálaráðuneytið óskaði eftir um- sögn bæjarráðs sem mælti ekki gegn veitingu leyfísins. Að sögn Islendings á Akureyri munu vínveitingarnar fyrirhugaðar í nýjum og vistlegum sal, svonefndri Smiðju, sem nýlega hefur verið tekinn í notkun. -GM Plnstos lif <353UP PLASTPQKAR 82655 amorgun Abbott og Costello verða aðal- leikarar í kvikmynd Dagblaðs- bíósins í Hafnarbíói klukkan 3 á sunnudag. Myndin heitir Ósýnilegi hnefaleikarinn. kjörskrá voru 314. Atkvæði greiddu 178 og hlaut umsækjandinn öll at- kvæðin. Kosningin var lögmæt. Það er mjög,óvanalegt að umsækj- andi hljóti öll atkvæðin í prestskosn- ingum. -GAJ Falleg í fögru umhve sýning imhvem Ævintýraheimur gróðurskálans GarÖyrkjusyning að Reykjum 1 Ölfusi 19.til26.ágúst Á morgun opnar Garðyrkjuskóli ríkisins stóra og fallega sýningu að Reykjum í Ölfusi (við Hveragerði) í tilefni 40 ára afmælis skólans. Sýningarsvæðið spannar 100.000 m2, þar 6.000 m2 undir gleri, þar sem sjá má m.a. ævintýralegar hitabeltisþlöntur og kínakál! Græna veltan Sérstakur grænmetismarkaður verður opinn fyrir sýningargesti allan sýningartímann, auk grænu veltunnar, - hlutavelta með blómum, plöntum og grænmeti í vinninga! Fjölskyldusýning Þetta er sýning fyrir alla fjölskylduna, enda fjölmargt að sjá og skoða fyrir eldri sem yngri. Hestaleiga fyrir unglinga. Gönguleiðir um nágrennið. Geysir í Ölfusi. Gamli skólinn. Kaffiveitingar í Fífilbrekku. Kaffi, kökur, og brauð í ævintýraumhverfi gróðurskálans. Garðyrkjusýning Grasagarður og trjásafn. Bananagróðurhús ,,Afríka“ og hitabeltisgróður. Uppeldisgróðurhús og tæknibúnaður. Tómatar, krydd og krásjurtir. Pottaplöntusafn, paprikur, agúrkur. Gamlar vélar, ný tæki og tæknibúnaður. Vatnsræktun, lýsing og þokuúðun. Alls kyns grænmeti og fjölmargt fleira! Velkomin að Reykjum. Njótið sveitasælunnar, skoðið og kynnist undraheimi Garðyrkjuskólans. Opið daglega 13 - 21 Laugardaga og sunnudaga 10-21 40 mín. akstur frá Umferðamiðstöðinni Aðgangseyrir kr. 2000.- Ókeypis fyrir börn innan 12 ára aldurs. Garóyrkjuskóli ríkisins q&t Reykjum Olfusi -við Hverageröi

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.