Dagblaðið - 18.08.1979, Side 6
6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 1979.
Kvartmfluæfing
verður á braut klúbbsins í Kapelluhrauni sunnudaginn
19. ágúst og hefst kl. 2 eftir hádegi.
Verðlaunaafliending
fyrir keppnirnar sem haldnar hafa verið i sumar, verður
fimmtudaginn 23. ágúst í Hollywood, klukkan 8.00. Þá
verða einnig afhent viðurkenningarskjöl. Allir þátt-
takendur og starfsmenn í báðum kvartmílukeppnunum
og sandspyrnunni eru hvattir til að mæta.
Stjórnin.
A ÖFNA Hárgreiðslustofa
-íl-I JLfl ▼ -tl Lainibakka 36, simi 72053.
' :%
Tízkupermanent.
Dömuklippingar.
Lokkalýsingar.
Blástur.
Glansvask.
Næringarnudd o.fl.
Opið virka daga frá 9—6,
laugardaga 8—3.
Lára Davíðsdóttir,
Björk Hreiðarsdóttir.
Antik til sölu
Hátt, gamaldags skrifpúlt, ætlað tveim skrifur-
um að standa við. Stóll fylgir. Uppl. í síma
53163.
HÓTEL VARÐBORG AKUREYRI
SÍMI (96)22600
Góð gistiherbergi.
Verð frá 6.500—12.000.
Morgunverður 1.650.
Næg bílastæði.
Er í hjarta bæjarins.
Finlux
Toppurínn i
litsjónvarpstækjum.
SJÓNVARPSBÚÐIN
BORGARTUNI 18 REYKJAVIK SIMI 27099
HREVFJLL
Stmi 8 55 22
„Kaupmátturinn rýmar
um 2—4 prósent frá
1. marz til 1. sept.”
— segir Asmundur Stefánsson framkvæmdastjöri ASÍ
Rýrnun kaupmáttarins verður orðin
um tvö prósent á tímabilinu 1. marz til
1. september hjáalmennum launþegum
í ASÍ og meiri, eða um fjögur prósent,
hjá hinum hærra launuðu, að sögn
Ásmundar Stefánssonar, fram-
kvæmdastjóra Alþýðusambandsins, í
viðtali við DB.
Ásmundur sagði, að áætla mætti að
verðlagið hækkaði um tæplega 28 pró-
sent á þessu tímabili en kaup almennra
launþega um rúm 25 prósent.
Ásmundur taldi fráleitt að einhverjir
létu sér til hugar koma að skerða kaup-
hækkunina 1. september frekar en
þegar hefur verið gert. Hann benti á,
að kaupmáttur hefði síðast verið og
yrði næst skertur vegna olíuhækkana
og rýrnandi viðskiptakjara. Annar frá-
dráttur hefði verið magnaður, svo sem
Ásmundur Stefánsson.
búvörufrádráttur og frádráttur vegna
áfengis og tóbaks.
,,Það liggur ljóst fyrir, að verkalýðs-
hreyfingin hefur ekki sem markmið að
kaupið verði sem hæst i krónum heldur
að kaupmátturinn verði sem mestur.
Það er alveg ljóst, að meðan verðbólg-
an geisar er það vafasöm lausn að fara
að stöðva kauphækkanir einar,” sagði
Ásmundur. „Við minnumst þess, að
árið 1975 féll kaupmátturinn en verð-
bólgan náði um leið toppi. Stöðvun
verðbóta leysir engan vanda, menn
verða að stöðva verðbólguna jafn-
framt. Menn skyldu athuga, að vísi-
tölukerfið leiðir auðvitað ekki til kaup-
hækkunar fyrr en verðhækkun hefur
orðið. Ég treysti því, að þessi ríkis-
stjórn fari aðrar leiðir en að klippa sí-
fellt á kaupið,” sagði Ásmundur. - HH
„ÞETTA ERU BARA
VERDBÓLGUKRÓNUR”
— segir Þorsteinn Pálsson framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambaridsins um
kauphækkun 1. sept.
„Þetta eru bara verðbólgukrónur en
ekki kjarabætur,” sagði Þorsteinn
Pálsson, framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambandsins, í viðtali við DB um
kauphækkunina, sem verður I. sept-
ember.
„Það er Ijóst, að við teljum að það
séu engar efnahagslegar forsendur fyrir
þessum sjálfvirku visitöluhækkunum,”
sagði Þorsteinn.
„Við lögðum til að farið yrði eins
með allar verðhækkanir og gert er með
landbúnaðarvörur.” Þá kæmi til frá-
dráttar, þegar verðbætur hækkuðu, sá
hluti verðhækkunar sem stafaði af
hækkun launakostnaðar. „Fyrst rök
eru fyrir þessu varðandi landbúnaðar-
vörur, hljóta þau að gilda fyrir ann-
að,” taldi Þorsteinn. Ennfremur sagði
hann að vinnuveitendur vildu að verð-
bætur yrðu reiknaðar tvisvar á ári i
stað fjórum sinnum.
- HH
►
Þorsteinn Pálsson.
Merkingarnar í skralli, en...
MESTALLT LAG-
METISÖLUHÆFT!
— 3% ósöluhæft vegna gerlagróðurs, önnur sýni ósöluhæf vegna elli.
Nær fjórðungur með of mikið af aukaefnum
Þarna má sjá umbúðirnar utan af sVnishornunum sem tekin voru tii rannsóknar. A bak við eru forráðamenn heil-
brigðiseftirlitsmálanna, talið frá vinstri: Inei Beremann heilbrinðisfulltrúi. Þðrhallur I lalldðrsson, torstððumaðor
heilbricðisettirlits Reykjavikur, Hrafn V.Friðriksson.forstöðumaður Heilbrigðiseftirlists rikisins og Oddur Rúnar
Hjaltason hcilbrigðisfulltrúi. DB-mynd Arni Páll
Af 70 sýnum sem starfsmenn heil-
brigðiseftirlits Reykjavíkurborgar tóku
af niðurlögðu lagmeti á boðstólum i
verzlunum í Reykjavík reyndust 87%
vera söluhæf. Einnig fór fram rann-
sókn á niðursoðnu lagmeti. Var út-
koman heldur verri þar, þvi aðeins
64% þess reyndist söiuhæft.
3% sýnanna af niðurlagða lagmetinu
reyndust ósöluhæf vegna gerlagróðurs,
Voru þau innflutt. 10% voru ósöluhæf
vegna aldurs og útlits. 26,2% innihéldu
of mikið magn aukaefna. Þar af voru
aðeins 10% frá innlendum aðilum.
Voru hin sýnin útlend. Ein tegundin frá
innlendum aðila innihélt allt að ellefu-
falt magn leyfilegra aukaefna. —
Þessar upplýsingar komu fram á blaða-
mannafundi hjá Heilbrigðise ftirliti
ríkisins í gær.
Ólögleg merking
Merking innflutts lagmetis er öll
ólögleg, samkvæmt gildandi reglum
með tilliti til tungumáls. Merkingu um-
búða innlenda lagmetisins er yfirleitt
ábótavant og ekki í samræmi við gild-
andi ákvæði reglugerðarinnar um til-
búning og dreifingu matvæla.
Geymsla lagmetis í verzlunum var
hins vegar viðunandi með fáum undan-
tekningum.
Sýnishornin voru tekin í ehef'.i smá
söluverzlunum í Reykjavík, hjá iimn.
dreifingaraðilum og hjá einum fram-
leiðanda. Upplýsingar um ftamleiðslu-
dag vantaðL að hluta til á sýnishorn af
niðursoðnu lagmeti og þvi ástæða til að
ætla að þau hafi verið gömul. Hins
vegar er ekki skyit að merkja fram-
leiðsludag niðursoðins lagmetis á um-
búðirnar.
Niðurstöðurnar af rannsókninni
benda til þess að ekki sé nægilega vel
farið eftir gildandi ákvæðutn. Merk-
-t' iclaumhóð-- "r sér$ta!:lega
t.úótavnnt.
Að svo komnu máli hyggst Heil-
brigðiseftirlitið ekki gefa upp nöfn
þeirra sem framleiddu eða fluttu inn
hin ósöluhæfu sýni. Er þeim hins vegar
gert viðvart og þeim gefið tækifæri til
þess að bæta ráð sitt. En ef um endur-
tekin og alvarleg brot er að ræða eru
viðkomandi kærðir til saksóknara
ríkisins.
Reynt hefur verið að fjarlægja hinar
ósöluhæfu vörur úr verziunum. Þó er
aldrei hægt að fullyrða að það hafi tek
izt nteð öllu. -A.Bj.