Dagblaðið - 18.08.1979, Page 7

Dagblaðið - 18.08.1979, Page 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 1979. 7 í afmælisveizlu hjá (Jtimarkaðnum „Heyrðu lögga, geturðu hreyft íþér augun?” „Hann á afmæli Útimarkaðurinn, hann á afmæli í dag,” sungu krakkar hástöfum niðri á Lækjartorgi í gærdag. Sönginn leiddu tvær eldhressar fóstrur úr Kópavoginum. Og satt var það, Útimarkaðurinn átti afmæli, varð eins árs. Og eins og af- mælisbarna er siður bauð hann til veizlu. í feiknastóru tjaldi sem reist hafði verið efst í Austurstræti var kök- um og trópíkana dreift meðal bam- anna. Hvert barn fékk böggul sem í var lítið leikfang, kökubiti og sælgæti. Sumir afmælisgestanna voru þó ögn hræddir um að verða útundan og ruðn- ingur við tjaldið var mikill. Lögreglu- þjónar í sparifötunum stóðu hjá og reyndu að bægja frá mesta troðningn- um. „Heyrðu, lögga,” sagði lítill gutti, „geturðu hreyft augun?” Sjóvettlingapolki og bfllinn hans Konna Á torginu hafði verið reistur pallur að hafa á skemmtiatriði. Fóstrurnar tvær úr Kópavogi sem áður var getið stjórnuðu fyrst fjöldasöng miklum. Á eftir þeim kom fram Jón Sigurðsson bankamaður og lék Tvær úr tungunum á harmóníku. Einnig lék hann lag sem hann hafði samið og kallaði Sjóvettl- ingapolka. Ástæðan fyrir nafngiftinni er sú að Jón spilar orðið á nikkuna með sjóvettlinga á höndunum. Á eftir Jóni komu þeir félagarnir Baldur og Konni. Þeir höfðu tafizt þar sem Konni lenti i vandræðum við lögg- una. Konni hafði séð fyrirtaksbíl, akkúrat þennan sem hann vantaði, fyrir framan kirkjugarð og eðlilega talið að eigandinn væri dáinn og hverj- um sem væri væri frjálst að taka bílinn. En því miður eru lögin honum ekki sammála í því efni. - DS Beðið eftir afmælisveitingunum. „Taktu mynd af mér,” sögðu allir við Ragnar ljösmyndara. Kvenfélagið Hringurinn gaf allar kök- urnar i afmælisboð Útimarkaðsins. Héi „Hann á afmæli Útimarkaðurinn,” söng eru Hringskonur i miklum önnum við allur hópurinn. Forsöngvarar voru tvær að skipta þeim á milli krakkanna. fðstrur úr Kópavogi. DB-myndir R.Th. LOÐNUBÁTAR AÐ LEGGJA AF STAÐ —og sfldarbátamir í startholum Nokkrir loðnubátar eru þegar lagðir úr höfn og halda i átt til vænlegra loðnumiða norðan lands, þar sem veið- arnar mega hefjast á mánudaginn. Enn aðrir eru rétt að verða tilbúnir og hyggjast sigla um eða eftir helgina og er búizt við að 50 til 60 bátar stundi veið- arnar. Þær hefjast nú liðlega mánuði síðar en í fyrra. Aðalorsökin er sú að loðnan varð ekki hentug til vinnslu fyrr en um þettaleyti undanfarin ár. Að undanförnu hafa 3 bátar verið á síldveiðum i reknet skv. undanþágu ráðuneytis, tilaðafla sýna. Rannsóknir á sýnum hafa leitt í ljós að fitumagn sildar, einkum stærri flokka, er lægra en á sama tíma undanfarin ár og verður veiðunum frestað til næstu helgar. Munu fleiri bátar hyggja á rekneta- veiðar en loðnuveiðar. Þeir eru hins vegar miklu minni, eða frá 50 tonnum upp i nokkur hundruð tonn, en loðnu- bátarnir frá nálega 500 tonnum upp i Iiðlega 1500tonn. - GS / SÖLU- OG HÚSGAGNASÝNING ÍDAGKL.10-4. HÚSGAGNAMIÐSTÖÐIN SKAFTAHLÍÐ 24 - SÍMI 31633

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.