Dagblaðið - 09.11.1979, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1979. 15
Laugardagur
10. nóvember
16.30 íþróttir. Umsjónarmaður Bjami Felixson.
18.30 Villiblóm. Franskur myndaflokkur í
þrettán þáttum um lítinn dreng, sem elst upp
hjá vandalausum. Annar^ þáttur?--t>ýöandi
Soffía Kjaran.
18.55 Enska knattspyrnan.
Hlé.
20.00 Fréttir og veóur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Leyndardómur prófessorsins. Norskur
gamanmyndaflokkur. Tíundi þáttur. Þýðandi
Jón O. Edwald. (Nordvision — Norska
sjónvarpið).
20 45 Berllnarkvöld. Skemmtiþáttur, tekinn upp
i Berlín. Þessir skemmta: Liza Minelli, Udo
Júrgens, Ben Vercen, Lola Falana, Wayne
Newton, Harlem Globetrotters, Prúðu
skrimslin (The Muppet MonstersVdansflokkur
Anitu Mann, James Last og hljómsveit hans
og John Harris og hljómsveit hns. Þýðandi
Kristrún Þórðardóttir. (Evróvision — Þýska
sjónvarpið).
22.25 Sendiboðinn. (The Go-Between). Bresk
biómynd frá árinu 71. Handrit Harold Pinter
(byggt á skáldsögu eftir L.P. Hartley). Leik-
stjóri Joseph Losey. Aðalhlutverk Julie
Christie, Alan Bates, Margaret Leighton og
Michael Redgrave. Sagan hefst árið 1900.
Leó, tólf ára drengur, dvelst i sumarleyfi hjá
Markúsi skólafélaga sinum, syni auðugra
hjóna. Það kemur brátt í hlut Leós að flytja
boð milli ungra elskenda, fátaéks leiguliða og
systur Markúsar. Þý^andi Óskar Ingimarsson.
00.15 Dagskrárlok.
Sunnudagur
11. nóvember
16.00 Sunnudagshugvekja. Séra Gunnar
Kristjánsson, sóknarprestur, Reynivöllum i
Kjós, flytur hugvekjuna.
16.10 Húsió á sléttunni. Bandariskur mynda
flokkur. Annar þáttur. Fjögur augu.
Efni fyrsta þáltar: I yririæki i Mankato,
sem Karl Ingalls hefur lagt fé i verður gjald
þrota og hann missir tveggja mánaða laun.
Ekki bætir ur skák að hann skuldar búðinni og
frú Olsen er alltaf að ganga eftir greiðslu. Karl
fær vinnu óvænt og fjölskyldan hjálpar
honum. Maria hættir i skólanum til að geta
lagt sitt af mörkum. Skuldin er greidd, meira
að segja er afgangur, svo að þau geta keypt
ýmsar nauðsynjar sem þau vanhagar um.
Þýðandi óskar Ingimarsson.
17.00 Tigris. Fyrsti þáttur af fjórum, sem gerðir
voru í samvinnu norrænu sjónvarpsstöðvanna
og allmargra annarra, um svonefndan Tigris-
leiðangur sem Thor Heyerdahl stóð fyrir.
Leiðangurinn lagði upp i nóvember 1977 frá
borginni Qurna í Suður-írak, en þar var gerður
bátur úr ævafornu skipasmiðaefni, sefi, og
ferðinni lauk fjórum mánuðum siðar eftir
6.800 km siglingu, við strönd Djibouti í
Austur-Afriku. Þýðandi og þulur Gylfi Páls-
son. (Nordvision).
18.00 Stundin okkar. Meðal efnis: Litið inn i
Listdansskóla Þjóðleikhússins, rætt við Ingi-
björgu Björnsdóttur, skólastjóra, nokkra
nemendur og Ásdisi Magnúsdóttur, list-
dansara. Brugðið er upp myndum úr ævin-
týrum H.C. Andersen og sýnd er dönsk teikni-
mynd um Hans klaufa. Barbapapa og banka-
stjóri Brandarabankans verða sem fyrr á
sínum stað. Umsjón: Bryndís Schram. Stjórn
upptöku Andrés Indriðason.
20.00 Fréttir og veóur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 tslenskt mál. Sjónvarpið brýtur nú upp á
nýmæli, stuttum fræðsluþáttum um mynd-
hverf orótök i islensku máli, i framhaldi af
tveimur lengri málþáttum almenns eðlis und-
anfarin sunnudagskvöld. Höfundur texta og
umsjónarmaður er Helgi J. Halldórsson,
íslenskukennari, og fjallar hann um uppruna
orðtakanna, merkingu þeirra og notkun. Að
meginhluta til veröur stuðst við íslenskt orö-
takasafn eftir prófessor Halldór Halldórsson
og doktorsritgerð hans um islensk orðtök.
Framan af verður einkum fjallað um mynd-
M ARMARAHÚSIÐ — sjónvarp á föstudagskvöld 16. nóv. kí. 22.15:
Reynir að kaupa telpu
„Hún er reglulega skemmtileg
fannst mér,” sagði Pálmi Jóhannes-
son þýðandi um myndina Marmara-
húsið sem sjónvarpið sýnir okkur á
föstudagskvöld í næstu viku. Myndin
er ný sjónvarpskvikmynd frá
Frakklandi með þeim Dany Carrel,
Giséle Casadeus og Catherine Creton
í aðalhlutverkum.
Myndin greinir frá ungri einstæðri
móður. Reyndar er hún gift en
faðirinn er nær aldrei heima og
styrkir fjölskyldu sína nær ekkert.
Mánaðamótin eru því oft erfið fyrir
móðurina sem vinnur fyrir lágum
Iaunum i kjörbúð. Fn einn daginn
kemsthún að þvi að búið er að borga
húsaleiguna fyrir næsta mánuð lyrir
hana. Hún kemst að þvi að þar er að
verki roskin kona sem vill seilast til
áhrifa á dóttur hennar. Meira held ég
nú að sé ekki vert að segja,” sagði
Pálmi.
Þessi mynd er eins og áður sagði
alveg glæný. Sjónvarpið hefur núna
fengið töluvert af nýjum myndum
sem það er reyndar þegar byrjað að
syna. Myndin á laugardagskvöldið í
næstu viku er einnig sem ný, frá
árinu 1973. -DS.
Gamla konan vill með peningum sinum
seilast til áhrifa á dóttur aðalpersónu
myndarinnar á föstudagskvöld.
MONIKA — útvarp á mánudagskvöldið kl. 21.35:
SVEITAUFSSAGA
— spennandiog
rómantísk
Lestur nýrrar útvarpssögu hefst á
mánudagskvöldið. Er það sagan
Monika eftir Jónas Guðlaugsson í
þýðingu Júníusar Kristinssonar.
Guðrún Guðlaugsdóttir les söguna en
áður en fyrsti lestur hefst flytur
Gunnar Stefánsson smáspjall um
höfundinn. Gunnar var spurður um
hann og söguna.
„Jónas Guðlaugsson var einn af
þeim höfundum sem fóru til Dan-
merkur á fyrsta tug aldarinnar og
skrifaði á dönsku. Hann var fæddur
1887 og dó 1916, tæplega þritugur að
aldri.
Jónas heitinn Guðlaugsson rithöfund-
ur.
Hann orti nokkuð af Ijóðum, bæði
á dönsku og íslenzku, og skrifaði
nokkrar sögur. Monika hefur aldrei
verið þýdd á íslenzku fyrr en núna en
henni var vel tekið I Danmörku á
þeim tima sem hún kom þar út. Enda
var island þá óþekkt iand og spenn-
andi.
Sagan gerist á íslandi og er svona
sveitasaga, dramatísk og rómantísk j
senn. Eins og gefur að skilja eftir
þeim tima sem hún kemur út á lýsir
hún gömlum tíma sem nú er horfinn.
Mér finnst svolítið gaman að því að
heyra þá lýsingu,” sagði Gunnar. Og
við verðum að vona að fleiri séu hon-
um sammála.
- DS
hvcrf orðtök, sem lúta að fyrri ttðar sjósókn og
siðar orötök sem lýsa llfi og starfsháttum
sveitafólks. Myndstjórnandi Guðbjartur
Gunnarsson.
20.45 Boðskapur heiðlóunnar. Dönsk mynd um
Islenska listmálarann Mariu Ólafsdóttur.
Maria fluttist ung til Kaupmannahafnar og
starfaöi þar lengst af ævi sinni. Listakonan
andaðist 24. júli I sumar, hálfu árí eftir að þessi
þáttur var gerður. Þýðandi Hrafnhildur
Schram. (Nordvision — Danska sjónvarpið).
21.20 Andstreymi. Ástralskur myndaflokkur.
Fjórði þáttur. Efni þriðja þáttar: Mary verður
vinnukona á heimili höfuðsmanns nokkurs
Polly fer til vingjamlegs kráreiganda sem Will
Price heitir. Mary mætir alls staðar kulda og
fjandsemi á býli höfuðsmannsins. Einn maður
reynist henni þó vel, enskur fangi, Jonathan
Garrett. Þýðandi Jón O. Edwald.
22.10 Bowles Brothers. Léttur tónlistarþáttur
með samnefndri hljómsveit.
Mánudagur
12. nóvember
20.00 Fréttir og veöur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 íþróttir. Umsjónarmaöur Bjami Felixson.
21.05 Faöirinn. Breskt sjónvarpsleikrit eftir
Deborah Mortimer. Leikstjóri: Valerie
Hanson. Aðalhlutverk Paul Daneman, Eliza-
beth Bodington, James Kerry og Janet Ellis.
Alison, átján ára stúlka, kemst að þvl að
maður sá, sem hún hefur alltaf talið föður
sinn, er það ekki, heldur er hún dóttir manns
sem móðir hennar bjó með áður en hún gifti
sig. Þýðandi Kristrún Þórðardóttir.
21.55 Miriam Makeba. Tónleikar með suður-
afrísku söngkonunni Miriam Makeba, sem
haldnar voru á vegum Menningar- og vísinda-
stofnunar Sameinuöu þjóðanna árið 1978, en
það ár var helgað baráttu gegn kynþáttaað-
skilnaði. Þýðandi Ragnar Ragnars.
22.20 Alþjóðalögreglan. ísland og flest önnur
lýðræðisríki Vesturlanda eiga aðild að
Alþjóðalögreglunni, Interpol, ásamt löndum,
sem búa við harðstjórn af ýmsu tagi. Interpol
nýtur mikils sjálfstæðis gagnvart stjórn-
völdum aðildarríkjanna, og i þessari mynd eru
leiddar líkur að því að stofnunin virði ekki
alltaf lýðræði og mannréttindi. Þýöandi og
þulur Bogi Arnar Finnbogason.
23.00 Dagskrárlok.
Þriðjudagur
13. nóvember
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Hefndin gleymir engum. Franskur saka-
málamyndaflokkur. Annar þáttur: Efni fyrsta
þáttar: Ungur maöur, Jean Martin, kemur að
unnustu sinni látinni. Hann telur vist að hún
hafi orðið fyrir flösku sem varpað hefur verið
úr flugvél. Eftir langa leit finnur hann flug-
vélina og lista yfir farþega daginn sem slysið
varð. Flugmaðurinn er látinn og efsti maöur á
listanum er iðnrekandinn Georges Garriset.
Kona hans lætur lífið með sviplegum hætti.
Þýðandi Ragna Ragnars.
21.35 Framboðskynningar. Fulltrúar þeirra
aðila, sem bjóða fram til alþingiskosninga 2. og
3. desember svara spumingum Sigrúnar
Stefánsdóttur fréttamanns. Rætt verður við
fulltrúa hvers flokks I 15 minútur. Stjórn
upptöku RúnarGunnarsson.
23.20 Dagskrárlok.
Miðvikudagur
14. nóvember
18.00 Barbapapa. Endrsýndur þáttur úr
Stundinni okkar frá síðastliðnum sunnudegi.
18.05 Fuglahræðan. Breskur myndafiokkur.
Lokaþáttur. Dansleikurinn. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir.
18.30 Fellur tré aö velli. Fyrsta myndin af þrem-
ur sænskum um lif barna í afrisku þorpi og
þær breytingar sem verða á högum þorpsbúa
þegar hvítir menn taka til starfa í nágrenninu
með vinnuvélar sinar. Þýðandi og þulur Jakob
S. Jónsson. (Nordvision — Sænska sjón-
varpið).
19.00 Hlé.
20.00 Fréttir og veöur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Nýjasta tækni og visindi. Umsjónarmaöur
örnólfur Thorlacius.
21.05 Tónstofan. Fyrirhugað er að tónlistar-
þættir með þessu heiti verði á dagskrá um það
bil einu sinni á mánuði i vetur. I fyrsta þætti
leika Gunnar Kvaran og Gisli Magnússon
sónötu fyrir selló og píanó op. 40 eftir
Sjostakovits. Kynnir Rannveig Jóhannsdóttir.
Stjórn upptöku Tage Ammendrup.
21.35 Vélabrögð I Washington. Bandariskur
myndaflokkur. Fjórði þáttur. Efni þriðja
þáttar: Bill Martin,forstjóri CIA, býr nú með
Sally Whalen. Honum líst ekki á blikuna þegar
Monckton forseti biður um skeyti, sem fór
milli þeirra Currys skömmu áður en forseta
Vietnams var steypt af stóli. Myron Dunn
fjármálaráðherra gerir samning við hótel- og
spilavitiseiganda sem vill láta flokknum í té
hótel og greiða allan kostnað við flokksþingið
gegn þvi að kona hans verði gerð að sendi-
herra i Evrópu. Atherton öldungadeildarþing-
maður vill afhjúpa þessi hrossakaup. Sally
Whalen er gömul vinkona hans og hún fær
Martin til að afia upplýsinga um hóteleigand-.
ann. Esker Scott Anderson, fráfarandi forseti,
andast og allir æðstu menn í Washington fara
með fiugvél forsetans til að vera við útförina.
Þýðandi Ellert Sigurbjörnsson.
23.05 Dagskrárlok.
Föstudagur
16. nóvember
20.00 Fréttir og veöur.
2030 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Skonrok(k). Þorgeir Ástvaldsson kynnir
vinsæl dægurlög.
2l.l0 Kastljós. Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður Guðjón Einarsson frétta-
maðurl. Stjórn upptöku Valdimar Leifsson.
22.15 Marmarahúsiö. Ný, frönsk sjónvarpskvik-
mynd. Aöalhlutverk Dany Carrel, Giséle
Casadesus og Catherine Creton. Colette er
einstæð móðir og á tiu ára gamla dóttur. Hún
vinnur i verslun og hefur lág laun Dag
nokkurn kemst hún að þvi að óþekkt kona
hefur fengið áhuga á velferð mæðgnanna og
greitt húsaleigu þeirra. Þýðandi Pálmi Jóhann
esson.
23.40 Dagskrárlok.
Laugardagur
17. nóvember
16.30 íþróttir. Umsjónarmaður Bjami Felixson.
18.30 Villiblóm. Franskur myndaflokkur. Þriðji
þáttur. Þýðandi Soffía Kjaran.
18.55 Enska knattspyrnan.
Hlé.
20.00 Fréttir og veöur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Leyndardómur prófessorsins. Norskur
gamanmyndafiokkur. Ellefti þáttur. Þýðandi
Jón O. Edwald. (Nordvision — Norska
sjónvarpið).
20.45 Flugur. Fjórði og siðasti þáttur. Kynnir
Jónas R. Jónsson. Umsjón og stjórn upptöku
Egill Eðvarösson.
21.15 ELO. Tónleikar hljómsveitarinnar
Electric Light Orchestra, haldnir i Wembley-
höll í Lundúnum til ágóða fyrir Styrktarfélag
fatlaðra. Kvikmyndaleikarinn Tony Curtis
fiytur stuttan formála. Þýðandi Björn Baldurs-
son.
22.15 Framkvæmdastjórinn (Man at the Top).
Bresk bíómynd frá árinu 1973. Aðalhlutverk
Kenneth Haigh, Nanette Newman og Harry
Andrews. Joe Lampton hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri lyfjaverksmiöju. Hann
kemst brátt að þvi aö honum er ætlað að bera
ábyrgð á því að sett var á markað lyf sem haft
hefur hryllilegar afieiðingar fyrir þúsundir
kvenna. Þýðandi: Ragnar Ragnars.
23.45 Dagskrárlok.
Sunnudagur
18. nóvember
16.00 Sunnudagshugvekja. Séra Gunnar
Kristjánsson sóknarprestur, Reynivöllum i
Kjós, fiytur hugvekjuna.
16.10 Húsió á sléttunni. Bandarískur mynda-
fiokkur. Þriðji þáttur. Ebenezer. Efni annars
þáttar: Mariu Ingalls fer að ganga ótrúlega illa
í skólanum. Fyrir dyrum stendur sögupróf þar
sem veita á verðlaun og Maríu finnst hún alls
ekki fær um að taka þátt í þvi. Faðir hennar
kemst af tilviljun að því að hún er farin að sjá
mjög illa, og Maria fær gleraugu hjá lækni i
Mankato. En skólasystkin hennar striöa henni
óspart á þeim. Minnstu munar að það
eyðileggi fyrir henni námið en þó fer allt vel að
lokum og hún verður efst á söguprófinu.
Þýðandi óskar Ingimarsson.
17.00 Tigris. Annar þáttur um leiðangur Tors
Heyerdahls og félaga hans á sefbáti frá írak
um Persafióa og suður með austurströnd
Afríku. Þýðandi og þulur Gylfi Pálsson.
(Nordvision).
18.00 Stundin okkar. Meðal efnis: Hvað ætla ég
að verða? Nemendur í Hlíðaskóla og börn í
Tjarnarborg tekin tali. Flutt verður tyrkneskt
ævintýri með teikningum eftir Ólöfu Knud-
sen, öddi og Sibba og Barbapapa lita við og
bankastjóri Brandarabankans glímir við kross
gátu. Umsjónarmaður Bryndis Schram. Stjórn
upptöku Andrés Indriðason.
18.50 Hlé.
20.00 Fréttir og veóur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 fslenzkt mál. Fjórði þáttur. Haldið verður
áfram að skýra myndhverf orðtök úr islensku
sjómannamáli. Textahöfundur og þulur Helgi
J. Halldórsson. Myndstjórnandi Guðbjartur
Gunnarsson.
20.45 Maður er nefndur. Jón Þórðarson
prentari. Jón Þórðarson er einn af vígreifustu
prenturum landsins og er nú að verða níræður.
Hann var með afbrigðum næmur á íslenskt
mál og leiðrétti gjarnan handrit manna svo
lítið bar á. Hann var t.d. sá eini sem lesið gat
og sett eftir handritum Jónasar frá Hrifiu. Jón
Helgason blaðamaður ræðir við nafna sinn.
Myndstjórnandi Guðbjartur Gunnarsson.
21.45 Andstreymi. Ástralskur myndafiokkur.
Fimmti þáttur. Samkomulagið. Efni fjórða
þáttar: Jonathan og Mary kynnast þjáningar-
bróður sínum, Dinny O’Byrne. Hann hvetur
þau til að reyna að sætta sig viö refsivistina.
Mary fer að ráðum hans en Jonathan lendir
saman við harðlyndan eftirlitsmann og er
stefnt fyrir Samuel Marsden, „prestinn með
vöndinn”. Þýðandi Jón O. Edwald.
22.35 Dagskrárlok.