Dagblaðið - 08.01.1980, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 08.01.1980, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1980. 7 Erlendar fréttir Tuttugu og einn fórst v Tuttugu og einn fórst í Mexikóborg, þar af átján böm, þegar vegavinnuvél (oryfírþá igær. Fjórir blaða- menn hand- teknir í Perú Lögreglan í Perú hefur handtekið fjóra blaðamenn og beitt sprengjum til að tvístra göngu starfsmanna prent- smiðja. Kröfðust þeir leyfis til að fá að gefa út blöðin sjálfir. Afghanistan: Sovétríkin stefna að algjöru hemámí — þegar komnir um það bil eitt hundrað þúsund sovézkir hermenn til Afghanistan Svo virðist sem fjöldi hermanna Sovétríkjanna í Afghanistan sé að nálgast eitt hundrað þúsund og allt bendir til þess nú að stefnt sé að al- gjöru og varanlegu hernámi landsins. Er þetta eftir heimildum bandaríska utanríkisráðuneytisins. Sagði tals- maður ráðuneytisins að fjöldi sovézkra hermanna og vopnabún- aður þeirra benti eindregið til þess að ekki væri hugsað til heimferðar aftur i bráð. Jimmy Carter forseti Bandaríkj- anna sagði á fundi með fréttamönn- um í gær að hann mundi beita sér fyrir samstarfi nokkurra vestrænna ríkja og í Miðausturlöndum um að tryggja öryggi Pakistan eftir sovézkt hernám í Afghanistan. Carter sagði einnig að Bandaríkin hefðu ákveðið að þiggja boð stjórna Somalíu, Oman og Kenya um að- stöðu fyrir herskip og flugvélar, sem fá mundu það hlutverk að gæta Persaflóa fyrir hugsanlegri frekari út- þenslustefnu Sovétríkjanna. Walter Mondale varaforseti sagði að Bandaríkjastjórn mundi beita öll- um ráðum í baráttunni gegn Sovét- stjórninni í málefnum Afghanistan. Mætti þar nefna takmörkun á fæðu- sendingum, viðskiptatakmarkanir, takmarkanir á fiskveiðiheimildum, á tæknisviði, og einnig á sviði stjórn- mála og menningarmála. Mondaie varaforseti fullvissaði bandaríska bændur um að þeir mundu ekki biða tjón á takmörkun- um á kornsölu til Sovétríkjanna. Bandaríkjastjórn væri reiðubúin til að verja allt að 2,25 milljörðum doll- ara vegna kornsölutakmörkunarinn- ar og kaupa korn fyrir þá upphæð. Kornmörkuðum i Bandarikjunum hefur nú verið lokað í tvo daga til að koma í veg fyrir verðhrun og einnig til að gefa opinberum aðilum tæki- færi á að gera sérgrein fyrir nauðsyn- legum aðgerðum vegna stöðvunar á kornsölu til Sovétrikjanna. Ræða sjálf- stjómPaU estínuaraba Menachem Begin forsætisráðherra ísraels og Anwar Sadat forseti Egypta- lands munu nú einbeita sér að umræð- um um sjálfstjórn Palestínuaraba og hvernig hún eigi að verða. Verulegur ágreiningur er enn um þá mál á milli ísraelsmanna og Egypta. Palestínuar- abar eru um það bil 1,2 milljónir talsins og eru á svonefndum vesturbakka ár- innar Jórdan og Gazasvæðinu. Einnig er nú rætt um framtíð austur- hluta borgarinnar Jerúsalem, sem fram að sex daga striðinu árið 1967 var undir stjórn Jórdaniumanna en síðan hafa ísraelsmenn ráðið allri borginni.. Jerúsalem er heilög borg bæði í augum kristinna, gyðinga og múhameðstrúar- manna. Að sögn talsmanns ísraelskra aðila á fundinum í Aswan í Egyptalandi fór fyrsti fundardagurinn algjörlega í að ræða ástand mála í íran og Afghan- istan. í ræðu sem Begin hélt við kvöld- verð í gærkvöldi gaf hann í skyn að æskilegt væri að Egyptar og Israels- menn tækju sameiginlega afstöðu til beggja þessara mála. Begin fordæmdi aðgerðir Sovétmanna i Afghanistan sem aðgerðir heimsvaldasinna og nakta yfirgangssemi. Um íransmálið og gísl- ana 50 i bandaríska sendiráðinu i Teheran sagði hann að þar hefði mikilhæf þjóð verið litilsvirt. Þar á hann við Bandaríkin. Afghanistar hafa viða um heim staðið fyrir mótmælaaðgerðum vegna aðgerða Sovétstjórnarinnar I heimalandi sínu. Myndin er frá Denver I Bandarikjunum þar sem nokkrir þeirra hafa safnazt saman og óska Rússum dauða ef ráða má af mótmæla- spjöldunum. Indversku kosningamar: ALGJORSIG- URINDIRU Ljóst er nú að sigur Indiru Gandhi og flokks hennar, Kongressflokksins, er mun glæsilegri en búizt var við fyrirfram og verður hún án nokkurs vafa næsti forsætisráðherra landsins eftir rúmlega tveggja ára hlé. Sjálf sigraði Indira í þeim tveim kjördæm- um, sem hún bauð sig fram í og munu fara fram aukakosningar í öðru þeirra innan skamms þar sem Indira heldur aðeins öðru þingsæt- inu. Aðrir stjórnmálaflokkar en Kon- gressflokkur Indiru eru í rúst að loknum kosningunum ef undan er skilinn kommúnistaflokkur landsins. Þeir hafa forustu í flestum kjör- dæmum í Vestur-Bengal en þar var talningu ekki lokið í morgun. Indira Gandhi, sem er orðin 62 ára og hefur til þessa verið forsætisráð- herra Indlands í ellefu ár, sagði að það sem ríkið skorti helzt væri traust og örugg stjórn. Hún á að hafa alla möguleika á að stuðla að slíku eftir að hún kemur til valda þar sem flokk- ur hennar hefur möguleika á að hljóta rúmlega tvo þriðju hluta þing- sæta í neðri deild þingsins. Þingmenn eru 544 en í morgun hafði Kongress- flokkur Indiru hlotið'281 þingsæti af þeim 369 sem búið var að ljúka taln- ingu um. Eftir kosningarnar árið 1977, þegar Indira féll, hafði flokkur hennar aðeins 154 þingsæti í neðri deildinni. Þeir voru síðan komnir niður, í 80 fyrir kosningarnar, sem hófust i síðustu viku, þar sem svo margir þingmenn höfðu sagt sig úr flokknum vegna andstöðu við stefnu og stjórn Indiru. Sonur hennar, Sanjay, þrjátíu og þriggja ára að aldri, vann einnig mik- inn sigur í kosningunum og var kjör- inn með 128 þúsund atkvæða meiri- hluta eftir að hafa tapað með 75 þús- und atkvæða meirihluta í kosningun- um árið 1977. Framtíðastefna Indiru að sögn hennar í gær er sú að koma á lögum og reglu i landinu og endurreisa efna- hagslíf landsins. Hún sagði blaða- mönnum að hvorki Janataflokkur- inn, sem nú beið algjöran ósigur, né neinn annar flokkur gæti blekkt þjóðina endalaust. Fólk hefði áttað sig á þeim mistökum, sem það gerði í kosningunum árið 1977. Kongressflokkur Indiru fær aó öllum likindum rúmlega tvo þriðju þingsæta á indverska þinginu en hafði ekki nema áttatfu sæti af 544 áður en gengið var til kosninga.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.