Dagblaðið - 08.01.1980, Blaðsíða 23

Dagblaðið - 08.01.1980, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. JANUAR 1980. <§ Útvarp 23 Sjónvarp D Krakkarnir eru ekki nógu duglegir að senda sögur i þáttinn Ungir pennar að þvi er Harpa Jósefsdóttir segir. Þessi ungi snáði sendir kannski inn bréf, þegar hann fer að byrja að skrifa. DB-mynd Ragnar Th. ,,í þessum þætti verð ég með upprifjun frá síðasta ári og ætla að lesa tvær sögur aftur sem ég fékk þá. Þær eru um álfa eða öllu heldur huldufólk og dverga,” sagði Harpa Jósefsdóttir Amin umsjónarmaður Ungra penna sem er á dagskrá út- varpsins í dag kl. 16.20. „Ljóð ætla ég einnig að lesa og kannski sitthvað fleira eftir því sem timi vinnst til. Krakkarnir hafa ekki verið nógu duglegir að skrifa nú í jólafríinu en ég vona að það lagist fljótlega. Ég fékk nokkrar jólasögur fyrir jólin og meira að segja kom ein stúlka til mín og |as söguna sína sjálf. Það hefur verið einhver misskiln- ingur með fyrir hvaða aldur þáttur- inn er ætlaður. Þátturinn er alveg eins fyrir 16—17 ára unglinga. Ég hef fengið bréf frá 18 ára unglingi og mér finnst það eiginlega mjög gott. Það koma lengri sögur frá þeim,” sagði Harpa ennfremur. — Verður þátturinn áfram í vetur? „Hann verður áfram svo framar- lega sem krakkarnir eru duglegir að skrifa. Flest bréfm fæ ég utan af landi en það kemur þó fyrir öðru hverju að ég fæ bréf héðan af Reykjavikursvæðinu. Ég hef einnig haft það þannig að ef börnin vilja lesa sínar sögur sjálf og treysta sér til þess þá er það velkomið. Ég hef líka reynt að gefa þeim hugmyndir um efni sem þau síðan geta skrifað um,” sagði Harpa. „Það vill þó oft verða þannig að þau skrifi mjög stuttar sögur sem ekki tekur nema eina og hálfa mínútu að lesa,” sagði Harpa Jósefsdóttir Amin að lokum. -ELA. ÞJÓDSKÖRUNGAR TUTTUGUSTU ALDAR — sjónvarp kl. 20.40: Ahrif Nassers á Egyptaland Eisenhower fyrrum forseti Bandarikjanna á tali viö Nasser fyrrum forseta Egyptalands. „Þátturinn fjallar um Gamal Abdel Nasser Egyptalandsforseta, samskipti hans við stórveldin og ísraelsmenn og þær breytingar sem byltingarstefna hans hefur valdið,” sagði Ingi Karl Jóhannesson þýðandi myndarinnar Þjóðskörungar tuttugustu aldar sem sjónvarpið sýnir ikvö'dkl. 20,40. „Einnig er i myndinni vikið að Súez- deilunni frægu. Sagt er frá leiðtoga- eiginleikum hans og þeirri persónu sem hann hefur að geyma,” sagði Ingi Karl ennfremur. Gamal Abdel Nasser var óþekktur ofursti þegar hann tók þátt i að steypa af stóli Farúk, konungi Egyptalands. Skömmu seinna varð Nasser forseti Egyptalands og ókrýndur leiðtogi Araba. Hugsjón hans var að sameina Arabaríkin og knésetja ísrael en það rættist ekki. Það er þriðji þáttur af tuttugu og fjórum sem sýndur verður í kvöld. Þættirnir eru á dagskrá annan hvern þriðjudag. Þulur myndarinnar er Friðbjörn Gunnlaugsson. -ELA. Karl Gústaf Sviakóngur. Sagt er að eina starf sem hann hafi nú orðið sé að veita nóbelsverðlaunin. DB-mynd: Jim Smart. SPEKINGAR SPJALLA — sjónvarp kl. 21.55: Nóbelsverðlaunahafar ræða um kjamorkuver „Þátiurinn er tekinn upp í Svíþjóð og umræðunum stýrir Bengt Feldreich. Hann hefur stjórnað umræðuþáttum sem þessum í fjölda ára. Nóbelsverð- launahaf°.r í raunvisindum 1979 eru þátttakendur í umræðunum. Aðal- úmræða þeirra er kjarnorkustöðvar og hættan samfara kjarnorkunni,” sagði Jón O. Edwald þýðandi umræðuþáttar nóbelsverðlaunahafanna. „Þeir minnast einnig á upphaf heimsins og vitnar þar einn spekingur- inn í Snorra-Eddu. Þrir þeirra sem þátt taka i umræðunum eru Gyðingar og snýst umræða þeirra upp í hve oft Gyðingar hljóti nóbelsverðlaun,” sagði Jón ennfremur. „Þetta er skemmtilegur og fræðandi þáttur þar sem greindir menn, að því er maður verður að álíta, ræða hlutina. Þar sem þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram næsta sumar í Svíþjóð um kjarn- orkuver snýst umræðan að mestu um það mál en þeir eru hvorki með né á móti.” Þeir sem þátt taka i umræðunum eru Sheldon Glashow, Steven Weinberg og Abdus Salam, verðlaunahafar í eðlis- fræði, Herbert Brown.verðlaunahafi í efnafræði og Allen Cormack og Godfrey Hounsfield, sem skiptu með sér verðlaunum í læknisfræði. -ELA. Allar viðgerðir bíla og stillum bílinrt með fullkomnustu tækjum. Pantifl tíma í tíma. Einnig bjóflum vifl Ladaþjónustu LYKILLP Bifreiðaverkstæði Simi 76650. Smifljuvegi 20 — Kóp. BifjBiÓasala EGII Laugavegi 118, símar 15700 - 22240. Til sölu Concord station de Luxe árgerð 1978, ekinn 21, þús. km. Bíllinn er 6 cyl., sjálfskiptur með vökva- stýri og aflhemlum. Bíll með mjög gott útlit.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.