Dagblaðið - 11.02.1980, Side 3
Eger tilíallt. 77
búin 1150 watta afli og
W 12 lítra rykpoka. gá
WLjMade in USA) M
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1980.
Bandalag starfsmanna ríkis og bæja:
„Nýjum kjarasamning-
um líður ekki alltof vel”
Baldur Krisljánsson blaðafulltrúi
BSRB skrifar svar við opnu bréfi
nokkurra áhugasamra félaga í BSRB
(bréf þeirra birtist í blaðinu sl. mið-
-Wkudag undir fyrirsögrtinni „Hvað
líður nýjum kjarasamningum?”):
Til að byrja með vil ég hvetja
ykkur „áhugasama félaga í BSRB”
að rita undir nafni. Fólk sem ritar
jafngóð bréf og þið á að koma fram í
dagsljósið. Það auðveldar öðrum að
koma fram með skoðanir sínar og
stuðlar að því að umræða um kjara-
mál verði opnari en verið hefur.
Það er rétl sem kemur fram í bréfi
ykkar að kjarasamningar rikis- og
bæjarstarfsmanna hafa verið lausir
frá 1. júlí 1979. í kjarasamningalög-
unum er hins vegar ákvæði um það
að gamli samningurinn gildi uns nýr
hefur verið gerður eða verkfall
hefjist.
Kjaradeilan
er í höndum ríkis-
sáttasemjara
Kröfur BSRB voru lagðar fram í
tvennu lagi. í vor voru lagðar fram
almennar kröfur, en beinar launa-
kröfur voru lagðar fram i nóvember
siðastliðnum. Gagntilboð hefur
ekkert borist frá rikinu. „Starfs-
sljórn” Alþýðuflokksins lýsli því yfir
i haust að hún hefði ekki aðstöðu til
að sinna þessari deiiu. í samræmi
við það hafa ekki komið nein við-
brögð frá fjármálaráðherra. Deilan
er fyrir löngu komin í hendur ríkis-
. sáttasemjara.
Fundir í haust
Þið kvarlið undan því að hafa ekki
séð neinar auglýsingar um fundi þar
sem félagsmönnum væri kynntur
gangur mála. Samninganefndin
ákvað eftir yfirvegun að halda ekki
fundi á vegum heildarsamtakanna til
kynningar á kröfugerð. Hins vegar
beindi samninganefndin því til
aðildarfélaga bandalagsins að þau
'héldu fundi þar sem kröfugerðin
væri kynnt og fjallað um gerð nýrra
samninga. Þetta hafa félögin gert,
mörg hver, og auglýst fundina í
fréltabréfum og félagsrilum viðkont-
andi félags. Önnur félög hafa ekki
séð ástæðu til að halda fundi. Að
auki hefur verið fjallað ítarlega um
kjaramálin í þessum sömu ritunt, og
koma ntér þá sérstaklega í hug
Félagstíðindi Starfsmannafélags
ríkisstofnana, auk þess sem Ás-
garður, blað BSRB, gerir kjaramál-
unum mjög góð skil næstum því á
mánaðarfresti. Því má skjóta að
ykkur að ef ekki hefur verið haldinn
fundur unt kröfugerðina í ykkar
félagi þá gerið þið rétt í því að snúa
ykkur til trúnaðarmanna eða
sijórnar félagsins og óska eflir fundi.
Verkfallsvopnið
er eftir
BSRB gelur lil þess að knýja á um
samninga boðað verkfall. Slík að-
gerð er mjög alvarleg og verr af stað
farið en heima setið misheppnist
verkfallið. Stjórn og samninganefnd
BSRB hafa hingað til melið það
þannig að aðstæður væru ekki nógu
hagstæðar i þjóðfélaginu, og kemur
þar fyrst og fremst inn í að viðsemj-
andi hefur enginn verið, til þess að
boða verkfall. Það er min skoðun að
einhugur félagsmanna i BSRB hafi
ekki verið nógu mikill, hingað til, til
að stíga það skref út í óvissuna sem
verkfallsboðun er. Í þessu sambandi
verður að hafa það í huga að áður en
verkfall hefst leggur sáitasemjari
fram sáttatillögu. Ef slik sáttatillaga
yrði samþykkl gilti hún sem samning-
ur í 2 ár. Stjórn og samninganefnd
BSRB verða að vera alveg viss um að
áhugi félagsmanna til að berjast fyrir
bættum kjörum sé það ntikill að þeir
samþykki ekki lélega sáttatillögu til
þess eins að forðast verkfall.
Jafnlauna-
stefna
Það er ótækt að kröfugerð okkar
AiKvæot lann ur Kosnmgum nja u.s.K.b.
rykfalli í fjármálaráðuneylinu. Til
þess er hún allt of merkileg. í henni
kemur fram skýlaus launajöfnunar-
stefna og farið er fram á félagslegar
úrbætur sem kosia frekar vilja en
peninga. Þess vegna er bréf ykkar
þarft innlegg og fleiri greinar og bréf
mæltu fylgja í kjölfarið. Það hefur
þann tvíþætta tilgang að þrýsta á
stjórnvöld að ganga til samninga og
fullvissa forystu BSRB um það að
félagsmenn fylgist með því sem er að
gerast og standi þétt að baki henni
þegar og ef lil líðinda dregur.
STERKASTA RYKSUGA
í heimi
UáSZk HOOVER S-3001
Hoover S-3001 er á margan hátt lang sterkasta heimilisryksuga
sem þekkist. Af 1340 ivatta afli hreinsar hún öll þtn teppi af hvers
kyns óhreinindum. Breyta má um sogstyrk eftir því hvað hentar.
Þér til mikils vinnuhagrœðis er rofinn í handfanginu, undir þumal-
fingrinum. Að hreinsa kverkar er aldeilis aitðvelt, stillanlegt sog-
stykki sér fyrir þvt. Stór hjól og hringlaga lögun gera Hoover S-3001
einkar lipra t snúningum, hún rispar ekki húsgögnin þtn.
Til þceginda er sjálfvirkt inndrag á aðtauginni. Hoover S-3001 her
sjálf öll hjálpartceki, svo núgetur þú loksins haft fulltgagn af þeim.
Og ekki síst, 12 lítra rykpoki sem enst getur þér t marga mánuði án
tcemingar.
'■':h
Hringlaga lögunin gefur
hinum risastóra 12 lítra
rykpoka ncegjanlegt rými.
HOOVER
er heimilishjálp.
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
SENDUM
BÆKLINGA
Tryggvi Kristinsson, vinnur hjá Ísal:
Nei, ekki ennþá. Það gæti verið að ég
brygði mér. Ég sá þárna myndina Land
og syni um daginn og þótli hún ágæt.
Svanberg Jakobsson gluggaþvottamað-
ur: Nei, og ég hef litinn hug á því. Oft
eru myndir á svona kvikmyndaháiíðum
siðlausar og ég horfi ekki á slikt.
Jóhann Ásmundsson hljóðfæraleikari:
Nei, ég hef ekkeri af þeim séð. Ég hefði
þó hug á að sjá einhverja þeirra.
Steinþór Eyþórsson veggfóórarameist-
ari: Nei, ég hef enga þeirra séð. Mesian
áhuga hefði ég á að sjá islenzku mynd-
ina, Litla þúfu.
Sigriður Guðmundsdóttir húsmóðir:
Nei, það hef ég ekki. Ég gæti vel
hugsað mér að sjá margar þeirra en til
þess þyrfti ég að koma sérstaka ferð i
bæinn ulan af landi.
Spurning
Hefurðu séð eitthvað af
myndunum á kvik-
myndahátíðinni?
Bára Ólafsdóttir húsmóðir: Nei, ég var
að koma í bæinn í gær frá Akureyri.
Og ég hef ekki hugsað mér að sjá neina
af myndunum.