Dagblaðið - 11.02.1980, Síða 18
DAGBLAÖIÐ. MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1980.
Iþróttir
Iþróttir
D
18 ,
d
Iþróttir
íþróttir
Meistarar Liverpool í miklum ham
gegn Norwich á Carrow Road
— unnu Anglíulidid 5-3 í æsispennandi leik. Manchester United tapaði óvænt á heimavelli
David Fairclough er engum líkur.
Eftir fjögurra mánaöa fjarveru úr
aflalliði Liverpool kom hann i stað
David Johnson gegn Norwich og
skoraði þrennu. Og það var einmltt
þessi þrenna sem lagði grunninn að 5—
3 sigri Liverpool yfir Norwich i Austur-
Anglíu. Á sama tima og Liverpool
barflist gegn Norwich i einhverjum
þeim æsilegasta leik, sem fram hefur
farifl i 1. deildinni um langa hriö,
mátti Man. United þola sitt fyrsta tap á
hcimavelli i vetur — gegn Úlfunum.
Hagur Liverpool vænkaðist þvi mjög
um helgina og vist er aö það þarf meira
en litið sterkt liö til þess að ná bikarn-
um úr glerskápnum á Anfield. En vikj-
um aftur að leiknum á Carrow Road i
Norwlch.
Útlitið var þó alls ekki bjart hjá
Liverpool því eftir aðeins 65 sek. hafði
Martin Peters sent knöttinn í netið
framhjá Ray Clemence, sem átti sér
einskis ills von. Síðan kom þáttur
David Fairclough. Þessi rauðhærði
framherji er hreint út sagt ótrúlegur.
Ferill hans hófst fyrir alvöru fyrir rétt-
um fjórum árum. Reyndar lék hann tvo
leiki með Liverpool fyrir áramótin
1975—76, en sló ekki í gegn fyrr en
einmitt gegn Norwich! Hann skoraði
þá eina mark Liverpoo! í leiknum og
það dugði til sigurs. í þeim sjö leikjum,
sem eftir voru af keppnistímabilinu
skoraði Fairclough 6 mörk og mörg
þeirra stórglæsileg. Hann hóf ferílinn
sem varamaður og var nefndur
„supersub” í ensku blöðunum — ekki
að ástæðulausu. Allir bjuggust við að
hann myndi fá fast sæti í aðalliðinu
strax næsta haust en svo fór ekki.
Hvernig svo sem á því hefur staðið
hefur hann ekki náð að tryggja sér
stöðu i liðinu en varla hefur það
brugöizt að hann hefur skorað mikil-
væg mörk þegar hann hefur leikið með.
Hann hefur ekki leikið með Liverpool
siðan i haust en fékk nú tækifæri vegna
þess að aðalntarkaskorari Liverpool,
David Johnson, var meiddur. Ohætt er
að segja að hann hafi gripið það með
höndum tveim og það verður enginn
hægðarleikur fyrir Johnson að ná
stöðu sinni aftur.
Eftir aðeins 4 mín. leik hafði Fair-
clough jafnað metin fyrir Liverpool. Á
18. mínútu bætti hann öðru marki viö
og kom Liverpool yfir, 2—1. „Hraðinn
í leiknum var hreint með ólíkindum,”
sagöi fréttamaður BBC á staðnum.
„Leikmenn þutu fram og aftur með
ógnarhraða og áhorfendur voru svo
sannarlega með á nótunum.” Fyrir hlé
tókst Kevin Reeves að jafna metin og
staðan var því 2—2 í hálfleik.
Hraöinn dempaðist örlitið er síðari
hálfleikurinn hófst en siðan byrjuðu
lætin aftur er 15 min. voru til leiks-
loka. David Fairciough skoraði þá
þriðja mark sitt og kom Liverpool
aftur yfir, 3—2. Ekki liðu nema 6 min.
þar til Justin Fashanou hafði jafnað
fyrir Norwich meö miklu skoti af 25
metra færi. Knötturinn skrúfaðist yfir
Clemence og í hornið fjær.
En Liverpool hafði ekki sagt sitt
síðasta orð. Þegar tvær mínútur voru
til leiksloka skoraði snillingurinn
Kenny Daiglish fjórða mark Liverpool
og áður en dómaranum hafði tekist að
blása til merkis um leikslok haföi
Jimmy Case sent knöttinn enn einu
sinni i net Norwich. Lokatölur 5— 3
og Liverpool marserar markvisst að
fjórða Englandsmeistaratitli sinum á 5
árum. Áhorfendur25.634
A sama tíma og Liverpool sigraði -
Norwich átti aðalkeppinauturinn,
Manchester United, 1 óhemjubasli með
Ulfana, sem voru með frískasta móti.
United tókst aldrei að ná upp almenni-
legum leik og munaöi þar mestu um að
Ray Wilkins náði sér ekki á strik. Eina
mark leiksins skoraði Mel Eves á 25.
minútu með fallegu skoti eftir undir-
búning John Richards. Úlfarnir voru
mun hættulegri og t.d. björguðu þeir
Jimmy Nicholl og Martin Buchan á
línu eftir fallegar sóknarlotur Úlfanna.
Ashley Grimes kom inná fyrir Wilkins
þegar 15 mín. voru til leiksloka en það
breytti engu. Fyrsta heimatap United í I
vetur var staðreynd. Áhorfendur
51.568. Þetta tap getur orðið United
dýrkeypt þvi Liverpool hefur nú háð
tveggja stiga forskoti og hefur leikið
leik minna. En lítum á úrslitin áður en
við höldum lengra.
1. deild
Arsenal — Aston Villa 3—1
Coventry — Manchester C 0—0
Crystal P — Stoke City 0—1
Everton — Ipswich Town 0—4
Leeds— Bolton 2—2
Manchester U — Wolves 0—1
Middlesbrough — Derby 3—0
Norwich — Liverpool 3—5
Nottingham F — Bristol C 0—0
íþróttir
Southampton — Brighton 5—1
WBA — Tottenham 2—1
2. deild
Birmingham — Orient 3—1
Bristol R — Preston frestað
Cambridge— CardiffCity. 2—0
Fulham — Leicester 0—0
Oldham — Luton Town 2—1
Shrewsbury — Charlton 3—1
Sunderland — Bumley 5—0
Swansea — Notts County 0—1
Watford — Chelsea 2—3
West Ham — QPR 2—1
Wrexham — Newcastle 1—0
3. deild -
Blackburn — Blackpool 2—0
Brentford — Wimbledon 0—1
Bury — Oxford 1—2
Carlisle — Exeter 4—1
Chestefield — Rotherham 3—0
Millwall — Barnsley 2—2
Reading—Chester 2—1
Sheffield United — Mansfield 1—0
Swinson — Sheffield Wed. 1—2
4. deild
Crewe — Aldershot 1—0
Hali fax—Bournemouth 2—0
Peterborough — Northampton 0—0
Portsmouth — Rochdale 3—0
Port Vale — Huddersfield 1—1
Scunthorpe— Bradford 3—3
Tranmere — Lincoln 1—0
Walsall — Darlington 1 — 1
Wigan — Hereford 1 — 1
á föstudag
(3. deild) Colchester — Grimsby 2—1
(4. deild) Stockport — York 1—0
Það var víða fjör í 1. deildinni á
laugardag. Everton fékk hroðalega
útreið á Goodison Park og 31.218
áhorfendur bauluðu á sína menn er
leiknum lauk. Ipswich hafði algera
yfirburði allan tímann og mörkin hefðu
eins getað orðið 7 eða 8. Það var Paul
Mariner sem kom Ipswich á skrið strax
á 4. mínútu. Tvö stórkostleg mörk frá
Alan Brazil og Eric Gates á fyrstu 10
mín. síðari hálfieiks gerðu siðan endan-
lega út um allar vonir Everton. Alan
Brazil bætti svo öðru marki sínu við 15
mín. fyrir leikslok og gengi Ipswich er
nú gott. Liðið hefur unnið 6 af sjö
síðustu útileikjum sinum —eitt jafn-
tefli. Vörn Ipswich var geysisterk með
þá Russell Osman og Terry Butcher,
sem beztu menn. Kevin Beattie lék með
Ipswicnh eftir langa hvild — kom í stað
Mick Mills sem var meiddur. Þá lék
Kevin O’Callaghan sinn fyrsta leik fyrir
Ipswich síðan hann var keypturfyrir
200.000 pund fráMillwall.
Brighton fékk heldur betur á bauk-
inn i Southampton. Leikmenn
Southampton fóru á kostum allt frá
byrjun og leikmenn Brighton vissu vart
hvaðan á þá stóð veðrið. Dave Watson
— miðvörðurinn sterki — skoraði
fyrsta mark Southampton á 8. mín. og
Mick Channon bætti öðru við á 20.
minútu og þannig stóð þar til i leikhléi.
Síðan kom þriðja mark Southampton
og var vægast sagt kostulegt. Ivan
Golac þeysti þá inn í vítateig Brighton
og var klossbrugðið. Allir biðu eftir því
að dómarinn flautaði og dæmdi víta-
spyrnu en aldrei kom neitt flaut.
Knötturinn rann til Phil Boyer, sem rak
tánna i hann og innfyrir marklínuna,
3—0 . Rétt á eftir skoraði Peter Ward
eina mark Brighton en því var svarað
með látum af Southampton, sem
skoraði tvö mörk á 3 mín. kafla. Fyrst
skoraði Holmes og þá Hebberd og stór-
sigur Dýrlinganna i höfn. Neil McNab
lék sinn fyrsta leik meö Brighton eftir
söluna frá Bolton fyrir 150.000 pund
en þótti ekki sýna neitt sérstakt.
Ársenal heldur enn fjóröa sætinu
eftir öruggan sigur á Aston Villa, sem
hafðiaðeins tapað einu sinni i 17 leikj-
um þar á undan. Alan Sunderland
skoraði tvö markanna en Graham Rix
eitt og hann þykir liklegastur til að
halda merki Liam Brady á lofti fari svo
að hann haldi til meginlandsins að
keppnistímabilinu loknu. Eina mark
Aston Villa skoraði Dennis Mortimer
en Arsenal hafði allan tímann tögl og
hagldir.
Bolton krækti sér alveg óvænt í stig á
Elland Road. Neil Whatmore skoraði
strax á 1. mínútu en Kevin Hird
þurrkaði þá forystu út er hann jafnaöi
metin úr vitaspyrnu á næstu mínútu.
Arthur Graham kom Leeds svo yfir en
Roy Greaves tókst aö jafna fyrir
Bolton áður en leiknum lauk.
Roy McFarland á heldur betur en
ekki minningar frá Ayrsome Park í
Middlesbrough á laugardag. Hann lék
sinn fyrsta leik með Derby í langan
tíma en var rekinn út af um miðjan síð-
ari hálfleikinn. Middlesbrough var
aldrei í vandræðum og þeir Ashcroft,
Armstrong og Burns skoruðu mörkin.
Cyrille Regis tryggði West Brom-
wich Albion tvö góö stig gegn Totten-
ham en eina mark gestanna skoraði
Glenn Hoddle. Albion viröist nú aðeins
vera að rétta úr kútnum eftir afleita tíð
að undanförnu.
Stoke vann afar óvæntan sigur á
Crystal Palace á Selhust Park og ekki
mun af veita í botnbaráttunni. Eina
mark leiksins skoraöi Lee Chapman í
síðari hálfieik. Nottingham Forest
virðist enn eiga talsvert langt i land með
sitt bezta form og tókst aðeins aö ná
öðru stiginu i slökum leik gegn Bristol
City. Þar settu afleitar aöstæöur einna
helzt mörk á lcikinn og leikmenn áttu í
stökustu erfiðleikum með að komast á-
fram í drullunni.
Þá er aðeins leiks Coventry og
Manchester City ógetið og mun víst
varla þörf á því að bæta úr því. Leikur-
inn þótti vægast sagt slakur.
i annarri deildinni vænkast hagur
West Ham stöðugt og liðið á nú mögu-
leika á að endurheimta 1. deildarsæti
sitt ef fram fer, sem horfir. West Ham
lagði um helgina QPR að velli á Upton
Park og þrátt fyrir að sigurinn væri i
hæsta máta sanngjarn var sigurmarkið
af ódýrustu gerð. Sending kom fyrir
mark QPR og þar stökk miðvörðurinn
Bob Hazell hærra en allir aðrir og sendi
knöttinn með þrumuskalla í eigið net.
QPR náði forystu í leiknum með marki
Goddard á 35. mínútu en Stuart
Pearson jafnaði á44. mínútu.
Á sama tíma töpuðu bæði Luton og
Newcastle mikilvægum stigum. Luton
virðist vera að missa flugið heldur
betur að undanförnu. David Moss
skoraði fyrir þá fyrst en síðan skoraði
Vic Halom tvívegis fyrir Oldham. Mel
Sutton tryggði Wrexham sigur gegn
Newcastle, sem nú hefur tapað tveimur
leikjum í röð. Leicester, sem var i topp-
sætinu fyrir helgina, mátti sjá af öðru
stiginu í hendur Fulham og þykir það
vafalítið góður árangur á Craven
Cottage i þessum síðustu og verstu tím-
um. Birmingham heldur sínu striki og
þrenna frá Keith Bertchin tryggði sigur
gegn Orient. ÖU mörk hans komu á 10
mín. kafla og það dugði skammt þótt
Joe Mayo minnkaði muninn fyrir
Orient. Stan Cummings fór á kostum í
Sunderland og skoraði 4 mörk fyrir
heimamenn gegn Burnley, sem hefur
ekki tapað jafn illa frá því í 0—7 tapinu
gegn QPR í haust. Chelsea komst i 2.
sætið með góðum sigri á Watford.
Mesti áhorfendafjöldi keppnistimabils-
ins fylgdist með leiknum. Jenkins og
Blissett skoruðu fyrir Watford en
Britton, Johnson og Walker fyrir
Chelsea. Shrewsbury sýnir enn góða
takta og sigraði nú Charlton, sem
tapaði þar með sínum sjötta leik i röð
3—1. Biggins, Dundworth og King
skoruðu mörkin. Riley og Finney
skoruðu mörk Cambridge gegn Cardiff
og Cambridgeernú úr allri fallhættu.
Staðan ídeildunum er nú þessi:
1. deild
Liverpool 25 15 7 3 55—19 37
Manch. Utd. 26 14 7 5 40—19 35
Southampton 28 13 6 9 46—32 32
Arsenal 27 11 10 6 33—21 32
lpswich- 28 14 4 10 42—31 32
Nottm. For. 26 12 5 9 38—31 29
Aston Villa 25 10 9 6 32—26 29
Crystal P. 28 9 11 8 30—30 29
Middlesbro 25 11 6 8 28—22 28
Norwich 26 9 10 7 41—38 28
Wolves 26 11 6 9 30—30 28
Leeds Utd. 27 9 10 8 32—34 28
Coventry 27 12 3 12 38—43 27
Tottenham 27 10 7 10 33—38 27
WBA 27 8 9 10 39—39 25
Manch. City 27 9 6 12 28—43 24
Everton 27 6 11 10 30—36 23
StokeCity 26 8 7 11 28—35 23
Brighton 27 8 7 12 35—44 23
BristolC. 28 5 9 14 20—40 19
Derby C. 28 6 4 18 24—45 16
Bolton 25 1 10 14 18—44 12
2. deild
Leicester 28 13 10 5 42—27 36
Chelsea 27 16 3 8 49—34 35
Newcastle 28 14 7 7 41—30 35
Luton Town 27 12 10 5 46—30 34
Birmingham 26 14 5 7 35—25 33
Sunderland 27 13 6 8 46—34 32
West Ham 25 14 3 8 34—24 31
Wrexham 28 14 3 11 34—32 31
QPR 27 12 5 10 49—36 29
Orient 27 9 9 9 34—41 27
Cardiff 28 11 5 12 26—34 27
Notts Co. 28 9 8 11 37—34 26
Cambridge 28 7 12 9 38—36 26
Preston 27 7 11 9 33—33 25
Swansea 27 10 5 12 28—36 25
Shrewsbury 28 10 3 15 40—41 23
Oldham 25 8 7 10 27—31 23
Bristol R. 26 7 7 12 33—41 21
Watford 27 6 9 12 21—30 21
Burnley 27 6 9 12 30—49 21
Charlton '27 5 7 15 24—48 17
Fulham 26 6 4 16 26—47 16 -SSv.