Dagblaðið - 11.02.1980, Qupperneq 29
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1980.
29
Landssamband
íslenzkra
aksturs-
íþróttamanna
AKSTURSÍÞRÓTTAFELÖG
LANDSINS SAMBNAST
Fyrsti aðalfundur Landssambands
íslenzkra akstursíþróttamanna var
haldinn á Hótel Esju 26. janúar síðast-
liðinn en stofnfundur samtakanna
hafði verið haldinn undir lok siðasta
árs. Á aðalfundinum voru fulllrúar
allra helzlu klúbba og félaga sem hafa
akstursiþróttir á stefnuskrá sinni eða
lita á bílinn sem annað og meira en
bomsu eða skóhlíf sem menn smokra
sér í til að vökna ekki í fæturna.
Tilgangurinn með stofnun LÍA er að
sameina alla akstursíþróttamenn og
vinna að sameiginlegum áhuga- og
hagsmunamálum þeirra, kynna iþrótt-
irnar innanlands og hafa samband við
erlenda aðila sem vinna að bifreiða-
íþróttamálum. Þá mun LÍ A koma fram
fyrir hönd klúbbanna gagnvart opin-
berum aðilum, sjá um öll leyfi og ganga
frá tryggingum fyrir keppni. LÍA sér
um að samræma keppnisalmanök
klúbbanna svo tveir klúbbar eða fleiri
séu ekki með keppni sömu dagana.
Slikt myndi án efa skaða báða klúbb-
ana auk þess sem eldheitir bifreiða-
iþróttaáhugamenn yrðu þá að velja á
milli og missa af annarri keppninni. Þá
þarf að samræma keppnisreglur, tíma-
tökur, skilti og merki sem notuð erui
keppni, samræma punktakerfi hinna
einstöku íþróttagreina og halda saman
áunnum stigum einstakra keppenda svo
að hægt sé að krýna íslandsmeistara í
akslursiþróttum. LÍA mun vinna að
þvi að fá tolla fellda niður af keppnis-
bilum og gömlum bílum. Keppnis-
almanakið, öll lög klúbbanna og
keppnisreglur verða gefnar út í einni
bók. Smærri klúbbar úti á landi verða
aðstoðaðir við keppnishald en þá
kemur sameiginlegur lækjabanki
klúbbanna sér vel.
Stjórn LÍA er skipuð fimm mönnum
og er hlutverk hennar einkum að undir-
búa landsþing sambandsins en þau tvö
á hverju ári. Fyrsta stjórn LÍA var
kosin á aðalfundinum og er Örvar
Sigurðsson formaður landssambands-
ins. Örvar er öllum bifreiðaáhuga-.
mönnum að góðu kunnur en hann
hefur verið formaður Kvartmilu-
klúbbsins frá upphafi. Hefur hann
unnið ötullega að framgangi bifreiða-
íþróttamála á íslandi og má með sanni
segja, að öðrum ólöstuðum, að Örvar
hafi gert meira en nokkur annar fyrir
þessa íþróttagrein. Aðrir í sljórn LÍA
eru Ólafur Guðmundsson, Bifreiða-
íþrótlaklúbbi Reykjavíkur, Pálmi Þor-
steinsson, Bifreiðaíþróttaklúbbi Húsa-
víkur, Páll Kristjánsson, Bílaklúbbi
Akureyrar, og Otto Einarsson, Vél-
hjólaklúbbi Reykjavíkur.
Akstursíþróttaráð
Dagleg stjórn, rekstur og fram-
kvæmdir verða í höndum sex manna
öryggisráðs sem nefnist Aksturs-
íþróttaráð. Meginverkefni Akslurs-
íþróttaráðs verður að útvega og veita
leyfi til akstursiþróltakeppni.
Akstursíþróttaráð mun sjá um trygg-
ingar fyrir klúbbana og fulltrúi
ráðsins mun ávallt mæta á keppni,
fylgjast með keppni, taka úl keppnis-
brautirnar, hafa eftirlit með óskráð-
um bílum og sjá til þess að öllum
öryggisreglum sé fylgt. Ef einhverjum
öryggisairiðum er ábótavant getur
fulllrúi Akstursíþróttaráðs slöðvað
kepp'nina alveg eða þar lil viðkom-
andi atriði hefur verið lagfært. í
keppni er meginhlutverk Aksturs-
íþróttaráðs að sjá til að ekki hljótist
óhöpp eða slys af akstursíþróttum.
Svo sem fyrr sagði er öryggisráðið
skipað sex mönnum. Auk þeirra eru
sex varamenn í ráðinu og hver
akstursiþróttaklúbbur hefur auk þess
sinn öryggisfulltrúa sem mun starfa
með og aðstoða fulltrúa Aksturs-
íþróttaráðs í keppni. Fulltrúar
Akstursíþróttaráðs eru skipaðir af
klúbbunum en ekki kosnir.
Hver klúbbur skipar fulllrúa fyrir
sina akstursíþróttagrein og þar sem
fleiri en einn klúbbur Ieggur stund á
sömu íþróttagreinina koma þeir
klúbbar sér saman um mann í ráðið.
Þessi tilhögun er höfð með það í huga
að Akslursíþróttaráðséávallt skipað
einvalaliði sem hafi mikla og góða
þekkingu á þeim akstursíþróttagrein-
um sem það starfar fyrir. Fyrsta
akstursiþróttaráð LÍA er skipað
þessum mönnum: Ásgeiri Þorvalds-
syni sem sér um kvartmílu- og sand-
spyrnukeppni, Árna Árnasyni sem
sér um rall- og sparakslur, Sigurjóni
Harðarsyni sem sér um rallycross,
iscross og ísakstur, Birni Guðmunds-
syni sem sér um torfærukeppni og
góðaksturskeppni, Ragnari
Guðmundssyni sem sér um vélhjóla-
keppni og Friðriki Gunnarssyni sem
er fulltrúi FÍB í Akstursíþróttaráði.
Búast má við að sérsmíðuðum keppnisökutækjum fjölgi mjög og hér sjáum við tvö
slik. motocrosshjól á fleygiferð við Sandfell. DB-mynd Jóhann Kristiánsson.
Bifreiðafþróttakeppnum fjölgar mikið á þessu ári og má segja að næsta sumar verði
keppt i bifreiðalþróttum um hverja helgi einhvers staðar á landinu. Á myndinni sést
Chrysler kókosbollan taka spymu eftir kvartmílubrautinni í Kapelluhrauni.
DB-mynd Lilja Oddsdóttir.
Flestir áhugasömustu bifreiðafþróttamenn landsins voru saman kontnir á aðalfundi LÍA og höfðu þeir margt til að ræða um.
ÐB-mynd RagnarTh.
FÍB er svo aftur fulltrúi FÍA
(Alþjóðasamband bíla- og akslurs-
klúbba) og verður því að fylgjast með
öllum akstursíþróttum.
Keppnisalmanak
1980
Öruggt er að meðlimir Aksturs-
íþróttaráðs munu hafa meira en nóg
að gera á þessu ári þvi nú þegar eru
skráðar 34 akstursíþróttakeppnir á
árinu. Sú fyrsta hefur þegar verið
haldin en það var ísaksturskeppni
BÍKR. Við birtum hér keppnis-
almanakið svo að vænlanlegir kepp-
endur og áhorfendur geti farið að
búa sig og farartæki sín undir átökin
en almanakið lítur svona út:
I0. febrúar Vélsleðakeppni Húsavik.
8. marz Isakstur, Sauðárkróki.
5. april Góðakstur ísafirði.
26.-27. apríl, Kvartmila við
Straumsvik.
11. maí Sparakstur BÍKR Reykjavik.
18. maí. Rallycross BÍKR Reykjavík.
24.-25. maí. Kvartmíla við Slraums-
vik.
31. maí. Torfærukeppni á Hellu.
31. maí —1. júnl. Rally BÍKB
Borgarfirði.
I. júní Motocross á ísafirði.
15. júní. Sandspyrna Kvarlmilukl. í
Ölfusi.
21. júní Vélhjólakeppni við Sandfell
22. júní. Rallycross BÍKR Reykjavík.
28.—29. júni. Kvartmílukeppni við
Straumsvík.
6. júlí Torfærukeppni Akureyri.
12. júlí. Rally á Húsavík.
13. júli Sandspyrna Kvartmilu-
klúbbsins í Ölfusi.
19. —20. júlí Kvartmilukeppni við
Straumsvík.
26. júlí Rallycross BÍKR í Reykjavík.
27. júli Vélhjólakeppni við Sandfell.
9. ágúsl Sandspyrnukeppni á Sauðár-
króki
10. ágúst Sparakstur á ísafirði.
16.—17. ág. Kvarimílukeppni við
Straumsvík.
20.—24. ág. Rally BÍKR.
30. —31. ág. Sandspyrna Akureyri.
31. ágúst. VélhjólakeppnU"við
Sandfell.
7. sept. Torfærukeppni Stakks í
Grindavik.
14. sept. Torfærukeppni á Akureyri.
20.—21. sept. Kvartmílukeppni við
Straumsvík.
27.-28. sept. Rallycross BÍKR
Reykjavík.
11. —l2.okt.Rallycross BÍKR Reykja-
vík.
18.—19. okt. Kvarimílukeppni við
Straumsvik.
25.-26. okt. Rally BÍKR Reykjavik.
Jóhann Kristjánsson
var
fyrirsama verð og Binbýlishús
§wj* mvcnivinpiiAi íbí ó Ciiainfs^Ai t
Vfa nUaMkllllllUUni 111 wk DlylUUfUl;
Samanburöur
Lauslegir útreikningar og saman-
buröur á veröi og byggingartíma,
hefur hvaö eftir annað leitt í Ijós
kosti húsanna frá Siglufirði. 110m?
einbýlishús hefur ekki veriö dýrara
en 4. herb. íbúö (fjölbýlishúsi.
Gæöi
Húseiningar h.f. á Siglufiröi hafa
umfram allt fengið orö fyrir efnis-
gæði og vandaða framleiöslu.
Margvíslegar teikningar, sem laga
má aö hugmyndum hvers og eins,
ásamt öllum uppiýsingum fást í
bókinni „Nýtt hús á nokkrum
dögum".
SVARSEÐILL
Vinsamlega sendið
mér eintak
af bókinni, mér aö
kostnaðarlausu! Nafn:
Heimilisfang:
Ókeypis byggingabók
Ef þú fyllir út svarseöil og sendir
okkur, munum viö senda þér
ókeypis eintak af bókinni um hæl.
„Nýtt hús á nokkrum dögum" er
rúmlega 50 síöur í stóru broti, meö
48 tillöguteikningum af einbýlis-
húsum, og ýmsum upplýsingum.
Þú getur einnig fengið eintak með
því aö hafa samband við söluskrif-
stofu okkar i s(ma: 15945. í Rvik
HÚSEININGAR HF
Póstnr.:
Sími: