Dagblaðið - 07.03.1980, Page 4
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 7. MARZ 1980.
DB á ne ytendamarkaði
ANNA
BJARNASON
Nýtt og f ullkomið alif uglasláturhús í Mosf ellssveit:
Sendir 6000 kjúklinga inn
i eilífðina í hverri viku
f ramleiðsla samkvæmt ýtrustu kröf um
„Sláturhúsið er byggt eftir
kröfutn og tillögum yfirdýralæknis,
fyrsta og eina hús sinnar tegundar á
landinu, öll önnur alifuglasláturhús
eru á undanþágu,” sagði
Skarphcðinn Össurarson varafor-
maður hlutafélagsins Hreiðurs, sem
rekur nýtt og mjög fullkomið
alifuglasláturhús nálægt Teigi í Mos-
fellssveit. Þar eru framleiddir
alifuglar undir vörumerkinu ísfugl.
Slátrun hófst i húsinu í september
sl. og kostnaður við húsnæði og
tækjabúnað er um 200 milljónir
króna.
Afköst eru 500—600 fuglar á
Enginn fiskur, ekkert kjöt
og engar hreinlætisvörur
— segir „Patróna” sem er með rúmlega 19
þúsund kr. meðaltal
,,Þá sendi ég minn fyrsta seðil,
sem er í rauninn lítið marktækur, þar
sem ekkert var keypt af kjöti, fiski
eða srnjöri. Nóg var til al' þvi i frysli-
skápnum," segir í brél'i frá
„Patrónu”, húsmóður á Patreks-
lirði.
Hún er með rúml. 19 þús. á mann
og fimm manna fjölskyldu.
„Eins var með hreinlætisvörur.
Þær voru keyptar í heildsölu i haust
og duga frameftir árinu.
1 liðnum „annað” (sem er upp á
rúml. 300 þúsund kr.), er t.d. síma-
reikningur 24.330 kr., brunabóta-
gjald upp á 12.891 kr., vixill upp á)
148.667 kr„ þorrablót á 25.000 ásamt
ýmsu fleiru.”
klukkustund. Markaður fyrir
kjúklingakjöt er áætlaður 500—800
tonn á ári og fyrir hænsnakjöt
100—200tonn áári.
Forráðamenn Hreiðurs hf. sögðu
að framleiðsla og neyzla kjúklinga-
kjöts hefði farið hraðvaxandi á
síðustu árunt. Það var árið 1963 sem
framleiðsla kjúklingakjöts hófst í
nokkrum mæli og í framhaldi af þvi
voru 5 sláturhús fyrir fugla reist i
landinu. Þegar liða tók á 7. áratuginn
stóðu flestir þeir aðilar sem stunduðu
alifuglaslátrun framrni fyrir þvi að
þurfa að endurnýja húsa- og vélakost
sinn og aðlaga reksturinn tækni og
heilbrigðiskröfum. Komu upp hug-
myndir um að kjúklingabændur
slægju saman í eina vinnslustöð af
hagkvæmri stærð sem einnig gæti séð
um dreifingu.
Árið 1977 var hafizt handa um
undirbúning og hlutafélag myndað
um byggingu sláturhúss. Hluthafar
eru nú liðlega 40 talsins, fiestir
bændur sem hafa atvinnu af fram-
leiðslu alifuglaafurða.
Upplýsingaseðill
til samanburöar á heimiliskostnaði
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Hvaö kostar heimilishaldiö?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttakandi i upplýsingamiðlun
mcðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið
þér von f að fá nytsamt heimilistæki.
Kostnaður í febrúarmánuði 1980,
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annaö kr.
Alls kr.
m Y IKiX
Fjöldi heimilisfólks
Stöðinni var valinn staður í Mos-
vellssveit með hliðsjón af því að hún
skyldi þjóna Suður- og Vesturlandi'
og er þvi miðsvæðis þar. Vegna ná-
lægðar við Reykjavíkursvæðið, aðal-
markaðssvæði, er aðveldara að sinna
viðskiptum. Þannig má setja á
markað án fyrirhafnar ferskt kjöt til
aukinnar hagkvæmni og samkvæmt
óskum neytenda. -ARH.
Kjúklingar renna eftir færiböndunum einn á eftir öðrum. Framleitt er undir eftir-
liti heilbrigðisyfirvalda og sláturhúsið byggt i samræmi við tillögur og kröfur yfir-
dýralæknis. DB-mynd Hörður.
GLÓÐAR KIÚKLINGUR 700-1000 GR. 8VIKNA HOLDA UNGHANI FRÁ1800GR 10-20 MÁjJAÐA
HOLDA KIÚKLINGUR 1000-1200 GR. 8-10 VIKNA HOLDA UNGHÆNA FRA 1400 GR. 10-20 mAnaoa
HOLDA REGINN 1200-1800£R. 10-14 VIKNA UNGHÆNA FRA 1000 QR 10-20 MANAÐA
Nýtt f lokkunarkerf i
fyrir kjúklin; ga
„Áður hafa neytendur aðeins átt
kost á að kaupa kjúklinga senr í
stórum dráttum eru flokkaðir í
unghænur annars vegar og holda-
kjúklinga hins vegar. Með
fiokkuninni sem við innleiðum gefst í
fyrsta sinn kostur á mun nákvæmara
vali eftir aldri og þyngd. Þeir er gera
miklar kröfur, t.d. veitingahús, geta
þannig valið sér hráefni af ná-
kvæmni,” sagði Halldór Hestnes
sölustjóri hjá Hreiðri hf.
Hér á síðunni er birt spjald með
vöruflokkum fyrirtækisins. Glóð-
arkjúklingur er einkum notaður
til að grilla, unghæna er ung
varphæna, holdaunghæna er hæna
notuð til undaneldis fyrir holdafugla,
holdareginn er stærsti kjúklingurinn.
Auk þess er framleidd „súpu-
hæna”, fugl sem er rneira en 20
mánaða, aðallega ætluð til súpu- og
salatgerðar.
Hægt er að fá bæði heila fugla og
brytjaða og ennfremur er von á lifur
og hjörtum í neytendaumbúðum.
-ARH.
Halldór Hestnes sölustjóri.
DB-mynd: Hörður.