Dagblaðið - 07.03.1980, Page 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR7. MARZ1980. 5
10. umferð Reykjavíkurskákmótsins:
BROWNE ÞARF AÐ BERJAST
FYRIR JAFNTEFU V» HAUK
— Margeir vann Jón L. f f lóknustu skák umf erðarinnar
Biðskák Vasjúkovs og Torre úr
níundu umferð.
Það fór eins og margan grunaði.
Vasjukov átti ekki í neinum erfiðleik-
um með að innbyrða vinninginn í
jressari biðskák. Frípeðin þrjú sem
hann átti á kóngsvæng sáu um sig
sjálf og runnu upp í borð.
Guðmundur — Miles 1/2 : 1/2
Þeir voru ekki beint hressir stór-
meistararnir. Eftir aðeins sextán leiki
sömdu þeir um jafntefli og var þá
ntikil barátta eftir í stöðunni.
Schiissler— Helgi 1/2 : 1/2
í drottningarindverskri byrjun
urðu snemma uppskipti sem urðu
hvorugum keppandanum í hag. Var
þá sætzt á skiptan hlut.
Kupreitshik — Vasjukov 1/2 : 1/2
Jafntefli eftir aðeins þrettán leiki í
uppskiptaafbrigði spánska leiksins.
Landarnir voru greinilega búnir að
semja fyrir skákina, þeir brostu allan
timann framan i hvor annan og léku
hratt.
Heel Bxa6 25. Dxa6 Hd2 26. Hfl
Dxb2?
Eftir 26. — Hxb2 hefur svartur
mun meiri vinningsmöguleika
27. Habl Da2 28. Hbcl h6 29. Dxc6
Dd5 30. Dc3 Dd4
Tímahrakinu er nú lokið og það er
Ijóst að ameríski stórmeistarinn þarf
aðberjast fyrir jafnteflinu.
31. Dc6 Ha2
Browne — Haukur Biðskák
Skák dagsins að þessu sinni verður
á milli Hauks og Browne frá Banda-
rikjunum. Haukur hefur svart og
byrjunin er móttekið drottningar-
bragð.
1. d4 d5 2. c4 dxc4 3. Rf3 Rf6 4. e3 e6
Miles lék hér 4. — Bg4 gegn
Browne fyrr í mótinu, sem er
skarpari leikur.
5. Bxc4 c5 6. 0—0 a6 7. a4 cxd4 8.
exd4 Rc6 9. Rc3 Be7 10. Hel 0—0 11.
Bg5 Rb4 12. Db3 Rc6 13. Ddl Rb4
Býður upp á jafntefli en það er
greinilegt að Browne sættir sig ekki
við skiptan hlut.
14. Re5 Rc6
Kemur hann enn! Haukur teflir
svarta taflið markvisst til jafnteflis.
15. Rxc6 bxc6 16. Re4 Rxe4 17. Bxe7
I)xe7 18. Hxe4 Bb7
Staðan hefur nú einfaldast
nokkuð og möguleikarnir vega
nokkuð jafnt.
19. He5 Ilfd8 20. Dd3 Hd6 21. h3
Had8 22. Bxa6 Hxd4 23. Dfl Df6 24.
32. Hc4 Da7 33. Dc7 Dxc7 34. Hxc7
Hd4 35. Ha7 Hxa4 36. Hxa4 Hxa4
37. Hbl Ha2 38. h4 g6 39. g3 Kg7 40.
Kg2 f5 41. Kf3 Kf6 42. Hb6 g5 43.
hxg5 hxg5 44. Hc6 Ha4 45. Hb6 Hel
46. Ha6 g4+ 47. Kg2 Hel 48. Hb6
Hdl 49. Ha6 Ke5 50. Ha5+ Ke4 51.
Ha4+ Hd4 52. Ha6 e5 53. He6 Hc4
og hér fór skákin i bið. Jafntefli eru
liklegustu úrslitin.
Kupreitshik
vantar einn
vinning í
stórmeistarann
Með jafntefli sinu við Vasjúkov í
gærkvöld nálgaðist Kupreitshik
alþjóðlega stórmeistaratitil sinn um
hálfan vinning. Hann á nú ótefldar
þrjár skákir á mótinu. Honum nægir
einn vinningur eða tvö jafntefli til
þess að öðlast réttinn til að verða
alþjóðlegur stórmeistari. Hann er nú
alþjóðlegur meistari.
Fyrri áfangann að þessu marki fór
hann á sovézka meistaramótinu, sem
fram fór í desember síðastliðnum.
Þeir, sem hann á eftir að tefla við á
Reykjavíkurmótinu eru reyndar
engir liðléttingar. í kvöld teflir hann
við Torre, annað kvöld við Sosonko,
og á sunnudagskvöldið við Browne.
-BS.
Úrslit í 10.
umferðinni:
Fjögur jafntefli urðu í gærkvöld,
þegar 10. umferð Reykjavíkurskák-
mótsins var tefld á Loftleiðahótelinu.
Úrslit urðu þessi:
Kupreitshik — Vasjúkov: 1/2—1/2
Schússler— Helgi: 1/2—1/2
Guðmundur—Miles: 1/2—1/2
Sosonko — Torre: 1/2 — 1/2
Jón L. — Margeir : 0— 1
Browne — Haukur: Biðskák.
Sosonko — Torre 1/2 : 1/2
Þetta var þung skák þar sem
tékkneskur benóní var tefldur.
Sosonko komst litt áleiðis gegn
sterkri vörn Filippseyingsins og varð
að lokum að sætta sig við sitt_ fynsta
jafntefli með hvítu mönnunum.
Jón L. — MargeirO : I
Flóknasta skák umferðarinnar.
Jón náði snemma tveim mönnum
fyrir hrók og tvö peð og hafði lengst
af vænlegastöðu. I tiinahraki urðu
honum síðan á alvarleg mistök
þannig að taflið snerist við. Margeir
vann biskup og átti síðan ekki i
erfiðleikunm með að vinna taflið
nieð hrók á móti riddara.
H. schussler 242o
Sosonko litur ekki af skákinni, þótt hann rísi á fætur með kaffibollann. Þorsteinn Þorsteinsson er dómari og einn i móts-
stjórn. Hann hefur augun á skákinni hjá Miles og Schiissler.
Lognið á undan storminum?
FJOGUR JAFNTEFLI
ÍGÆRKVÖLDI
— þrjár umferðir eftir á mótinu
„Þetta getur nú varla batnað
meira,” sagði einn áhorfenda, þegar
hann sá að á ganga og skákskýringa-
sal voru komin litsjónvarpstæki, sem
sýndu skákir og keppendur beint úr
keppnissal. ,,Það er erfitt að hugsa
sér annan stað fyrir svona mót,”
sagði annar. Menn eru sammála um,
að á Loftleiðahótelinu er nú orðið sú
aðstaða fyrir keppendur og áhorf-
endur að til fyrirmyndar er.
Áhorfendur komu æði dreift á 10.
umferðina, sem tefld var i gærkvöld.
Þeir urðu reyndar ekki mjög margir.
Ég þykist sjá, að ýmsir fastagestir
hafa verið að hvíla sig, ef svo má
segja, til þess að sækja með fullum
þunga þrjár síðustu umferðirnar.
Það er jafnvel ástæða til að benda
mönnum á, að þeir sem fyrstir koma
eiga kost á að velja sér sæti. Annars
er aðstaðan svo góð, að nærri má
segja, að ekki skipti verulegu máli,
hvar setið er. Allir þekkja, hvað það
er þægilegt að teygja úr sér og rápa
milli salarkynna við slíkar aðstæður.
Þetta sást til dæmis í gær, þegar
skákskýrendur og áhorfendur voru
mislangt komnir við að skoða æsi-
spennandi skákir þeirra Jóns L. og
Margeirs annars vegar og Hauks
Angantýssonar og Browne hins
vegar.
Þessir voru meðal áhorfenda í gær-
kvöld, svo að einhverjir séu nefndir:
Ólöf Þráinsdóttir, Guðjón Sig-
urðsson verkstj., Magnús Sigurjóns-
son forstm., Þórir Oddsson vara-
rannslögreglustj. Egill Valgeirss. hár
skerani., Jónas Pétur Erlingsson,
Ingvar Ásmundsson fjármstj., dr.
Ingimar Jónsson, Ólafur H. Ólafsson
viðskfr., Kristinn Bergþórsson stór-
kaupm., Jón Þorsteinsson lögfr.,
Thomas Martin, deildarstj.
'Menningarstofn. Bandar, Kristín
Guðjohnsen, Bragi Kristjánsson,
Pósti & sima, Jónas Bjarnason efna-
verkfr., Haraldur Haraldsson
verzlm, Áslaug Kristinsdóttir, Guð-
mundur G. Þórarinsson alþm, dr.
Hallgrimur Helgason tónskáld,
Ólafur Helgason Útvegsbanka isl.,
Guðriður Friðriksdóttiur, Birna
Norðdal, Atli Ólafsson forstj.,
Signntndur Böðvarsson lögm., Björn
Sigurðsson, póstm., Björgvin Gríms-
son stórkaupm., Alda Snæhólm.
SKÁKMAÐURINN
—f rímerki með stimpli mótsins
Tímaritið Skák kernur út eftir
hverja umferð og er að sjálfsögðu seit
á Loftleiðahótelinu. Auk þess gefst
mönnum kostur á að skoða og kaupa
sitthvað sem skákunnendur láta sig
ekki vanta. Bæði eru það skákborð
og annað, sem til þarf, og skák-
bókmenntir. Þar á meðal er saga
„Einvígisins” árituð og í geitaskinn.
bandi.
Það nýjasta á skákmarkaðinum
eru frímerkjaumslög með sérstimpli
mótsins í fjórum Iitum. Auk þess er
hægt að fá með þessum sérstaka póst
stimpli mótsins umslag með
skemmtilega hönnuðu merki FIDE-
þingsins, sem haldið verður hér i
Reykjavik i aprilmánuði næst-
komandi.
Þarna er lika skákdæmakorl
frímerkt og alveg tilbúið til að senda
þeim er maður vill fá eitthvað til að
iglíma við, svo eitthvað sé nefnt.