Dagblaðið - 07.03.1980, Side 8

Dagblaðið - 07.03.1980, Side 8
8 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 7. MARZ 1980. BMW 320 árg. 1979 Renault 12 TL árg. 1977 BMW316 árg. 1978 Renault 12 L árg. 1976 BMW 316 árg. 1977 Renault 12 station árg. 1975 BMW 518 árg. 1976 Renault 12 station árg. 1971 BMW 2800 árg. 1969 Renault 12 TL árg. 1971 BMW 1802 árg. 1973 Renault 6 TL árg. 1972 Renault 20 TL árg. 1978| Renault 5 GTL árg. 1978 Renault 16 TL árg. 1975i Renault 4 VAN F6 árg. 1980 Renault 16 TL árg. 1973! Renault 4 VAN F6 árg. 1979 Renault 16 TS árg. 1972 Renault 4 VAN F6 árg. 1978 Renault 14 TL árg 1978 Renault 4 VAN F4 árg. 1979 Renault 12 TL árg. 1978 Renault 4 VAN F4 árg. 1974 KRISTINN GUÐNASON HF. SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633 Skemmuvegj 14 Köpavogi /nnréttingar í alla íbúðina — ek/hús bað; fataskápar, sóí- bekkir og stigahandrið. 1X2 1X2 1X2 27. leikvika — leikir 1. marz 1980. Vinningsröð: 11X-221-XX2-120 1. vinningur: 11 réttir — kr. 2.348.500.- 7063 (Reykjavík) 2. vinningur: 10 réttir — kr. 125.800.- 1333+ 30880 31281(2/10) 31304 32591 41350(2/10) Kærufrcstur er til 24. marz kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera skrifleg- ar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og aðaiskrifstofunni. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina. Handhafar nafnlausra seðla verða að framvisa stofni eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir út- borgunardag. GETRAUIMIR - íþróttamiðstöðin - REYKJAVÍK Ford Maverick árgerð 1974, innfl. 1978, blásanseraður, V—8 302, út- varp, snjódekk, sportfelgur, loft- demparar, transitor-kveikja, sflsakróm. Bill f algjörum sérflokki. Til sölu GMC Rally Wagon 1978, rauður og grásanseraður, útvarp, segulband, og vetrardekk, V—8 sjálf- skiptur. Sæti fyrir 11 farþega. Fallegur bill. Bílasalan Skerfan Skeifunni 11. Símar 3S03S og848‘ Mazda 121 árg. 1978, ekinn 31.000, rauður, fimm gira, útvarp, segulband, vetrar- og sumardekk. Verð 5,3 millj. Sinfóníuhljómsveit íslands þrjátíu ára: „ÁHUGALEYSIS GÆT1R HJÁ FJÖLMIDLUM” — um starfsemi hljómsveitarinnar, segja f orráðamenn Á sunnudag eru þrjátíu ár liðin frá því að Sinfóniuhljómsveit Islands hélt sina fyrstu tónleika. Það var i Austurbæjarbíói 9. marz 1950. í tilefni afmælisins verða tónleikar í Háskólabíói á laugardag kl. 17.00. Aðgangur að þeim tónleikum er ókeypis og geta allir komið sem vilja á meðan húsrúm leyfir. Á þessum þrjátíu árum, sem Sinfóníuhljómsveit íslands hefur starfað, hefur starfið aukizt og meiri áhuga gætir nú hjá almenningi en áður. Á blaðamannafundi sem haldinn var í tilefni afmælisins kom m.a. frant að fjölmiðlar ættu ntikla sök á að ekki væri þó meiri áhugi en raun ber vitni. Töldu forráðamenn Sinfóníu- hljómsveitarinnar að ekki væri fjallað um klassíska tónlist eins og annaðefni. Bentu þeir á að fyrir þrjá- tiu árunt hafi verið fjallað tim Sinfóníutónleika og íþróttir í litlum klausum. Nú væri hins vegar fjallað urn iþróttir á heilu síðunum og jafnvel á opnum en tilkynningar frá Sinfóníuhljómsveit íslands, væru oftast skornar niður og oft ekki birtar í blöðum. Óskadraumur Sinfóníuhljóm- sveitarinnar á afmælisárinu að fá eigið húsnæði fyrir tónleikahald. Hefur sú ósk gengið á milli fjögurra ráðherra en enn ekki verið fjallað um það mál. Nú greiðir Sinfóníuhljóm- sveitin 840.000 krónur fyrir afnot af Háskólabíói eitt kvöld til tónleika- halds. Starfsár Sinfóníuhljóm- sveitarinnar er frá septemberbyrjun til júníloka. Æft er á hverjum virkum degi og tónleikar eru að meðaltali einu sinni i viku. Auk þess spilar hljómsveitin fyrir útvarpið, á skóla- tónleikum og viðar. Hefur einnig færzt í aukana siðustu ár að hljóm- sveitin hafi farið út á land og haldið tónleika. Hefur það mælzt mjög vel fyrir að sögn forráðamanna hljónt- sveitarinnar. Einnig hefur hljómsveitin verið nteð óperur, nú síðast La Traviata. Hefur verið mjög góð aðsókn að óperunum, sem Sinfóníuhljómsveitin fiefur verið með. Þá hefur hljóm- sveitin ennfremur verið með létt- klassíska tónlist og hefur sú tegund tónlistar dregið að nýja áheyrendur. Hefur Sinfóniuhljómsveit íslands reynt með því að brydda upp á meiri breidd og farið inn á léttari svið. Framkvæntdarstjóri Sinfóníu- hljómsveitar Íslands er Sigurður Björnsson. Fastir hljóðfæraleikarar eru 59. Það má minna á að á af- mælisdag hljómsveitarinnar, á sunnudag, verða tónleikar Sinfóníu- hljómsveitarinnar í sjónvarpssal í tilefni afmælisins. Stjórnandi er Páll P. Pálsson og kynnir Sigurður Bjömsson. -KLA. Dýralæknirinn (lengst til vinstri) kveður upp dóm sinn: Hestinum verður ekki bjargað. Björn Sigurðsson lögreglumaður heldur klárnum. Lögreglan varð að aflífa hest — eftirað ekið hafði veríð á hann Ekið var á einn af hestum Þorgeirs Jónssonar i Gufunesi i gærmorgun. Varð hesturinn fyrir bifreið skammt frá Gufunesi og mun hafa lærbrotnað. Árbæjarlögreglan var kölluð á veh- vang og átti hún ekki annars úrkosti en að aflífa hestinn. Að sögn lögreglunnar kemur það anzi oft fyrir að hestar eru utan girðingar á þessum slóðum og ekki virðist nægilega vel gætt aðþeim. -GAJ. Hér er hann allur. Lögreglumaðurinn I miðið heldur á byssunni, aðra lögreglu- þjóna ber að. -DB-myndir: Sv. Þorm. Rollurnar láta ekki að sér hæða Þær voru vel á sig komnar, kindurnar, sem þrír hraustir bændur úr Helgustaðahreppi fundu í eftirleit sl. sunnudag i Gerpi (hann er á milli Sandvíkur og Vöðlavíkur norðanmegin). Þetta var ein rolla með fallegum hrút síðan í fyrravor og tvær vetur- gamlar kindur. Það er gott land í Gerpi, klettasyllur miklar, þar sem fuglinn verpir i, og þvi gott beitiland. Ovenju ntargar kindur vamaði i Helgustaðahreppi er farið var í leitir í haust og er þetta þriðja eftirleit sem farin er. Hafa alls 10 kindur fundizt i þeim leiturn. Álíta leitarmenn að enn séu fleiri kindur i Gerpi, en yfirleitt er ákaflega erfitt að komast þar að vegna ntikillar hálku og svella. Hins vegar koma kindur þaðan af og til landsntegin, þá að eigin geðþótta. -Regína/EVI.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.