Dagblaðið - 07.03.1980, Síða 9

Dagblaðið - 07.03.1980, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 7. MARZ 1980. 9 NORÐMENN EIGA STRAX AÐ FÆRA ÚT EINHUDA — við Jan Mayen, segir Káre Willoch, leiðtogi norsku stjórnar- andstöðunnar „Ég tel engan vafa á hv>. að Jan Mayen sé norsk samkvæmt þjóðrétt- arlegum skilningi, og að þar eigi að virða ákvarðanir norskra stjórn- valda,” sagði Káre Willoch, stór- þingsmaður Hægriflokksins i Noregi, er fréttamaður DB leitaði álits hans á Jan Mayen-málinu. ,,Ég tel, að norsk stjórnvöld eigi að tilkynna einhliða útfærslu nú þeg- ar,” sagði Willoch. „Ef við gerunt þetta ekki, er augljós mikil hætta á því, að fiskverndarsjónarmið verði alveg fyrir borð borin,” sagði Willoch. Hann taldi af þeirri ástæðu, að Norðmönnum bæri skylda til út- færslu efnahags- og fisk- veiðilögsögunnar við Jan Mayen. „Það er ásetningur norskra stjórnvalda að hafa samráð við Káre Willoch: Enginn vafi á að Jan Mayen er norsk eign samkvxmt þjóðréttar- legum skiiningi. DB-mynd: Hörður. Islendinga unt sameiginlega hags- nuini. Takist ekki slíkt santráð eða samkomulag, þá er hætta á ferðum. Ekki vegna veiða islendinga og ekki sérstaklega vegna veiða okkar, heldur vegna vaxandi sóknar allra annarra fiskveiðiþjóða í miðin.sem yrðu innan stækkaðrar lögsögti,” sagði Káre Willoch. Hann er leiðtogi stjórnarand- stöðunnar á Stórþinginu norska. Hann hefur gagnrýnt sljórnina Itarðlega fyrir linkind við íslendinga i Jan Mayen-ntálinu. „Bezt væri, ef samkomulag næðisl,” sagði Willoch, ,,cn að öðru leyti verður að haf'a i huga nauðsyn þess, l'rá fiskverndarsjónarmiðum, að l'æra út efnahags- og fiskveiðilög- söguna við Jan Mayen". -BS. Norðmenn eiga allan rétt til Jan Mayen — og á það geta aðrar þjóðir vel fallizt, segir Johan J. Jakobsen, þingmaður Miðflokksins íNoregi „Það er að minu mati afar slæmt að þurfa að bcita einhliða aðgerðum. Það er yfirleitt ekki rétt að velta fyrir sér alls konar möguleikum, sem gætu haft vond áhrif á samkomulag, sem annars er mjög vel hugsanlegt,” sagði Johan J. Jakobsen, stórþings- ntaður norska Miðflokksins, í viðtali við DB. Hann taldi að fyrst og fremst ættu Norðntenn og íslendingar að komasl að samkomulagi um Jan Mayen. Jakobsen telur ekki neinn vafa á þvi, að Norðntenn eigi réttinn til Jan Mayen. „Ég býst við því að ekki aðeins Norðmenn lelji allan rétt sin megin, heldur hygg ég að aðrar þjóðir fallist á það.” „Samkvæmt viðteknum reglum þjóðaréttar, ciga Norðmenn réttinn til Jan Mayen að öllu leyti,” sagði .lakobsen. „Þess vcgna geta engir aðriren Norðmenn færi út lögsöguna þar. Hins vegar hafa Íslendingar og Norðntenn santeiginlega hagsmuni varðandi lögsögu eyjunnar. Um þá og vegna þeirra eiga þessar þjóðir að ná samkomulagi,” sagði Jakohsen. -BS. Jakobsen: Sameiginlegir hagsmunir Norðmanna og tslendinga við Jan Mayen. Hvers vegna er ekki töluð íslenzka og ekki túikað fyrir íslendinga á þingi Norðurlandaráðs? OKKAR FULLTRÚAR HAFA EKKIÓSKAÐ EFTIR ÞVÍ — segir Friðjón Sigurðsson, f ramkvæmdastjóri íslandsdeildar „Ástæðan fyrir því að ekki er túlkað á islenzku hér er einfaldlega sú, að íslenzku fnlltrúarnir hafa ekki óskað eftir þvi. F.nda kjósa þeir sjálfir að tjá sig á skandinaviskum málum,” sagði Friðjón Sigurðsson, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, við Dagblaðið. Ýntsir hafa furðað sig á að ekki skuli vera túlkað á islenzku það sem fram fer á þingi Norðurlandaráðs og að íslenzkir fulltrúar skuli ekki nota sitt móðurmál i umræðum. Allur málflutningur sem fram fer á finnsku er túlkaður. Er það í fyrsta sinn sem slíkt er gert á Norðurlanda- ráðsþingi á Íslandi. „Finnarnir hafa hér sérþjálfað lið við túlkun. Þetta er ntjög kostnaðar- santt fyrirtæki, en sanit býst ég við að citthvað hel'ði verið gerl i málinu at okkar hálfu el'okkar fulltrúar hefðu óskað þess. Friðjón sagði að þinghaldið hefði gengið vel fyrir sig og erlendir fulltrúar virtust ánægðir nteð fram- kvæmdarhliðina. Að minnsta kosti hafi ekki borizt kvartanir um l'yrir- konnilag eða aðbúnað. Umræður liafa stundum dregizt meira á langinn en dagskrá gerir ráð l'yrir. Annars heftir allt l'arið vel að stöfnum. Norðurlandaráðsþing hafa tvisvar áður verið halditi i ÞjóðlcikhCisinn og þvi reyndist l'remur fyrirhafnarlitið að koma l'yrir nauðsynlegum tækjum’ og húsbúnaði. Margt af því sem notað var áður hel'ur verið i geymslum — og verður valalausi gcymt þar til aljur verður þingað hér á landi. -ARII. Friðjón Sigurðsson: islenzku l'till- trúarnir kjósa aó tjá sig á skandinavisku. Ligflugfargjöld, bókamarkaður og umferðaröryggisár 1982: Glistrupist- inn sagði alltaf NEI „Gamla fólkið á bara að fá hærri ellilífeyri og það getur ráðið því sjálft hvernig það eyðir sínunt peningum,” sagði Leif Glensgaard þingmaður Framfaraflokks Glistrups i ræðu á þingi Norðurlandaráðs um tillögu þar sem gert var ráð fyrir að flugfar- gjöld fyrir aldraða yrðu tækkuð. Glensgaard hefur greitt atkvæði gegn eða setið hjá i atkvæða- greiðslum um fjárframlög til ntenningarmála á Norðurlöndum þegar þau hefur borið á góma á þinginu. Glensgaard hefur áður setið þing Norðurlandaráðs og jafnan ver- ið óspar á að nota orðið NEI er greidd eru alkvæði unt fjárfrantlög til menningarmála. Hann greiddi nt.a.s. alkvæði gegn tillögu á þinginu í Reykjavík um að árið 1982 skuli vera sérstakt untferðaröryggisár á Norðurlöndunt. Hann greiddi söntuleiðis atkvæði gegn tillögu unt santeiginlegan bókamarkað á Norðurlöndum. Þar var gert ráð fyrir að bækur útgefnar á Norðurlöndum yrðu seldar á sama verði i öðrum Norðurlöndum og i heimaiandinu. -ARH. INTERNATIONAL Herzig hártoppar eru: Eðlilegir, léttir og þægilegir. Auðveldir í hirðingu og notkun. ® • Leitið upplýsinga ogfáiðgóð ráð án skuldbindinga. • Fyrstaflokks framleiðsla, sem hœfir vel tslendingum. |HÁRSNYRTISTOFAN «, itit Y Laugavegi24, II. hæö Sími 17144.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.