Dagblaðið - 20.03.1980, Síða 4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1980.
DB á ne ytendamarkaði
ANNA
BJARfMASON.
.x*
Úruppskrífta-
samkeppninni:
Rúgterta með
smjörkremi
Margir hafa hringt i sambandi við
uppskriftirnar í keppni Dagblaðsins
•og Uandssambands bakarameistara
og óskað eftir að fá fleiri uppskriftir
birtar. Við munum fyrst í stað birta
þær tuttugu og fimm uppskriftir sem
voru með i lokakeppninni. Þá hafa
margar konur látið í Ijós undrun yfir
því að vinningskökurnar innihéldu
fullmikinn sykur og hvítt hveiti í stað
þess að vera sykurlaust „bakkelsi” úr
grófu mjöli. — í þvi sambandi má
benda á að ekki voru fyrirmæli um
það í reglum keppninnar að um væri
að ræða sérstakt „hollustubrauð”,
þótt auðvitað sé æskilegt að taka fullt
Rúgtertan er þriggja laga með smjörkremi á milli. Sendandi uppskriftarinnar
segir að hún sé betri ef hún fær að geymast f nokkra daga. Númeríð sem sjá má á
blaði á myndinni er númer uppskríftarínnar en ekki röð kökunnar I keppninni. Af
kökunum tuttugu og flmm I lokakeppninni voru aðeins valdar þrjár, sem fengu
hæsta einkunn dómnefndarinnar eftir að hún hafði smakkað á öllum tegundunum.
DB-mynd Bjarnleifur. .
r- '**
tillit til pess. — Hins vegar voru
margar af þessum tuttugu og fimm'.
uppskriftum sykurlitlar kökur með
grófu mjöli. Fer hér á eftir uppskrift
að rúgtertu með smjörkremi.
’Höfundur er Elín Þorvaldsdóttir,
Akranesi.
500 gr rúgmjöl
250 grsmjörlíki
250grsykur
legg
4 tsk kakó
2 tsk kanill
2 tsk negull
1 tsk hjartarsalt
2tsk lyftiduft
2 dl mjólk
Smjörkrem og sulta
Deigið er hnoðað létt og laust.
Skipt í þrjá hluta. Flatt út fremur
blautt eða þrýst í 3 ferhyrnd mót ca
23 x 23 cm. Bakast í 25 mín. við 180°
hita. Þegar botnarnir eru orðnir
Uppskrift
dagsins
kaldir eru þeir smurðir með þunnu
lagi af sultu og látnir saman með
smjörkremi. Úr þessu fæst ein stór
kaka sem er um 1,6 kg á þyngd. Rúg-
tertan geymist mjög vel og er reyndar
betri ekki alveg glæný.
Smjörkrem
lOOgr sólblóma
150 grflórsykur
2 tsk rommessens
200 gr sulta
Þegar uppskriftin var send inn í
nóvemberlok var hráefniskostnaður
við rúgtertuna 1099 kr.
- A.Bj.
Varð fyrifVonbrígðum með saltið:
ÞAÐ RENNUR EKKI
„Jæja, þá er það febrúar, ekki er
hann lægri en aðrir mánuðir þó hann
sé styttri. Skýringin er sú að ég kaupi
inn vikulega, á föstudögum, og þeir.
voru fjórir eins og í flestum mánuð-
um. Þar að auki voru tvö afmæli hjá ”
mér í febrúar.
Ég rak upp stór augu þegar ég sá
að þið voruð að mæla með íslenzka
.saltinu. Ég var nýbúin að kaupa það
Raddir
neytenda
og varð heldur en ekki fyrir von-
brigðum. Það rennur ekki og er eins
Vi
J.
BlLRÚÐAN
Isetningar á staðnum.
SKÚLAGÖTU 26
SÍMAR 25755 0G 25780
og blautur snjór! Ég vona að ég hafi
bara verið svona óheppin með minn
poka.
Á.H., Reykjavík.”
Milligrófleiki
á saltinu
Það er alveg laukrétt hjá Á.H.
íslenzka saltið „rennur ekki” eins og
fínt borðsalt. Það er heldur ekki fínt,
— raunar heldur ekki gróft í þeim
skilningi sem við erum vön, heldur af
einhvers konar milligráðu. Hins
vegar klessist eða kögglast íslenzka
saltið ekki.
Það er alveg tilvalið til þess að hafa
í litlum saltkörum með saltskeið á
borðinu. Við höfum það í salt-könnu
á kryddhillunni við hliðina á eldavél-
inni og notum það í allan mat. Eins
og getið var um á sínum tíma köggl-
ast þetta salt alls ekki og okkur hefur
líkað það alveg prýðilega. í saltstauk-
ana notum við eftir sem áður venju-
legt fínt borðsalt.
Þessi Reykjavíkurhúsmóðir er
með sex manna heimili og meðaltalið
hjá henni í febrúar er rúmlega 43 þús-
und kr. á mann. En eins og hún
bendir réttilega á voru fjórir föstu-
dagar í febrúar, þannig að þeir sem
gera stórinnkaup aðeins einu sinni í
viku, koma út með mikil innkaup,
þennan mánuðinn. Marz verður
sennilega ekkert betri, hann
héfur einnig fjóra föstudaga. Hann
hefur reyndar fimm laugardaga
þannig að þeir sem vanir eru að gera
stórinnkaupin þá daga vikunnar
verða með stórútgjöld.
-A.Bj.
Bæði þessi efni eru prýðileg til að nota við hreingerningu á baðherbergjum, bæði
til að ná kalk- og kisilblettum af postulinsfUsum og einnig til þess að ná blettum úr
baðkerum og vöskum.
DB-mynd Hörður.
Hreinsar
postulíns-
flísar vel
Við vorum með ráðleggingar um
hreinsun á baðherbergisflísum i
síðustu viku. Ráðlagt var að nota
.fíngert ræstiduft og fíngerða stálull
til þess að ná kalk- og kísilflekkjum
af postulínsflísum.
Okkur var sent sérstakt
hreinsiefni til þess að nota á þessar
flísar, Hercules flísa- og hreinlætis-
tækja ræstiduft. Við prófuðum það á
flísum, sem voru einmitt með kalk-
og kísilblettum. Varð ekki annað séð
en þetta væri prýðilegt hreinsiefni. —
Hercules ræstiduftið fæst hjá J. Þor-
láksson og Norðmann og kostar 800
kr., en í brúsanum eru 396,9 gr. —
Einnig var okkur' bent á annað
hreinsiefni, Jif, 270 ml á 425 kr. (í
Viði, Starmýri). Jif er i fljótandi
formi og reyndist einnig mjög vel.
-A.Bj.
Neytendamálin
íbrennidepli
Næstkomandi sunnudag verður
haldin ráðstefna um neytendamál á
vegum Landssambands sjálfstæðis-
kvenna og Hvatar. Ráðstefnan er
haldin í Sjálfstæðishúsinu, Háaleitis-
braut 1 og hefst kl. 9.30 um
morguninn.
Eins og nafn ráðstefnunnar bendir
til verður fjallað um neytendamál og
verða fluttar framsöguræður fyrir
hádegi. Margrét S. Einarsdóttir
form. Landssambands sjálfstæðis-
kvenna setur ráðstefnuna. Eftir há-
degisverðarhlé verða pallborðsum-
ræður og loks almennar umræður.
Þeir sem flytja framsöguerindi eru
Arndís Björnsdóttir kaupmaður, sem
ræðir málin frá sjónarhóli kaup-
manna, Anna Bjarnason blm. ræðir
málin frá sjónarhóli viðskiptamanna,
Dröfn Farestveit hcimilisfræðikenn-
ari ræðir um viðhorf og vitund neyt-
enda, Salome Þorkelsdóttir alþingis-
maður um neytenda- og byggðamál á
Islandi, Jónas Bjarnason verkfræð-
ingur um neytendamál erlendis og
Hrafn Bragason borgardómari ræðir
um neytendamál og löggjöf, núver-
andi stöðu og hvert beri að stefna.
Davíð Oddsson borgarfulltrúi
stjórnar pallborðsumræðum eftir'
matarhlé, en í þeim taka þátt Jónas
Bjarnason verkfræðingur, Halldór
Blöndal alþingismaður, Jóna Gróa
Sigurðardóttir húsmóðir, dr. Alda
Möller matvælafræðingur og
Magnús E. Finnsson framkvætnda-
stjóri Kaupmannasamtaka Íslands.
Eftir almennar umræður flytur
Geir Hallgrímsson formaður Sjálf-
stæðisflokksins samantekt og loks
verður ráðstefnunni slitið af for-
manni Hvatar, Björgu Einarsdóttur.
Ráðstefnugjald er 3000 kr. og er
morgun- og síðdegiskaffi innifalið.