Dagblaðið - 20.03.1980, Page 6

Dagblaðið - 20.03.1980, Page 6
6 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1980. JAFNT HJÁ HUBNER OG ADORJAN í ANNARRIUMFERD Slórmeistararnir Robert HUbner frá Vestur-Þýzkalandi og Ungverjinn Andras Adorjan gerðu jafntefli í ann- arri skák sinni í einvíginu um réttinn til að skora á heimsmeistarann í skák. Anatole Karpov. Einvígi þeirra fer fram í borginni Bad Lauterberg í Vestur-Þýzkalandi. í fyrstu skákinni varð einnig jafntefli. Kapparnir munu tefla tiu skákir. Mjög fullkomið CASIO tölvuúr á hagstæðu verði. CASIO einkaumboð á Íslandi Bankastræti 8. Sími 27510 NÝKOMIÐ Í skákinni í gær hafði Adorjan hvítt og valdi Ruy Lopez byrjun. Hubner svaraði með mjög opinni vörn sem hafði í för með sér algjört jafntefli i endataflinu. Adorjan bauð jafntelfi í níljánda leik sem Hubner þáði. Þriðja skákin verður tefld á morgun að öllu óbreyttu. Hvor keppandi hefur heimild til að fresta skákum tvisvar og Adorjan hefur þegar notfært sér þá heimild einu sinni áður en önnur umferðin fór fram. Erlendar fréttir Túnis: Saksóknarinn vill dauðadóma Rikissaksóknarinn í Túnis hefur krafizt dauðadóms í máli skæruliða sem í janúar réðust inn i námuborgina Gafsa í Suður-Túnis og urðu 50 manns að bana. Saksóknari vill dæina til dauða alla skæruliðana sem báru vopn í árásinni. Kunnugir segja að 34 af 60 skæruliðum séu í þeiin hópi. Ákæruvaldið í Túnis heldur því fram að Líbýa standi á bak við árás skæru- liðanna og að þeir hafi fengið hern- aðarþjálfun í Líbýu og Líbanon. CITROÉN VARAHLUTIR Driföxlar fyrir GS Tímareimar fyrir G.S. | Varahlutir — Viðgerðir E. Óskarsson Skeifunni 5. Sími 34504. heildarútgAfa JÚHANNS G. 500 tölusett og árituð eintök 10 ára timabil. 5 LP-plötur á kr. 15.900. PÓSTSENDUM: NAFN: _______________________ HEIMILI: •_____________ Puntunarsími COOÍIO kl. 10—12 Ou4UJ Sólspil & Á.Á, Hraunkambi 1, Hafnarfirði. TILVALIN FERMINGARGJÚF Bretland: Elisabet drottning Breta mætti á frumsýningu kvikmyndarinnar Kramer versus Kramer sem nýverið var frumsýnd i London. Drottningin lét ekki þar staðar numið heldur mætti i skrúðgönguna sem var i London á laugardaginn i tilefni af degi heilags Patreks en sá dagur er haldinn hátiðlegur mjög af lrum og fleiri kaþólikkum. Myndin sýnir Elisabetu drottningu ásamt móður sinni Mariu, sem eitthvað er að aðstoða dóttur sina áður en hún gengur fram fyrir þegna sína. Fylgið hrynur af Margréti Brezki Verkamannaflokkurinn hefur nú 12,5% meira fylgi en íhalds- menn undir forustu Margrétar Thatcher forsætisráðherra ef marka má síðustu kannanir fyrirtækisins Gallup. Verkamannaflokkurinn nýtur, samkvæmt könnuninni, fylgis 49,5% Breta. ihaldsflokkurinn aftur á móti aðeins 37%. Er þetta veruleg breyting frá fyrra inánuði, þegar munurinn var aðeins 4,5 af hundraði. Niðurstöður skoðana- könnunarinnar voru birtar i brezka blaðinu Daily Telegraph í morgun. Þar var einnig komizt að þeirri niður- stöðu að helztu ástæðurnar fyrir óvinsældutn íhaldsflokksins og ríkis- stjórnar Margrétar Thatcher séu sihækkandi verðlag, atvinnuleysi. Vinsældir Margrétar Thatcher hafa minnkað mjög að undanförnu meðal brezkra kjósenda. samdráttur í heilbrigðiskerfinu og fræðslumálum. Virðast kjósendur ekki sætta sig við þær aðgerðir sem Thatcher forsætisráðherra beitir sér nú fyrir. Margrét Thatcher er mikill stuðningsmaður Jiinmy Carters Bandaríkjaforsta í því máli að sniðganga ólytnpíuleikanna í Moskvu á sumri komanda vegna inn- rásarinnar í Afganistan. í skoðana- könnunum hefur komið i Ijós að brezkur almenningur er mjög á móti þessum hugmyndum forsætis- ráðherrans. Einnigeru forustuinenn í íþróttum og íþróttamennirnir sjálfir þessum hugmyndum andví'gir. Bretland var ein þeirra tólf þjóða, sem sendi fulltrúa á ráðstefnu um að- gerðir gegn ólympíuleikunum i Moskvu. Daninöi^- UTLU BUÐIRNAR UPPENNÁNÝ Neytendur í Danmörku eru sem óðast að snúa baki við vörumörkuð- um og stærri verzlunum og færa við- skipti sín á ný til „kaupmannsins á horninu” — smákaupmannanna. Kannanir verzlunarmannasamtak- anna i Danmörku leiða í ljós að þessi tilhneiging er vaxandi meðal neyt- enda um allt landið. Ástæðan fyrir þessari þróun er fyrst og fremst bensínverðið sem rokið hefur upp úr öllu valdi. Það sparar dýrmætan bensíndropa að fara i litlu búðina sem næst er fremur en að aka í næsta stórmarkað. Á seinni árum hafa að meðaltali 170 smákaupmenn hætt starfsemi sinni á hverju ári. Nýir viðskipta- hættir Dana þýða ekki að nú þegar sjái fyrir endann á kollsteypum lítilla verzlana. Hins vegar telja kaup- mannasamtökin að ástæða sé til þess að líta dálitið bjartari augum til framtíðarinnar. Annar Ijós punktur i tilveru danskra kaupmanna er sú staðreynd að 15% fleiri sóttu eftir að komast i kaupmennsku í fyrra en undanfarin ár. Kaupmenn kvíða því ekki að at- vinnugreinarinnar biði dauðinn einn. Greinilegust hafa umskipti í verzlunarháttum orðið á Fjóni, sem er afinarkað svæði með Odense sem aðalþéttbýliskjarnann. Formaður kaupinannasamtakanna á Fjóni segir að neytendur þar hafi mjög dregið úr þvi að fara í fáar en stórar verzlunar- ferðir í stórverzlanir á svæðinu. í slaðinn fara þeir stytztu leið i búð. Og kaupmaðurinn á horninu er hreint ekki óhress með þá þróun inála.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.